Morgunblaðið - 26.04.1989, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989
SJÓNVARP / SIÐDEGI
jO.
6
0
14:30
15:00
15:30
16:00
STOÐ2
15.45 ► Santa Barb-
ara.
16:30
17:00
17:30
18:00
18:30
19:00
16.30 Þ’ Fræðsluvarp. 1. Evrópski listaskólinn
(1), Sænskurfræðsluþáttur um myndlist. 2. Alles
Gute (23), Þýskukennsla fyrir byrjendur. 3. Farar-
heill til framtíðar.
17.50 ► Sumarglugginn. Endur-
sýndurþátturfrás.l. sunnudegi.
Umsjón Árný Jóhannsdóttir.
18.50 ► Táknmáls-
fréttir.
18.55 ► Poppkorn.
19.20 ► Svarta
naðran. (1) Breskur
gamanmyndaflokkur.
16.30 ► Laumuspil (Hanky Panky). Spennumyndsemfjallar
um saklaust par sem óvart flækist inn í hættuleg sakamál og
er hundelt af alþjóðlegum glæpahring. Aðalhlutverk: Gene
Wilder, Gilda Radner, Kathleen Quinlan og Richard Widmark.
Leikstjóri: Sidney Poitier. Ekki við hæfi barna.
18.10 ► Topp 40. Evrópski listinn.
19.19 ► 19:19
SJONVARP / KVOLD
19:30 20:00 20:30 21:00 21:30 22:00 22:30 23:00 23:30 24:00
á\
Vf
19.54 ► 20.00 ► Fréttirog veð- 20.45 ► Grænirfingur. Þátturum garð- 21.55 ► Fjölleikahúsið (Parade). 23.00 ► Ellefufréttir. 23.55 ►
Ævintýri ur. rækt. Frönsk gamanmynd frá 1974 í leik- 23.10 ► Fjölleikahúsið Dagskrárlok.
Tinna. 20.30 ► Söngvakeppni 21.00 ► Taggart. Ókeypis dauði — Loka- stjórn JacquesTati sem einnig leikur framhald.
evrópskra sjónvarps- þáttur. Taggart lögregluforingí rannsakar aðalhlutverk. Sirkuslíf erviðfangsefni 23.30 ► íþróttir. Sýndarsvip-
stöðva 1989. óvenjulegt morðmál. Tati í þetta sinn, og lýsir hann því á myndirfrá leik íslendinga og
sinn einstæða hátt. Finna íkörfuknattleik.
b
!)
STOÐ2
19.19 ► 19:19. Fréttirogfréttaum-
fjöllun.
20.30 ► Skýjum ofar(Reaching for 21.35 ► Af bæ í borg (Perfect Strangers). Gam-
the Skies). Myndaflokkur í tólf þáttum anmyndaflokkur um frændurna Larry og Balki.
um flugið. (10). 22.00 ► Spenna íloftinu (ThinAir). Framhalds-
myndaflokkur ífimm hlutum. (2). Leikstjóri: An-
tonia Bird.
22.55 ► Viðskipti. íslenskur þáttur um viðskipti o.fl.
23.20 ► Heima er best (How Green Was My Valley).
Margfðld óskarsverðlaunamynd eftir leikstjórann John Ford
sem gerist í kolanámubæ í Wales. Aðalhlv.: Walter Pidge-
on, Maureen O'Hara o.fl.
01.15 ► Dagskrárlok.
ÚTVARP
RÍKISÚTVARPIÐ
FM 92,4/93,6
6.45 Veðurfregnir. Bæn, sr. Þórhildur
Ólafs flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 i morgunsárið með Ingveldi Ólafs-
dóttur. Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, frétt-
ir kl. 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Lesið
úr forystugreinum dagblaðanna að loknu
fréttayfirliti kl. 8.30. Tilkynningar laust
fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. Sagan af Hildi góðu
stjúpu. Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson les
úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Fyrri hluti.
(Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00.)
9.20 Morgunleikfimi. Umsjón: Halldóra
Björnsdóttir.
9.30 Islenskur matur. Kynntar gamlar
íslenskar mataruppskriftir sem safnað er
í samvinnu við hlustendur og samstarfs-
nefnd um þessa söfnun. Sigrún Björns-
dóttir sér um þáttinn.
9.40 Landpósturinn — Frá Vestfjörðum.
Umsjón: Finnbogi Hermannsson.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Óskastundin. Helga Þ. Stephensen
kynnir efni sem hlustendur hafa óskað
eftir að heyra, bókarkafla, smásögur og
Ijóð. Tekið við óskum hlustenda á mið-
vikudögum kl. 17.00 — 18.00.
11.00 Fréttir.
11.03 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir. (Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti.)
11.53 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 i dagsins önn — Atvinna kvenna I
dreifbýli. Umsjón: Hilda Torfadóttir. (Frá
Akureyri.)
13.35 Miðdegissagan: „Brotið úr töfra-
speglinum" eftir Sigrid Undset. Amfríður
Sigurðardóttir þýddi. Þórunn Magnea
Magnúsdóttir byrjar lesturinn.
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Norrænir tónar.
14.36 Islenskir einsöngvarar og kórar.
Svala Nielsen, Þjóðleikhúskórinn, Hreinn
Pálsson og Karlakórinn Vísir á Siglufirði
syngja íslensk og erlend lög.
15.00 Fréttir.
15.03 Hugurinn ber þig hálfa leið. Tölvur í
íslenskum iðnaði. Umsjón Jón Gunnar
Grjetarsson. (Endurtekinn þáttur frá
mánudagskvöldi.)
15.45 Þingfréttir.
18.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið. Umsjón: Sigurlaug
M. Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist á síðdegi — Mendelssohn
og Mozart.
- Oktett i Es-dúr eftir Felix Mendelssohn.
Vínarborgaroktettinn leikur.
- Konsert fyrir flautu og hljómsveit nr. 2
i D-dúr eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Wolfgang Schulz leikur með Mozarteum-
hljómsveitinni í Salzburg; Leopold Hager
stjórnar.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson, Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll
Heiðar Jónsson. Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá. Þáttur um menningarmál.
Umsjón: Friðrik Rafnsson og Halldóra
Friðjónsdóttir.
20.00 Litli barnatiminn. (Endurtekinn frá
morgni.)
20.15 Nútímatónlist. Þorkell Sigurbjörns-
son kynnir verk samtímatónskálda.
21.00 Smásögur.
— „Hermaðurinn og stúlkan" eftir Martin
A. Hansen. Sigurjón Guðjónsson þýddi.
— „Saklaust gaman” eftir Anton Tsjekov.
Lesari: Þórdis Arnljótsdóttir.
21.30 Starfsmenntun unglinga. Umsjón:
Ásgeir Friðgeirsson. (Endurtekinn þáttur
frá sl. föstudegi úr þáttaröðinni „i dagsins
önn“.)
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Mannréttindavernd á vettvangi Sam-
einuðu þjóðanna. Umsjón: Guðrún Eyj-
ólfsdóttir.
(Einnig útvarpað á föstudag kl. 15.03.)
23.10 Ðjassþáttur. Umsjón: Jón Múli Árna-
son.
24.00 Fréttir.
24.10 Samhljómur. Umsjón: Bergþóra Jón-
asdóttir. (Endurtekinn frá morgni.)
1.00 Veðurfregnir. Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
RÁS2 —FM90.1
1.10 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi til
morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagð-
ar fréttir af veöri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veöur-
stofu kl. 4.30. Fréttir kl. 7.00.
7.03 Morgunútvarpið. Leifur Hauksson og
Jón Ársæll Þórðarson. Fréttir kl. 8.00.
Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar dag-
blaðanna kl. 8.30. Fréttir kl. 9.00.
9.03 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Alberts-
dóttur. Afmæliskveðjur kl. 10.30. Fréttir
kl. 10.00 og 11.00.
11.03 Stefnumót. Jóhanna Harðardóttir tek-
ur fyrir það semmeytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Umhverfis landið á áttatíu með Gesti
Einari Jónassyni. Fréttir kl. 14.00.
14.05 Milli mála, Óskar Páll. Útkikkið kl.
14 og rætt við sjómann vikunnar. Fréttir
kl. 15.00 og 16.00.
16.03 Dagskrá. Dægurmálaútvarp. Stefán
Jón Hafstein, Sigríður Einarsdóttir og
Ævar Kjartansson. Kaffispjall upp úr kl.
16.00, hlustendaþjónustan kl. 16.45.
Bréf af landsbyggöinni berst hlustendum
eftir kl. 17. Stórmál dagsins milli kl. 17
og 18.
18.03Þjóðarsálin. Þjóðfundur í beinni út-
sendingu. Málin eins og þau horfa við
landslýð.
19.00Kyöldfréttir,
19.32 iþróttarásin. Umsjón: fþróttafrétta-
menn og Georg Magnússon.
Fréttir kl. 22.00.
22.07 Á rólinu. Anna Björk Birgisdóttir.
Fréttir kl. 24.00.
1.10 Vökulögin. Lög af ýmsu tagi til morg-
uns. Að loknum fréttum kl. 2.00 endurtek-
inn frá þriðjudegi „Bláar nótur" þar sem
Pétur Grétarsson leikur djass og blús.
Að loknum fréttum kl. 4.00 flutt brot úr
dægurmálaútvarpi miðvikudagsins. Frétt-
ir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00
og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
BYLGJAN — FM 98,9
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson. Fréttir kl. 8.00 og Potturinn
kl. 9.00.
10.00 Valdís Gunnarsdóttir. Fréttir kl.
10.00, 12.00 og 13.00. Potturinn kl. 11.
Bibba og Halldór milli kl. 11.00 og 12.00.
14.00 Bjarni Ólafur Guömundsson. Fréttir
kl. 14.00, 16.00 og 18.00. Potturinn kl.
15.00 og 17.00. Bibba og Halldór milli
kl. 17 og 18.
18.10 Reykjavík siðdegis — Hvað finnst
þér? Þú getur tekið þátt í umræöunni og
lagt þitt til málanna. Ómar Valdimarsson
stýrir umræðunum.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 Haraldur Gíslason. Tónlist, kveðjur
og óskalög.
24.00 Næturdagskrá Bylgjunnar.
RÓT-FM 106,8
9.00Rótartónar.
13.30 Opið hús hjá Bahá’íum. E.
14.30 Á mannlegu nótunum. Flokkur
mannsins. E.
15.30 Laust.
16.00 Samband sérskóla. E.
16.30 Frá verkfallsvakt BHMR. Þessi þáttur
verður meðan verkfallið stendur.
17.00 i Miðnesheiðni. Samtök herstöðva-
andstæðinga E.
18.00 Elds er þörf. Umsjón Vinstri sósíalist-
ar.
19.00 Opiö. Þáttur laus til umsóknar.
19.30 Heima og að heiman. Alþjóðleg ung-
mennaskipti.
20.00 Fés. Unglingaþáttur. Umsjón: Arna.
21.00 Barnatími.
21.30 Laust.
22.00 Við og umhverfið. Þáttur í umsjá
dagskrárhóps um umhverfismál á útvarpi
Rót.
22.30 Alþýðubandalagiö.
23.00 Samtök Græningja. E.
23.30 Rótardraugar.
24.00 Næturvakt. Meðal efnis: Kl. 2.00
Hausaskak. Þungarokksþáttur. E.
STJARNAN — FM 102,2
7.00 Þorgeir Ástvaldsson og Páll Þor-
steinsson. Fréttir kl. 8.00 og fréttayfirlit
kl. 8.45. Fréttir kl. 10.00.
10.00 Jón Axel Ólafsson. Fréttir kl. 12.00,
og 14.00.
14.00 Gunnlaugur Helgason. Fréttir kl.
18.00.
18.10 íslenskir tónar. islensk lög leikin
ókynnt í eina klukkustund.
19.00 Freymóður T. Sigurðsson.
20.00 Haraldur Gíslason. Tónlist, kveðjur
og óskalög.
24.00 Næturstjörnur. Ókynnt tónlist.
ÚTRÁS — FM 104,8
12.00 FB
14.00 FG
16.00 MR
18.00 MS
20.00 IR
22.00 FB
24.00 MR
ÚTVARP ALFA — FM 102,9
17.00 Blessandi boðskapur í margvíslegum
tónum.
20.00 Vinsældaval Alfa. Stjórnandi: Jó-
hanna Benný Hannesdóttir. (Endurtekið
nk. laugardag.)
22.00 i miðri viku. Tónlistar- og rabbþáttur.
Stjórnandi: Alfons Hannesson.
24.00 Dagskrárlok.
ÚTVARP HAFNARFJÖRÐUR
FM91.7
18.00 Halló Hafnarfjörður. Fréttir úr Firðin-
um, viðtöl og tónlist.
19.00 Dagskrárlok.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07— 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03—19.00 Svæðisútvarp Norðurlands.
„Glansnúmer?“
Lengi skal manninn reyrta stend-
ur skrifað. Þegar Dagsbrúnar-
menn fara í verkfall dettur ekki
nokkrum manni í hug að ganga í
störf þeirra við höfnina jafnvel þótt
menn kunni á tækjabúnaðinn. Til
allrar hamingju bera menn eftir
áratuga verkalýðsbaráttu virðingu
fyrir rétti verkamannsins til að berj-
ast fyrir mannsæmandi kaupi. En
hér á skerinu virðist gegna svolítið
öðru máli um þá menn er hafa lang-
skólanám að baki. Það ógæfusama
fóik verður margt hvert fyrir aðk-
asti af hendi skammsýnna manna
líkt og tíðkast í vanþróuðum sam-
félögum. Ég hef þegar rakið hinn
einhliða áróður ríkissjónvarpsins
fyrir BSRB-samkomulaginu en þar
með beinist sá aróður óbeint gegn
Bandalagi Háskólamanna. Og svo
eru það starfsfélagarnir á Stöð 2
sem hafa svo sem verið næsta hlut-
lausir í þessari deilu ef frá er talin
hin fáránlega SKÁÍS-könnun sem
er hluti áróðursstríðsins gegn kenn-
urum í BHMR. Valdastéttin hlýtur
að vera harla þakklát ýmsum Ijós-
víkingum því eftir því sem léttist
launaumslag opinberra starfs-
manna fær hún meir í sinn hlut til
að byggja eða kaupa veisluhallir
og umbuna gæðingum.
En fréttamennirnir á Stöð 2 bera
reyndar ekki geislabauga í þessu
áróðursstríði. Þar á bæ hafa menn
framið lymskufull verkfallsbrot að
undanfömu eða hafa áhorfendur
ekki tekið eftir hinum varfærnis-
legu „veðurlýsingum" fréttamanna
Stöðvar 2? Hvað til dæmis um
Ómar Ragnarsson í fyrrakveld er
hann spáði í veðurkortin sem eru
víst fengin gegnum alþjóðlegar spá-
stofur? Hefði Ómar flogið á Frúnni
ef flugvallarslökkviliðsmenn hefðu
tekið pokann sinn og farið í verk-
fall til að kreíjast mannsæmandi
launa? Það mega fréttamenn ríkis-
sjónvarpsins eiga að þeir virða
verkfallsrétt veðurfræðinganna.
Hafa annars „glansnúmer"
fréttaheimsins hugleitt hvað það
þýðir fyrir íslenskt samfélag ef sér-
menntuðu fólki er ber uppi svo
marga þætti hinnar opinberu þjón-
ustu verður á ný hrint í lág-
launadýkið? Kemur þá ekki brátt
að því að foreldrar letja börn sín
til langskólanáms því krakkarnir
fá betur borgað eftir 10 vikna
skrifstofunámskeið en erfitt og
dýrt sérnám er tekur máski sex
ár. Og þegar þessi þróun er einu
sinni farin af stað þá verður hún
ekki svo auðveldlega stöðvuð. Örfá-
ir komast gegnum hið gullna hlið
tannlæknanáms, lögfræði og lækn-
isfræði. Aðrar námsgreinar verða
lítt fýsilegar og þá kémur að því
að krakkarnir sjá sér ekki hag í
framhaldsnámi og hvað verður
þá um grunnskólana? Það er held-
ur dapurlegt að horfa á fréttamenn
líka nauti í flagi vegna áróð-
ursstríðs sem var hafið í bakher-
bergjum stjórnarráða og verkalýðs-
samtaka. Réttast væri að veður-
fræðingar gerðu áhlaup á frétta-
stofu Stöðvar 2. Framtíð lítillar
þjóðar í tæknivæddu stórbanda-
lagasamfélagi verður ekki tryggð
nema með því að meta menntun til
launa.
ístaö Ómars
Mér varð annars hugsað til brott-
farar Ómars af ríkissjónvarpinu er
ég hlýddi á veðurlýsingu kappans.
Fréttamenn ríkissjónvarpsins voru
nánast vængbrotnir er hinn at-
hafnasami „ofurfréttamaður“ hvarf
á braut. En nú eru gömlu starfs-
félagarnir að ná sér á strik. Þannig
hafa þeir skeiðað um landið að
undanförnu og drepið niður fæti á
Ströndum, í Ólafsvík og í Vík í
Mýrdal. Það er sannarlega mikils
um vert að fréttamenn ríkissjón-
varpsins heimsæki hinar dreifðu
byggðir landsins því geisli Stöðvar
2 næst ekki jafn víða og ríkissjón-
varpsins. Ólafur M.
Jóhannesson