Morgunblaðið - 26.04.1989, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1989
Hefur alltaf langað að
skrifa ævintýri fyrir börn
- segir Heiður Baldursdóttir kennari
„ALLT frá því ég var krakki
hefur irtig langað til að skrifa
ævintýri fyrir börn,“ sagði
Heiður Baldursdóttir kennari,
sem hlaut Islensku barnabóka-
verðlaunin í ár fyrir ævintýra-
bókina Álagadalinn, sem er
fyrsta bók hennar.
„Þegar ég var tíu ára ætlaði
ég að skrifa ævintýri og byijaði
að skrifa í þykka bók sem ég
myndskreytti. Seinna þegar ég
var kominn í Kennaraháskólann,
varð mér ljóst að í ævintýrum
takast söguhetjurnar á við ýmis
vandamál og oft er um að ræða
yeikleika eða vandræði hjá sögu-
hetjunum, sem þær síðan sigrast
á,“ sagði Heiður. „í ævintýrum
er tekist á við góð og ill öfl og
hið góða sigra að lokum en það
er b'ömum mjög mikilvægt,“
sagði Heiður. „Það var ekki fyrr
en ég eignaðist tölvu að ég gaf
mér tíma til að skrifa þetta ævin-
týri. Þetta var mjög skemmtileg-
ur tími og ég vildi gjarnan skrifa
fleiri bækur.“
Heiður sagði að dæturnar
tvær, þær Brynhildur og Þórey
Mjallhvít hefðu hjálpað sér mikið
og reynst harðir dómarar. „Þær
lásu bókina þegar hún var tilbúin
og komu þá með góðar ábending-
ar og leiðréttu það sem þeim
fannst ekki geta staðist. Þetta
voru bæði góðar og þarfar ábend-
ingar,“ .sagði Heiður.
Álagadalurinn er saga syst-
ranna Gígju og Krúsu sem ganga
inn í ævintýraveröld og hitta þar
eldfjörugar píslir, sem líkjast
börnum en eru þó ekki börn. Þær
kynnast fugladrottningunni með
silfurfjaðrimar, kettinum Kisa
sem talar mannamál, Silfurdögg,
Mána og hinu fólkinu sem býr í
Álagadalnum.
fram að ekki mætti gleyma mikil-
vægi góðra bamabókmennta, sem
skiptu miklu máli ef vilji væri til
að styrkja framtíð íslenskrar tungu
og stuðla að því að sú kynslóð sem
nú er að vaxa úr grasi nái góðum
tökum á íslensku.
Ármann Kr. Einarsson rithöf-
undur, sagði um leið og hann af-
henti verðlaunin, 100 þús. krónur,
að það væri sér sérstök ánægja að
þau kæmu í hlut áður óþekkts rit-
höfundar. „Það hefur lengi verið
draumur minn að þessi verðlaun
yrðu að veruleika því sjálfur átti
ég í erfiðleikum með að koma út
fyrstu bókunum mínum,“ sagði
Ármann.
í umsögn stjórnar sjóðsins um
„Álagadalinn" segir: „Þetta er
heillandi saga þar sem nútímabörn
hverfa á vit ævintýrsins. Sagan er
spennuþrungin og söguhetjurnar
taka virkan þátt baráttu góðs og
ills. Efnistök höfundar skírskota til
reynsluheims íslenskra barna."
íslensku barnabókaverðlaunin:
Morgunblaðið/Bjarni
Heiður Baldursdóttir ásamt dætrunum, þeim Þóreyju Mjaílhvít
til vinstri og Brynhildi, en þær færðu móður sinni blóm í tilefni
dagsins.
Áður óþekktur höfundur verðlaunaður
ÍSLENSKU barnabókaverðlaunin voru afhent í gær og er það Heið-
ur Baldursdóttir kennari, sem hlýtur þau að þessu sinni fyrir ævin-
týrabókina „Álagadalinn". Þetta er í fjórða sinn sem verðlaunin eru
veitt og í öllum tilvikum fyrir fyrstu bók höfúndar. Rúmlega tutt-
ugu handrit bárust í sagnakeppnina að þessu sinni. Megintilgangur
Verðlaunasjóðs íslenskra barnabóka er að örva fólk til þess að
skrifa bækur fyrir börn og unglinga og stuðla með því að auknu
framboði á lesefhi fyrir æsku landsins.
Sjóðurinn var stofnaður árið
1985 í tilefni af 70 ára afmæli
Ármanns Kr. Einarssonar rithöf-
undar af Bókaútgáfunni Vöku -
Heigafell ásamt fjölskyldu Ár-
manns og nú í ár gerðist Barna-
vinafélagið Sumargjöf formlegur
aðiji að sjóðnum.
í ávarpi Ólafs Ragnarssonar,
formanns stjórnar sjóðsins, kom
Kirkjutónleikar haldnir
í Bóstaðakirkju 26. apríl
SÆNSKA sópransöngkonan Berit Hallqvist og orgelleikarinn Lars
G. Fredriksson halda kirkjutónleika í Bústaðakirkju í dag, miðviku-
daginn 26. apríl kl. 20.30.
Sópransöngkonan Berit Hallqvist
hefur komið fram í mörgum löndum
sem einsöngvari. Hún er einnig
þekkt sem söngkennari og kennir
nú aðallega við tónlistarháskólann
í Stokkhóimi.
Lars G. Fredriksson er einn af
mörgum ungum orgelleikurum í
Svíþjóð. Hann er orgelleikari í
Markúsarkirkjunni í Stokkhólmi, en
hún er vel þekkt fyrir mikið tón-
leikahald. Hann kemur fram sem
einleikari á orgel og undirleikari.
Vorið 1990 mun hann leika orgei-
konsert Duprés með Fílharmóníu-
hljómsveit Stokkhólms.
Þetta er fyrsta heimsókn Berit
og Lars tii íslands.
Charles McPherson saxófón-
leikari leikur á afinælistónleik-
um Heita pottsins á miðviku-
dags- og fimmtudagskvöld.
Charles Mc-
Pherson í
pottinum
Djassklúbbur Reykvíkinga,
Heiti potturinn í Duus-húsi, á
tveggja ára afmæli um þessar
mundir. Af því tilefni verður
afinælishátíð dagana 26. og 27.
apríl.
Bandaríski saxófónleikarinn
Charles McPherson leikur á hátíð-
inni við undirleik Árna Scheving á
víbrafón, Egils B. Hreinssonar á
píanó, Tómasar R. Einarssonar á
kontrabassa og Birgis Baldursson-
ar á trommur.
Charles McPherson ólst upp í
Detroit á sjötta áratugnum. Þar
bjó þá fjölmennur hópur mikilhæfra
djassmanna. Nefna má Elvin Jo-
nes, Tommy Flanagan, Paul Cham-
bers og Pepper Adams. Tvítugur
að aidri flutti McPherson til New
York og var fljótlega kominn til
bassaleikarans og tónskáldsins
Mingusar. Með Charles Mingus var
hann frá 1959 tii 1972, með nokkr-
um hléum. Síðustu áratugina hefur
hann spilað mikið með be-bop-
píanistanum Barry Harris og ferð-
ast víða um lönd.
Á síðustu tveimur árum hefur
Charles McPherson verið mjög í
sviðsljósinu vegna þátttöku sinnar
í kvikmyndinni um saxófónleikar-
ann Charlie Parker, Bird, sem leik-
arinn Clint Eastwood gerði. Þar
spilar McPherson nokkur laga
Parkers og leikur einnig minni
háttar hlutverk.
Afmælistónleikarnir hefjast
bæði kvöldin kl. 21.00.
(Úr frcttatilkynningu.)
Blásaratón-
leikar í kvöld
Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Keflavík heldur tónleika í Ytri-
Njarðvíkurkirkju í kvöld, mið-
vikudag 26. apríl, og hefjast
þeir kl. 21.00.
Á efnisskrá verður m.a. samspil
málm- og tréblásaraflokka, auk
þess sem hljómsveitin leikur saman
nokkur lög.
Lúðrasveit Tónlistarskólans í
Keflavík hefur starfað um nokk-
urra ára skeið. Síðastliðin tvö ár
hafa verið annasöm og viðburðarík
í sögu hljómsveitarinnar. Sumarið
1988 fór sveitin um Danmörku og
Svíþjóð en einnig hefur sveitin leik-
ið mikið hér heima við hin ýmsu
tækifæri og haidið sjálfstæða tón-
leika.
(Fréttatilkynning)
Hassið hennar
mömmu í Dalabúð
Búðardal.
Leikklúbbur Laxdæla frumda-
sýndi Hassið hennar mömmu
eftir Dario Fo undir leikstjóm
Guðjóns Sigvaldasonar föstu-
dagskvöldið 21. apríl við sérstak-
lega góðar undirtektir áhorf-
enda.
Verkið var mjög vel leikið og af
öryggi og festu. Það er alveg ótrú-
legt hvað svona áhugahópar geta
sýnt undir góðri leikstjóm. Leikri-
tið er létt en krefst mikils af leikur-
unum. Aðalhlutverkin eru leikin af
Melkorku Benediktsdóttur og
Gretti Guðmundssyni. Sjö hlutverk
eru í þessu stykki og var þeim öll-
um mjög vel skilað. Dalabúð var
fullsetin þetta kvöld og skemmtu
leikhúsgestir sér mjög vel og þökk-
uðu leikstjóra og leikurum með
blómum og lófataki sem þau áttu
svo sannarlega skilið.
- Kristjana
Skoðunarferð
út í Akurey
Náttúruverndarfélag Suð-
vesturlands gengst fyrir skoð-
unarferð út í Akurey í kvöld,
miðvikudag 26. apríl.
Björgunarsveitin Ingólfur sér
um að flytja fólk út í ey og til
baka með farþegabátnum Hafr-
únu. Farið verður frá Grófar-
bryggju kl. 19.00. í leiðinni verður
siglt inn undir Klakksvík við
Grandahólma.
Hugað verður að fjörulífi, fugl-
um og gróðri á landi í eyjunni.
Áætlað er að koma til baka að
Grófarbryggju um kl. 21.00.
(Fréttatilkynning)
Ulla Hosford
Sýning Ullu
framlengd
Málverkasýningu Ullu Hos-
ford sem nú stendur yfir í Djúp-
inu hefiir verið framlengd og
lýkur sunnudaginn 30. apríl
næstkomandi.
Á sýningunni, sem er fyrsta
einkasýning listakonunnar hér á
landi, eru fimmtán olíumálverk.
Daði sýnir í
FÍM-salnum
DAÐI Guðbjörnsson opnar
máldaverkasýningu í FÍM-saln-
um, Garðastræti 6 í Reykjavík
á fóstudag, 28. apríl, klukkan
17-19.
Daði hefur haldið fjölda einka-
sýninga hér á iandi og erlendis
og tekið þátt í mörgum samsýn-
ingum.
FÍM-salurinn er opinn virka
daga klukkan 13-18 og klukkan
14-18 um heigar. Sýning Daða
stendur til 16. maí.
(Fréttatilkynning)
Öllum þeim mörgu œttingjum og vinum, sem
minntust mín með einstökum hlýhug, gjöfum,
skeytum og samtölum í tilefni áttrœöisafmœlis
míns hinn 11. apríl sl., sendi ég hugheilar
þakkir meö ósk um GuÖs blessun.
LifiÖ heil.
Guðjón Jósefsson,
Ásbjarnarstöðum.
r
B
Husqvarna
KÆLISKÁPAR
Örlítið útlitsgaUaðir
LÁGT VERÐ!!
Gunnar Asgeirsson h.f.
Suðurlandsbraut 16 - Sími 680780
I
mm ■■ wmm.wm wm