Morgunblaðið - 26.04.1989, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989
33
Sverrir Kr. Sverris-
son - Kveðjuorð
Fæddur 11. nóvember 1918
Dáinn 13. apríl 1989
„Hjarta mannsins upphugsar veg
hans, en Drottinn stýrir gangi
hans.“ Þessi orð úr Orðskviðum
Salómons koma mér í huga, er ég
minnist Sverris Sverrissonar. Vegir
okkar lágu saman á Akranesi
haustið 1961. Báðir vorum við
fæddir og uppaldir í Reykjavík,
höfðum komist til lifandi trúar, og
flust til Akraness vegna starfa okk-
ar. Þar lágu leiðir okkar nú saman.
Sverrir var ákaflega sérstæður
maður, ógleymanlegur þeim, sem
honum fengu að verða samferða.
Líf hans og allt hans daglega at-
ferli einkenndist af þeirri trú, sem
var þungamiðja og kjölfesta lífs
hans. Ýmsir þættir trúarinnar eru
misjafnlega áberandi í trúarlífi ein-
staklinga. Svo var einnig um Sverri.
í fari hans voru tveir þættir, sem
hver sá, sem honum var samferða,
gat ekki komist hjá að taka eftir.
Það var annars vegar hið einlæga
traust hans til þess Guðs, sem hann
hafði skapað og endurleyst. Traust,
sem í ómeðvitaðri barnslegri trú,
mótaði allt dagfar hans og athafn-
ir. Og hins vegar hið opna og skipu-
lega bænasamfélag hans, sem var
okkur hinum oft til ögunar og eftir-
breytni.
Þessir tveir eðlisþættir Sverris
urðu þess oft valdandi að til hans
var leitað á erfiðum stundum í lífi
einstaklinga. Menn vissu að þar fór
maður, sem ekki fór leynt með trú
sína, ekki skammaðist sín fyrir
hana, var reiðubúinn að leggja sína
hönd á plóginn til þess að leiða
aðra inn á veg trúarinnar og veita
huggun og uppörvun. Ávallt fús til
þess að spenna greipar og leggja
málið fram fyrir Guð í bæn.
Þegar litið er yfir farinn veg nú,
þegar Sverrir er kvaddur, fer ekki
hjá því að það veki nokkra undrun,
hversu miklu hann kom í verk.
Hann stýrði vaxandi skóla í mótun,
en tók þar að auki þátt í hvers
kyns félagsstarfi á Akranesi. Hann
gegndi ýmsum trúnaðarstörfum
fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Vesturi-
andi, var þátttakandi í Rotaryfélag-
inu á staðnum, tók virkan þátt í
störfum Stúdentafélagsins, var
meðal stofnenda og virkustu félaga
KFUM á Akranesi og í Gideonfélag-
inu. Auk þess sat hann í sóknar-
nefnd um langt árabil. Hvarvetna
gekk hann um dyr með sinni al-
kunnu glettni og trúmennsku, ekki
sem óvirkur félagi heldur sem mót-
andi forustumaður sem eftir var
tekið og lagði sig fram um að sinna
öllum störfum sínum sem best.
Upp í hugann koma margar
minningar. Ég sé hann fyrir mér
innan um hópa barna og unglinga
á KFUM og K-fundinum í Fróni,
þar sem hann segir þeim á lifandi
hátt frá þeim Guði, sem honum er
raunverulegur og kær. Ég sé hann
fyrir mér við úthlutun Nýja-testa-
menta til barna á vegum Gideon,
þar sem hann brýnir fyrir þeim
mikilvægi þess að kynnast Guði og
lifa í samfélagi við hann. Ég minn-
ist hans á stundum glaðværðar og
á stundum alvörunnar, í fyrirbæn
og þakkargjörð. Ég minnist hans í
hlutverki einlægs vinar og sam-
verkamanns fullan af uppörvun,
huggun og, trausti til Guðs. Ég sé
hann fyrir mér við upphaf skóla-
dags í Iðnskólanum, en hann hefur
safnað öllum nemendum saman til
þess að hefja daginn með því að
hlýða á Guðs orð og leggja hann í
Hans hendur og í bæn. Slíkar minn-
ingar er gott að eiga. í návist hans
var gott að vera.
Það er ekki auðvelt að rita um
menn eins og Sverri Sverrisson.
Ekki vegna þess að af svo litlu sé
að taka, heldur vegna þess að mað-
ur veit, að það sem ritað er, er í
raun og sannleika víðs fjarri því að
segja það allt, sem inni fyrir býr.
KFUM og KFUK á Akranesi, Gide-
onfélagið og Akranessöfnuður
kveðja nú trúan forustumann,
verkamann í víngarðinum, sem lok-
ið hefur dagsverkinu og þegið sigur-
launin. Hér skal honum þakkað
fyrir árin hans á Akranesi, þótt orð
segi lítið. Hér skal þeim Guði þakk-
að, sem sendi hann í þennan víngarð
og ieyfði okkur hinum að verða
þeirrar gæfu aðnjótandi að vera í
samfylgd hans. Honum sé heiður
og dýrð, sem stýrði gangi hans.
Jóhann Ingibjartsson
Kveðjuorð:
Jónas K. Jósteins-
son fv. yfírkennari
Fæddur 7. september 1896
Dáinn 4. mars 1989
Lífið er allt fullt af gátum og
svarið við einni stærstu þeirra fékk
hann afi minn á dögunum. Hann
kvaddi okkur og hélt á vit nýrra
ævintýra í veröld handan við móð-
una miklu. Veröld sem okkur öllum
er boðið að sækja heim þegar lífi
okkar hér lýkur.
Afi, sem verið hafði alla tíð-með
eindæmum heilsuhraustur, varð
síðustu árin að horfast í augu við
elli kerlingu. Það fór í taugarnar á
honum. Hann ætlaði ekki að gefast
upp fyrir henni baráttulaust. Hugs-
unin var enn skýr og sjónin var í
góðu lagi. Hann gat lesið síma-
skrána gleraugnalaust. Hitt og
þetta var þó farið að gefa sig og
þar á meðal var heyrnin orðin sljó.
Ekki mátti hann heyra á það minnst
að fá sér heyrnartæki. Hann þver-
tók fyrir það. Slík tæki hentuðu
einungis gamalmennum. Þarna var
afa mínum rétt lýst. Hann var
maður af gamla skólanum. Hörku-
tól sem sjálfur varð að kosta sig
til náms og hafði mjög ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefnum,
svo lýsti af honum stefnufestan.
Afi var reistur á velli, með þétt
handtak og svipsterkur. Mér eru
sérstaklega minnisstæð einstaklega
stór og falleg augun. Afi var kenn-
ari af lífi og sál, yfirkennari í Aust-
urbæjarskólanum um margra ára
bil og svo fróður var hann að þekk-
ing hans virtist spanna heilu al-
fræðiorðabækurnar. Þetta vakti
með mér mikla virðingu og aðdáun
á honum.
Afi minn var hagyrtur og stóð
jafnan upp á mannamótum og kvað
stökur eftir sjálfan sig með miklum
fögnuði viðstaddra. Margar voru
og stökurnar og ljóðin sem hann
sendi mér á afmælisdögum, há-
Hópferð til
Finnlands
FÉLAGIÐ Finnlandsvinir ætlar
að efna til hópferðar til Finn-
lands og Leníngrad í júní kom-
anda.
í frétt frá félaginu segir að tek-
ist hafi að semja um mjög hag-
stætt verð og farið verður 26. júní
næstkomandi.
tíðarstundum og er ég dvaldi ijarri
átthögunum í lengri eða skemmri
tíma. Það gladdi hjarta mitt og
sagði meira en löng bréf.
Ég minnist afa míns sækja mig
barnið á leikskólann og fara með
mig drenghnokkann í gönguferðir
um bæinn, til að mynda niður að
tjörn að gefa öndunum. Ég minnist
hans þegar hann kenndi okkur
bræðrunum að rækta kartöflur í
garðinum okkar og hvað hann lagði
á það mikla áherslu að við þrífum
verkfærin eftir okkur. Ég minnist
þess að hitta hann endrum og eins
á fjölmörgum gönguferðum hans
um bæinn og lauma að mér peyjan-
um vasapeningum. Ég minnist hans
í stofunni í Mávahlíðinni, með bók
í hendi eða þegar hann jós úr visku-
brunni sínum og spakmælin runnu
af vörum hans. Ég minnist áhuga
hans á íslensku máli og ábendinga
hans til pkkar bræðranna um betra
málfar. Ég minnist þess þegar hann
brýndi fyrir okkur bræðrunum hvað
það væri mikill vandi að vera per-
sóna, sem ekki léti stjórnast af
SNYRTIVÖRU-I
GYNNING
A MORGUN
fimmtud 27.apríl
kl. 13-18
Sothys
PARIS
SNYRTIVÖRUR
SEM FAGFOLKIÐ VELUR
MIRRA
snyrtivöruverslun
LAUGAVEGI 61-63
duttlungum flöldans. Það væri allt-
of mikið af fólki í heiminum sem
léti stjórnast um of af tilfinningnm
en ekki skynsemi. Ég minnist hans
segja lífið vera vinnu. Vinnan göfyi
manninn.
Já, þær voru margar góðar
stundirnar sem ég átti með honum
afa mínum og ég mun ávallt minn-
ast hans með hlýhug og væntum-
þykju. Ég lærði margt af honum
og hef í mörgu haft hann sem fyrir-
mynd í lífinu. Þau voru ótal heilræð-
in sem hann gaf mér og með hveiju
árinu sem líður kemst ég betur að
því hversu mikinn sannleik þau
geyma. Hann afi var góður maður
sem reyndist mér vel og gaf mér
gott og ómetanlegt veganesti í
lífsins ferðalag.
Undir það síðasta var afi minn
orðinn þreyttur. Ég held hann hafi
verið nokkuð sáttur við að hverfa
héðan og hvíldinni feginn. Þetta er
gangur lífsins og eðlilegasti hlutur
í heimi vorum. Hvíldin var afa
mínum líkn og það væri eigingirni
af okkar hálfu að ætlast til að hann
staldraði lengur við meðal okkar.
Hann hafði lokið rúmlega 92 ára
ævistarfi.
Amma mín, mamma mín, Kári
frændi og íjölskyldur. Mér þykir
leitt að geta ekki, vegna dvalar í
fjarlægu landi, stutt betur við bakið
á ykkur og verið samvistum við
ykkur á stundu sem þessari. í hug-
anum er ég með ykkur. Ég votta
ykkur samúð mína og bið Guð að
styrkja ykkur. í dag finn ég sterkt
fyrir nálægð afa og ég veit hann
vakir yfír okkur öllu, alla tíð.
Jónas Valdimarsson
Bahir Dar,
Eþíópíu.
. ■■
■ 09 tvær swnmmr—
á Costa del So
Las Palomas
- glæsilegur gististaður
íSol hótelkeðjunni.
Verð frá 35.500,-*
Á mánudag byrjum við
að selja ífyrstu íbúðirnar
á þessum frábæra gististað
á alveg einstöku verði.
'Verð miðað við hjón með tvö börn
ítværvikuríjúní.
HJÁ VERÖLD FÆRÐU MEIRA FYRIR PENINGANA - Ó-JÁ!
n r 11111 s 1 ð 111
AUSTURSTRÆTI17, II hæ*. SÍMI622200