Morgunblaðið - 26.04.1989, Blaðsíða 35
*e
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRIL 1989
35
Agnar Þ. Elías-
son — Kveðjuorð
Fæddur 25. febrúar 1942
Dáinn 24. mars 1989
Þann 4. apríl síðastliðinn var
jarðsunginn frændi minn og vinur
Agnar Þórir Elíasson. Agnar var
duglegur og alltaf tilbúinn til að
aðstoða þá, sem á hjálp þurftu að
halda. Við Agnar ólumst upp í
Ólafsvík og sú æskuvinátta er mér
ógleymanleg. Hjá ömmu Fanneyju
og afa Þórarni í Mýrarhúsum var
samkomustaður barnanna. Agnar
lét sig ekki vanta í hópinn og var
hann hrókur ails fagnaðar. Síðar
flutti Agnar til Hafnarfjarðar og
ég erlendis, en þrátt fyrir ijarlægð-
ina héldum við Agnar alltaf vin-
skapinn. Leiðir okkar lágu aftur
saman og aldrei urðum við þreyttir
á því að rifja upp æsku- og ungl-
ingsár okkar úr Ölafsvík.
Vinur þinn er þér allt.
Hann er akur sálarinnar, þar sem
samúð þinni er sáð og gleði þín
uppskorin.
Hann er brauð þitt og arineldur.
Þú kemur til hans svangur og í leit
að friði.
Þegar vinur þinn talar, þá andmæl-
ir þú honum óttalaust eða ert hon-
um samþykkur af heilum hug.
Og þegar hann þegir, skiljið þig
hvor annan. (Spámaðurinn).
Lilju, börnum, tengdasyni og
barnabörnum er vottuð innileg sam-
úð og megi guð styrkja ykkur í
sorg ykkar.
Bragi Eyjólfsson
Föstudagurinn langi varð í hug-
um okkar sem syrgjum Agnar Elís-
son vissulega langur og dimmur,
en hann varð bráðkvaddur á heim-
ili sínu að kvöldi 24. mars sl.
Þrautagöngu með erfiðan sjúkdóm
var lokið, þar sem hann var manna
meðvitaðastur um að lokin gætu
komið hvenær sem væri.
Agnar var Ólsari eins og sagt er
á Snæfellsnesi, fæddur í Ólafsvík
24. febrúar 1942 þar sem hann ólst
upp í stórum systkinahópi. Snemma
var farið að vinna hvað eina sem
til féll, eins og algengt er í sjávar-
plássum.
Hugur Agnars var mjög tengdur
öllu sem að sjávarstörfum laut, og
stundaði hann sjó og þótti hans rúm
ætíð vel skipað. Agnari kynntist ég
ekki fyrr en hann staðfesti ráð sitt
og giftist Lilju Pálsdóttur ættaðri
úr Breiðafjarðareyjum. Þeim varð
þriggja barna auðið; Eggert, Anna
María og Agnes. Eggert sem var
elstur misstu þau í bílslysi 18 ára
gamlan. Sár var sá fleinn sem allt-
af sveið en sameiginlega báru þau
þá byrði Lilja og Agnar.
Fyrstu árin bjuggu þau í Ólafsvík
en síðar í Hafnarfirði og síðast í
Reykjavík á Meistaravöllum 25 þar
sem hann var húsvörður og einnig
stundaði hann aðra vinnu svo sem
akstur. Alltaf var reynt að vinna,
kannski meira en kraftar leyfðu.
Tvisvar fór hann til útlanda að leita
sér lækninga en allt kom fyrir ekki,
sjúkdómurinn hafði sinn gang.
Alltaf fannst utanbæjarkonunni
að vestan gaman að koma á Meist-
aravelli 25 og heilsa upp á fólkið.
Alltaf var spurt frétta, spjallað um
fiskirí og fiskimenn og var Agnar
allra manna glaðastur í þeirri um-
ræðu. I huga mér er minningin um
Agnar Elísson björt svo enga
skugga ber þar á, hjálpsamur, ræð-
inn og glaður þrátt fyrir þjáninguna
sem oft var stutt undan. Sú er von
mín og trú að breiðfirsk seigla og
dugnaður ásamt trú á góðan Guð
hjálpi Lilju og börnum hennar
*
Asgerður Andrés-
dóttir - Kveðjuorð
Fædd 7. september 1922
Dáin l.apríl 1989
Elsku Gerða mín er dáin, hefur
kvatt mig í hinsta sinn. Við Gerða
kynntumst er við störfuðum saman
í Hagkaup á Laugaveginum og
héldum áfram góðu samEandi eftir
að ég hætti þar störfum. Gerða var
einstök kona. Lítil og smágerð en
samt svo stór og sterk. Hennar
styrkur kom glögglega í ljós er hún
stríddi við þá sjúkdóma er á hana
lögðust síðustu þijú árin. Hún
barmaði sér aldrei svo ég heyrði,
gerði þá frekar grín að öilu saman
og talaði hlýlega um læknana sína.
Já, það var alltaf stutt í gamansem-
ina og hláturinn hjá Gerðu. Hennar
hlýleiki og góðmennska laðaði mig
að henni og það var auðvelt að láta
sér þykja vænt um hana. Er ég
kveð hana nú þakka ég innilega
fyrir það að hafa kynnst henni og
fyrir þær góðu stundir er við áttum
saman.
Far þú i friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Ég votta Jóni eiginmanni hennar
og öðrum aðstandendum mína
dýpstu samúð og bið Guð um að
styrkja Jón og hugga því missir
hans er sannarlega mestur og sorg-
in dýpst.
Sigga
IMÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir vorprófin
Innritun í síma 79233 kl. 15-18 virka daga
Nemendaþjónustan sf. Leiðsögn sf.
áfram lífsgönguna þótt nú syrti að.
Barnabörnin þeirra tveggja lýsa
upp tilveruna og auka okkur trú á
að lífið haldi áfram.
Kærar þakkir fyrir allar góðu
stundirnar. Megi algóður Guð
vernda og vaka yfir fjölskyldu hans.
Megi minningin um góðan dreng
og góðan heimilisföður lýsa upp og
sefa sorgina.
Kærar þakkir og kveðjur frá fjöl-
skylduni Höfðagötu 23, Stykkis-
hólmi.
Unnur Lára
Fáein orð um minn kæra bróður,
Agnar Þóri, sem varð bráðkvaddur
á heimili sínu að kvöldi 24. mars
sl. Við verðum sennilega seint við-
búnin þegar kaliið kemur, og sér-
lega þegar menn eru kallaðir burt
í blóma lífsins. Við fráfall hans leita
á hugann margar minningar.
Aggi, eins og hann var ávallt
kallaður, hafði átt við alvarleg veik-
indi að stríða í mörg ár, en tekið
því með karlmennsku og gert lítið
úr þeim.
Hann fæddist í Ólafsvík og ólst
þar upp til fullorðinsára. Hann
stundaði sjómennsku og ýmis störf,
eins og gengur og gerist í sjávar-
plássum, og var alls staðar eftirsótt-
ur starfskraftur. Síðar flutti hann
með fjölskyidu sína til Hafnarfjarð-
ar og svo til Reykjavíkur, þar sem
hann bjó síðustu árin. Þar starfaði
hann aðallega sem atvinnubílstjóri,
og var ávallt vel liðinn áf viðskipta-
vinum og vinnufélögum sínum.
Aggi var mikill húmoristi. Hann
hafði skemmtilegan frásagnarhæfi-
leika og þegar hann sagði frá sér-
kennilegum samferðamönnum, með
glampa og glettni í augum, hreif
hann með sér alla sem í kringum
hann voru. Hann var fljótur til, ef
einhver var hjálpar þurfi og hugs-
aði vel um fjölskyldu sína.
Giftur var hann Lilju Pálsdóttur
og hefur hún staðið sig vel í þess-
ari raun. Þeim varð þriggja barna
auðið, en urðu fyrir því áfalli að
missa son sinn í bílslysi 1980.
Lilja mín. Ég og fjölskylda mín
biðjum algóðan Guð að styrkja þig
og fjölskyldu þína í sorg ykkar.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
siðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(H.P.)
Rósa
t SIGURBORG HANSDÓTTIR er lést 21. apríl, verður jarðsungiri frá Fossvogskirkju fimmtudag- inn 27. apríl kl. 10.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Börnin.
t Móðir okkar, tengdamóöir, amma og langamma, JÓNÍNA JÓHANNSDÓTTIR, áðurtil heimilis Hraunbæ 114, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 28. aprfl kl. 13.30. Lilja Jóelsdóttir, Jóhann Jóelsson, Hafdis Jóelsdóttir, Leifur Jóelsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÓLAFSDÓTTIR, Hafnarbraut 49, Höfn í Hornafirði, sem lést í Landspítalanum 20. apríl sl., verður jarðsungin frá Hafnarkirkju í Hornafirði laugardaginn 29. apríl 1989 kl. 14.00. Einar Björn Einarsson, Ólafur Einarsson, Anna Benidiktsdóttir, Einar B. Einarsson, Sigrún B. Ásgeirsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA ÁGÚSTA ODDGEIRSDÓTTIR, Langagerði 112, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 28. apríl kl. 10.30f.h. Jarðsett verður í Lágafellskirkjugarði. Jón Þór Ólafsson, Hildur Svavarsdóttir, Sjöfn Ólafsdóttir, Tómas Rögnvaldsson, Gunnar Ólafsson, Þórey Valdimarsdóttír, Svanberg Ólafsson, Kristin Erlendsdóttir, Ómar Ólafsson, Hrefna Snæhólm, og barnabörn.
t Móðursystir okkar, GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR frá Fosskoti, Miðfirði, sem lést á Sólvangi í Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Frfkirkjunni í Hafnarfirði fimmtudaginn 27. apríl klukkan 15.00. Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Sólvang, Hafnar- firði. Fyrir hönd aðastandenda, Erla Jónsdóttir, Baldur Jónsson.
t Eiginkona mín, dóttir, móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTÍN INGUNN HARALDSDÓTTIR, Fellsmúla 12, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. apríl kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkað en þeim, sem vildu minnast hennar er bent á Hjartavernd. Björn Einarsson, Haraldur Sigurðsson, Inga Þórðardóttir, Þorlákur Pétursson, Áslaug Þórðardóttir, Bragi Svavarsson, Sigrfður Sverrisdóttir, Úlfar Aðalsteinsson, Stefanía Björnsdóttir og barnabörn.
t Hjartanlegar þakkir til allra þeirra, er auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður míns, afa og bróður okkar, KARLS GUNNLAUGSSONAR, Lynghaga 28, Reykjavík. Börkur Karlsson, Karl Trausti Barkarson, Jón Gunnlaugsson, Ottó Gunnlaugsson, Þórhalla Gunnlaugsdóttir.
t Hugheilar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDAR Á. MAGNÚSSONAR járnsmiðs, Bústaðavegi 87. Svava Sch. Jónsdóttir, Björgvin Guðmundsson, Kristfn Gunnarsdóttir, Dóra Petersen, Gunnar Petersen.