Morgunblaðið - 26.04.1989, Side 41
\
'-•."í 'f M l ia.M: ‘ 1 I í/ J l-ÍÍO i
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1989
í)l*
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . . .
Markaðurinn í Kolaporti
Kristbjörg hringdi.
Mig langar til að láta Hjós
undrun mína yfir því hvað fólk
leyfir sér að selja á markaðinum
í Kolaportinu. Þarna mátti sjá
margþvegnar og lúnar peysur sem
húsmæður sem ég þekki færu
með beint út í tunnu, A öðru borði
voru bækur til sölu. Ein var mérkt
Fossvogsskóla og önnur bókasafni
sjúkrahússins á ísafirði!
Góð umgengni um
Eiðistorg
FaStagestur hringdi.
Ég hef lengi verslað á Eiði-
storgi og mér hefur þótt leitt hve
lítið torgið hefur verið notað. Því
fannst mér tilkoma bjórstofunnar
Rauða ljónsins mjög jákvæð því
þrifnaðurinn á torginu hefur auk-
ist með henni. Þetta hefur verið
frábært framtak bæjarstjórnar og
veitingamannsins að lífga svona
upp á torgið. Þrátt fyrir mann-
ijölda hefur umgengnin verið til
fyrirmyndar og unglingum verið
vísað út af torginu klukkan hálf-
tólf um leið og Litli bær lokar.
Eiðistorg verði opnað
íyrir bjórsölu
S. K. hringdi.
Mig langar til að skora á eig-
endur Rauða ljónsins og forráða-
menn Eiðistorgs að torgið verði
opnað á ný fyrir bjórsölu. Þetta
var meiriháttar staður sem höfð-
aði til ungra sem aldinna. Það var
tilbreyting að geta setið úti á torgi
laus við tóbaksreykinn sem er
inni á kránum. Gæslan var líka
það góð að þeim sem voru ofur-
ölvi var vísað út. Mér leið satt að
segja eins og heima hjá mér.
Hvimleiðar hringingar
Hulda Magnúsdóttir hringdi.
Ég vil skora á böm og unglinga
sem em að skemmta sér um helg-
ar að hætta símaati. Það kemur
sér mjög illa á mínu heimili þegar
hringt er um miðja nótt og spurt
hvað klukkan sé. Aðfaranótt
sunnudags svafég til dæmis ekk-
ert eftir klukkan fjögur vegna
þess arna.
Páfagaukur í óskilum
Valberg Sigfússon hringdi.
Það fannst blár páfagaukur á
miðvikudag í síðustu viku í vest-
urbæ Kópavogs. Upplýsingar í
síma 43492.
Skíðaskór horfnir
Hildur hringdi.
Eftir klukkan 18 laugardaginn
fyrir páska vom teknir rauðir
Nordica-skíðaskór númer 39 fyrir
utan skíðaskálann í Bláfjöllum.
Skórnir vom í plastpoka merktum •
fríhöfninni. Þeir sem geta gefið .
upplýsingar um skóna vinsamleg-
ast hringi í síma 14026.
Ábyrgðarleysi
slökkviliðsins
Lesandi hringdi.
Mig langar til að kvarta yfir
ótrúlegu ábyrgðarleysi slökkvi-
liðsmanna í Reykjavík. í föstu-
dagsblaði DV sáust þeir drekka
eftir að hafa slökkt eld í Kringl-
unni 4. Mér er spurn: Aka slökkvi-
liðsmenn ekki bifreiðum? Það er
ótrúlegt að DV skuli koma með
svona áróður á forsíðu. Það sýnir
nú líka best að þeir voru ekki al-
veg allsgáðir því það kviknaði í
seinna um nóttina. Hefði ekki
verið betra að láta bjórinn eiga
sig?
Úr týndist í miðbænum
Citizen-úr með svartri ól án
stafa týndist á leiðinni frá Kirkju-
hvoli að Útvegsbankanum í Aust-
urstræti síðastliðinn föstudag rétt
fyrir klukkan fjögur. Finnandi
vinsamlegast hringi í síma 35128.
Hugmynd fyrir Póst og
síma
Páll Gunnarsson hringdi.
Þannig er nú á íslandi að borgi
menn ekki símann þá er lokað.
En er þá ekki verið að draga úr
möguleikum þeirra sem standa í
skilum? Þeir geta nefnilega ekki
hringt í viðkomandi. í Svíþjóð
veit ég að hægt er að loka aðra
leiðina. Ég álít það vera nógan
þrýsting.á þann sem er í vanskil-
um að ekki sé hægt að nota
símann til að hringja út. Það má
jafnvel ímynda sér að fyrirtæki
sem eru í erfiðleikum missi af
viðskiptavinum vegna þess að
ekki er hægt að hringja í þau og
þannig aukast erfiðleikarnir enn
méir. Er þetta ekki eitt dæmið
um að tími er kominn til að helja
okkur af steinaldarstiginu?
Niður með Hitler
Ein hneyksluð hringdi.
Ég er svo aldeilis hneyksluð á
því að í sýningarglugga á homi
Þingholtsstrætis og Bankastrætis
skuli hanga uppi mynd af Hitler
með þýska nasistafánanum við
hliðina. Þetta er víst í sambandi
við bókina um íslenska nasista en
mér fínnst einum of mikið að
nota fánapn og myndina þannig
í auglýsingaskyni.
Metbet
„Og Jesú fæddist í Nazaret
þú varð ég alveg bet.“
Öll þjóðin hlustaði grallaralaus á
grallaralausan forsætisráðherra í
umræðum um soldátaæfingar á
dögunum. Oft hafa menn orðið
stromphissa á hissu Steingríms, en
nú náði hann metbeti.
Það sem kom blessuðum mannin-
um svona rækilega í opna skjöldu
voru fyrirhugaðar æfingar varnar-
liðsmanna á sumri komanda.
Steingrímur forsætisráðherra var
nefnilega búinn að steingieyma því
að hann hafði verið utanríkisráð-
herra fyrir hálfu ári. Nema hann
hafi minnt að hann hafi aldrei ver-
ið utanríkisráðherra, sem er eins
líklegt. í því ljósi ættu menn að
geta skilið að maðurinn væri búinn
að gleyma að honum hafði verið
tilkynnt um heræfingarnar, vegna
þess að tilkynningin hefir þá verið
send einhveijum öðrum.
Forsætisráðherra kvaðst vera
andvígur þessum æfingum, sem
hann ekki var þegar hann minnti
að honum hefði ekki verið afhent
tilkynningin um þær. Þetta getur
átt sér eðlilegar skýringar. Faðir
hans sagði nefnilega fyrir kosning-
arnar 1956 að það væri betra að
vanta brauð en hafa her í landi.
Svo myndaði Hermann stjórn og
soninn hefir minnt að hann hafi
rekið herinn úr landi, eða verið
búinn að gleyma að hann gerði það
ekki. Með þetta í huga þarf engan
að undra þótt Steingrímur yrði
metbet þegar hann heyrir að Jóni
Baldvini hafi verið tilkynnt um her-
æfingar, sem hann mundi þó að er
utanríkisráðherra á íslandi sem
stendur, en ekki Steingrímur sjálf-
ur.
Þegar menn íhuga þessar ein-
földu staðreyndir, sem hér hafa
verið rifjaðar upp á auðskilinn
máta, er eins vist að menn hætti
að vera hissa á Steingrími Her-
mannssyni — í eitt skipti fyrir öll.
Enda verða betmet hans ekki slegin
Melamaður
IFORMICÁ
Veljið það besta
FORMICÁ\
er til i hundrudur
lita og mynstra seinl
beygja má á borðplötur, N
gluggakistur, skáphurðir
eða næstum hvað sem er.
ÁRVÍK
ÁRMLILI 1 - REYKJAVÍK - SÍMI 687222 -TELEFAX 687295
Civic Hatchback
Vél: 16 ventla, 75/90/130 Din hestöfl.
Verð frá kr. 715.000.
Civic Sedan GL sjáifskiptur
Vél: 16 ventla, hestöfl 90/116 Din.
Verð frá kr. 899.000.
Fjórhjóladrif - GTI, vél 116 Din.
Verð: 1.030.000 stgr.
Tökum vel meó farna
notaóa bíla ixpp í nýja
U HONDA
Vatnagörðum 24, sími 689900.