Morgunblaðið - 26.04.1989, Síða 43
43
MORGUNBLAЌ)
ÍÞRÓTTIR
MIÐVDCUDAGUR 26, APRÍL 1989
HANDKNATTLEIKUR
Slgurður Svelnsson
Sigurður
Sveinsson
í viðræðum
í Dortmund
SIGURÐUR Sveinsson,
landsliðsmaður íhand-
knattieik, er nú staddur C
Vestur-Þýskalandi - þar
sem hann ræðir vift f or-
ráðamenn Dortmund,
Eins og fram hefur komið
í Morgvnblaðinu gerði
Dortmund Sigurði tilboð til
tveggja ára fyrir skömmu.
Þjálfari Dortmund, Gunther
Klein, leggur mikla áherslu á
að fá Sigurð, fyrir næsta
keppnistimabil. Klein þjálfaði
Ix.>mgo er Sigurður var i\já
félaginu og þekkir því vel til
hans. Lemgo-liðið vai byggt
upp í kringum Sigurð og Klein
ætlar Sigurði sama hlutverk
hjá Dortmund.
Ikvöld
Norðurlandamótið í körfu-
knattleik hefst í kvöld. Danir
leika gegn Norðmönnum í
Njarðvík kl. 18 og íslendingar
mæta Finnum í Grindavík kl.
20.
Kvennalandsliðið:
Helmingurinn hættur
Helmingur liðsins gefur ekki kost á sér. „Get ekki séð hvernig þetta á
að ganga upp," segir Helga Magnúsdóttirformaður landsliðsnefndar
RÚMLEGA helmingur af leik-
mönnum íslenska kvenna-
landsliðsins hefur ákveðið að
gefa ekki kost á sér í liðið. Af
16 stúlkum sem fóru til Frakk-
lands í fyrra eru aðeins sjö eft-
ir og útlitið ekki bjart hjá liðinu.
Framundan er mót í Portúgal
í sumar og en það er það eina
verkefni liðsins í sumar.
Þær sem hætta eru Guðríður
Guðjónsdóttir, fyrirliði liðsins,
Ema Lúðvíksdóttir, Guðrún Kristj-
ánsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir og
Rut Baldursdóttir. Erla Rafnsdóttir
hefur ekki gefið endanlegt svar en
verður a.m.k. ekki með í sumar og
heldur ekki Kristín Pétursdóttir. Þá
er líklega að Kolbrún Jóhannsdóttir
og Margrét Theodórsdóttir hætti
með liðinu en þær hafa ekki tekið
endanlega ákvörðun um hvort þær
haldi áfram.
„Við tökum þátt í móti í Portú-
gal í sumar og það er eina verkefni
landsliðsins. Það var búið að leggja
mikla vinnu í þessi mál en nú hefur
verið dregið úr verkefnum okkar,“
sagði Helga Magnúsdóttir, formað-
ur kvennalandsliðsnefndar HSÍ.
„Við erum heldur ekki ánægður
með ráðningu landsliðsþjálfarans,
Slavko Bambirs, til Víkings enda
var það ekki borið undir okkur. Eg
get að minnsta kosti ekki séð hvern-
ig það gengur upp ef verkefni lið-
anna rekast á og skilst að þar eigi
Víkingur forgang,“ sagði Helga.
Guðríður Guðjónsdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins, er ein þeirra sem
ekki gefa kost á sér.
Slavko Bambir hefur valið 18
manna hóp til æfinga en óvíst er
hve stór hluti hópsins getur æft
með liðinu í sumar.
Unglingalandsliðið, skipað leik-
mönnum 20 ára og yngri, tekur
þátt í tveimur mótum á Ítalíu í í
júlí. í unglingalandsliðinu eru fjórar
stúlkur sem einnig leika með A-
landsliðinu og því hætta á að erfitt
verði fyrir stúlkumar að leika með
báðum liðunum.
„Okkur finnst það mjög leiðinlegt
að málin skuli standa svona. Loks-
ins þegar við erum farin að sjá
árangur erfiðisins er sett stopp á
okkur og ég er ekki bjartsýn á fram-
haldið,“ sagði Helga.
KORFUKNATTLEIKUR / NORÐURLANDAMOTIÐ
Stuðningsmannahópar á
Nemendur úr 7. bekk í grunn-
skólunum á Suðurnesjum hafa
fengið það hlutverk að mynda
stuðningsmannahópa fyrir önnur lið
en það íslenska á
Norðurlandamótinu
í körfuknattleik sem
hefst í kvöld. Fyrir-
myndin er komin frá
í handknattleik í
Frá Frímanni
Ólafssyni
i Gríndavik
B-keppninni
KNATTSPYRNA / SKOTLAND
íslenska ökuskír-
teinið varð Jim
Bett að falfli
JIM Bett.leikmaður Aberdeen
og skoska landsliðsins, og
Auður Rafnsdóttir, eiginkona
hans, komust í hann krappann
á dögunum. Lögreglan stöðv-
aði Bett fyrir of hraðan akstur
og kom þá í Ijós að hjónin höfðu
ekið próflaus í Skotlandi í nær
áratug!
Er Bett var beðinn um að sýna
ökuskírteinið dró hann upp al-
þjóðlegt skírteini útgefið á íslandi
fyrir nær áratug. Það gildir hins
vegar aðeins í ár í Skotkndi fyrir
þegna þjóða sem eru ekki í Evrópu-
bandalaginu. Bett fékk 100 punda
sekt og hjónin þurftu auk þess að
taka skoska ökuprófið, bæði skrif-
lega og verklega. „Við fómm yfir
umferðarlögin á hveiju kvöldi og
félagarnir leyfðu mér að sitja í á
æfingar, en stundum þurfti ég að
taka strætó. En sem betur fer náð- jjm Bett með jsienska og skoska
um við prófinu," sagði Bett. ökuskírteinið.
Frakklandi en þar fengu öll lið hópa
sem fylgdu því alla keppnina.
Krakkamir úr Grindavík styðja
danska liðið, Njarðvíkingar það
finnska og Keflvíkingar norska og
sænska. Krakkamir fá ókeypis inn
á leiki sinna stuðningsliða og fylgj-
ast með hveijum leik þeirra. Krakk-
amir verða með veifur í litum sinna
liða og klæðast fötum í fánalitum.
Mótið var sett í gær og hefst í
kvöld með leik Noregs og Dan-
merkur í Njarðvík kl. 18 og íslend-
ingar leika gegn Finnum í
Grindavík kl. 20.
Á morgun leika Svíar og Danir
í Grindavík kl. 14 og Norðmenn og
Finnar í Njarðvík kl. 18. Danir leika
svo aftur gegn íslendingum kl. 20
í Keflavík.
KNATTSPYRNA
Brasilíumaður til Bayem?
Bayem Miinchen hefur hug á að kaupa brasilska sóknarleikmann-
inn Bebeto frá Flamengo. Jupp Heynckes, þjálfari Bayem, og
Uli Höness, framkvæmdastjóri félagsins, sáu Bebeto, 25 ára, leika
með Flamengo gegn Vasco da Gama á sunnudaginn. Brasilska blaðið
O Globo sagði að kaupverð væri líklega 100 millj. Ssl. kr.
ítmnR
FOLK
■ LEIK ShefSeld Wednesday
og West Ham í 1. deild ensku knatt-
spymunnar, sem fara átti fram á
laugardag hefur verið frestað. Lóg-
reglan sagði að öryggisins vegna
yrði að hindra aðgang að Hills-
borough þeim megin, sem slysið
varð 15. apríl, og þvi kæmust áhorf-
endur ekki að vellinum. Umræddur
leikur er á islenska getraunaseðlin-
um. Af sömu ástæðu hefur verið
hætt við fyrirhugaðan fjáröflunar-
leik Sheffield Wednesday og
Bordeaux, sem vera átti 2. maS.
■ NOTTINGHAM fyrir
Liverpool eru einkunnarorð íjár-
söfnunar, sem stendur yfir í Nott-
ingham þessa viku til stuðnings
ættingjum þeirra, er fórust á Hills-
borough, og hinum særðu. Vikan
hófst klukkan þrjú á laugardag.
Allt stöðvaðist, rautt tjós logaði á
öllum umferðarvitum og sírenur
hþómuðu í fyrsta sinn síðan 1945.
Á sama tíma var mínútu þögn S
Liverpool. Umferð stöðvaðist, búð-
ir lokuðu og flugvélum var beint
frá lofthelgi borgarinnar. Treflam-
ir, sem stuðningsmenn Liverpool
og Everton notuðu til að tengja
velli félaganna saman, verða seldir
og fara peningamir i fyrmefndan
rióð.
■ AÞENA hefur oftast verið
nefnd sem liklegasta borgin til að
halda Ólympíuleikana 1996. Þá
verða 100 ár liðin síðan leikamir
voru endurvaktir og fóru þeir ein-
mitt fram i Aþenu 1886. Alþjóða
ólympíunefndin hefur verið fylgj-
andi hefðinni og stutt umsókn
Aþenu, en nefndin telur nú að að-
stæður í Aþenu verði að batna
mikið til að leikamir geti farið þar
fram. Mengun er þar mikil, sam-
göngur slæmar sem og Qarskipti.
Nái borgin ekki að lagfæra það sem
þarf, koma Torontó, Melbourne
eða Atlanta helst til greina, en
Belgrað og Manchester hafa einn-
Ssótt um.
MARTINA Navratilova hef-
ur hætt við að taka þátt í opna
franska meistaramótinu í tennis,
sem hefst 29. maí. Tennisstjaman,
sem sigraði á mótinu 1982 og 1984
og varð í 2. sæti 1975, 1985, 1986
og 1987, ætlar að forðast leirvelli,
en einbeita sér að grasvöllum með
Wimbledon í huga.
■ KANADÍSKA ríkisstjómin
hefur ítrekað að Ben Johnson fái
ekki að taka þátt í næstu Ólympíu-
leikum, þó alþjóða ólympíunefndin
hafi boðið hlauparann velkominn til
Barcelona, enda hafi hann þá tek-
ið út tveggja ára bann. íþróttamála-
ráðherra Kanada sagði að
kanadískur íþróttamaður, sem fallið
hefði á lyfjaprófi, færi sjálfkrafa í
Kfstíðar keppnisbann, en sá hinn
sami hefði rétt til að áfrýja banninu
eftir tvö ár.
HANDKNATTLEIKUR / SPÁNN
Þjálfari Teka vill kveðja
með meistaratitii
Cvesta fær 455 þús. á mánuði sem landsliðsþjálfari Spánverja
„ÉG er ákveðinn að yngja
spænska landsliðið upp fyrir
Ólympíuleikana í Barcelona
1992, en geri ekki miklar breyt-
ingar á liðinu fyrir HM íTékkó-
slóvakíu," sagði Carcia Cvesta,
þjálfari Teka, eftir að hann var
ráðinn iandsliðsþjálfari Spán-
verja um helgina.
Cvesta, sem var einnig með til-
boð frá Teka og bandaríska
landsliðinu, tekur við stjóm lands-
liðsins 15. júní, en hann er ráðinn
til 1993. Cvesta,
FráAtla sem er 42 ára og
Hilmarssyni fyrmm landsliðs-
áSpáni maður Spánar,
þjálfaði spænska
landsliðið sem keppti á ÓL í Moskvu
1980 og bandaríska landsliðið á
ÓL í Los Angeles 1984.
Cvesta fær 455 þús. ísl. kr. í
laun á mánuði. Hann hefur mikinn
hug að kveðja Teka með meistara-
titli.
Teka lagði Atletica
Kristján Arason og félagar hans
þjá Teka unnu góðan sigur á Atle-
tico Madrid, 18:17, í 1- deildar-
keppninni á laugardaginn. Cabanas
skoraði sjö mörk fyrir Teka en
Kristján komst ekki á blað að þessu
sinni.
Teka ér efst með 13 stig, en
Barcelona 12, Caja Madrid, Granoll-
ers 10 og Atletico Madrid 10. Þessi
félög beijast um meistaratitilinn,
en sex umferðir em eftir í meistara-
keppninni. Barcelona vann Caja,
28:26, um helgina og Granollers
vann Bidasoa á útivelli, 20:24.