Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989
Kaupréttur að
2 Boeing-þotum
FLUGLEIÐIR hafa tryggt sér
kauprétt að tveimur Boeing-þot-
um er verða afhentar árið 1991.
Ef félagið ákveður að kaupa þess-
ar vélar verða sjö Boeing-vélar i
Skattskrár
lagðar fram
SKATTSKRÁR Reykjavíkur og
Reykjanesumdæmis fyrir árið
1988 liggja frammi á skattstofum
og bæjar- og sveitarstjómarskrif-
stofum til 20. júlí.
Skattskrámar sýna öll álögð gjöld
af skattstjóra fyrir álagningarárið
1988. Búið er að taka til greina
kærur og myndast ekki kæruréttur
við birtingu skattskránna nú.
Ekki er ljóst hvenær álagningar-
skrá fyrir þetta ár liggur fyrir, sam-
kvæmt upplýsingum frá Skattstofu
Reykjavíkur. Samkvæmt lögum á
álagningin að liggja fyrir í síðasta
lagi um næstu mánaðamót.
eigu félagsins.. Tvær þotur eru
þegar komnar og samið hefiir ver-
ið um kaup á þremur Boeing-
þotum sem koma til landsins á
næsta ári.
í mars á næsta ári er gert ráð
fyrir afhendingu tveggja Boeing
757-200 og kosta þær hvor um sig
55 milljónir dollara eða tæplega 3,2
milljarða ísl. kr. og einnar Boeing
737-400 er kostar um 30 milljónir
dollara eða rúmlega 1,7 milljarða
ísl. krcna. Flugleiðir eiga jafnframt
kauprétt á tveimur vélum til viðbótar
árið 1991 og er önnur þeirra af gerð-
inni Boeing 737-400 en hin Boeing
757-200.
Að sögn Einars Siguróssonar
blaðafulltrúa Flugleiða, hefur félagið
selt allar DC-8-63 vélarnar en hafa
tekið tvær þeirra á leigu fram á
næsta vor eða þar til Boeing-vélarn-
ar þrjár verða afhentar.
Félagið er auk þess með í rekstri
þijár Boeing-vélar, tvær Boeing
727-200 sem eru leiguvélar og eina
727-100 sem félagið á en er að íhuga
að selja.
Morgunblaðið/Þorkel 1
25 ára afmæli Ferðamálaráðs
Ferðamálaráð átti 25 ára afmæli í gær. Af því
tilefni hittust núverandi meðlimir ráðsins og nokkrir
þeirra manna, sem sátu fyrsta fundinn fyrir ná-
kvæmlega 25 árum. Frá vinstri talið: Stefán H.
Einarsson, Sveinn Sæmundsson, Kjartan Lárusson,
Ludvíg Hjálmtýsson, Magnús Oddsson, Birgir Þorg-
ilsson, Ágúst Hafberg og Bjami Ámason. Stefán,
Ludvíg, Birgir og Ágúst sátu í fyrsta ráðinu. Aðrir
á myndinni em núverandi ráðsmenn. Á myndina
vantar Albert Guðmundsson, Láms Ottesen og Sig-
urlaug Þorkelsson, sem sátu í fyrstu stjóm. Látnir
eru'Þorleifur Þórðarson, Pétur Daníelsson, Geir H.
Zoega og Sigurður Magnússon.
VEÐUR
/ /p 9
I DAG kl. 12.00: / / / /
7 / /
/ / /
7 / / / /
rj / / / / /
7 F Heimild: Veöurstofa islands
/ / / (Byggt á veöurspá kl. 16.15 i gær)
m *
T T
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyrí 9 skýjað
Reykjavík 10 úrkoma í grennd
Bergen 19 skýjað
Helsinki 27 léttskýjað
Kaupmannah. 28 heiðskírt
Narssarssuaq 10 rigning
Nuuk 7 skýjað
Ósló 20 léttskýjað
Stokkhólmur 29 léttskýjað
Þórshöfn 12 skýjað
Algarve 24 heiðskírt
Amsterdam 27 mistur
Barcelona 26 mistur
Berlín 32 léttskýjað
Chlcago 24 hálfskýjað
Feneyjar 26 skýjað
Frankfurt 28 skýjað
Glasgow 23 mlstur
Hamborg 31 iéttskýjað
Las Palmas vantar
London 21 þokumóða
Los Angeles 19 léttskýjaö
Lúxemborg vantar
Medrfd 29 léttskýjað
Malaga 30 heiðskfrt
Mallorca 31 léttskýjað
Montreal 22 skúrir
New York 24 mistur
Orlando 24 léttskýjað
Parfs vantar
Róm 26 þokumóða
Vfn 29 éttskýjað
Washington 24 léttskýjað.
Winnipeg vantar
VEÐURHORFUR I DAG, 8. JULI
YFIRLIT í GÆR: Kaldi með smá skúrum sunrtan- og vestanlands
en breytileg átt og skúrir austanlands. Annars staðar var hæg
norðvestanátt og að mestu þurrt.
SPÁ: Sunnan- og suðaustangola eða kaldi og rigning sunnan- og
vestanlands undir hádegi en síödegis á Norður- og Austurlandi.
Vestangola og skúrir vestanlands þegar líður á daginn. Hiti 8-12
stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðvestan- og vestan-
átt, kaldi eða stinningskaldi. Skúrir sunnan- og vestanjands, en að
mestu úrkomulaust á Norður- og Norðausturlandi. Hiti við 7-9 stig
um sunnan- og vestanvert landið en heldur hlýrra norðan- og aust-
anlands.
Heiðskírt
TÁKN:
O
▼
<á Léttskýjað
■é Hðlfskýjað
m Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrimar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
f r r
r r r r Rigning
/ / /
* / *
r * r * Slydda
r * r
# * #
* * * * Snjókoma
# * *
■jfl° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
_j_ Skafrenningur
Þrumuveður
Afiirðasölur anna ekki
eftirspurn eftir kjöti
*
Aætlað að um 130 tonn hafi þegar selst
AFURÐASÖLUR hafa ekki annað eftirspurn eftir lambakjöti á til-
boðsverði sem kom á markaðinn síðastliðinn mánudag. Að sögn
Þórhalls Arasonar í landbúnaðarráðuneytinu hafa viðbrögð almenn-
ings verið mjög jákvæð. Hann áætlar að það sem af er vikunni hafi
selst á bilinu 120 til 130 tonn lambakjöts.
Grípa hefur þurft til þess ráðs hannsson, framkvæmdastjóri bú-
að fjölga stöðum þar sem kjöt er
sagað til þess að mæta eftirspurn.
Kjöt er nú sagað á 30 stöðum um
land allt. Guðjón Guðjónsson, mark-
aðsfulltrúi hjá Sláturfélagi Suður-
lands, segir Sláturfélagið hafa af-
greitt nær 35 tonn af lambakjöti
það sem af er en kjötið _sé jafnóðum
keypt úr búðunum. Árni S. Jó-
vörudeildar Sambandsins, tekur í
sama streng og segir illa hægt að
anna hinni miklu eftirspum.
Að sögn Þórhalls Arasonar er
stefnt að því að seija 500 til 600
tonn af lambakjöti á tilboðsverði til
ágústloka. Hefur því um fimmtung-
ur lambakjötsins nú þegar verið
seldur.
Morgunblaðið/Sverrir
Mikið seldist af dilkakjötinu í verslunum í gær. En eins og sjá má
vildu kaupendumir tryggja að þeir fengju ekki of feitt kjöt í pokunum.
Skákmótið í Belfort:
Karl í efsta sætinu
KARL Þorsteins er nú efstur á
opnu skákmóti i Belfort í Frakk-
landi, þegar 7 umferðum er lok-
ið af 9.
Karl er með 6 vinninga en hann
hefur unnið fimm skákir og gert
tvö jafntefli. Hann vann í gær
búlgarskan stórmeistara, Spiridan-
os að nafni.
Ekki var ljóst í gærkvöldi hvort
annar skákmaður, alþjóðlegi
meistarinn Gorordonic frá Júgó-
slavíu, næði Karli að vinningum.
Sá var hálfum vinningi fyrir ofan
Karl fyrir 7. umferð. Skák hans í
þeirri umferð var ekki lokið þegar
síðast fréttist, en hann stóð hönn-
um fæti. Karl og Gorodonic tefldu
saman í 6. umferð og gerðu jafn-
tefli.
Yfir 100 þátttakendur taka þátt
í mótinu.