Morgunblaðið - 08.07.1989, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JULI 1989
15
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Jóhann Karl Spánarkonungur, Vigdís Finnbogadóttir forseti Islands
og Soffia drottning höfðu viðkomu í Nesjavallavirkjun á leiðinni til
Þingvalla í gærdag. A bak við þau þeytist gufan upp úr borholu
númer sex við virkjunina.
Sr. Heimir Steinsson á Þingvöllum rakti sögu hins forna þingstaðar fyrir gestunum í Almannagjá. Eftir
það bauð Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra til ríflega 200 manna hádegisverðar í Valhöll.
gufumökkinn úr einni borholunni.
Þeim þótti mikið til um kraftinn sem
kom þarna upp úr jörðinni og marg-
ir spænsku embættismannanna
drógu myndavélar upp úr frakkavös-
unum.
Að svo búnu var haldið á Þing-
völl. Hópurinn gekk áleiðis ofan í
Almannagjá þar sem sr. Heimir
Steinsson, Þingvallaprestur, ávarp-
aði gesti. Hann rakti sögu Þingvalla
og þakkaði í lokin konungi Spánar
„sem hefði undanfarin ár lagt ríku-
legastan skerf til lýðræðis í landi
sínu.“
Konungshjónin hvíldust skamma
stund í einu af gestaherbergjum
Hótel Valhailar á Þingvöllum en
gengu svo í borðsalinn ásamt forseta
Isiands og forsætisráðherrahjónum.
í hádegisverðarboð Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra og
konu hans Eddu Guðmundsdóttur til
heiðurs konungshjónunum komu 116
gestir.
Boðið var upp á humarsúpu, rist-
aðan Þingvallasilung og íspönnukök-
ur. Forsætisráðherra og Spánarkon-
ungur héldu ræður og Pétur Jónas-
son gítarleikari flutti þijú íslensk
alþýðulög og spænskt gítarverk eftir
Tárrega.
Rakleiðis til Madrid
Að loknum hádegisverði var haldið
rakleiðis til Keflavíkurflugvallar. Þar
beið flugvél í eigu spænska hersins,
sem ætíð er notuð við opinberar
heimsóknir konungs og forsætisráð-
herra Spánar. Meðal þeirra sem
kvöddu konungshjónin voru
Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra, Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra, Sveinn Björnsson,
siðameistari, Albert Guðmundsson,
sendiherra, Guðmundur Benedikts-
son, ráðuneytisstjóri, Böðvar Braga-
son, lögreglustjóri, Ingimundur Sig-
fússon, ræðismaður Spánar á Is-
landi, og Baltasar Samper, listmálari.
Flugvélin með hina tignu gesti
innanborðs lagði af stað suður á
bóginn klukkan sextán í gær. Kon-
ungshjónin komu hingað frá Finn-
landi, nú var ferðinni heitið til Madrid
en höll konungsíjölskyldunnar stend-
ur í útjaðri borgarinnar. Jóhann Karl
Spánarkonungur og Soffía drottning
sýndu í heimsókninni hingað til lands
það sem sagt var um þau fyrir; að
þar færu glaðlynd konungshjón og
alþýðleg.
jöðrum Evrópu og hafi svipaða fyrir-
vara gagnvart vígbúnaði.
Sósíalistar unnu kosningasigur
sinn árið 1983 m.a. vegna andstöðu
við aðiid að NATO og fyrirheits um
þjóðaratkvæðagreiðslu um hana og
því var haldið fram að Evrópubanda-
lagsrikin hefðu gert sósíalistum grein
fyrir því, að höfnuðu þeir aðild að
NATO drægi það mjög úr líkunum
á aðild að EB. Aðildin að NATO
varð því einskonar prófsteinn á holl-
ustu Spánveija við Evrópu. Sósíalist-
ar voru því komnir í vonda aðstöðu
og þeim varð það ljóst að vinna yrði
áframhaldandi aðild að NATO meiri-
hlutafylgi áður en til þjóðaratkvæða-
greiðslu kæmi.
Þeir gerðu því þjóðinni tilboð sem
hún gat ekki hafnað; fækkað skyldi
í bandarísku hetjunum á Spáni, eng-
in kjarnavopn skyldu vera þar á frið-
arímum og spænski heraflinn yrði
ekki settur undir sameiginlega her-
stjórn NATO. A fjórum árum breytt-
ist afstaða almennings úr 75% and-
stöðu í 53% fylgi við NATO.
Afstaða Spánveija til Bandaríkja-
manna tekur að nokkru leyti mið af
stefnu hinna síðarnefndu í málefnum
Mið- og Suður-Ameríku sem hefur
oft og tíðum vakið andúð á Spáni.
í varnarmálaráðuneytinu í Madrid
var blaðamönnum sagt, að af hálfu
Spánveija væri nú unnið að því að
semja annars vegar um að koma
varnarsamvinnunni við herafla
NATO í fastar skorður, sem virðist
þýða að spænski herinn gagnist
NATO á ófriðartímum án þess að
vera undir sameiginlegri herstjórn
bandalagsins, og hins vegar uin aðild
Spánveija að mannvirkjasjóði banda-
lagsins. Þó svo að mjög hafi dregið
úr andstöðunni við NATO er lítill
áhugi á málefnum þess á Spáni, hið
gagnstæða gildir hins vegar um Evr-
ópubandalagið.
Heimilisfang’ innan EB
Um það leyti sem blaðamennirnir
fra' Brussel ferðuðust um Spán stað-
festu báðar deildir spænska þingsins
aðild Spánvetja að Vestur-Evrópu-
sambandinu, WEU. Með aðild sinni
vilja Spánveijar staðfesta þá skoðun,
að um öryggis og varnarmál eigi að
fjalla innan EB. Vestur-Evrópusam-
bandið sé heppilegt millistig, þar til
Evrópubandalagið sjálft taki örygg-
is- og varnarmál á sínar hendur, en
þeir hafa lýst yfir andstöðu við aðild
ríkja sem standa utan Evrópubanda-
lagsins að WEU. Aðildin að WEU
byggist þess vegna ekki á aðildinni
að NATO heldur aðildinni að EB,
þetta skiptir miklu máli ef meta á
afstöðu Spánveija til evrópskrar
samvinnu.
Aðild Spánveija að Evrópubanda-
laginu er í þeirra augum staðfesting
þess -að þeir séu hluti hinnar evr-
ópsku fjöldskyldu og stuðningur við
Evrópubandalagið er yfirgnæfandi.
Einungis einn skugga ber á sam-
skipti Spánveija við önnur Evrópu-
ríki, málefni Gíbraltar. Spánveijar
telja að með aðild sinni að NATO
og EB auki þeir líkurnar á farsælli
lausn deilunnar við Breta. Frankó
sagði á sínum tíma að í tímans rás
muni Gíbraltar falla Spánveijum í
skaut sem fullþroskaður ávöxtur, að
líkindum eru Spánveijar sammála
gamla einræðisherranum.
Áhugi bæði almennings, stjórn-
málamanna og atvinnurekenda á
málefnum Evrópu er mikill og af
öllu er augljóst að aðildin að EB
hefur haft umtalsverð áhrif á Spáni.
Innan Evrópu er talað um spænska
efnahagsundrið, þjóðarframleiðsla
hefur vaxið umtalsvert og erlend
fjárfesting að sama skapi. Sjálfir líta
Spánveijar þannig á að suðurhluti
lands þeirra verði einskonar Kali-
fornia Evrópu og þeir undirbúa nú
að kappi heimssýningu í Sowillay svo
að ekki sé minnst á Olympíuleikana
í Barcelona.
Spánveijar vilja vera góðir Evr-
ópumenn og styðja heilshugar tillög-
ur um nánari samvinnu og endanleg-
an samruna bandalagsríkjanna. For-
setatíð þeirra í EB sem lauk nú l.júlí
var einskonar prófsteinn á getu og
vilja Spánveija. Öllum ber saman um
að leiðtogafundurinn í Madrid hafi
verið Felipe Gonzalez og Spánvejum
öllum til sóma. Þeir hafi ekki staðið
sig síður en aðrar þjóðir þá sex
manuði sem þeir gegndu embættinu.
Enginn efast lengur um góðan vilja
og getu Spánveija.
Höfundur cr Iréttaritari
Morgunblaðsins íBrussel.
RAFGEYIHAMARKAÐUR
Rafgeymar fyrir öll farartæki
Rafgeymarfyrir báta
Rafgeymar fyrir sumarbústaði
Aðeins í dag laugardag kl. 10-16.
Bíldshöfða 12.