Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 22

Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JULI 1989 Israel: Krafist hefiida fyrir fóm- arlömb tilræðis múslima Æstir syrgjendur gera aðsúg að Shimon Peres leiðtoga Verkamannaflokksins Jcrúsalem, Beirút. Reuter. ÖFGASINNUÐ samtök bókstafstrúarmanna úr röðum múslima, Jihad, sögðu í gær að einn úr þeirra hópi hefði valdið mann- skæðu bílslysi sem varð á þjóðvegi milli Tel Aviv og Jerúsalem í ísrael á fimmtudag. Jihad-hreyfingin sendi fréttastofii í Líbanon orðsendingu þar sem sagði að félagi þeirra hefði „drýgt hetju- dáð“ er hann greip í stýri bílsins sem valt niður brekku. Eldur varð laus í bílnum og 14 manns, þ. á m. erlendir ferðamenn, létu lífið auk 27 sem slösuðust. 28 ára gamall Palestínumaður frá Gaza-svæðinu, sem olli slysinu, er nú yfirheyrður af lögreglu á sjúkrahúsi í Jerúsalem. Jihad varaði ísraelsk sljórnvöld við því að gera manninum eða fjölskyldu hans nokkuð til miska. Æstir gyðingar kröfðust þess í gær að fórnarlambanna yrði hefiit en tilræðið er hið mannskæðasta í landinu frá 1978. „Heróp dagsins er hefnd, eng- um araba skyldi leyft að koma á þennan stað,“ sagði Meir Kahane rabbí, leiðtogi Kach-hreyfingar- innar, sem eru samtök öfgasinn- aðra bókstafstruarmanna úr röð- um gyðinga. Kahane hélt tölu við húsakynni útfararstjóra þar sem lík eins farþega langferðabílsins, Miriam Zafari frá Jerúsalem, var á fjölum. Hreyfingu Kahanes var bannað að bjóða fram við síðustu þingkosningar og sögð boða kyn- þáttafordóma. „Drepið arabana!" öskruðu nokkur hundruð stuðn- ingsmenn rabbíans. Shimon Peres, formaður Verka- mannaflokksins og fjármálaráð- herra í samsteypustjórn Yitzhaks Shamirs forsætisráðherr, hugðist vera við útför Zafari, sem var eig- inkona vinar hans. Æstir syrgj- endur gerðu aðsúg að ráðherran- um og var gijóti kastað í bifreið hans, að sögn sjónarvotta. Tilraun Peresar til að ræða við mannfjöld- ann fór út um þúfur. Lögreglu- mönnum tókst með naumindum að slá skjaldborg um ráðherrann og slapp hann óskaddaður af staðnum en múgurinn æpti ókvæðisorð á eftir honum. Verkamannaflokkurinn hefur gagnrýnt tillögur Líkúdflokks Yitzhaks Shamirs forsætisráð- herra um kosningar á hemumdu svæðunum þar sem Palestínuara- bar eru þorri íbúanna. Mörg atriði í tillögunum voru höfð með til að þóknast harðlínumönnum Líkúds og þrengja kosti Palestínumanna. Á mánudag hyggst miðstjórn Verkamannaflokksins koma sam- an til að ræða viðbrögð við tillög- unum og hvort rétt sé að yfirgefa samsteypustjórnina en Verka- mannaflokkurinn hefur verið mun samningafúsari gagnvart Pa- lestínumönnum en Líkúd. Embættismenn í Jerúsalem töldu víst að tilræðið á fimmtudag yrði til að magna upp hatur gyð- inga á aröbum, hindra viðræður deiluaðila og styrkja harðlínu- stefnu í röðum Líkúds. Kunnir talsmenn Palestínumanna á hern- umdu svæðunum hafa fordæmt tilræðið og segja að það muni skaða málstað þjóðarinnar en full- trúi Frelsissamtaka Palestínu- manna (PLO) í Túnis skellti í gær skuldinni á harðlíunumenn úr röð- um gyðinga. Hann sagði að hinir látnu væru fórnarlömb ísraelskra stjórnvalda sem létu sig „engu skipta örlög sinnar eigin þjóðar eða okkar.“ Vinstrisinnaðir Israel- ar, er vilja viðræður við PLO, hafa brugðist ókvæða við þessum ummælum. Uno færð blóm Reuter Sosuke Uno, forsætisráðherra Jápans, ásamt Ungftoí Blómarós, Yoko Izumi. Unga konan var kjörin rósarprinsessa á blómahátíð í borginni Fukuyama og lagði hún lykkju á leið sína til að færa forsætisráðherranum rósavönd i embættisbústað hans í Tókíó. Uno, sem tók við af Takeshita er sá síðarnefndi neyddist til að segja af sér vegna tengsla sinna við Recruit-hneykslið, hefur sætt þungum ásökunum í japönskum fjölmiðlum vegna meints kynsvalls. Danmörk: Slæm afkoma sjómanna í Skagen Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, AFKOMA sjómanna í Skagen, eins af stærstu útgerðarbæjum Danmerkur, er mjög slæm. Könnun, sem samtök í sjávarút- vegi létu gera, leiddi í ljós, að útgerðir 110 báta og togara í Skagen töpuðu 52.000 dönskum krónum (405 þús. ísl. kr.) að meðaltali á síðasta ári. Alls eiga 187 bátar og togarar heimahöfn fréttaritara Morgunblaðsins. í Skagen. Einn af forgöngumönnum könn- unarinnar, Jens Rasmussen, telur, að ástandið batni ekki á þessu ári, nema síður sé. Fjöldi útgerða muni leggja upp laupana vegna hertra kvótatakmarkana. Hann segir, að fiskveiðistefnan, sem Evrópubanda- lagsríkin komu sér saman um 1983, hafi verið mikið áfall fyrir danskan sjávarútveg. Markmiðið hafi fyrst og síðast verið að dreifa veiðunum jafnt yfir árið, en það hafi algerlega mistekist. Rasmussen segir í viðtali við Jyl- Iandsposten, að hann hafi enga trú á vísindalegri stjórnun fiskveiða, sem byggist á ráðgjöf fiskifræð- inga. Vísindamennirnir eru sífellt að gera mistök, segir hann. Gómsætir réttir og allt á einum stað Ferðamarkaðurinn er eina verslunin á íslandi, sem býður upp á alhliða ferðavörur eins og t.d. PARADISO tellihýsin, uppsett á 'Amínúlu. SérhðnnuO fyrir Islenskar aústæúur. DALESMAN sumarhfisin, sem nú fást einnig uppsett á Spáni. SAFARI MONZA hjúlhýsi - tjaldvagnar - kerrur. Tjöld og viðlegubúnaður - Garðhúsgögn frá Seglagerðinni Ægi. Gasvörur frá Olíufélaginu Skeljungi. Reiðhjól frá Fálkanum. Fortjöld á hjólhýsi og fellihýsi - flestar tegundir. Fjölbreytt úrval af vörum ísportið og ferðalagið. Sjón er sögu Vilt þú vinna þér inn gasgrill að verðmæti kr. 25.000,-? Ef svo er, áttu að svara einni spurningu, og hún er: Hvað er svona sérstakt við PARADISO fellihýsin? Svarið er að finna í auglýsingunni. Dregið verður úr réttum lausnum ( 1. ágúst. Sendið svarið á meðfylgjandi horni, ásamt nafni, heimilis- fangi og síma, fyrir 1. ágúst, merict: Ferðamarkaðurinn, Bíldshöfða 12, 112 Reykjavík. Einn heppinn fær gasgrill. Laugardaginn 8. júlí frá kl. 10.00 til 18.00 og sunnudag- inn 9. júlí frá kl. 13.00 til 18.00 mun Baldur Úlfarsson, grillmeistari, grilla nýja markaðslambið hjá Ferðamark- aðnum, Bíldshöfða 12. Auk þess verða gosdrykkir frá Ölgerðinni á boðstólum. Það verður ^annkölluð fjölskyldustemmning hjá Ferðamarkaðnum. Við erum alltaf í leiðinni. Ferðamarkaðurinn, // / / / Bíldshöfða 12 (við sömu götu og Bifreiðaskoðun íslands). Sími 674100.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.