Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARPAGUR 8. JÚLÍ 1989 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoðarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. MatthíasJohannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 900 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 80 kr. eintakið. Gervilækkanir og t alnab le kkingar Ríkisstjómin hefur að undan- förnu verið önnum kafin við að selja lambakjöt á útsölu. Lambakjöt sem var sérpakkað og selt á tilboðsverði, sem ákveðið var af fjármálaráðherra og ríkisstjóm. Engin ríkisstjórn lýðfijáls lands gengur fram og ákveður að bjóða landsmönnum ákveðna vöra í ákveðnum pakkningum til sölu á verði sem ákveðið er í stjórnarráðshúsinu. Útsala ríkisstjórnarinnar á auðvitað sínar skýringar. Hún hefur ekki við neitt ráðið í barát- tunni við verðbólguna og því er gripið til þess ráðs að auka nið- urgreiðslur og efna til útsölu, líkt og verslanir gera gjarna þegar ekkert sélst. Þannig er reynt að telja landsmönnum trú um að allt sé í lagi og að ríkis- stjórnin hafi í fullu tré við verð- bólgudrauginn. En blekkingin opinberast fyrr eða síðar. Niðurgreiðslur, tilfærslur og millifærslur hafa því miður verið einkenni flestra ríkisstjórna ís- lands. Verðlagshöft og miðstýr- ing hafa verið tæki stjórnmála- manna til að fela eigin mistök í ríkisfjármálum og peningamál- um. Mikilvæg skref í frjálsræð- isátt vora stigin á áranum 1984 til 1986, þegar horfið var frá beinum afskiptum stjórnvalda af verðlagningu og vaxta- ákvörðunum. Þá var Sjálfstæð- isflokkurinn í ríkisstjóm. Bú- vöraverð er að vísu enn ákveðið af fámennri nefnd, sem hefur það eitt verkefni að tryggja að verðið sé í samræmi við fram- leiðslukostnað, en engu sinnt um framboð og eftirspurn, sem aft- ur letur frekar en hvetur menn til að breyta framleiðsluháttum og auka hagkvæmni. Aukið fijálsræði í verðlags- og vaxta- málum átti stóran þátt í þeim árangri sem náðist í baráttunni við verðbólguna. Á áranum 1980 til 1983 var verðbólga að meðaltali 60% og fór á tímabili yfir 100%, en frá 1984 til 1988 var verðbólgan nær þrisvar sinn- um lægri. Þegar ríkisstjómin tók við stjórnartaumunum 28. septem- ber á liðnu ári var þegar gripið til aðgerða, allt í takt við talna- blekkingu og gervilækkanir. Fjármálaráðherra var heimilað að auka ríkisútgjöld um 600 milljónir króna, þvert á íjárlög, og laun og verðlag voru fryst. Niðurgreiðslur búvara vora auknar, raforkuverð til frysti- húsa niðurgreitt, styrkur veittur til ullariðnaðarins, og svo fram- vegis. Allt á sömu bókina lært, skammtímaaðgerðir án langtímaáætlana. Og ekki má gleyma hinum dæmalausu at- vinnutryggingarsjóði útflutn- ingsgreina og hlutaíjársjóði. Og í vor var ákveðið að auka niður- greiðslur um 600 milljónir króna í tengslum við kjarasamninga BSRB og forystumenn launþega ljölluðu um það af broslegu sak- leysi, rétt eins og þeir tryðu því sjálfír að þessar 600 milljónir yrðu sóttar í vasa einhverra annarra en skattgreiðenda og neytenda; þ.e. launþega sjálfra! Þessi ríkisstjórn er auðvitað ekki sú eina sem reynt hefur að komast tímabundið út úr vandamálum með því að auka niðurgreiðslur og kalla fram gervilækkanir, sem fólkið borg- ar með sköttum. Slíku fálmi við stjórn efnahagsmála er verið að hafna um heim allan. Ríkisstjórninni hefur mistek- ist að stjóma efnahagsmálum með þeim hætti að hér skapist eðlilegt atvinnu- og efnahagslíf. Talnablekkingin er stunduð af meira kappi en áður og lán- skjaravísitölu breytt. Árangur- inn er vandræðaástand; verð- bólga; upplausn; atvinnuleysi; jafnvel landflótti. Frá 1984 til 1988 unnust mikilvægir sigrar á verðbólg- unni og lagður var grannur að heilbrigðara efnahagslífi, hvað sem um þær ríkisstjórnir má segja að öðra leyti. Sá ávinning- ur náðist ekki án fórna. Núver- andi ríkisstjórn hefur gert þær fómir að engu. Skref eru stigin til baka. Það er kannski ekki nema von að stjómmálamönnum takist að halda talnablekkingum áfram. Fjölmiðlar festast í talnanetinu eins og aðrir. í fréttum þeirra af lögbundnum skattalækkun- um er lögð áherslá á að ríkissjóð- ur verði fyrir tekjutapi, en ekki að hagur alls þorra landsmanna batni með lægri álögum. Það er löngu orðið timabært að láta hag einstaklinga og fjölskyldna sitja í fyrirrúmi, ríkisvaldið er nógu öflugt til að sjá um sig. Ríkissjóður sogar æ meira fjár- magn til sín og hvort einhver lækkun opinberra gjalda veldur ríkissjóði tekjutapi skiptir litlu. Það sem mestu skiptir er hveij- ir fá að njóta, með beinum eða óbeinum hætti, skattalækkana og fátt bætir afkomu launþega meira en lækkun óbeinna skatta. Frá morgni til kvölds eftir Þorstein Pálsson Það bregst yfirleitt ekki að Morgunblaðið er komið inn um bréfalúguna fyrir allar aldir á morgnana. Svo var einnig síðast- liðinn miðvikudag og með morgun- mjólkinni gat maður lesið um nýj- asta boðskap blessaðrar ríkis- stjómarinnar. í stórri baksíðufrétt var frá því greint að ríkisstjórnin hefði nú til alvarlegrar íhugunar að afskrifa lán loðdýrabænda að öllu eða hluta hjá stofnlánadeild landbúnaðarins. Samtals munu þessi lán nema ein- um og hálfum milljarði króna. Eða helmingnum af áætluðum heildar- skuldum loðdýrabænda. Morgunblaðið hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að þetta eigi að gera til þess að losa veð þannig að loðdýrabændur geti tek- ið ný skuldbreytingarlán. Undan- farna mánuði hafa menn ekki far- ið í grafgötur um þá miklu erfið- leika sem loðdýraræktin á við að etja og ég geri ráð fyrir því að fleirum hafi þótt sem mér þennan miðvikudagsmorgun að þessar fréttir lýstu bæði gæsku og ríkum skilningi ríkisstjórnarinnar. Víst er að þessi boðskapur bar ekki vitni um andúð stjórnarflokkanna í garð landbúnaðarins. Varhugaverð kennileiti En Morgunblaðið kemur árla dags og hratt flýgur stund. Fyrr en varði var komið kvöld og hjá því varð ekki komist að hlusta á boðskap utanríkisráðherrans í kvöldfréttum útvarps. Þá hafði mikið breyst frá því um morguninn. Nú tilkynnti ut- anríkisráðherrann að ríkisstjórnin stæði enn einu sinni á krossgötum og það yrði prófsteinn á árangur ríkisstjómarsamstarfsins hvort landbúnaðarkerfið yrði skorið upp og ríkissjóðsframlögin til land- búnaðarmála skorin hraustlega niður. Allt var þetta sagt tæpit- ungulaust og með vestfirskum áherslum. Fréttamanni Ríkisútvarpsins datt auðvitað ekki í hug að spyija utanríkisráðherrann að því hvernig þessi nýi boðskapur kæmi heim og saman við hinn gæskufulla og skilningsríka boðskap ríkisstjórn- arinnar í Morgunblaðinu fyrr um daginn. Og ekki veit ég um það hvort slík spurning var of erfið fyrir fréttamanninn eða ráðher- rann. Alltént kom hún ekki fram. Ég spurði hinsvegar einn af gamalreyndúm forystumönnum Alþýðuflokksins að því hvort líklegt væri að niðurstaðan úr þess- um mikla prófi ríkisstjórnarinnar sem utanríkisráðherranri talaði um í fréttinni yrði í samræmi við Morg- unblaðsfréttina eða kvöldfréttir útvarpsins. Hann svaraði mér eitt- hvað í þá veru að honum sýndist að prófsteinar og krossgötur væru einhver varhugaverðustu kennileiti í pólitíkinni um þessar mundir. Spurt um verk en ekki orð Ekki fer á milli mála að formað- ur Alþýðuflokksins grípur til stór- yrtra yfirlýsinga af því tagi sem hér hefur verið gert að umtalsefni vegna þeirrar erfiðu stöðu sem flokkur hans er í. Ljóst er að Al- þýðuflokkurinn hefur verið að glata trausti kjósenda sinna og formaðurinn telur vafalaust að með yfirlýsingum af þessu tagi megi bæta stöðuna. Engin ástæða er til þess að lasta viðleitnina en auðvitað er það svo að þegar kjós- endur fella sinn dóm verður spurt um verk en ekki orðin ein. Fæstir deila um það að land- búnaðarkerfið er komið í verulegar ógöngur. Ef skjóta á traustari stoð- um undir landbúnaðarframleiðsl- una þarf að auka innlenda sam- keppni, gera landbúnaðinn óháðari ríkisafskiptum og bændastéttina sjájfstæðari. í blaðaviðtali fyrir skömmu lét formaður Alþýðuflokksins svo um mælt að miklu auðveldara væri fyrir Alþýðuflokkinn að ná fram stefnumálum um að draga úr ríkis- framlögum til landbúnaðar í sam- vinnu við Framsókn og Alþýðu- bandalag en við Sjálfstæðisflokk- inn. Enginn fjölmiðlamaður mér vitanlega hefur reynt að grafast fyrir um staðreyndir fullyrðinga af þessu tagi. Það er því ærin ástæða að taka dæmi þar um. A-flokkar tvöfalda niðurgreiðslur Einn stærsti útgjaldaliður ríkis- sjóðs vegna landbúnaðarfram- leiðslu er niðurgreiðslur. Þegar Sjálfstæðisflokkurinn tók við stjórn ríkisfjármálanna vorið 1983 voru niðurgreiðslurnar svo miklar að þær námu hér um bil 5,5% af heildarútgjöldum vísitölufjölskyl- dunnar. Þegar sjálfstæðismenn létu af stjórn .fjármálaráðuneytis- ins flórum árum síðar, vorið 1987, var búið að skera þessi útgjöld niður um%. Niðurgreiðslurnar voru þá aðeins 1,7% af útgjöldum vísi- tölufjölskyldunnar. Það svarar til u.þ.b. 1,4% af útgjöldunum í nýja vísitölugrundvellinum sem tekin var í notkun fyrir einu ári. En hvað hefur nú gerst í þessum efnum eftir að formenn Álþýðu- flokksins og Alþýðubandalagsins hafa setið í fjármálaráðuneytinu frá því á vordögum 1987. Vægi niðurgreiðslna hefur verið tvöfal- Þorsteinn Pálsson „Ég spurði hinsvegar einn af gamalreyndum forystumönnum Al- þýðuflokksins að því hvort líklegt væri að niðurstaðan úr þessum mikla prófi ríkisstjórn- arinnar sem utanríkis- ráðherrann talaði um í fréttinni yrði í samræmi við Morgunblaðsfrétt- ina eða kvöldfiréttir út- varpsins. Hann svaraði mér eitthvað í þá veru að honum sýndist að prófsteinar og kross- götur væru einhver varhugaverðustu kennileiti í pólitíkinni um þessar mundir.“ dað á þessum tíma, úr u.þ.b. 1,4% í u.þ.b. 2,6% af útgjöldum vísitölu- fjölskyldunnar. Er þá ótalin mesta aukning á öðrum uppbótum og styrkjum bæði til landbúnaðar og sjávarútvegs sem um getur á einu ári og núverandi ríkisstjórn hefur staðið fyrir. Þegar tölur af þessu tagi eru skoðaðar verður ekki annað séð en að Framsóknarflokkurinn sé nokkuð hlutlaus í þessum efnum. Árangurinn að því er varðar heil- brigða efnahagsstjóm sýnist miklu fremur fara eftir því hveijir það eru sem vinna með framsóknar- mönnum. Og tölurnar staðfesta að formenn A-flokkanna hafa ekki verið að draga úr niðurgreiðslum og uppbótargreiðslum úr ríkissjóði heldur hafa þvert á móti sjaldan verið stigin jafn stór skref í að auka útgjöld ríkisins á þessu sviði eftir að þeir komu til skjalanna í ríkisstjóm landsins. Ekki er nema von að þingmenn Alþýðuflokksins óttist kennileiti eins og prófsteina og krossgötur þegar málin era brotin til mergjar. Og augljóst er að kjósendur Al- þýðuflokksins eru orðnir þreyttir á vegvillum flokksforystunnar á ferð hennar milli pólitískra kennleita. Sérkennilegar yfírlýsingar Óneitanlega er það markverður viðburður þegar utanríkisráðherra íslands tekur við formennsku í ráðherranefnd fríverslunarsam- taka Evrópu. Formennskan í ráð- herranefndinni féll í okkar hlut nú um síðustu mánaðamót sem kunn- ugt er og verður það næstu sex mánuði. Eðlilega höfðu fjölmiðlar ítarleg viðtöl við utanríkisráðherra í tilefni af þessum viðburði. En boðskapur utanríkisráðherrans á þessum tímamótum ' var á hinn bóginn í litlu samræmi við mikil- vægið. A laugardag fyrir réttri viku, fyrsta degi utanríkisráðherra í for- mennskuhlutverkinu, flytur Morg- unblaðið þann boðskap ráðherrans að hann íhugi að ráða sérstakan staðgengil utanríkisráðherra með- an hann gegni formennsku í EFTA ráðinu. Þessi yfirlýsing kom mörg- um spánskt fyrir sjónir enda áttu menn erfitt með að gera sér í hug- arlund að formaður ráðherranefnd- ar fríverslunarsamtakanna væri einskonar húskarl hjá staðgengli sínum. Þegar utanríkisráðherrann áttaði sig á því, að hann hafði verið að íhuga mál og verið að gefa út yfirlýsingar, sem vora al- gjörlega út í hött, lýsti hann því yfir um leið og Morgunblaðið kom út eftir helgina, að honum hefði aldrei dottið í hug að ráða stað- gengil utanríkisráðherra heldur hefði hann velt því fyrir sér að ráða sér aðstoðarmann! Og mig minnir svo að það hafi verið daginn þar á eftir, að hann lýsti því yfir að hann ætlaði alls ekki að ráða sér aðstoðarmann. Það kæmi ekki til greina! En mitt í allri umræðunni um staðgengilinn fluttu fjölmiðlar fréttir af því að formaður Alþýðu- flokksins hefði íhugað það að láta af embætti utanríkisráðherra og biðja Jón Sigurðsson að taka við því starfi. Viðskiptaráðherrann lýsti því yfir í fjölmiðlum margsinn- is að þetta hefðu þeir rætt og hann væri tilbúinn að gera hvaðeina sem formaðurinn bæði hann um og þjónaði flokkshagsmunum. Þegar utanríkisráðherrann varð var við að mönnum þótti það nokk- uð kyndugt, að hann ætlaði að hlaupast undan merkjum og gefast upp í utanríkisráðuneytinu eftir svo skamman tíma gaf hann út yfirlýsingu um það að morgni dags að ekki kæmi til greina að hann færi úr utanríkisráðuneytinu. En um hádegisbil fluttu svo fjölmiðlar fregnir þess efnis að hann íhugaði að fara úr ráðuneytinu upp úr ára- mótum! Öll hefur þessi umræða verið hin spaugilegasta. Og auðvitað er hún ekki til annars en að brosa að. En framhjá þeirri staðreynd verður ekki litið að þessi sápuópera er helsta málefnaframlag utanrík- isráðherrans þegar hann tekur við formennsku í ráðherranefnd ^fríverslunarsamtakanna. Einmitt á liessum tíma standa fyrir dyram mjög mikilvægar viðræður fríversl- unarsamtakanna við Evrópu- bandalagið. Þó að sápuóperur af þessu tagi geti verið gamanmál . hér heima fyrir er þó líklegt að þær rýri álit okkar á erlendum vettvangi. Kloftiingnr í ríkisstjórninni Það er svo sérstakt áhyggjuefni að ríkisstjórnin virðist vera klofin í afstöðu sinni til þeirra viðræðna sem nú fara fram á vettvangi fríverslunarsamtakanna um tengsl þeirra við Evrópubandalagið. For- sætisráðherra hefur lýst fyrirvör- um um flest meginmarkmið þess- ara viðræðna og Alþýðubandalagið hefur ítrekað þá afstöðu sína. Svo virðist sem forsætisráðherrann sé fyrst og fremst að þjóna kröfum Álþýðubandalagsins og vinstri armsins í Framsókn þegar hann mótar afstöðu íslensku ríkisstjórn- arinnar í þessum efnum. Á hinn bóginn hafa komið fram mjög heil- brigð og skynsamlega viðhorf af hálfu Jóns Sigurðssonar viðskipta- ráðherra til þessara viðræða og augljóst er að veralegur munur er annars vegar á afstöðu hans til þessara mála og hins vegar afstöðu fjármálaráðherra og forsætisráð- herra. Stefnuleysi ríkisstjómarinnar í þessum efnum getur orðið okkur dýrkeypt. íslendingar eiga auðvit- að að setja sér það markmið að tengjast þeirri þróun sem á sér stað í Evrópu, með einum eða öðr- um hætti, og ákveða að vinna ein- arðlega að þeim markmiðum. En vandséð er að núverandi ríkisstjórn geti mótað og náð samstöðu um heilsteypta stefnu í þessum málum. Þrátt fyrir skynsamlegan mál- flutning viðskiptaráðherrans virð- ast þessi mál vera í sápuóperabún- ingi hjá ríkisstjórninni. Höfundur er formaður Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið/Einar Falur Karl Óskarsson kvikmyndatökumaður, Egill Eðvarðsson leikstjóri og Lilja Þórisdóttir sem fer með aðahlutverkið, undirbúa töku við Reykja- nesvita. Á bak við Egil má greina „steinhúsið" sem sérstaklega var byggt fyrir myndina. Morgunblaðið/Einar Falur Rúrik Haraldsson farðaður fyrir töku, en hann fer með eitt af stærstu hlutverkunum í Stein- barni. Jólamynd sjónvarpsins: Tökur á Steinbami vel á veg komnar Kvikmyndatökur á jólamynd Sjónvarpsins, Steinbarni, eru nú langt komnar. Útitökum er lokið en þær fóru fram við Reykjanes- vita í júní. Handrit myndarinnar var skrifað með þann stað I huga og þar var smíðuð mikil leik- mynd. Undanfarna viku hafur kvikmyndagerðarfólkið verið að störfum í myndveri og er áætlað er að tökum ljúki um miðjan mánuðinn. Steinbarn er stærsta verkefiii Sjónvarpsins í ár og með þeim þeim stærstu sem Sjónvarpið hefur ráðist í. Lilja Þórisdóttir fer með hlut- verk ungrar konu í myndinni sem kemur á afskekktan stað til að sinna ritstörfum og er það aðal- hlutverk myndarinnar. I öðrum stóram hlutverkum eru þau Rúrik Haraldsson og Margrét Ólafsdótt- ir. Auk þess fer átta ára stúlka, Klara íris Vigfúsdóttir, með við- amikið hlutverk og erfitt, að sögn aðstandenda myndarinnar. Þrátt fyrir ungan aldur er þetta í annað sinn sem Klara íris leikur fyrir framan kvikmyndavélar, en hún lék einnig í mynd Hrafns Gunn- laugssonar, í skugga hrafnsins. Leikstjóri Steinbarns er Egill Eð- varðsson, en Karl Óskarsson sér um kvikmyndatöku og hljóðmaður er Agnar Einarsson. Jón Þórisson hefur gert leikmyndina sem er tals- vert viðamikil. Meðal annars var Morgunblaðið/BAR Klara íris Vigfiísdóttir fer með stórt hlutverk í Steinbami, en hún er aðeins átta ár gömul. byggt heilt „steinhús" við Reykja- nesvita, auk tveggja smærri húsa. Með önnur hlutverk fara Hallm- ar Sigurðsson, Þráinn Karlsson, Sigurþór Heimir Albertsson, Sig- urður Karlsson og Sólveig Arnar- dóttir. Að jafnaði hefur um 14 manna hópur unnið að gerð myndarinnar. Þær þijár vikur sem tökur stóðu yfir við Reykjanesvita bjó hann í verbúð í Grindavík. Að sögn Marín Morgunblaðið/BAR Margrét Ólafsdóttir með postu- línsbrúðu sem hefiir þýðingu í söguþræði myndarinnar. Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra myndarinnar hefur samvinna þessa hóps gengið mjög vel, enda sé þetta fólk sem kann til verka. Handritið að Steinbarni er eftir þau Vilborgu Einarsdóttur og Kristján Friðriksson og vann Það vann til verðlauna í samkeppni um sjónvarpshandrit sem Sjónvarpið efndi til 1987 og var sent sem framlag íslands í handritakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva. Þar komst það í úrslit og hafnaði í þriðja sæti. Eins og áður sagði er gert ráð fyrir að kvikmyndatöku ljúki um miðjan mánuðinn, en frekari vinnsla myndarinnar bíður svo til hausts. Kvikmyndin er tekin upp á SuperBeta-myndband og verður fullgerð um klukkustundar löng. Gæðamál komu ekki við sögu þegar Aldi Suður hætti að kaupa íslenskt lagmeti - segir Wolfgang von Geldern, sjávarútvegsráðherra Vestur-Þýskalands Wolfgang von Geldern, sjávarútvegsráðherra Vestur-Þýskalands, hefur lýst því yfír í heimsókn sinni hérlendis að vestur-þýska ríkis- stjórnin sé þeirrar skoðunar að um ísland þurfi ekki að gilda sú meginregla Evrópubandalagsins að í skiptum fyrir óheftan aðgang að mörkuðum fyrir sjávarvörur komi aðgangur að auðlindum. Telur hann að nýr grundvöllur sé að skapast fyrir samkomulag íslands og EB um sjávarútvegsmál. í slíkum samningi gætu falist sameiginlegar rannsóknir og sameiginleg nýting flökkustofna auk hugsanlegs að- gangs EB að kolmunna á íslandsmiðum. Morgunblaðið átti samtal við von Geldern um samskipti íslands og EB, hvalveiðimálið og sam- skipti íslands og Vestur-Þýskalands. — Hvernig er stemmningin í ráð- herraráði Evrópubandalagsins þeg- ar sjávarútvegsráðherramir hittast. Er framtíðin fijáls verslún með fisk eða stendur til að reisa tollarmúra fyrir lönd eins og ísland sem era utan bandalagsins? „Við ræddum einmitt um það hér á fundum með Halldóri Ásgríms- syni að það væri gagnlegt og skyn- samlegt að til væri samningur milli Islands og Evrópubandalagsins um sjávarútvegsmál. Við höfum áhuga á því að koma slíkum viðræðum í gang því samningur til lengri tíma er miklu skynsamlegri heldur en að Evrópubandalagið ákveði tolla einhliða frá ári til árs. Hingað til hefur ekki komið til slíkra viðræðna vegna þess að framkvæmdastjórn EB hefur haldið því til streitu að óheftur aðgangur að mörkuðum EB fáist einungis í skiptum fyrir að- gang að fiskiauðlindum íslands. Afstaða Þjóðveija er sú að þetta tvennt verði alls ekki að tvinna sam- an. Við teljum að önnur atriði eins og aðgangur að íslenskum mark- aði, sameiginlegar rannsóknir og sameiginleg nýting flökkustofna geti komið þama. inn í.“ — Hvaða lönd í EB styðja helst þessa afstöðu Þjóðveija? „Það get ég ekki sagt til um. Það verður ekki aúðvelt að fá sam- þykki hinna landanna og fram- kvæmdastjórnarinnar við þessu við- horfi. En horfurnar eru alls ekki svo slæmar og góðu rökin era okk- ar megin.“ — Gætu Islendingar boðið að- gang að sínum markaði í skiptum fyrir óheftan aðgang að EB-mörk- uðum? Morgunblaðið/Þorkell Dr. Wolfgang von Geldern, sjáv- arútvegsráðherra Vestur-Þýska- lands. „Það get ég ekki séð því íslenski markaðurinn er nú þegar opinn en sú staðreynd hlýtur hins vegar að koma sér vel fyrir íslendinga til að benda á í samningaviðræðum. Ég á fremur við að Islendingar gætu náð hagstæðum tollasamningum við EB ef samið væri til dæmis um sameiginlega nýtingu EB og íslend- inga á fiskistofnum milli Grænlands og íslands eða aðgang EB að kol- munna á íslandsmiðum. Halldór Ásgrímsson hefur oft gefið til kynna að þarna sé ef til vill mögu- leiki.“ — Hvers vegna hætti Aldi-Suður að kaupa íslenskar fiskafurðir að þínu mati? „Ég held nú j fyrsta lagi að kaup- bannsherferð grænfriðunga gegn íslenskum afurðum í Vestur-Þýska- landi sé búið spil eða fast að því. Fyrirtæki eins og Aldi era mjög viðkvæm gagnvart hótunum og hræringum á markaði. Ég þekki Aldi-bræðurna nógu vel til að vita að þeir hafa ekkert á móti hvalveið- um íslendinga en þeir láta fyrr eða síðar undan þrýstingi, því verður ekki neitað.“ — Gæðamál spiluðu ekki þarna inn í? „Nei.nei þeir létu undan hótunum grænfriðunga." — Þýska sendinefndin lýsti því yfir á Grænlandi að hún hefði áhuga á að kaupa meira af þorski og rækj- um. Gildir það sama um Island? „Já. Fiskneysla fer vaxandi í Vestur-Þýskalandi og við eram háð innflutningi að áttíu hundraðshlut- um. Við ^sýnum góðum afurðum Trá íslandi því mikinn áhuga.“ — Ertu sáttur við núverandi fyr- irkomulag fiskinnflutnings til Þýskalands frá íslandi? ;,Ég er þeirrar skoðunar að íslenska ríkisstjórnin eigi ekki að hafa bein áhrif á fiskútflutning. Af og til hefur komið til óþæginda vegna fiskinnflutnings beint inn i land, framhjá fiskmörkuðum í Norður-Þýskalandi. Við ræddum það á fundum okkar að þetta gæti ekki verið íslendingum í hag.Ég held að útflytjendur sjálfir verði að hafa eftirlit með þessum hlutum \ fremur en ríkisvaldið.“ — Hvernig metur þú árangur - heimsóknar Halldórs Ásgrímssonar | til Vestur-Þýskalands fyrr á árinu um þær mundir sem hvalamálið var 1 hvað mest í deiglunni. 1: „Sú heimsókn borgaði sig svo 1 sannarlega. Fjölmiðlar fylgdust vel 1 með heimsókninni og síðan þá hefur : umræðan um hvalamálið orðið mun friðsamlegri. Við bíðum enn eftir \ sjónvarpsmyndinni sem þýska sjón- ’ varpið gerði um heimsóknina eir | hefur ekki enn verið send út. Sjón- varpsmennirnir tóku upp blaða- mannafundinn í Bremerhaven með Halldóri og mér og síðar áttu þeir viðtal við mig á skrifstofunni í Bonn og ég veit að það stóð til að sjón- varpa þættinum á besta tíma á Stöð l.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.