Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 31

Morgunblaðið - 08.07.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989 31 Minning: Helga I. Gottskálks dóttir, Sólheimum Fædd 18. mars 1908 Dáin 22. júní 1989 í dag, 1. júlí, kveð ég ömmu mína, Helgu Lilju Gottskálksdóttur, fædda og uppalda að Bakka í Vall- hólma þann 18. mars 1908. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Árnadóttir, fædd 14. júní 1872, dáin 3. desember 1925, og Gottskálk Egilsson, fæddur 3. júlí 1862, dáinn 20. ágúst 1922. Helga átti þrjá bræður og einn hálfbróður. Þeir voru: Egill, Árni, Sverrir og Gísli. Árið 1935 giftist Helga eftirlif- andi manni sínum, Jóhanni Jóhann- essyni, fæddum á Þorbjargarstöð- um á Skaga þann 9. september 1903 en hann ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Saurbæ í Lýtingsstaða- hreppi. Amma og afi hófu búskap sinn í Vallholti í Seyluhreppi og voru þar í eitt ár, þá fluttust þau að Sólheimum í Sæmundarhlíð og hafa búið þar síðan. Amma og afi eignuðust sex börn. Þau eru: Guðlaug, fædd 29. apríl 1936, búsett á Hrauni á Skaga, gift Rögnvaldi Steinssyni og eiga þau fjóra syni. Árni Sverrir, fæddur 24. janúar 1939, búsettur í Reykjavík, kvænt- ur Bryndísi Ármannsdóttur og eiga þau fimm börn og fjögur bamabörn. Eymundur, fæddur 5. desember 1942, búsettur í Árgerði í Sæmund- arhlíð, kvæntur Margréti Kristjáns- dóttur og eiga þau sjö börn, áður átti Margrét eina dóttur. Sigmar Jóhann, fæddur 10. apríl 1947, búsettur í Sólheimum í Sæ- mundarhlíð, kvæntur Helgu Sigur- borgu Stefánsdóttur og eiga þau þrjú börn. Ingibjörg Margrét, fædd 10. apríi 1947, búsett í Reykjavík, gift Sig- urði Dalmanni Skarphéðinssyni og eiga þau tvö börn og eitt bamabarn. Gísli Gottskálk, fæddur 23. mars 1950, búsettur á Seltjarnarnesi, kvæntur Guðrúnu Svövu Björns- dóttur, eiga þau þijú böm. Áður átti afi eina dóttur, Gyðu, fædd 1. júlí 1929, ekkja í Kópavogi og á hún tvö börn og fjögur barna- börn. Það var alltaf gaman að koma í sveitina til ömmu og afa, því þegar ég var lítil þá gætti hún mín oft ásamt tveimur frændum mínum, meðan foreldrar okkar voru í fjósinu eða úti á túni að heyja. Á kvöldin las amma oft fyrir okkur eða sagði okkur sögu fyrir svefninn. Á morgnana sá hún um að ég fengi mér að borða, svo ég yrði stór. Amma kenndi mér að leggja kapal, einnig spilaði hún við okkur frænd- systkinin þegar við gátum ekki gert neitt úti. Ég minnist oft ömmu þar sem hún sat á rúminu í herbergi sínu og lagði kapal sér til dægrastytting- ar. Það verður skrýtið að fara í sveitina og sjá enga ömmu, hún sem alltaf tók svo vel á móti okkur. Amma var alltaf svo hress og kát, hún kunni svör við öllum spum- ingum sem ég lagði fyrir hana. Skarðið' sem amma skilur eftir sig mun seint verða fyllt. Ég vildi að sonur minn hefði fengið að kynnast langömmu sinni eins og ég þekkti hana. Því miður entist henni ekki aldur til þess. Við söknum hennar öll og biðjum Guð að taka vel á móti Helgu ömmu eins og hún var alltaf kölluð. Elsku afi minn, Guð blessi þig og styrki í sorginni. Helga Kristín og Qölskylda Vegna mistaka við vinnslu þess- arar greinar er hún birt aftur og beðist velvirðingar á mistökunum. Katrín K. Hallgríms■ dóttir - Kveðjuorð Fædd 28. maí 1903 Dáin 30. júní 1989 í dag verður jarðsungin frá Fríkirkjunni amma okkar, frú Katrín Kristín Hallgrímsdóttir, sem lést þann 30. júní sl. Katrín fsédd- ist þann 28. maí 1903 á Flateyri við Önundarfjörð. Hún var dóttir hjónanna Hallgríms Jónssonar kennara og skósmiðs og Margrétar Jóhannsdóttur. Föður sinn missti hún tveggja ára gömul, en bjó með móður sinni á Akureyri til fjögurra ára aldurs, en fluttust þær þá til Reykjavíkur. Ung hóf Katrín störf við fiskvinnslu á Kirkjusandi þar sem hún kynntist eiginmanni sínum, Marinó Kristni Jónssyni sjó- manni og síðar bílstjóra. Þau gengu í hjónaband 31. desember 1927. Marinó var sonur Jóns Jónssonar útgerðarmanns og Sigurlaugar Jónsdóttur. Katrín og Marinó eign- uðust tvö böm; Sigurlaugu (f. 1940), verslunareiganda, sem gift er Jens Guðmundssyni, og Hallgrím (f. 1944), eiganda Veiðihússins, sem kvæntur er Arndísi Sigur- bjömsdóttur. Barnaböm Katrínar og Marinós em sjö talsins og barna- barnabörnin fjögur. Katrín og Mar- inó bjuggu öll sín hjúskaparár í Reykjavík, en Marinó lést þann 17. júní 1985. Amma var hjartahlý og barngóð kona. Hún var mjög jákvæður per- sónuleiki og sérlega glaðlynd. Var hún rómuð fyrir gestrisni sína og var heimili hennar og afa ævinlega opið ættingjum og vinum. Amma hafði ætið mikinn áhuga á kveðskap og kunni hún feiknin öil af ljóðum, sem hún fór með reiprennandi, jafn- vel síðustu árin þótt minninu hefði hrakað í kjölfar erfiðra veikinda. Sælar æskuminningar eigum við Anna E. Olafs- dóttír - Kveðjuorð Fædd 8. júlí 1987 30. júní 1989 Þau válegu tíðindi' bárust á þriðjudag í síðustu viku að litla frænka okkar hún Anna Elísabet hefði þá um morguninn orðið fyrir alvarlegu slysi og lægi þungt haldin á Landspítalanum í Reykjavík. Á eftir komu langir og erfiðir dagar með óvissu og kvíða meðan litla stúlkan háði baráttu fýrir lífi sínu. Anna litla lést að morgni dags 30. júní. Hún var fædd hér í Reykjavík 8. júlí 1987, og hefði því orðið 2ja ára eftir fáeina daga. Foreldrar Önnu eru Elísabet Hjalt- ested systurdóttir okkar og Ólafur Erlingsson. Anna Elísabet ólst upp hjá móður sinni á heimili afa og ömmu. Lítið bam sem er hrifið burt með svo sviplegum hætti hefur ekki fengið stór tækifæri í lífinu til að sýna hvað í því býr, og verður því ekki farið mörgum orðum um unnin afrek á lífsleiðinni. En mannkostir fara ekki leynt og þeim var Anna litla ríkulega gædd. Duldist engum sem fékk tækifæri til að kynnast henni að þar fór vel gefið og skemmtilegt barn og var hún í miklu eftirlæti í fjölskyldum beggja foreldra. Það er þung byrði sem lögð er á herðar ungri móður að sjá á bak einkadóttur sinni með þessum hætti, og þá skiptir miklu að eiga góða að, sem geta veitt styrk í mikilli sorg. Er það víst, að stuðn- ingur foreldra Elísabetar og systk- ina hefur hjálpað henni að takast á við þennan harmleik af þvílíku æðruleyíi og styrk sem raun ber vitni. Við ömmusystkinin og fjölskyld- ur okkar færum hinum ungu for- systurnar af því er hún settist á rúmstokkinn hjá okkur og sagði sögur af æskuárum sínum og fór með vísur og bænir. Með þessum orðum viljum við kveðja ömmu okk- ar og þakka fyrir allar góðar stund- ir sem við áttum með henni. Bless- uð sé minning hennar. Margrét, Sigurbjörg, Kristín og Katrín Kristín Hallgrímsdætur. eldrum, Elísabetu og Ólafi, foreldr- um þeirra og systkinum okkar dýpstu samúð og biðjum að guð gefi þeim styrk í sorg þeirra. Guð blessf og varðveiti elsku litlu Önnu Elísabetu. Árni, Jóna og Gylfi t BJÖRN SIGURÐSSON, Ingólfsstræti 7B, áður f Vestur-Landeyjum, 'er látinn. Bálför hefur farið fram að ósk hins látna. Aðstandendur. + 1 Ástkær eiginkona mín, GYÐRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, Borgarholtsbraut 32, * lést í Landspítalanum fimmtudaginn 6. júlí. Páll Marteinsson. t Móðir mín, amma og langamma, GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR, lést 6. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Guðbjörn Sævar. t Maðurinn minn, GÍSLI KRISTJÁNSSON fyrrverandi útgerðarmaður frá Mjóafirði, er látinn. Fanný Kristfn Ingvarsdóttir. t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA SESSEUA FRIÐRIKSDÓTTIR, Hörpulundi 5, Garðabæ, fyrrum húsfreyja Hvallátrum, Breiðafirði, verður jarðsungin frá Garðakirkju þriðjudaginn 11. júlí kl. 3 síðdegis. Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir um að láta minningar- sjóð Sólvangs í Hafnarfirði njóta þess. Björg Savage, Jack Savage, Aðalsteinn Aðalsteinsson, Anna Pálsdóttir, Ólína Jónsdóttir, Hafsteinn Guðmundsson, Daníel Jónsson, Steinunn Bjarnadóttir, María Jónsdóttir, Einar Siggeirsson, Valdimar Jónsson, Aðalheiður Halldórsdóttir, Aðalsteinn Valdimarsson, Auður Kristjánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Birting a fmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.