Morgunblaðið - 08.07.1989, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIQ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989
-----------: j--—>---------s ---
ÁRBÆJAR- og Grafarvogssókn:
Guðsþjónusta í Árbæjarkirkju
sunnudag kl. 11 árdegis. Sr.
Kristinn Agúst Friðfinnsson ann-
ast guðsþjónustuna. Organleik-
ari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur
Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA:Árleg safnaðarferð.
Farið frá Áskirkju kl. 9 árdegis.
Messa í Hvalsneskirkju kl. 11.
Árni Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Altarisganga.
Fermd verður Inga Britta Jóns-
dóttir, p.t. Skriðustekk 21,
Reykjavík. Svanhildur Svein-
björnsdóttir syngur stólvers.
Organisti SigríðurJónsdóttirsem
nú laetur af störfum eftir eins árs
þjónustu. Sr. Gísli Jónasson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ólafur Jens Sig-
urðsson messar. Organisti Guðni
Þ. Guðmundsson. Sóknarnefnd-
in.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Dómprófastur sr. Guðmundur
Þorsteinsson setur sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson inn í emb-
ætti dómkirkjuprests. Dómkór-
inn syngur. Organleikari Mar-
teinn H. Friðriksson. Dómkórinn
syngur. Dómkirkjan.
VIÐEYJARKIRKJA: Messa kl. 14.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Sérstök
bátsferð verður með kirkjugesti
kl. 13.30. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Kristinn
Ágúst Friðfinnsson. Organisti
Kjartan Ólafsson.
FELLA- og Hólakirkja: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr.
Hreinn Hjartarsson. Organisti
Guðný Margrét Magnúsdóttir.
Sóknarprestur.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Guðs-
þjónusta kl. 14.00. Orgelleikari
Kristín Jónsdóttir. Safnaðarferð-
in verður að þessu sinni farin á
Guðspjall dagsins:
Mk. 8.: Jesús mettar
4 þús. manna.
Snæfellsnes og í Breiðafjarða-
reyjar helgina 15.—16. júlí. Farið
verður frá Fríkirkjunni ki. 9.00 á
laugardagsmorgninum og komið
heim á sunnudagskvöld. Gist
verður í Stykkishólmi. Far má
panta hjá Bertu Kristinsdóttur
að degi til í síma 2-91-88, hjá
Eygló Viktorsdóttur í síma
3-25-64 á kvöldin og í síma
Fríkirkjunnar 1-45-79, þar sem
símsvari tekur við skilaboðum
allan sólarhringinn. Sr. Cecil Har-
aldsson.
GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjón-
usta sunnudag kl. 11. Organisti
Árni Arinþjarnarson. Prestarnir.
HALLGRÍMSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson. Matur seldur eftir
messu. Þriðjudagur: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Jón Bjartman.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
Sr. Arngímur Jónsson. Kvöld-
bænir og fyrirbænir eru í kirkj-
unni á miðvikudögum kl. 18.
Prestarnir.
KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11 árdegis. Sr. Árni Páls-
son.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Jón Stef-
ánsson. Kór Langholtskirkju
syngur. Einsöngur Sólrún Braga-
dóttir óperusöngkona. Kaffi verð-
ur á könnunni eftir stundina. Sr.
Þórhallur Heimisson.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dagur 8. júlí. Messa kl. 11 í Há-
túni 10 b, 9. hæð. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Miðvikudag: Fyrir-
bænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
SEUAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
20. Elísabet F. Eiríksdóttir sópr-
ansöngkona og Dúfa Einarsdóttir
alt syngja tvísöng. Sóknarprest-
ur.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Messa kl. 11. Organisti Sighvat-
ur Jónasson. Sr. Solveig Lára
Guðmundsdóttir.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Ffla-
delfía: í dag, laugardag, bæna-
samkoma kl. 20.30. Almenn
guðsþjónusta sunnudag kl. 20.
Ræðumaður Garðar Ragnars-
son.
KFUM & KFUK: Almenn sam-
koma kl. 20.30. á Amtmannsstíg
2B: Trúin - Hebr. 11. Upphafs-
orð: Guðlaug Helga Ásgeirsdótt-
ir. Ræðumaður Haraldur Ólafs-
son kristniboði. Fiðluleikur: Rósa
Jóhannesdóttir.
DÓMKIRKJA Krists konungs,
Landakoti: Lágmessa kl. 08.30.
Þessi messa er stundum lesin á
ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14. Á laugardögum
er ensk messa kl. 20.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Há-
messa kl. 11. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sam-
koma kl. 20.30. Guðfinna Jóhann-
esdóttir ofursti talar. Kafteinn Lía
Aðalsteinsdóttir tekur þátt í sam-
komunni sem Áslaug Haugland
stjórnar.
NÝJA Postulakirkjan: Messa kl.
11 á Háleitisbr. 58-60.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 10.
.VÍÐISTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Helgi
Guðmundsson.
KAPELLAN St. Jósefsspftala:
Hámessa kl. 10.30. Rúmhelga
daga lágmessa kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
k| q
HVALSNESKIRKJA: Guðþjón-
usta kl. 11. Safnaðarfél. Áskirkju
kemur í heimsókn. Sr. Árni Berg-
ur Sigurbjörnsson annast guðs-
þjónustuna. Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson.
KAPELLAN Hafnargötu 71,
Keflavík: Messað kl. 16 sunnu-
daga.
STOKKSEYRARKIRKJA: Messa
kl. 14. Sóknarprestur.
LEIRÁRKIRKJA: Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Jón Einarsson.
VEITINGAR Á
SUMARDEGI
Eg rakst um daginn á mjög góðar og tiltölulega ódýrar ferskjur. Þetta var áreiðanlega ný
uppskera. Ferskar ferskjur eru auðvitað nyog góðar eins og þær koma fyrir, ég tala nú
ekki um nýtíndar af tijánum, en því er auðvitað ekki til að dreifa hér hjá okkur. En
margt gott er hægt að búa til úr ferskjum. Ég keypti nokkrar ferskjur, og það hafði lækk-
að ískyggilega í pokanum, þegar við bóndi minn renndum í hlað heima, en þá voru fimm eftir.
Um kvöldið komu 4 gestir, og að góðum íslenskum sið var þeim boðið upp á eitthvað gómsætt.
Ferskjurnar voru nokkuð fáar handa sex manns, en með Iagni má utb"c> rétt handa sex úr fimm
ferskjum, og það gerði ég. Gestimir fengu 2 ferskjuhelminga ^
hver, en við hjónin, sem höfðum bprðað ferskjur fyrr um daginn,
létum okkur nægja sinn helminginn hvort. En gestimir fengu
líka annað en ferskjur, þeir fengu líka sumardrykk, og hér er
uppskrift af honum ásamt ferskjuréttinum, ef fleiri hafa hug á
að reyna. Muslbrauðið sem ég lofaði í síðasta þætti, rekur loks
lestina.
Bakaðar ferskjur
5 ferskar ferskjur
1 stórt egg
% dl brauðrasp eða mulið kex, t.d.
Ritzkex
100 g marsipan
50 g heslihnetur
'h msk sykur ef þið notið ósætt kex
1. Kljúfið ferskjurnar, takið úr þeim
steina.
2. Sláið eggið lauslega í sundur, setjið
saman við brauðraspið eða mulið kexið.
Hægt er að setja það í plastpoka og
metja með kökukefli. Látið standa í 10
mínútur.
3. Hrærið marsipan út í. Myljið hesli-
hnetumar og setjið út í ásamt sykri ef
þið notið hann.
4. Leggið ferskjuhelmingana á eldfast
fat. Skurðflötur snúi upp. Setjið maukið
á ferskjumar.
5. Hitið bakarofn í 210°C, blástursofn
í 190°C. Setjið í miðjan ofninn og bakið
í 10-12 mínútur. Athugið: Bera má ís
eða þeyttan ijóma fram með þessu.
Sumardrykkur
1 hnefi mintublöð, fersk eða þurrkuð
4 dl vatn
4 kíví
2 litlar dósir Fresca
ísmolar
1 sítróna í sneiðum
1. Sjóðið vatnið og hellið yfir mintu-
blöðin. Látið standa og kólna.
2. Afhýðið kívíið, setjið síðan í bland-
ara eða meijið með gaffli og setjið síðan
í hrærivél.
3. Setjið kívimaukið í könnu, síið
mintuteið og setjið saman við.
4. Hellið Fresca út í . Setjið ísmolana
í stykki og sláið á með kjöthamri. Setjið
út í. Hellið í glös.
4. Skerið sítrónuna í sneiðar, skerið
upp í hveija sneið og smeygið uppá glas-
barminn.
5. Setjið rör í glasið.
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Brauð með musli (Mussli)
'h kg hveiti
200 g musl
3 tsk fínt þurrger
'h tsk salt
2 msk matarolía
1 eggjahvíta
2 dl heitt vatn úr krananum
114 dl súrmjólk
1 eggjarauða
1 msk musl til að strá yfir brauðið
1. Setjið hveiti, musl, þurrger, salt,
matarolíu og eggjahvítu í skál.
2. Blandið saman heitu vatni úr kran-
anum og kaldri súrmjólk. Setjið út í og
hrærið saman. Látið lyfta sér á volgum
stað í 1 klst. Hafíð stykki yfir skálinni.
3. Takið deigið úr skálinni, seljið á
hveitistráða borðplötu. Hnoðið saman.
Skiptið deiginu í tvennt.
4. Fletjið hvorn deighelming lauslega
út með kökukefli. Vefjið saman. Fletjið
síðan aftur út og vefjið saman á hinn
veginn. Lagið til svo að það myndist kúla.
5. Setjið 1 tsk af vatni saman við
eggjarauðuna, smyijið eða penslið brauð-
ið með henni, stráið musli yfir. Setjið á
bökunarplötu.
6. Leggið stykki yfir brauðin og látið
lyfta sér í 30 mínútur.
7. Hitið bakaraofn í 190°C, blásturs-
ofn í 170°C. Setjið í miðjan ofninn og
bakið í 7 mínútur. Aukið þá hitann um
20° og bakið áfram í 15-20 mínútur.
8. Leggið stykki yfir brauðin meðan
þau kólna örlítið.