Morgunblaðið - 08.07.1989, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JÚLÍ 1989
Mikill verðmismunur
SOS barna-
þorpin
Til Velvakanda.
Þessi samtök eru alþjóðleg sam-
tök til hjálpar foreldralausum böm-
um um heim allan. Þau hafa starf-
að í yfir 40 ár og séð yfir 60.000
bömum fyrir viðurværi, þau hafa
byggt upp yfir 250 húsaþyrpingar
í 47 löndum.
í dag starfar íslensk landsnefnd
að því að ísland fái fulla aðild að
þessum samtökum en nauðsynlegt
er að byggja upp áreiðanleg og
skilvirk samtök sem starfa í góðri
samvinnu við hin alþjóðlegu samtök
í Vínarborg.
Nú þegar hafa yfír 60 íslending-
ar gerst „fósturforeldrar" barna og
tekið að sér að styrkju þau með
mánaðarlegum framlögum að upp-
hæð 800.
í nefndinni em Páll Siguijónsson
verkfr., Torfi Ólafsson, Þórður
Harðarson læknir, Þórdís Bach-
mann blaðam., Ásgeir Jóhannesson
forstj., Garðar Ingvason hagfr. og
Ulla Magnússon formaður hennar.
Stefnt er að því að opna skrif-
stofu í haust en á meðan má ná til
SOS-nefndarinnar bréflega: SOS-
barnaþorpin, Pósthólf 8707, 128
Reykjavík, eða fá upplýsingar í síma
53279 eftir kl. 18.
Með kærri kveðju,
Ulla Magnússon
Til Velvakanda.
Þáð vekur oft undmn manns
hve mikil verðmunur er á milli
búða og það á algengum vöram.
Þótt verðkannanir komi að miklu
gagni verður kaupandinn að vera
vel á verði sem er ekki auðvelt
þar sem verðbólgan slæfir verð-
skynið mikið. Hagstæð innkaup
eru besta kjarabótin. Því vil ég
kvetja alla til að hafa augun opin
og versla þar sem verð er hagstæð-
ast.
• Neytandi
SJÓMENN.
Meðferð gúmmíbjörgunarbáta er einföld og fljótlærð. Þó geta
mistök og vanþekking á meðferð þeirra valdið fjörtjóni allra á
skipinu á neyðarstundu. Lærið meðferð og notkun gúmmíbjörg-
unarbáta.
Þessir hringdu . .
Óætt útsölukjöt
Þ.Ó. hringdi:
„Ég segi mínar farir ekki slétt-
ar. Við hjónin vorum að kaupa
þetta útsölukjöt og var það svo-
kallað Stjörnukjöt, sem átti að
vera úrvals kjöt. Ég hef satt að
segja aldrei á ævinni fengið jafn
lélegt kjöt. Greinilegt er að þetta
kjöt er ekki af lambi heldur af
stómm hrút og em gæðin eftir
því. Þess ber þó að geta að lítil
fita er á þessu kjöti sem við feng-
um. Svona viðskiptahættir geta
varla talist til fyrirmyndar. Kjötið
sem ráðherrarnir voru að borða í
frétt um þessa útsölu leit mjög
vel út en ef til vill hefur það ver-
ið sérstakt ráðherrakjöt."
Hver er höfúndurinn?
Ásta hringdi:
„Ég kann hrafl úr kvæði sem
mér þætti fengur í að sjá á prenti.
Eins væri gaman að vita hver
höfundurinn er. Þetta kann ég
m.a. úr kvæðinu:
Syngdu óðinn minn yndis þýða
um æskunnar draumkviku spor.
Um litla fjörðinn minn bláa og
blíða
og bernskunnar heiðríkju vor.
Ber mig heim til Breiðafjarðar
bjarta söngvanna haf.
Alla sælu og unað jarðar
alfaðir lífsins þar gaf.
Góð þjónusta
Sigrún hringdi:
„Við vorum á ferð saman þrenn
hjón sem eigum sumarbústaði í
landi Úthlíðar. Langar okkur til
að koma sérstöku þakklæti til
hótelstjórans og starfsstúlku hans
á Hótel Geysi í Haukadal. Við
vomm þarna að kveldi 17. júní
og nutum frábærar þjónustu. Það
var búið að loka þegar við komum
að hótelinu en það var ekkert
sjálfsagðara en taka á móti okkur
þegar við báðum um að fá að kíkja
inn. Þykja okkur þessi liðlegheit
og allur viðurgerningur þarna
vera til fyrirmyndar.“
Köttur
Svartur högni, hvítur á trýni
og bringu, fór að heiman frá
Sæviðarsundi í Fossvogi fyrir
skömmu. Þeir sem hafa orðið var-
ir við kisa em beðnir að hringja
í síma 84709 eða síma 35044.
Yfirbreiðsla
Svört yfirbreiðsla tapaðist af
gasgrilli við Kmmmahóla 10 að-
faranótt 17. júní. Vinnsamlegast
hringið í síma 74759 ef hún hefur
fundist.
Kettlingar
Tveir tveggja mánuða gamlir
kettlingar, kelnir og þrifnir, fást
gefins. Upplýsingar í síma 52943.
Högni
Svarfgrár högni með hvíta
bringu og hvítar loppur týndist
fyrir nokkm. Hann er eyrna-
merktur en ekki með 61. Vinsam-
legast hringið í síma 42266 ef
hann hefur einhvers staðar komið
fram.
___________45 .
ÍSFÍL 89
Frímerki_____________
Jón Aðalsteinn Jónsson
í þætti í maí sl. var sagt frá
landsþingi LÍF og minnzt laus-
lega á frímerkjasýningu þá, sem
Klúbbur Skandinavíusafnara
hélt um það leyti. Því miður hef-
ur dregizt að segja svolitið frá
þessari sýningu, en nú verður
reynt að bæta úr því. En eins
og um landsþingið, verður hér
að styðjast við frásagnir ann-
arra, þar sem ég átti þess ekki
kost að sjá sýninguna sjálfur
ÍSFÍL 89 var haldin dagana
7. - 9. apríl sl. í Listasafni ASÍ
við Grensásveg. Þar var einnig
starfrækt sérstakt pósthús og
notaður sérstimpill á póstsend-
ingar þaðan.
Á sýningunni var margs konar
efni sýnt í 142 römmum. í heið-
ursdeild vom þijú söfn. Ég á von
á, að mörgum hafi þótt gaman
að sjá þar safn, sem nefnt var:
Úr fómm Þjóðminjasafns. Þetta
safn á sér skemmtilega sögu.
Matthías Þórðarson, sem varð
þjóðminjavörður árið 1908, var
mikill reglumaður og hélt m. a.
öllum bréfum til safnsins saman
og lét þau vera í umslögum
sínum fyrir hvert ár. Á þennan
hátt hafa varðveitzt mörg
áhugaverð umslög með frímerkj-
um á. Núverandi þjóðminjavörð-
ur, Þór Magnússon, fékk svo
Sigurð P. Gestsson og Ólaf Elías-
son til þess að fara yfir þessi
umslög og koma þeim upp á blöð.
Það var hluti af þessu sérstæða
safni, sem mönnum gafst nú
kostur á að sjá í fyrsta skipti. -
í þessari deild vora svo tvö er-
lend söfn, sem ég á von á, að
söfnumm hafi þótt fengur í að
skoða. Annað var safn Eivind
Evensens, sem er rannsóknar-
safn um frímerki, tengd eyjunni
Svalbarða. Hitt var svo safn
Knud Mohr af dönskum frímerkj-
um og frímerkjaefni, allt tengt
Kaupmannahöfn. Það safn hef
ég séð og veit því, að það er
bæði skemmtilegt og mjög fal-
legt. Mohr leggur líka sérstaka
áherzlu á að hafa sem vandaðast
efni í söfnum sínum.
í samkeppnisdeild vora nokk-
ur mjög góð söfn. Páll H. Ás-
geirsson sýndi þar íslenzka póst-
póstsögusafn sitt frá 1928 -
1945. Hefur hann verið óþreyt-
andi við að bæta safnið og það
af mjög góðum hlutum, enda
veitti dómnefndin honum gull-
verðlaun fyrir það. Annar safn-
ari hefur einnig lagt á sömu
braut og Páll, Þorvaldur S. Jó-
hannesson. Hér sýndi hann tvö
söfn á þessu sviði. Fyrra safnið
nær yfir tímabilið 1928 - 1948,
og vom'því dæmd silfurverðlaun.
Hitt flugpóstsafnið er svo frá
1948 - 1986 og hlaut það brons-
verðlaun. Nokkuð hef ég fylgzt
með söfnum Þorvaldar, og hafa
þau tekið miklum stakkaskiptum
á liðnum áram. - Tveir gamal-
kunnir safnarar úr okkar hópi
sýndu hér söfn sín. Guðmundur.
Ingimundarson var með átthaga-
safn sitt frá Vestmannaeyjum í
tíu römmum og hlaut silfur fyr-
ir. Þá var Jón Halldórsson með
stimplasafn sitt á Safnahús-
merkinu frá 1925 í átta römmum
og fékk fyrir silfrað brons. -
Þrír aðrir safnarar sýndu hér.
Formaður LÍF, Þór Þorsteins,
sýndi í sex römmum safn, sem
hann nefndi: Hópflug til Matt-‘
híasar Jochumssonar 1933 -
1935. Því miður get ég ekki lýst
þessu safni nánar, en tel mig
vita, að Þór hafi hér dregið sam-
an bæði frímerki, umslög og
stimpla frá þessum áram og þá
um leið lagt áherzlu á að sýna
rétta burðargjaldsnotkun á send-
ingum. Sú söfnun er nú mjög í
tízku meðal safnara, sem leggja
einkum stund á póstsögulegt
efni. Þetta safn Þórs hlaut silfrað
brons. Ólafur Elíasson sýndi safn
sitt af Gullfoss- frímerkjunum
frá 1931 -32, en það var utan
dóma, þar sem hann var sjálfur
formaður dómnefndar. Þetta
safn hans er mjög skemmtilegt
og þegar orðið vel þekkt meðal
safnara. - Eiður Árnason sýndi
vélstimplasafn sitt í þremur
römmum og hlaut brons fyrir.
Mörg erlend söfn settu mjög
svip sinn á ÍSFÍL 89, enda mun
stefna sýningarnefndar hafa ver-
ið sú að fá hingað til lands nokk-
ur góð söfn, ekki sízt tegunda-
og unglingasöfn, ef það mætti
verða til þess að kveikja neista
meðal unglinga hér heima til
þess að byija frímerkjasöfnun.
Að sögn þeirra, sem sáu þetta
efni, var þar margt skemmtilegt
að skoða. Af sýningaskrá sé ég,
að eitt tegundasafn hefur fjallað
um hestinn í vinnu, íþróttum og
list, annað um sögu reiðhjólsins
og hið þriðja um tíma seglskipa
í hemaði. Fuglar og plöntur alls
konar em einnig vinsælt söfnun-
arsvið, og það efni vantaði ekki
heldur á sýninguna
Svonefndur nálarflokkur er að
verða fastur liður á sýningum
fyrir þá, sem em að hefja söfnun
fyrir alvöru og vilja gjarnan taka
þátt í sýningum. Gaman er að
sjá, að þeim fjölgar ört úr röðum
íslenzkra. safnara, sem taka þátt
í þessum flokki. Hér sýndi Sigm-
ar Sigurðsson tegundasafn sitt
úr dýraríkinu og fékk fyrir silfr-
að brons. Ólafur Guðmundsson
sýndi frímerki frá Kýpur og fékk
brons fyrir. Þá átti Haraldur
Guðnason í þessum flokki safn,
sem sýnir flugvélar og notkun
þeirra. Það hlaut bronsverðlaun.
Ólafur Guðmundsson átti hér
frímerki frá Sameinuðu þjóðun-
um og fékk brons. Jón Einar
Jónsson sýndi svo frímerki með
fuglum frá öllum heimshomum
og fékk einnig brons. Loks sást
hér í fyrsta skipti í nálarflokki
safn í tveimur römmum, sem var
hópverkefni nokkurra nemenda
úr Árbæjarskóla. Fjallaði það um
fiskveiðarog fiskvinnslu íslend-
inga. Þetta safn sá ég svo sjálfur
á fundi í FF. Þetta efni er að
sjálfsögðu skemmtilegt og vissu-
lega verðugt verkefni fyrir
íslenzka. safnara.
Innilegar þakkirfœri ég öllum þeim, sem heiðr-
uðu mig meÖ kveöjum, gjöfum og heimsóknum
á nirœöisafmœli mínu, 3 júli sl.
Ólafur Pálsson.