Morgunblaðið - 14.07.1989, Síða 10
íí ('801 ÍJÖt, ,M: JPJDAUUtaÖ'? CJIdAJSHU D5TON
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Ný atvinnugrein?
eftir Vilhjálm G.
Skúlason
Á undanförnum árum og áratug-
um hefur verið rætt um möguleika
á að stunda atvinnugreinar hér á
landi, sem ekki hafa verið stundað-
ar áður að marki, svokallaðar nýjar
atvinnugreinar. Eru þessar umræð-
ur sprottnar af óskum um að gera
atvinnulíf landsmanna fjölbreyttara
og einnig af því að vægi sumra
hefðbundinna atvinnugreina, eink-
um landbúnaðar, hefur breyst. í
eftirfarandi verður bent á atvinnu-
starfsemi, sem talið er að eigi fram-
tíð hér á landi, ef rétt verður á
málum haldið. Þessi starfsemi er
lyfjaiðnaður. Skal í eftirfarandi
gerð grein fyrir kostum og göllum
slíkrar atvinnustarfsemi. Óllum má
vera ljóst, að áhrifamestu framfarir
í heilsufræði síðastliðna hálfa öld
hafa orðið beint eða óbeint vegna
uppgötvana á sviði lyijafræði. Þess-
ar uppgötvanir eru svo margar, að
þær verða ekki tíundaðar hér, en
sem dæmi má nefna framfarir í
meðferð smitsjúkdóma, hjarta- og
æðasjúkdóma, geðsjúkdóma, önd-
unarsjúkdóma, meltingarsjúkdóma
og forsendur framfara í skurðlækn-
ingum fyrr og síðar hafa verið ný
lyf. Fátt er hægt að tíunda, sem
gert hefur mannkyni meira gagn
en þessi glæsilega þróun, en því
miður hafa sumir þátttakendur í
henni einnig varpað skugga á þessa
starfsemi og þar með þá, sem
drýgstan hlut hafa átt að máli.
Þessi starfsemi, uppgötvun og
framleiðsla nýrra lyfja, hefur verið
stunduð með ýmsum aðferðum frá
örófi alda og hlýtur að eiga framtíð-
ina fyrir sér bæði til þess að með-
höndla þá sjúkdóma, sem nú 'eru
þekktir og einnig sem meðferð gegn
þeim sjúkdómum, sem mannkyn
hefur ekki þekkt og skotið hafa upp
kollinum á þessari öld.
Uppruni lyfla
Öll lyf eiga sér í aðalatriðum
tvenns konar uppruna. Annars veg-
ar eru lyf, sem unnin eru úr jurtum
og dýrum, og er sú aðferð eldri,
en frá því um miðja nítjándu öld
hafa efnafræðilegar aðferðir verið
notaðar í vaxandi mæli til þess að
framleiða ótrúlegan fjölda nýrra og
betri lyfja en áður þekktust. Á síð-
ustu árum hefur erfðatækni verið
notuð til framleiðslu á flóknum efn-
asamböndum, sem erfitt hefur verið
að framleiða á annan hátt í nægi-
legu magni. Sú aðferð við lyfja-
framleiðslu, sem reynst hefur að-
gengilegust og árangursríkust er
framleiðsla með efnafræðilegum
aðferðum og eru langfiest lyf, sem
notuð eru í dag, framleidd þannig.
Hvers vegna ættu lyf að
verða fyrir valinu?
Lyf eru efnasambönd sem hafa
eiginleika, er gera þau hæf til notk-
unar til þess að fyrirbyggja, lækna
eða greina sjúkdóma eða sjúk-
dómseinkenni í mönnum eða dýrum.
Þau eru því gagnieg efnasambönd,
sem hafa mikið notagildi, eru notuð
í tiltölulega litlu magni og eru dýr
framleiðsluvara. Af þessu leiðir, að
framleiðslustaður skiptir ekki höf-
uðmáli því flutningskostnaður er
tiltölulega lítill miðað við verðmæti.
ísland gæti því eins orðið ákjósan-
legur framleiðslustaður og Sviss,
Holiand, Belgía, Danmörk eða Sví-
þjóð, sem allt eru tiltölulega fámenn
þjóðfélög, er hafa umtalsverðar
tekjur af framleiðslu og sölu lyfja.
Af þessum þjóðum eiga Svisslend-
ingar elsta hefð í þessari atvinnu-
grein, sem byggir á þeim litar-
efnaiðnaði er þeir hófu á síðari
hluta nítjándu aldar, en Belgar eiga
sér tiltölulega skamma en glæsilega
sögu á þessu sviði.
Hvað þarf til?
Rannsókna- og þróunarstarfsemi
á sviði lyíjafræði krefst þekkingar
á efna- og líffræði, tækjabúnaðar
og húsnæðis. Þessar forsendur eru
Vilhjálmur G. Skúlason
„Það er erfítt að koma
auga á hvers vegna Is-
lendingar ættu ekki að
nota þennan flársjóð
eins og aðrar þjóðir
hafa lengi gert og
hvers vegna góðar hug-
myndir gætu ekki orðið
til hér á landi eins og
annars staðar.“
allar fyrir hendi hériendis enda
-þótt hagnýt reynsla á sviði efna-
og líffræði á þessu sviði sé ekki
ýkja mikil og betur megi búa að
með tækjum og húsnæði. En til
þess að slík sfarfsemi verði mark-
viss og árangursrík þarf að sameina
krafta og skipuleggja, áður en haf-
ist verður handa. Þetta er nauðsyn-
legt vegna þess, að ailir þættir
rannsókna- og þróunarstarfsemi
verða að liggja samhliða og taka
mið hver af öðrum til þess að settu
og tiltölulega flóknu markmiði verði
náð, en það er betra lyf en fáanlegt
er nú.
Er þetta nauðsynlegt?
Eins og kunnugt er hafa lyf ver-
ið framleidd í lyfjabúðum hér á
landi í langan tíma og á síðustu
árum í litlum lyfjaverksmiðjum, sem
hafa tekið við hlutverki lyfjabúð-
anna að þessu leyti. En þessi fram-
leiðsla er einskorðuð við framleiðslu
lyfjaforma úr aðkeyptum hráefnum.
Þessi starfsemi er að sjálfsögðu
allra góðra gjalda verð, en það er
alvarlegt umhugsunarefni, hvort
hún eigi langa framtíð fyir sér, ef
ekkert verður gert á næstunni til
þess að renna frekari stoðum undir
hana. Ástæða er til að ætla að fram-
tíð hennar geti verið komin undir
rannsókna- og þróunarstarfsemi í
þeim skilningi, sem hér hefur verið
vakið máls á.
Þarf mikið Qármagn?
En þegar hefjast á handa um
nýjungar kemur fyrr eða síðar í
hugann, hvort fjármagn sé fáanlegt
og hve mikið þurfi af því og síðast
en ekki síst, hvort slík starfsemi
eigi örugga framtíð fyrir sér. Von-
andi er af framansögðu ljóst, að
slík starfsemi hlýtur að eiga fram-
tíð fyrir sér og að íslendingum yrði
ekki minni sómi að henni en ann-
arri atvinnustarfsemi nema síður
væri. Mannkyni ijölgar jafnt og
þétt, sjúkdómar herja allt of víða
þrátt fyrir vasklega baráttu margra
gegn þeim og lyf verða sífellt mikil-
vægari í allri heilbrigðisþjónustu og
rannsóknum á orsökum sjúkdóma.
Líkur eru á, að mikilvægi lyfja í
þessum efnum fari fremur vaxandi
en minnkandi. Þörfin fer því ekki
á milli mála.
Þegar litið er yfir sögu og þróun
þessa iðnaðar er það athyglisvert,
hve upphaflegi vísirinn hefur oft
verið mjór og að það, sem skiptir
sköpum er góð hugmynd og hér
gildir því sem annars staðar, að góð
hugmýnd er gulli betri. Reyndar er
aldrei hægt að sjá fyrir með fullri
vissu, hvort hugmynd er góð og
þessvegna er rannsókna- og þróun-
arvinna svo mikilvæg. En í þessari
vísindagrein er oft hægt að gera
sér góða grein fyrir líkum sem eru
á að hugmynd sé góð og nytsam-
leg. Fjármagnsþörf og áhætta eru
því ekki mikil í fyrstu til þess að
komast að raun um hvers virði
hugmynd er og á meðan áhættan
er mest. Síðar kemur fjármagns-
þörf til með að aukast eftir því sem
nær dregur, að framkvæmd hug-
myndar fari að skila arði. Þá má
benda á, að í slíkri rannsókna- og
þróunarvinnu eru oft framleidd
efnasambönd, svokölluð milliefni
sem ekki eru lyf, en hafa gjaman
notagildi fyrir aðra, sem stunda
hliðstæðar rannsóknir og þar með
verðgildi.
Hvar á að bera niður?
Það vill því miður oft gleym-
ast, að óeigingjarnir og vitrir vís-
indamenn hafa unnið þrekvirki á
sviði lyijavísinda öldum saman.
Margar þeirra aðferða, sem notaðar
eru til lyfjaframleiðslu, hafa verið
uppgötvaðar á síðastliðnum hundr-
að árum og hafa almennt nota-
gildi. Þessar aðferðir og aðrar nið-
urstöður vísinda standa íslending-
um til boða eins og öðmm jarðarbú-
um og það án endurgjalds. Þær em
nothæfar að undangengnum rann-
sóknum til þess að framleiða nýjar
sameindir, sem geta haft notagildi
gegn sjúkdómum og þjáningu. Það
er erfitt að koma auga á hvers
vegna íslendingar ættu ekki að
nota þennan fjársjóð eins og aðrar
þjóðir hafa lengi gert og hvers
vegna góðar hugmyndir gætu ekki
orðið til hér á landi eins og annars
staðar.
Lokaorð
Hér að framan hefur verið bent
á atvinnumöguleika, sem ekki hafa
verið mikið ræddir hér á landi. Full-
unnin framleiðsluvara hefur mikið
og viðvarandi notagildi. Hún er dýr,
en notuð í tiltölulega litlu magni svo
að hætta á umhverfismengun af
slíkum iðnaði er lítil. Flutnings-
kostnaður miðaður við verðmæti er
lítill svo'áð staðsetning slíks iðnaðar
skiptir ekki sköpum. Orkunotun er
lítil og hægt er að hefja slíka starf-
semi með tiltölulega litlum stofn-
kostnaði og áhættu, ef skynsemi er
gætt. Framvinda slíks iðnaðar bygg-
ir á tiltölulega miklum rannsókna-
og þróunarkostnaði á öllum stigum
framleiðslunnar. Slík starfsemi gæti
skotið styrkum stoðum undir lyfja-
iðnað á Islandi til frambúðar.
Höfundur er prófessor í lyfjaefna-
fræði rið Háskóla íslands.
VELORFID
VINSÆU4
Algengir notkunarstaðir:
- HEIMAGARÐAR
- SUMARBÚSTAÐALÓÐIR
Meðal notenda:
- SVEITARFÉLÖG
- ATVINNUMENN
Notaðu ZENOAH vélorf þar sem þú
getur ekki beitt sláttuvélinni, t.d. í kringum
tré, við girðingar eða veggi, á grófgert gras eða „
illgresi og á þýfðu eða ójöfnu landi. Kraftmikil, létt
og lágvær. Fáanleg meö tveggja eða fjögurra >
línu haus.
□ ZENOAH 220 er léttasta orfið á
markaðnum.
o ZENOAH 431 er léttbyggt vélorf
sem atvinnumenn nota allan
liðlangan daginn við erfiðar /?
aðstæður.
FYLGIHLUTIR:
Verkfærasett
Axlarband
Sláttudiskur
Góð varahluta- og viðhaldsþjónusta
Opið á laugardögum 10-4
Eurocard Visa Raðgreiðslur
Athugið að fyrirtækið er flutt úr Kópavogi
í Nútíðina, Faxafeni 14, Skeifunni
Opið á laugardögum 10-16
G.Á. Pétursson hf.
lldHuvéld
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
Frakkastígur
4ra-5 herb. íbúð í tvíbhúsi efri hæð og ris. Sérþvotta-
hús_á hæðinni. Mjög góð staðsetning. Verð 5,5 millj.
js S: 685009-685988
ÁRMÚLA 21
DAN V. S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI.
4-