Morgunblaðið - 14.07.1989, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Samleikur á
sembal o g gítar
________Tónlist_____________
Jón Ásgeirsson
Robyn Koh semballeikari og Ein-
ar Kristján Einarsson gítarleikari
léku á þriðjudagstónleikunum í
Listasafni Siguijóns Ólafssonar
verk eftir Ponce, Boccherini, Þor-
kel Sigurbjömsson og Ásket Más-
son. Eftir Manuel Ponce (1882-
1948) voru á efnisskránni tvö verk,
það fyrra Preludia en síðara Són-
ata. Ponce er talinn vera upphafs-
maður nútímatónlistar í Mexíkó en
framhaldsnám stundaði hann í
París hjá Dukas. í síðari verkum
sínum tamdi hann sér rithátt sem
rekja má til barokkmanna, svo sem
heyra mátti í báðum verkunum.
Tónlist Ponces er þægileg og var
ágætlega leikin, bæði hvað snertir
samleik og tónrænt jafnvægi hljóð-
færanna.
Besta verkið á tónleikunum var
hins vegar Inngangur og fandango,
eftir Boccherini, sem hefði mátt
leika með meiri gáska sem að öðru
leyti var smekklega flutt. Fiori
heitir verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son og er það fremur sviplítill sam-
setningur, þar sem unnið er með
einfaldar tónhugmyndir í endalaus-
um endurtekningum, sem hjóma
aldrei sem samfelldur tónbálkur,
heldur sem þrálátar endurtekning-
ar. Lítið lag, Kansóna, eftir Ásket
Másson var ágætlega flutt. Lagið
er í svonefndum „þjóðlagastíl"
popplaga, laglegt í heild, þó „frá-
hvarfið" í niðurlagi þess truflaði
framvindu þessa einfalda en elsku-
lega lags.
Robyn Koh og Einar Kr. Einars-
son eru ágætir tónlistarmenn og
var flutningur þeirra í heild vel
yfirvegaður og samstilltur. Trúlega
er ekki auðvelt að finna mörg sam-
leiksverk fyrir sembal og gítar, að
minnsta kosti fá úr smiðjum betri
tónskálda og því reyndi ekki mjög
á leikhæfni flytjendanna. Vonandi
gefst tækifæri til að heyra þessa
ágætu tónlistarmenn í átökum við
stórbrotnari tónlist, þar sem á reyn-
ir til hlýtar, eitthvað í ætt við það
sem mátti heyra í leik Robyn Koh
í Skálholti um síðustu helgi.
Lokað í dag
föstudaginn 14. júlí, vegna flutnings á skrifstofum
Brunabótafélags íslands af Laugavegi 103 í Ármúla 3.
Viðskiptamenn eru beðnir að hafa samband í síma
696000 ef brýna nauðsyn ber til.
Mánudaginn 17. júlí opnar VÁTRYGGIISIGAFÉLAG
ÍSLANDS HF. í Ármúla 3, sími 605060.
Brunabótafélag íslands.
Smíðisgripir innan um amboð Jómundar, frá vinstri
rokkur, snældustóll, hesputré, klára, hrífa og orf
og ljár.
Morgunblaðið/Diðrik Jóhannsson
Jómundur við skúrinn sinn, íbúðarhúsið í baksýn.
Andakíll:
Aðgerðalaus get ég ekki verið
Hvaimatúni.
„Hann er úti allan daginn og
oftast fram á kvöld,“ var fréttarit-
ara sagt í símann þegar hann
spurðist fyrir um Jómund Einars-
son, níræðan bónda og nú smið í
Örnólfsdai í Borgarfirði. Hann vill
ekki kalla það vinnu, sem hann
fæst við enda er það í samræmi
við verðlagningu þeim á hlutum,
sem hann smiðar.
Dóttir hans Iðunn og maður henn-
ar, Kristinn Egilsson, tóku við mest-
um hluta búsins fyrir um 15 árum.
Þegar hann gat sjálfur ekki lengur
hjálpað til við búskapinn og kominn
á níræðisaldur lét hann innrétta lítinn
skúr, sem áður hýsti díselrafstöð
bæjarins. Þar er að vísu hvorki hátt
til lofts né vítt til veggja, aðeins um
4 til 5 fermetrar en öllu er haganlega
fyrirkomið. Hann leitaði fyrirmynda
að gömlum munum, meðal annars í
Þjóðminjasafninu og byijaði að saga,
hefla, tálga og með heimilisborvél
renndi hann hluti í eftirlíkingar af
kerrum, vefstólum, taðkvömum ám-
um, hrossabrestum og fleiri munum
úr tré og málmum.
„Ég var vanur að vinna og aðgerð-
arlaus gat ég ekki hugsað mér að
Jómundur í smíðastofú sinni. .
vera,“ segir Jómundur. Hann vandist
vel rennivinnunni og eignaðist svolít-
inn rennibekk. Allir hlutir eru hands-
míðaðir, t.d. eru ljáir í orf barðir
annaðhvort úr koparvír eða nöglum.
í seinni tíð hefur honum þótt þægi-
legra að smíða aðeins rokka, hespu-
tré, orf, hrífur, snældustóla, klárur,
pála og rekur.
„Þessi iðja er mér ómetanleg, ég
veit ekki hvernig fyrir mér væri kom-
ið án hennar. Eg met mikils að vera
hér hjá mínu fólki,“ segir Jómundur.
Kona hans var Guðrún Magnúsdóttir
og varð þeim átta barna auðið.
Bærinn Ömólfsdalur er í sam-
nefndum dal, sem liggur upp af Norð-
tunguskógi í Þverárhlíð. Dalurinn er
birkiskógi vaxinn og nýtur Jómundur
þess nú, því hann notar timbur úr
birkinu til að renna úr. I 8 til 9 ár
hefur hann nú stundað þessar smíðar
og er hægt að finna muni hans víða
á landinu.
Á ámnum 1950 til 68 flutti Jó-
mundur allar vistir fyrir veiðimenn,
sem héldu til í veiðimannahúsinu
Víghól. Það stóð norðan Kjarrár, en
svo heitir Ömólfsdalsáin fram á af-
rétti. Annan hvern dag fór hann með
hestalest um tveggja tíma lestagang
með allar vistir, hvaða nafni sem þær
nefndust, frameftir og með veiðifeng
til baka. Margt getur hann sagt af
ferðalögum sínum og því fólki, sem
hann flutti vistimar fyrir. Það verður
hinsvegar ekki gert í þessum pistli,
heldur er aðeins meiningin að kynn-
ast hvernig hann eyðir tíma sínum í
hárri elli. - d.j.
T'O* P* P
TUTTUGU
I. Ýmsir - Bandalög
Z. Prince - Batman
3. Stuðmenn - Listin að lifa
4. Guns n'ROSeS ■ Appetite for destruction
5. Prefab Sprout - Protest songs
6. Disneyland after dark - No Fuel left
7. íslensk alpýðulög
8. Roxette - Look sharp
9. Gunsn’Roses - Lies
10. Paul McCartney - Flowers in the dirt
II. Simply Red - A new flame
12. Mezzoforte ■ Playing for time
13. Edie Brickel - Shooting rubberbands
14. Cult - Sonic temple
15. Deacon blue - When the world
16. Queen - Mirade
17. Ör mynd - The big blue
18. Madonna - Like a prayer
19. Mlchael Jackson - Bad
20. 1927 - Ish
LP/Kass.
1.099,-
899,-
1.149,-
899,-
899,-
899,-
799,-
949,-
899,-
899,-
899,-
1.199,-
899,-
899,-
899,-
899,-
899,-
899,-
899,-
899,-
C0
1.599,-
1.599,-
1.649,-
1.599,-
1.499,-
1.499,-
1.199,-
1.599,-
1.599,-
1.599,-
1.599,-
1.599,-
1.599,-
1.499,-
1.499,-
1.599,-
1.499,-
1.599,-
1.499,-
1.599,-
Gerið verísamaiM!
Erlendar kassettur á góðu boöi kr 699,-. T.d.:
1. Billy Joel - 52nd Street
2. Janis Joplin - Greatest Hits
3. Michael Jackson - Of The Wall
4. Simon and Garfunkel - Bridge Over
Troubled Water
5. Bob Dylan - Greatest Hits
6. Chicago - Greatest Hits
7. America - History, Best of Amerika
8. Donald Fagen - Nightfly
9. Doobie Brothers - Best Of Doobie
Brothers
10. Eagles - Hotel California
11. Everly Brothers - Very Best Of Everly Brothers
12. Fleetwood Mac - Rumours
13. Pat Boone - Hit Singles Collection
14. Ella Fitzgerald - Golden Great
15. Mamas And The Papas -16 Of The Greatest Hits
16. Bill Haley - Best of Bill Haley
islenskar kassettur á góðu boði kr. 799,-. T.d.:
1. Ríó tríó - Á þjóðlegum nótum
2. Spilverk þjóðanna - Sturla
3. Brimkló - Eitt lag enn
4. Stuömenn - Sumar á Sýrlandi
5. Grettir Björnsson - Harmonikulög
6. Magnús Eiríksson - 20 bestu lögin
7. Ómar Ragnarsson - Gamanvísur og
gamanþættir
Eins og áður býður Hagkaup viðskiptavinum sínum að eignast allar
vinsælustu plöturnar (CD.kass) á mun lægra verði en annarsstaðar.
Einnig bendum við á hið gífurlega úrval af plötum, og kassettum á
GÓÐU BOÐI (kr. 699-799) sem við eigum.
Prefab Spraut - Protest songs
Alveg frábær ný plata með einu besta bandi
heims um þessar mundir.
LP/kass ki. 899,- CD kr. U99,-
GunsA’Roses - Appetite for
destriction
Lang vrnsælasta þungarokkssveit heims í
dag enda alveg þrælgóðar plötur frá þeim.
LP/kass kr. 899,- CD kr. 1.599,-
Prince - Batman
Höfundur, útsetning, upptökustjórn og flytj-
andi: Prince. Stórfengleg plata og hans
besta hingað til.
LP/kass kr. 899,- CD kr. 1.499,-
Disneyland after dark
N.F.L.F.T.P.
Það nýjasta i heimi þungarokksins. Einstak-
lega kraftmikil og góð plata.
LP/kass kr. 899,- CD kr. 1.499,-
Bandalög
Ný plata meö 12 nýjum íslenskum lögum
sem flutt eru af 9 vinsælustu hljómsveitum
landsins.
IP/kass kr. 1.999,- CD kr. 1.599,-
Stuðmenn - Listin að lifa
Alveg sérstaklega góð plata frá Stuðmönn-
um hefur litið dagsins Ijós. Átt þú eintak?
LP/kass kr. 1149,- CD kr. 1.649,-
HAGKAUP