Morgunblaðið - 14.07.1989, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 14. JULI 1989
17
Yiðbygging Háskólabíós:
\
Slæmt að ekki skulu
keyptir íslenskir stólar
-segir Kristbjörn Árnason formaður
Félags starfsfólks í húsgagnaiðnaði
„FRAMLEIÐSLA hefur dregist saman í íslenskum húsgagnaiðnaði
síðastliðin 2 ár og minna er um hefðbundin verke&ii en áður. Því
er slæmt að heyra að Háskólabíó skuli vera að gera samning við
þýska framleiðendur um kaup á stólum,“ sagði Kristbjörn Arnason,
formaður Félags starfsfólks i húsgagnaiðnaði, í samtali við Morgun-
blaðið.
Greint hefur verið frá því að
Háskólabíó leiti nú samninga við
þýskt fyrirtæki, Kamphöner, um
smíði 800 stóla í viðbyggingu bíós-
ins. Eitt íslenskt fyrirtæki gerði til-
boð í smíði stóla í þá þrjá sali sem
verða í viðbyggingunni. Kristbjörn
segir tilboð þess hafa verið hærra
en þýska fyrirtækisins. Hins vegar
hafi tilboð Kamphöner borist eftir
að tilboðin voru opnuð formlega.
Gerð er krafa um að bök stólanna
séu úr trefjaplasti. Slíkt er hægt
að fjöldaframleiða erlendis en þarf
að sérsmíða hé,r.
Að sögn Kristbjörns Ámasonar
hefur Félag starfsfólks í húsgagna-
iðnaði skorað á forráðamenn opin-
berra stofnana að kaupa íslensk
húsgögn. „Hér á landi er hægt að
framleiða stóla sem standast ítrustu
gæðakröfur," sagði Kristbjörn.
„Dæmi um slíkt eru einmitt sætin
í Háskólabíói sem smíðuð voru hér
á landi fyrir 30 árum og em enn í
góðu lagi, auk þess sem öll viðhalds-
þjónusta hefur verið til staðar.“
Kristbjörn telur innlenda framleið-
endur ekki sitja við sama borð og
þeir sem flytji inn erlenda vöm.
„Þegar smíðaðir vom stólar í nýja
Borgarleikhúsið var ekki reynt mér
vitandi að fá það gert hér á landi,“
sagði Kristbjörn.
Um 400. manns eru í Félagi
starfsfólks í húsgagnaiðnaði. Að
sögn Kristbjörns hafa 2,5 milljónir
króna verið greiddar í atvinnuleysis-
bætur til félagsmanna í Reykjavík
það sem af er þessu ári.
Eþíópísku gestirnir ásamt Þórönnu Jónsdóttur, til vinstri, og Ingu
Margréti Friðriksdóttur, sem eru á forum til Eþiópíu. Fyrir framan
þau eru hluti af saumavélum, sem félagar í ungmennahreyfingu RKÍ
hafa safnað og ætla að senda til Gojjamhéraðs í Eþiópíu.
. *
Rauði kross Islands:
Fulltrúar frá Eþíópíu í heimsókn
TVEIR fulltrúar Rauða kross
Eþíópíu komu nýlega hingað til
lands í boði Rauða kross Islands,
og kynntu sér starfsemi RKI.
Gestirnir hittu meðal annars
tvær konur sem eru á förum til
mánaðardvalar í vinnubúðum í
Eþíópíu, en RKÍ hefur átt mikið
samstarf við Rauða krossinn í
Eþíópíu að undanförnu.
Ársfimdir Oslóar- og Parísarnefiida:
Þriggja ára áætlun mengun-
armælinga við Island kynnt
ÁRSFUNDIR Oslóar- og Parísarnefiidanna um varnir gegn mengun
sjávar og sameiginlegur fundur þessara nefnda fóru fram í Dublin á
írlandi dagana 12.-22. júní. Gunnar H. Ágústsson, deildarsljóri Siglinga-
málastofiiunar ríkisins var fulltrúi ísla,nds á fundunum og gerði hann
m.a. grein fyrir áætlun um mengunarmælingar á hafsvæði Islands á
næstu þremur árum. Áætlunin tekur mið af heildarrannsóknaráætlun
samninganna og gætu rannsóknirnar hér við land veitt grundvallarupp-
lýsingar um mengun í Norður-Atlantshafi.
þykkt að innsævi aðildarlandanna
teljist til samningssvæðisins og að
ákvæði Oslóarsamningsins gildi á
hafinu þar fyrir utan. Eftir þessa
breytingu verður samningssvæði
beggja samninganna hið sama.
Oslóar- og Parísarsamningarnir
eru milliríkjasamningar um varnir
gegn mengun sjávar á Norð-Austur-
Atlantshafi og eru öll strandríki í
Vestur-Evrópu aðilar að þeim. Á
fundi Oslóarnefndarinnar var sam-
Morgunblaðið/Theodór Kr. Þórðarson
Landsmót hestamanna verður haldið í Borgarnesi 21. til 23. júlí.
Þessi mynd var tekin í vetur, þá unnu félagsmenn Skugga af fiillum
krafti við byggingu félagsheimilis að Vindási sem nú er tilbúið sem
og keppnisvellir og önnur aðstaða.
Borgarnes:
Islandsmót í hestaíþróttum
Borgarnesi.
Islandsmót í hestaíþróttum verður haldið í Borgarnesi 21. til 23.
júlí nk. Þrjú hestaeigendafélög, Skuggi, Faxi og Dreyri, standa að
þessu landsmóti.
Unnið hefur verið af kappi við
undirbúning frá því um áramót.
Hafa félagar hestaeigendafélagsins
Skugga í Borgarnesi nú fullklárað
nýtt og glæsilegt félagsheimili, þá
hafa vellir verið endurbættir og
áhorfendasvæðið þökulagt. Gengið
hefur verið frá aðstöðu fyrir tjald-
vagna og hjólhýsi og tjaldstæði
hafa verið útbúin. Segja forsvars-
menn Skugga að þeir búist við að
margir komi ríðandi á staðinn því
reiðleiðir séu goðar i allar áttir. Að
sögn mótshaldara verður vegleg
veitingasala á svæðinu og starfrækt
verður sportvöruverslun á staðnum.
í tengslum við mótshaldið verða
haldnir dansleikir á föstudags- og
laugardagskvöld. Gera mótshaldar-
ar ráð fyrir að um 800 til 1.000
manns geti komið á staðinn ef vel
viðrar. - TKÞ
Sameiginlegur fundur Oslóar- og
Parísarnefndanna fjallaði um íjármál
samninganna, rekstur skrifstofu í
London og um samstarf við Alþjóða-
hafrannsóknaráðið.
Öll aðildarríkin voru sammála um
að Sovétríkin hefðu fulla heimild til
þess að gerast fullgildur aðili að
báðum samningunum, en undanfarið
hafa Sovétríkin verið að athuga
möguleika sína á aðild. Einnig var
rætt um aðild Austur-Þýskalands og
Tékkoslóvakíu sökum mengunar,
sem berst í Norðursjó frá þessum
löndum með ánni Elbu. Fulltrúi ís-
lands minnti á að hafstraumar, sem
bærust til norðurs meðfram strönd-
um Norður-Ameríku, hefðu einnig
veruleg áhrif á ástand sjávar í Norð-
ur- og Norð-Vestur Atlantshafi. Því
þyrfti að athuga um einhvers konar
aðild Kanada og Bandaríkjanna að
samningunum. Samþykkt var að
heimila Greenpeace að ávarpa fundi
nefndanna. Hinsvegar leyfa fundar-
sköp ekki félagasamtökum áheyrnar-
aðild, en Greenpeace hafði sóst eftir
hvoru tveggja.
Á fundi Parísarnefndarinnar var
rædd skýrsla tækninefndar, sem
starfar á vegum nefndarinnar. Rætt
var um niðurstöður rannsókna og
athugana sem gerðar hafa verið á
efnainnihaldi og mengun sjávar á
undanförnum árum. Auk þess var
rætt um árlegar skýrslur, sem aðild-
arlöndin gera, um losun mengandi
efna í sjó.
Á fundinum var samþykkt skil-
greining á svokallaðri „varúðar-
reglu“, sem m.a. felur í sér sönnunar-
byrði mengunarvalds. Þessi regla
verður framvegis ein meginstoðin í
starfi Parísarnefndarinnar, en eitt
aðalskilyrðið fyrir því að unnt sé að
framfylgja varúðarreglunni er að
ætíð sé beitt „bestu fáanlegri tækni“.
Samþykkt var að aðildarlöndin
beiti áhrifum sínum til að kvikasilf-
ursnotkun í rafhlöðum verði hætt.
Samþykkt var að herða verulega eft-
irlit með ýmsum efnum sem berast
í sjó, s.s. skordýraeitri, þungamálm-
um og köfnunarefnissamböndum.
Rætt var um þær aðstæður og efni
sem valda þörungablóma í sjó. Sér-
stakar aðgerðir voru samþykktar í
þessu efni, einkum er snerta land-
búnað, skolp og iðnað. Stefnt skal
að því að minnka losun eða fram-
burð þessara efna í sjó um allt að
50% fyrir árið 1995 í þeim aðildar-
löndum þar sem hætta er á þörunga-
blóma í sjó.
Næstu ársfundir Oslóar- og París-
arnefndanna verða í Reykjavík á
næsta ári dagana 11.-23. júní.
Heimsókn frú Maesa Kitaw, sem
sæti á í framkvæmdaráði Rauða
kross Eþíópíu, og Feleke Abebe,
formanns Rauðakrossdeildar í Goj-
jamhéraði í Eþíópíu, er liður i sam-
starfi Rauðakrossfélaga á íslandi
og Gojjamhéraði, en þar hafa ís-
lendingar tekið þátt í umfangsmik-
illi áætlun um neyðarvarnir og fyrir-
byggjandi aðgerðir.
RKÍ hefur um eins árs skeið
unnið að verndun vatnsbóla í Goj-
jamhéraði, en samstarfsáætlun RKÍ
og Gojjamdeildarinnar miðar að því
að 250 þúsund manns hafi aðgang
að hreinu vatni og kunni að nýta
sér_það fyrir árslok 1991. Á vegum
RKI starfa nú tveir sjálboðaliðar í
Gojjam ásamt sendifulltrúa írska
Rauða krossins, og vinna þeir með-
al annars með ungmennum í Goj-
jamdeildinni að því að fræða al-
menning um heilsuvernd og nauð-
syn þess að gæta hreinlætis í með-
ferð vatns og matvæla.
^PiiADy
'■iPii.Aoy
Nútíma lausn á þekktu vandamáli.
Epilady er fyrir nútímakonur.
Fjarlægir óæskileg hár af fótleggjum
betur og varanlegar en áður hefur þekkst.
5NYI\TlVOf
Sundaborg 9, sími 681233.
Fæst í snyrtivöruverslunum,
apótekum og raftækjaverslunum.