Morgunblaðið - 14.07.1989, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Umferðarslys í Svíþjóð:
Rætt um að lækka há-
markshraða enn frekar
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
DAUÐSFÖLLUM af völdum um-
ferðarslysa og drukknunar Qölg-
ar hratt í Svíþjóð, að því er bráð-
birgðatölur opinberra skýrslna
Umferðarmálaráðs sýna. Um-
ferðarslysum íyrstu sex mánuði
ársins heftir fjölgað um 15% mið-
að við sex mánuðina þar á undan
Fiskveiðar EB:
Dregið úr
síldveiðum
Brussel. Frá Kristófer M. Kristins-
syni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Framkvæmdastjórn Evr-
ópubandalagsins (EB) hefur
lagt til við ráðherranefnd
þess að árlegt bann við
síldveiðum við suðvestur-
strönd Irlands verði látið ná
til stærra svæðis en áður,
jafhframt leggur fram-
kvæmdasfjórnin til að
þorskkvótar innan lögsögu
EB-ríkjanna verði stækkaðir.
Það er samkvæmt tilmælum
Alþjóðahafrannsóknaráðsins
(ICES) að friðun hrygningar-
stofns síldarinnar er látin ná
til stærra svæðis en áður. Hins
vegar leggur vísindanefnd
bandalagsins til stækkun
þroskkvóta um 700 tonn sem
verður skipt á milli aðildarríkj-
anna í hlutfalli við upphaflega
kvóta þeirra.
Morgunbiaðsins.
og nær 400 manns týndu lífi í
þeim. Einnig drukknuðu nokkru
fleiri en áður eða 84.
Enda þótt hámarkshraði hafi
verið lækkaður í 90 km tímabilið
22. júní til 20. ágúst virðist það
ekki hafa áhrif á slysatíðnina. Tölur
um 15% íjölgun umferðarslysa
segja auk þess ekki alla söguna;
venjulega reyna aðilar að gera upp
málin án afskipta lögreglu.
Dauðaslysum í umferðinni fjölg-
aði um árabil fram til 1967 er
breytt var yfir í hægri umferð en
fækkaði síðan hratt til ársins 1982
er 600 manns fórust. Gert er ráð
fyrir að allt að 800 manns týni lífi
á þessu ári sem þá verður mesta
manntjón frá 1966. Bílaframleiðsla
hefur tekið miklum framförum og
ungir ökumenn nota oft tækifærið
,til að aka eins hratt og hægt er,
án nokkurs tillits til annarra öku-
manna. í sumarlok mun ríkisstjóm-
in ákveða hvort hámarkshraði verð-
ur lækkaður enn frekar og jafn-
framt hvort 110 km hámarkshraði
verður aðeins leyfður á hraðbraut-
um. Slysum af völdum dmkkinna
ökumanna hefur einnig ijölgað mik-
ið; oft er bílum ekið út af að nætur-
lagi á mikilli ferð og verða farþegar
illa úti.
Óhöpp á skemmtibátum verða
oftast af völdum drykkjuskapar og
of mikils hraða. Fólk í sólbaði og
við aðra iðju á ströndunum verður
oft fyrir slysi af völdum báta sem
siglt er á fullri ferð upp á land.
Lifði afskotárás ímóðurkviði
Reuter
Þessi litla stúlka fæddist með byssukúlu í brjóstinu síðasta laugardag eftir móðirin var skotin í
kviðinn af árásarmanni sem reyndi að þröngva henni inn í bíl sinn. Læknar telja það kraftaverk
að bamið skyldi lifa skotárásina af en bæði móður og dóttur líður eftir atvikum vel.
Yfírlýsing Mandela:
Hvetur stjórnvöld til að
ræða við Afííska þjóðarráðið
ísraelsk stjórnvöld:
Dananum verður sleppt
að lokinni rannsókn
Kaupmannahöfn. Reuter.
ÍSRAELSK stjómvöld ætla að
leysa dönsku konuna Ullu Lyngs-
by úr haldi um leið og rannsakað
hefur verið til fulls hvort hún
hafi steftit öryggi Israela í hættu,
að því er talsmaður israelska
sendiráðsins í Kaupmannahöfii
skýrði frá i gær.
Lyngsby var handtekin á laugar-
dag er hún kom til Ben Gurion-
flugvallar og úrskurðuð í gæslu-
varðhald. Dómstóll dæmdi hana
síðan á mánudag í ellefu daga ein-
angrun meðan á rannsókninni á
máli hennar stæði.
„Það er öruggt að Lyngsby verð-
ur látin laus og send heim til Dan-
merkur þegar lögreglan hefur lokið
rannsókn sinni,“ sagði talsmaður
ísraelska sendiráðsins. Hann sagði
að ísraelska lögreglan hefði undir
höndum gögn, sem tengdu hana við
Fatah-hreyfinguna innan Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO)..
Hvorki ísraelskir né danskir emb-
ættismenn vildu upplýsa um hvað
konan er sökuð.
Talsmenn danska utanríkisráðu-
Japan:
Sjávargos og
jarðskálftar
Tókíó. Reuter.
ELDGOS hófst í sjó um 150 kíló-
metra suðvestur af Tóklo í gær
og fylgdu því miklar jarðskjálfta-
hrinur, að sögn Veðurstofu Jap-
ans.
Að sögn japanska ríkisútvarpsins
fylgdist fólk með gosinu úr landi
og sáust reykjarbólstrar stígá til
himins. Neðansjávareldfjallið er um
einn kílómetra úti fyrir stöndum
Izu-skagans. Þar hafa verið miklar
jarðhræringar frá því seint í júní
og slösuðust 18 manns í stærsta
skjálftanum, sem varð á síðastliðinn
sunnudag.
neytisins kváðust telja að Lyngsby
yrði látin laus næstkomandi föstu-
dag eftir að rannsókninni væri lok-
ið.
Lyngsby sem er 25 ára að aldri,
er vanfær og í sambúð með Pa-
listínumanni.
Jóhannesarborg. Reuter.
ISMAIL Ayob, lögfræðingur
blökkumannaleiðtogans Nel-
sons Mandela, telur litlar líkur
á því að Mandela verði látinn
laus úr haldi fljótlega þrátt fyr-
ir fund hans með P. W. Botha,
forseta Suður-Afríku, í síðustu
viku. Ayob telur að fundinn
hafi leitt af deilu innan Þjóðar-
fiokksins. A miðvikudagskvöld
sendi Mandela firá sér yfirlýs-
ingu þar sem hann hvatti
stjórnvöld í Pretoríu til þess að
hefja viðræður við samtök sín,
Afríska þjóðarráðið, og önnur
samtök sem berjast gegn að-
skilnaðarstefhu stjórnvalda.
Aðrir blökkumannaleiðtogar
hafa brugðist fálega við yfirlýs-
ingu Mandela og telja að fundur
hans og Botha hafi verið auglýs-
ingabrella af hálfu stjómvalda.
Ismail Ayob telur hins vegar
að nú eigi stjómvöld næsta leik.
Hann segir að Mandela telji per-
sónulegt frelsi sitt skipta litlu í
samanburði við frelsi allrar þjóðar-
innar. En þótt Ayob sé svartsýnn
á að Mandela verði látinn laus
fljótlega eftir 26 ára fangelsisvist,
þá eru margir stjórnmálaskýrend-
ur á öðru máli. „Mér sýnist allt
benda til að Mandela verði leystur
úr haldi tveimur til þremur dögum
eftir kosningamar í haust,“ sagði
David Walsh prófessor í stjóm-
málafræði við háskólann í Höfða-
borg. Andries Treurnicht, leiðtogi
íhaldsflokksins, sagði atburði
síðustu daga vera undanfara þess
að Mandela yrði látinn laus. Hann
benti á að yfirlýsing Mandela hefði
verið birt þrátt fyrir að það væri
yfirlýst stefna dómsmálaráðher-
rans Kobie Coetsee að fangar
fengju ekki að gefa út neinar yfir-
lýsingar til íjölmiðla.
Talsmenn suður-afríska kirkju-
ráðsins sögðust fagna því að
Mandela vildi leggja sitt af mörk-
um til að friður mætti ríkja í
landinu en töldu að fundur Botha
og Mandela hefði einungis verið
vandlega tímasett kænskubragð
stjórnvalda. Nú þyrfti stjórnin að
sýna friðarvilja sinn í verki.
Ástralía og Nýja Sjáland:
Hvorir horfa á endanum öfimd-
araugum yfir Tasman-sund?
VEGNA legu landsins á jarðar-
kringlunni eru Nýsjálendingar
jaftian fyrstir á fætur til að fagna
nýjum degi en svo er þó komið,
að sumir eru farnir að gerast dálí-
tið langeygir eftir döguninni. Þeg-
ar Verkamannaflokkur Davids
Lange komst til valda fyrir fimm
árum voru hin ftjálsu markaðsöfl
hafin til vegs og virðingar og því
lofað, að árangurinn myndi ekki
láta á sér standa. Það hefiir þó
ekki gengið eftir enn sem komið
er. Þjóðarframleiðsla er nú minni
en 1985 og atvinnuleysið hefiir
rokið úr 3% í rúm 10%. Nýsjálend-
ingar horfa því nokkrum öftmdar-
augum yfir Tasman-sundið, til
Astraliu. Verkamannaflokkurinn
þar heftir líka látið sum sósilisku
steftiumálin í skiptum fyrir önnur
hægrisinnaðri en bara farið miklu
hægar í sakirnar. í Ástralíu er
mikill uppgangur í eftiahagslífinu.
Af þessu er auðvelt að álykta sem
svo, að Nýsjálendingar hafi gengið
of langt en það er ekki rétt. Þeir
fóru ekki rétta leið að markinu.
Fram til 1984 voru allt umvefj-
andi vemdarstéfna, höft og miðstýr-
ing meiri í Nýja Sjálandi en nokkru
öðru OECD-ríki. Verðlagshömlur,
háir tollar og niðurgreiðslur veittu
þjóðarauðnum í arðlausan atvinnu-
rekstur og miklir skattar löttu fólk
til að leggja hart að sér. Á þessu
hefur orðið mikil breyting. Ríkis-
stjórnin lækkaði hæsta skattþrepið
um helming, niður í 33%, og útrýmdi
skattundanþágum með þeim afleið-
ingum, að nýsjálenska skattkerfið
er það einfaldasta og eðlilegasta, sem
um getur. Niðurgreiðslum í land-
búnaði og öðrum atvinnurekstri var
að mestu hætt, tollmúramir lækkað-
ir og ríkisfyrirtæki seld.
Árangurinn af þessum róttæku
aðgerðum hefur verið mjög góður
að sumu leyti. í fyrsta sinn í 15 ár
er verðbólgan í Nýja Sjálandi komin
niður fyrir OECD-meðaltalið og halli
á greiðslujöfnuðinum hefur minnkað
verulega. Þetta hefur þó verið greitt
dýru verði, með efnahagslegum sam-
drætti, gjaldþrotahrinu og atvinnu-
leysi. Almennir kjósendur era heldur
ekki hrifnir og skoðanakannanir
benda til, að Verkamannaflokkurinn
muni tapa í kosningunum á næsta
ári. Flokkurinn er líka klofínn. í des-
ember sl. rak David Lange höfuð-
smið efnahagsaðgerðanna, Roger
Douglas fjármálaráðherra, úr emb-
ætti. Síðan þá hefur dregið úr hraða
efnahagsumbótanna; sumir á vinstri
væng flokksins vilja snúa þróuninni
við.
í Ástralíu á hinn bóginn hefur
stjóm Verkamannaflokksins látið
vera umbætur á smærri hagrænum
þáttum. Hæsta þrep tekjuskattsins
er enn sem fyrr hátt eða 47%. Kom-
ið hefur verið í veg fyrir áform um
einkavæðingu og margar fram-
leiðslugreinar eru enn vemdaðar fyr-
ir samkeppni. > Samt sem áður
blómstrar ástralskt efnahagslíf á
meðan efnahagur Nýja Sjálands hef-
ur staðnað. Landsframleiðsla i Ástr-
alíu hefur að meðaltali aukist um rúm
3% á ári undanfarin þijú ár og hagn-
aður fyrirtækja hefur ekki verið
meiri í 20 ár.
Efriahagurinn látinn brokka
En horfa verður til lengri tíma.
Það er sama hversu gigtarsjúkur
efnahagurinn er — ef eftirspum er
hleypt á stökk þá tekst að láta hann
brokka. Frá mars í fyrra til mars á
þessu ári jókst innanlandsneysla um
8% í Ástralíu, innflutningur óx um
21% en útflutningur stóð í stað, sem
olli því að greiðslujöfnuður við á við-
skiptum við útlönd hefur aldrei verið
óhagstæðari. Ríkisstjómin fram-
fylgdi þenslustefnu í peningamálum
sem var meiri en afgangur á ríkis-
sjóði gaf tilefni til. Til þess að draga
úr eftirspurn heíur ástralska stjórnin
neyðst til að hækka vexti. Þeir eru
nú nærri 20% og teljast hinir hæstu
hjá ríkari þjóðum. Þar með er hætta
á að dragi úr fjárfestingum sem
myndi draga úr samkeppnishæfni
atvinnulífsins og viðleitni til að auka
fjölbreytni þess. Þess vegna er ólík-
legt að vaxtarkippurinn í Ástralíu
endist. Án endurskipulagningar
verður ástralska þjóðarbúið mjög við-
kvæmt fyrir næstu verðlækkunum á
framleiðsluvöru þess.
Á Nýja Sjálandi eru skilyrði til
langtímavaxtar mun betri. Fráhvarf
frá miðstýringu verkar sem hvati á
fjármagn og mannafla til að streyma
inn í greinar þar sem landið nýtur
yfirburða í samanburði við önnur
lönd. Einmitt núna á sér slík þróun
stað og hún færir Nýsjálendingum
þá möguleika að halda við vexti án
verðbólgu. Þetta á við jafnvel þótt
Evrópubúar og Bandaríkjamenn sýni
hlutdrægni og greiði niður afurðir
eigin bænda og komi þannig í veg
fyrir að Nýsjálendingar njóti ávaxt-
anna af forskoti sínu í landbúnaði.
Röng röð aðgerða
Hafi Nýsjálendingum orðið á mis-
tök þá eru þau ekki í því fólgin að