Morgunblaðið - 14.07.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
19
Harmleikur á knattspyrnuleik í
Moskvu árið 1982:
340 manns tróðust
undir og létu lífið
Skuldinni skellt á lögregluna - Yfir-
völd fyrirskipuðu yfirhylmingu
Moskvu. Reuter.
ALLT að 340 áhorfendur að knattspyrnuleik, sem fram fór í
Moskvu 1982, biáu bana er þeir tróðust undir, að því er skýrt er frá
í nýjasta hefti tímaritsins Sovíetskíj Sport. Þar er skuldinni skellt
á lögreglu og hún sögð bera ábyrgð á harmleiknum. Blaðið segir
ennfremur að yfirvöld hafi látið þegja atburðinn í hel. Gefið var
í skyn fyrir skömmu í fréttum frá Moskvu að áhorfendur að knatt-
spyrnuleik fyrir nokkrum árum þar í borg hefðu beðið bana en
fjöldi ekki tilgreindur. I tímaritinu er í fyrsta sinn skýrt frá því
hvað raunverulega gerðist.
Að sögn Sovjetskíj Sport minnir
atvikið á atburðina á Hillsboroug-
h-leikvangnum í Sheffield í Bret-
landi í apríl en þar biðu 95 menn
bana er þeir tróðust undir. Harm-
leikurinn í Moskvu varð á leik
Moskvuliðsins Spartak og hol-
lenska félagsliðsins Haarlem þann
20. október 1982. Leikurinn fór
fram á Lúzhníkí-vellinum og var
liður í Evrópukeppni félagsliða.
Blaðið segir að lögreglumönn-
um, sem héldu uppi gæslu meðan
á leiknum stóð, hafi legið svo á
að rýma völlinn og komast heim
til sín að þeir hafi byijað að reka
áhorfendur niður af áhorfendapöll-
unum áður en leikurinn var úti.
Rekið hafi verið út um aðeins einn
stigagang. Vallargestir á útleið
hafi síðan snúið við til uppgöngu
er þeir heyrðu fagnaðaróp þegar
Sergeij Shvetsov skoraði mark, 20
sekúndum fyrir leikslok. Þá hafi
harmleikurinn átt sér stað og hinir
látnu troðist undir.
Að sögn Sovjetskíj Sport fyrir-
skipuðu yfirvöld þegar í stað að
hylmt skyldi yfir atburðinn. Eng-
inn fékk að koma að leikvanginum,
hvorki forvitnir vegfarendur né
foreldrar, sem söknuðu barna
sinna. Fengu þeir ekkert að vita í
tvær vikur og fengu þá fyrst að
sjá líkin.
Embættismenn sögðu á sínum
tíma að rumpulýður hefði komið
óeirðum af stað á vellinum. Blaðið
sagði að mörg hundruð manns
hefðu troðist undir og fagnaðaróp-
in hefðu skyndilega breyst í kvala-
stunur. Shvetsov segist aldrei hafa
séð jafn mikið eftir að hafa skorað
mark og í þessum leik.
Vitni sögðust hafa séð lögreglu-
menn draga lík hinna látnu eftir
freðinni jörðinni við leikvanginn.
Foreldrar fórnarlamba hafa sagt
að þeir hafi aðeins fengið að líta
á líkin í viðurvist lögreglu rétt fyr-
ir greftrun, hálfum mánuði eftir
atburðinn.
Sovjetskíj Sport segir útilokað
að fá nákvæma tölu um fjölda
þeirra sem látist hafi en þeir hafi
sennilega verið um 340. Hvatti það
lesendur til að senda upplýsingar
um atburðinn.
Leikir hafa ekki farið fram á
Lúzhníkí-vellinum seinni hluta okt-
óbermánaðar frá því harmleikurinn
átti sér stað. Hin opinbera skýring
hefur ætíð verið á þá lund að völl-
urinn væri ekki í góðu ásigkomu-
lagi en Sovjetskíj Spoit segir raun-
verulegu ástæðuna þá að yfirvöld
hafi óttast að menn streymdu til
vallarins og heiðruðu minningu
hinna látnu með því leggja þar
blóm.
Að sögn tímaritsins átti sams
konar atvik sér stað í Sokolníkí-
íþróttahöllinni í Moskvu árið 1976.
Þá hafi óþekktur fjöldi áhorfenda
beðið bana er þeir tróðust undir á
ísknattleik milli landsliða Sov-
étríkjanna og Kanada. Aðeins einn
útgangur úr húsinu var hafður
opinn.
David Lange, forsætisráðherra Bob Hawke, forsætisráðherra
Nýja Sjálands. Ástralíu.
fijálshyggjunni hafi verið framfylgt
af of miklu offorsi heldur má gera
athugasemdir við röð aðgerða. Eftir
á að hyggja hefði tímabundinn sárs-
auki sem fylgir umbyltingunni orðið
minni ef stjórnvöld hefðu afgreitt
vinnumarkaðinn fyrst þar sem mestr-
ar tregðu var að vænta en snúið sér
síðan að fjármálamarkaði þar sem
þess var að vænta að breytingum
yrði tekið fagnandi. Tregða sem enn
er við lýði á vinnumarkaðnum á að
hluta til sök á skyndilegu auknu at-
vinnuleysi. Umbætur í öfugri röð eru
því ein ástæða þess að enn eru vand-
ræði í efnahagslífinu.
Lærdómurinn sem Ástralir geta
dregið af reynslu Nýsjálendinga er
ekki sá að aflétting haftabúskapar
gangi ekki, heldur sá að henni verði
að stjórna af fyrirhyggju. Nauðsyn
þess að draga úr eftirspurn í Ástr-
alíu hefur beint sjónum ríkisstjórnar-
innar frá umbótum á smærri hag-
rænum þáttum og þá einkum tveim-
ur. í fyrsta lagi eru við lýði takmark-
anir á vinnumarkaði sem kveða á
-um að sá sem bori holurnar megi
ekki reka skrúfuna inn. Þrátt fyrir
hagvöxt hefur framleiðni minnkað
undanfarin þijú ár. í öðru lagi leiðir
víðátta Ástralíu til þess að ódýrt og
virkt samgöngunet er sérlega mikil-
vægt. Umbóta er helst þörf í hafnar-
málum og strandsiglingum. Þessar
greinar eru varðar samkeppni og
höftin eru fleiri en tölu verður á
komið. Það er tvisvar sinnum dýrara
að koma tonni af járni milli hafna í
Ástralíu heldur en að senda það til
Japans.
Þetta er þungt ok fyrir atvinnulíf
í Ástralíu. Þegar fram líða stundir
koma afleiðingarnar í ljós. Grípi
Ástralir ekki skjótt til umbóta má
vænta þess að þeir líti öfundaraugum
yfir Tasman-sund.
The Economist
• MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ *
FLUGUHJOL
r Fást í nœstu sportvöruverslun.
ORD VIKUNNAR ER:
»
BJÖRGUNARSVEITIRNAR
1 safnleik á sumarmiða Lukkutríós sáfnar þú
bókstöfum í orð. í hverri viku birtist
vinningsorð í dagblöðum og útvarpi. Haltu
miðunum til haga því um leið og þú átt
bókstafi sem mynda eitthvert orðanna getur
pú fengið Jiann vinning. Vinninga má vitja á
skrifstofu Lukkutríós að Borgartúni 18.
Orð fyrri vikna:
Hjól (Kynast 1362, kr. 19.900,-)
Bakpoki (Karrimor Jaguar 66, kr. 9.290,-)
Grill (Sunbeam gasgrill, kr. 35.000,-)
ÍJtvarp (Sony SRF-16, kr. 2.270,-)
íþróttataska (Henson kr. 1.800,-)
Yoko sjónvarp (Ferðasjónvarp kr. 13.510,-)
Metsölublað á hverjum degi!