Morgunblaðið - 14.07.1989, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Minningarathöfn um Khomeini:
Þúsundir féllu í yfirlið
Teheran. Reuter.
ÞÚSUNDIR manna féllu í yfirlið
af völdum gífurlegra hita á minn-
ingarathöfn um Ayatollah Ru-
hollah Khomeini, fyrrum trúar-
leiðtoga, í gær. Þá lauk 40 daga
þjóðarsorg sem lýst var yfir í Iran
vegna andláts Khomeinis hinn 3.
júní sl.
Einn lést í
óeirðum í
Armeníu
Moskvu. Reuter.
EINN Armeni var skotinn til
bana í skærum Armena og
Azerbajdzhana í Nagorno-
Karabakh héraðinu í Armeníu
á miðvikudag, að sögn sov-
ésku fréttastofúnnar TASS í
gær. Spenna virðist fara vax-
andi í héraðinu og Æðsta ráð
sovéska þingsins hefúr sent
sérstaka rannsóknarnefnd til
héraðsins.
Æstur múgurinn hefur rænt
verslanir, sett upp vegatálma og
skotið á hermenn í óeirðunum í
þessari viku, sagði TASS. Þrír
menn hafa nú látist í deilum
Armena og Azerbajdzhana eftir
að þær blossuðu upp að nýju í
maí sl. en í fyrra létu yfir 90
manns lífíð í óeirðunum í Nag-
omo-Karabakh. Einn Armeni er
nú á sjúkrahúsi eftir barsmíðar
Azerbajdzhana. Sendinefnd
Æðsta ráðsins er ætlað að kanna
ástand mála í héraðinu og leita
leiða til að stöðva óeirðirnar.
Þyrlur flugu yfir Behest-e Zahra-
grafreitinn, þar sem Khomeini var
borinn til grafar, og sprautuðu vatni
á mannfjöldann, sem þar var saman
kominn. Einnig var sprautað vatni á
fólkið úr slökkvibifreiðum. Var það
gert til þess að koma í veg fyrir að
enn fleiri féllu í yfirlið. Samkvæmt
upplýsingum lögreglu var talið að
liðið hefði yfir um 10.000 manns.
Mikil þrong var á þingi við graf-
reitinn er mannfjöldinn reyndi að
troða sér sem næst grafhýsi trúar-
leiðtogans fyrrverandi. Útvarpið í
Teheran sagði að milljónir manna
hefðu tekið þátt í minningarathöfn-
inni. Hnigu menn niður í troðningn-
um. Ekki fóru fregnir af manntjóni
en margir tróðust undir og biðu bana
við útför Khomeinis. Að þessu sinni
höfðu yfirvöld heitið þeim sem sóttu
minningarathöfnina ókeypis líftrygg-
ingu þar sem dánarbætur námu jafn-
virði 780 þúsunda íslenskra króna-
og slysabætur 115 þúsund kr.
Reuter
Um 20.000 manns söfnuðust saman á aðaltorgi borgarinnar Mezh-
duretsjensk í Vestur-Síberiu til stuðnings kröfúm námamanna, sem
lagt hafa niður vinnu til að krefjast þess að dregið verði úr miðstýr-
ingu og völdum sovéska kommúnistaflokksins.
Verkfall á næstmesta kolanámasvæði Sovétríkjanna:
Námamenn vilja minnka
völd kommúnistaflokksins
Valdsvið fulltrúaþing-sins verði aukið á kostnað miðstjórnarinnar
Moskvu. Reuter.
Námaverkamenn í næstmesta kolaframleiðslusvæði Sovétríkjanna,
Kúznetskíj Basín í Vestur-Síberíu, hafa lagt niður vinnu til að krefj-
ast meiri sjálfsstjórnar og þess að dregið verði úr miðstýringu. Þótt
verkfallsnefnd hafi lagt til að verkamennirnir mæti til vinnu að nýju
í dag var haft eftir háttsettum embættismanni, sem starfar við náma-
iðnaðinn, að ekki væri öruggt að verkfallsmennimir samþykktu slíkt.
Kolaframleiðslan stöðvaðist nær algjörlega á svæðinu í gær.
Verkfallið hófst í einni námu á ir berðust fyrir því að dregið yrði
mánudag vegna óánægju náma-
manna með lífskjörin en breiddist
síðan ört út. í gær hafði það kostað
námafyrirtækin 13 milljónir rúblna,
eða 1,6 milljarða ísl. kr.
Embættismaður í Kúznetskíj
Basín sagði að námaverkamennim-
úr miðstýringunni frá Moskvu og
völd kommúnistaflokksins yrðu
minnkuð. „Á fundum með verkfalls-
mönnum hefur komið fram að þeir
vilja að dregið verði úr völdum
kommúnistaflokks héraðsins, svo
og miðstjómarinnar í Moskvu,“
HLIÐ 1
1. <), María mig langar
2. Suöur um höfin
3. Hjarnastaöabeljurnar
4. Hann var sjómaöur dáöadrengur
5. Kátir voru karlar
6. Litla fiugan
7. Komdu inn í kof'ann minn
K. Kotukvæöi
9. Minning um mann
10. Lóan er komin
11. Komdu og skoftaóu í kistuna ...
12. I mbarassa
13. Sestu hérna hjá mer
14. Vertti ekki aó horfa
15. Vt»r vifl sæinn
16. I*> tur i laufi
Vcrtu til
HLIÐ 2
1. <), Jósep, Josep ...
2. Kvenmannslaus i kulda og trekki
3. Oflurinn úm árans kjóann, hann Jóhann
4. Fyrir 8 árum
5. IVtrsmerkurijófl
6. Hin gömlu k.vnni
7. Ifafl liggur svo makalaust
8. Ur 50 senta glasinu
9. Afl lífifl sé skjálfandi ...
10. Det var brændevin i fiasken
11. Jón og ég
Olafia. hvar er Vigga
12. Kinu sinni á ágústkvöldi
13. Kveikjum eld
14. í Hlíflarendakoti
15. Ljúfa Anna
Hljóðfæraleikarar:
Eyjólfur Kristjánsson, gítar
Friðrik Sturluson, bassi
Fjöldi söngvara
HLIÐ1
1. StebbiogLina
2. Spáöu í mig
3. Viltu með mér vaka
4. Vertu sœl Mey
5. Hreöavatnsvalsinn
6. Vór göngum svo lóttir
7. Áhörpunaóma
8. Gamlisorrýgráni
9. Allir eru að gera það gott
10. AnnaíHlíð
11. Játning
12. Bláttlítiðblómeitter
13. Ég sá þig snemma dags
14. Hannelskaöiþilför...
15. Káta Vikurmœr.
16. Efógværioröinnógnarlanguráll
HLIÐ2
1. Fram í heiðanna ró
2. Hif opp, æpti kartinn
3. Kvöld í Moskvu
4. Máninnfullurferumgeiminn
5. Upptilfjalla
6. Núliggurvelámór
7. Einu sinni var
8. Vetramótt
9. Búðardalurinn
10. Einanótt
11. Bam
12. Gunna var í sinni
13. Sumarkveöja
14. Kvöldiöerfagurt
15. Núblikarviðsólarlag
16. Hlíðinmínfríða
MXIR
MEÐ
AFTUR
1 alfa bet a
EIN STÖK ÚRGÁFA
SKEIFUNNI 19 - S. 91 -678150
sagði embættismaðurinn í símavið-
tali við fréttaritara Reuters. Hann
sagði að þeir vildu einnig að starfs-
mönnum kolanámaráðuneytisins í
Moskvu yrði fækkað um helming
og að skriffinnskubáknið í héraðinu
yrði lagt niður. Þeir krefðust þess
og að fulltrúaþing Sovétríkjanna
yrði kallað saman til að minnka
völd miðstjórnarinnar og auka vald-
svið þingsins.
12.000 námamenn tóku þátt í
verkfallinu. Um 20.000 manns
söfnuðust saman á aðaltorgi borg-
arinnar Mezhdúretsjensk, þar sem
verkfallið hófst, til stuðnings kröf-
um verkfallsmanna og hópar náma-
manna sáu um að halda uppi lögum
og reglu. Málgagn sovésku verka-
lýðssamtakanna, Trúd, skýrði frá
því að námamenn hefðu einnig stað-
ið við áfengisverslanir til að koma
í veg fyrir að verkfallsmenn keyptu
vín og farið þess á leit við yfirvöld
að áfengissölu yrði hætt meðan á
verkfallinu stendur.
Trúd skýrði frá því í mars að
efnt hefði verið til ellefu verkfalla
í sovéskum kolanámum á þessu
ári, aðallega til að krefjast betri
lífskjara. Fregnir um vinnudeilur
gerast æ algengari í landinu. í und-
irbúningi eru lög, sem heimila
verkalýðsfélögum að efna til verk-
falla, og er ráðgert að þau taki gildi
á næstu mánuðum.
Norskir bankar:
Kína:
Mörg
hundruð
farast í
flóðum
Peking. Reuter.
MÖRG hundruð manns hafa
beðið bana undanfarið vegna
rigninga og vatnavaxta í Sic-
huan-héraði í suð-vestur-
hluta Kína.
Að sögn Dagblaðs Alþýðunn-
ar hafa 367 manns látið lífið
undanfarið í héraðinu en í
gegnum það rennur áin
Yangtse og mikilúðlegar þverár
hennar. Flestir fórust þegar
aurskriða féll á hinn afskekkt-
an bæ Xikou.
Mikið manntjón verður á ári
hvetju vegna flóða í Kína. í
fyrra týndu tvö þúsund manns
lífi í landinu af þeim sökum,
einkum í austlægum héruðum.
Milljarða vandræði
vegna fískeldis
NORSKIR bankar kunna að tapa á milli Qórum og sex milljörðum
íslenskra króna vegna Sskeldis á þessu ári, segir í frétt norska blaðs-
ins Aftenposten. Alls hafa bankarnir lánað um 50 milljarði ísl. kr. í
þessa atvinnugrein á undanförnum árum og þar með stuðlað mjög
að vexti hennar. Nú er talið að meira en 300 seiðastöðvar og um
700 eldisstöðvar séu í Noregi. í fyrra var tap á rekstri þeirra og
er talið að það aukist enn í ár.
Stærsti lánveitandi norskra fiskeld-
isstöðva er Kreditkassen, sem hefur
lánað um sex milljarði norskra
króna alls til sjávarútvegs, eða um
50 milljarði íslenskra króna. Þar
af hefur um einn milljarður, eða
átta milljarðar íslenskra króna, far-
ið til fiskeldisstöðva. Tölurnar eru
svipaðar hjá Bergen Bank. Þessir
tveir bankar eru í „milljarða-
klúbbi" norska fiskeldisins og eru
taldir hafa lánað mest allra banka
í veröldinni til þeirrar starfsemi.
Vandræðin innan fiskeldisins
eiga einkum rætur að rekja til of-
framleiðslu og ofijárfestingar. Talið
er að markaður fyrir eldisfisk hafi
aukist um 50% í ár, en framleiðslu-
getan hefur jafnframt aukist gífur-
lega auk þess sem mildur vetur
leiddi til þess að framleiðsla á seið-
um og eldislaxi var mun meiri en
vænst hafði verið. Ástandið er verst
hjá seiðastöðvunum en verð á seið-
um hefur lækkað úr 15 norskum
krónum (125 ísl. kr.) í þrjár til fjór-
ar norskar krónur.
Aftenposten segir að verðið á
stórum laxi hafi lækkað mest eða
um 10 til 20 krónur norskar kílóið
(80 til 160 ísl. kr.). Meðalverðið sé
34 til 35 norskar krónur kílóið, en
meðalkostnaður við framleiðsluna
sé 35 til 36 norskar krónur (290
til 300 ísl. kr.). Dýrast sé að fram-
leiða lax í norðurhluta Noregs, þar
sem hann vaxi hægar þar en í suð-
urhlutanum.