Morgunblaðið - 14.07.1989, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
25
Bókakassi
tapaðist
KASSI með bókum um AA-
málefhi sem settur var í bifreið
Kynnisferða á Keflavíkurflug-
velli tapaðist mánudaginn 3. júní
siðastliðinn.
Kassinn var merktur „Fanney,
bókaverslun Sigfúsar Eymundsson-
ar“. Farþegi á heimleið frá Banda-
ríkjunum setti kassann í bifreið
Kynnisferða á Keflavíkurflugvelli
3. júní. Kassinn hefur væntanlega
tapast úr bílnum sem flutti farþega
til Reykjavíkur eða úr afgreiðslu
Kynnisferða á Loftleiðahótelinu.
Finnandi er beðinn að hafa sam-
band við Kynnisferðir eða Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar í
Austurstræti.
Leiðrétting'
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
um að ríkisskattanefnd hefði úr-
skurðað að tvö fyrirtæki, Trésmiðj-
an Borg og Trésmíðavinnustofa
Þorvaldar og Einars skuldi ekki
söluskatt, vildi Garðar Valdimars-
son ríkisskattstjóri koma því á
framfæri, að varðandi annað fyrir-
tækið hefði nefndin úrskurðað að
söluskattkrafan yrði lækkuð en ekki
fellt hana niður að öllu leyti.
Melgresið er flutt á bíl austur, því er ekki hægt að dreifa úr flug-
vél. Stefán er lengst til hægri á myndinni.
Flugvél Landgræðslunnar, Páll Sveinsson.
Áburðardreifing' í Þingeyjarsýslu
Húsavík
LANDGRÆÐSLA ríkisins hef-
ur undanfama daga dreift um
270 tonnum af áburði frá
Húsavíkurflugvelli með Páli
Sveinssyni um Þingeyjarsýslur.
Það er svipað magn og undan-
farin ár og verksljórn hefúr
eins og áður Stefán H. Sigfús-
son.
Dreift er í landgræðslugirðing-
amar sem fyrir eru og hefur þetta
framtak sýnt góðan árangur. í
Krákárbotna er nú verið að sá
melgresi og þangað fara um 100
tonn af áburði enda hefur upp-
blástur þar verið mikill.
Aformaðar eru framkvæmdir
við girðingar í Grænulág austur
af Mývatnssveit, en þar er mikið
foksvæði og einnig tekur Land-
græðslan þátt í miklum girðingar-
framkvæmdum í landi Reykjahlíð-
ar en þar er hreppurinn og fleiri
aðilar þátttakendur í framkvæmd-
um.
- Fréttaritari
Framleiðslu-
verð á heyi
12,60-12,80
kr. á kíló
Búreiknistofa landbúnaðar-
ins hefúr áætlað framleiðslu-
kostnað á heyi fyrir yfir-
standandi sumar. Aætlað er
að framleiðslukostnaðarverð
nemi nú í sumar 12,60 til
12,80 krónum hvert ,kg. af
fúllþurru heyi í lilöðu.
Til samanburðar má geta
þess að verð-þetta nam 9,40
krónum í fyrra. í útreikningum
sínum miðar Búreiknistofan við
kostnað undanfarið ár að við-
bættum hækkunum. Verð á
teignum er áætlað 10-15%
lægra.
Fimm manns hafa bæst í hóp
eyðnismitaðra frá áramótum
Skiptar skoðanir um hvort leita eigi HIV-2-eyðniveirunnar í blóði
FIMM einstaklingar hafa bæst í hóp þeirra sem greinst hafa með
eyðni hér á landi frá áramótum. Er þá vitað um 53, sem hafa smitast
af eyðniveirunni HlV-1 og af þeim hafa 12 greinst með lokastig sjúk-
dómsins. Að sögn Guðjóns Magnússonar aðstoðarlandlæknis hafa
Qórir blóðþegar greinst með sjúkdóminn, þar af komu þrír fram á
þessu ári. Hér á landi hefur enginn fundist smitaður af HIV-2-
eyðniveiru sem fannst fyrst árið 1986 í Vestur- og Mið-Afríku en
er farin að stinga sér niður á Vesturlöndum meðal annars í Portúg-
al, Belgíu og eitt tilfelli hefúr komið fram í Svíþjóð. Vegna takmark-
aðrar útbreiðslu eru skiptar skoðanir um hvort taka eigi upp skim-
un fyrir báðum veirunum í Blóðbankanum. Talið er að í 60 til 70%
tilvika muni HIV-2 koma fram þegar prófað er fyrir HIV-1.
Ekki stætt á öðru en HIV-2-
prófi
Að sögn Haralds Briem, lyflækn-
is á Borgarspítalanum, var í fyrstu
talið að HIV-2 væri saklausari veira
en HIV-1 en síðan hefur komið í
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 13. júií
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verft verft verft (lestir) verft (kr.)
Þorskur 61,50 53,50 57,42 3,268 187.688
Þorskur(smár) 20,00 20,00 20,00 0,073 1.450
Ýsa 35,00 35,00 35,05 0,009 333
Ufsi(smár) 10,00 10,00 10,00 0,132 1.320
Steinbítur 15,00 15,00 15,00 0,250 3.758
Lúða 100,00 100,00 100,00 0,354 35.448
Koli 15,00 15,00 15,00 0,594 30.888
Samtals 55,73 4,681 260.885
í dag verður seldur bátafiskur.
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur 61,00 50,00 55,61 9,802 545.082
Þorskur(smár) 49,00 15,00 35,14 0,341 11.983
Ýsa 81,00 50,00 75,14 10,527 791.089
Karfi 29,00 24,50 "26,15 91,892 2.042.994
Ufsi 37,50 30,00 35,26 41,179 1.451.844
Ufsifundir- 15,00 15,00 15,00 0,218 3.270
máls)
Steinbítur 450,00 45,00 139,04 2,007 279.045
Lúða(stór) 125,00 60,00 69,09 0,248 17.135
Lúða(smá) 105,00 60,00 99,28 0,166 16.480
Grálúða 42,00 30,00 37,11 4,905 182.030
Langa 29,00 28,00 28,35 1,496 42.412
Skarkoli 47,00 44,00 46,58 3,740 174.211
Hlýri 41,00 41,00 41,00 0,552 22.632
Skata 50,00 50,00 50,00 0,078 3.900
Skötuselur 90,00 80,00 85,36 0,084 7.170
Skötuselshalar 170,00 170,00 170,00 0,016 2.720
Samtals 35,60 167,253 5.953.999
Selt var úr Viðey RE, Ásgeiri RE, Skagfirðingi SK o.fl. 1 dag
verður selt úr Ottó N. Þorlákssyni RE, Krossvík AK, Keili RE
og bátum. Karfi 100 t, þorskur 10 t, ýsa 12 t o.fl.
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur 68,50 57,00 64,40 8,792 566.280
Ýsa 82,00 33,00 70,75 5,549 392.576
Karfi 29,50 15,00 27,90 2,161 60.297
Ufsi 30,50 28,50 29,91 1,942 58.078
Steinbítur 45,00 24,00 37,73 1,792 67.611
Langa 30,00 30,00 30,00 0,454 13.620
Lúða 175,00 90,00 104,52 0,159 16.639
Skarkoli 35,00 35,00 35,00 0,484 16.940
Skötuselur 82,00 82,00 82,00 0,021 1.722
Samtals 55,90 21,354 1.193.763
Selt var úr Eini GK, Bjarna KE o.
Sveinbjarnarsyni, 5 t ýsa og 5 t
selt úr færabátum.
fl. I dag verður selt úr Hrafni
blandaður afli. Einnig verður
Ijós að hún veldur ekki síður al-
næmi. Sagði hann að það próf sem
notað er hér á landi við greiningu
á eyðni, fyndi hana í langflestum
tilfellum en fram væri komið próf
sem mældi báðar veirumar og sagð-
ist hann búast við að það yrði tekið
upp. „Það er erfitt að standa á
öðru en áð taka upp próf á báðum
veirunum úr því að vitað er að
HIV-2 finnst hér í Vestur Evrópu,
jafnvel þó líkurnar séu sáralitlar
eins og málum er háttað í dag,“
sagði Haraldur. „Ég veit ekki
hvemig ætti að afsaka það ef hún
fyndist eftir að þessi próf eru kom-
in á markaðinn." Haraldur sagði
að sennilega væri HIV-2 veiran jafn
skæð og HIV-1, en í fyrstu hefði
verið talið að hún væri eitthvað
vægari. Veiran hefði enn ekki feng-
ið sama umþóttunartíma og HIV-1,
þar sem átta til níu ár líða frá
smiti þar til menn fá alnæmi.
HIV-2 greinist í 60 til 70%
tilvika
Að sögn Ólafs Jenssonar, for-
stöðumanns blóðabankans, hefur
ekki verið tekin ákvörðun um hvort
tekin verið upp prófun fyrir HIV-2.
Það próf sem notað er í dag er
talið finna HIV-2 veimna í 60 til
70% tilvika. í álitsgrein forstjóra
Norrænna blóðbanka um HIV-1 og
HIV-2 segir að einungis hafi fund-
ist einstaka tilfelli af HIV-2 smitun
á Norðurlöndum og að í hverju ein-
staka tilfelli hafi þeir smituðu kom-
ið frá Vestur- Mið- Afríku. Þá kem-
ur fram að þau próf sem notuð eru
nái einnig til flestra sem em með
HIV-2 og þar sem ekki hafi komið
fram ömggt tilfelli einstaklings með
báðar veirurnar á Norðurlöndum,
er ekki mælt með því að skilda
HIV-2 prófun.
„Það er sagt að ráðist sé í mik-
inn kostnað við þau tilfelli, sem
eftir er að slægjast og þau em ekki
mörg eftir að bú_ið er að einangra
flesta smitberana," sagði Ólafur.
„Það er einn og einn sem bætist
við en ég held að það sé þekkt að
þeir sem em í áhættuhópnum taka
tillit til þess og gefa ekki blóð en
leita annað til að forvitnast um eig-
ið ástand."
Flest tilfellin koma frá
Afríku
Prófessor Margrét Guðnadóttir
segir, að hvarvetna séu menn að
velta því fyrir sér hversu mikla
áherslu eigi að leggja á leit að
HIV-2. Þar sem tíðni eyðni er mik-
il er leitað eftir veimnni ef HIV-1
finnst ekki og sjúklingurinn gefur
tilefni til frekari leitar. Blóðbankar
hafa hvergi tekið upp prófun fyrir
HIV-2 og í Bandaríkjunum, þar sem
í gangi er herferð í leit að veirunni
hafa aðeins örfá tilfelli greinst með-
al innfluttra Afríkubúa. Það sama
ætti við um þau fáu tilfelli sem
hefðu greinst í Evrópu. „Útbreiðsl-
an er ekkert svipuð hjá þessum
tveimur veimm, hvað sem síðar
verður,“ sagði Margrét. „Ég vona
bara að fræðsla og áróður undan-
farinna ára hafi þau áhrif að veiran
dreifist ekki eins mikið út. Ef upp
kemur grannsamlegt tilfelli og
HIV-1 prófið er neikvætt þegar
sjúklingur á í hlut, þá munum við
náttúrlega leita að HIV-2, en það
verður ekki hópleit að svo stöddu.
Það er ekki grundvöllur fyrir því
mér vitanlega neinstaðar á vestur-
löndum. Þar sem það hefur verið
gert hefur ekkert fundist en fari
veiran að breyta sér verður gerð
gangskör að því að koma þessu
prófi inn í blóðbankana."
Fimm látist af eyðni
Fimm hafa látist af völdum eyðni
hér á landi frá því fyrsta tilfellið
greindist árið 1984. Af þeim 53 sem
greinst hafa með smit era 36
hommar eða tvíkynhneigðir, átta
fíkniefnaneytendur, einn sem bæði
er fíkniefnaneytandi ög hommi og
fjórir em gagnkynhneigðir, þar af
em þijár konur. Að sögn Guðjóns
Magnússonar aðstoðarlandlæknis
em þrír af þeim fjómm blóðþegum
sem greinst hafa með sjúkdóminn
konur. Vitað er að ein dó af völdum
eyðni, ein er á lífi en óvíst er hvort
dánarorsök tveggja er eyðni, þar
sem aðrir sjúkdómar koma til
greina. Kynjahlutfall þeirra, sem
greinst hafa með smit er ein kona
fyrir hveija fímm karlmenn. Flestir
smitaðir em á aldrinum 20 til 29
ára, eða 27, og 13 á aldrinum 30
til 39 ára.
James Bond enn á ferð:
„Leyfið afturkallað“
sýnd í Bíóhöllinni
BÍÓHÖLLIN hefúr tekið til sýn-
inga sextándu og nýjustu James
Bond-myndina „Leyfið aftur-
kallað“ (Licence to kill) með
Timothy Dalton, David Heddi-
son, Pricilla Bames og Carey
Lowell í aðalhlutverkum. Leik-
stjóri er John Glen.
James Bond og vinur hans Felix
Leiter hafa það verkefni að fylgj-
ast með ferðum fíkniefnasmyglar-
ans Sanchez. í viðureign við hann
ler eiginkona Leiters myrt en hann
kemst undan við illan leik. Þegar
yfirboðarar Bonds vilja setja hann
í annað verkefni segir hann starfi
sínu lausu til að hefna ófara Leit-
ers og konu hans.
(Úr frcttatilkynning\i)
Úr nýjustu James Bond-mynd-
inni „Leyfið afturkallað".