Morgunblaðið - 14.07.1989, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
Iðnþróunarfélag Eyjafiarðar;
Upplýsinga aflað um
orkufrekan iðnað
Verður að sporna við fólksflótta frá
svæðinu, segir framkvæmdastjórinn
SAMÞYKKT hefur verið á fiindi stjórnar Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar
að starfsmenn félagsins afli nánari upplýsinga varðandi orkufrekan
iðnað á Eyjafjarðarsvæðinu fyrir fyrirhugaðan fund með iðnaðarráð-
herra um málið sem haldinn verður í september næstkomandi. Jafn-
framt lýsir stjórnin yfír fullum stuðningi við firamkomnar ályktanir
sveitar- og verkalýðsfélaga um orkufrekan iðnað í Eyjafirði.
Sigurður P. Sigmundsson fram-
kvæmdastjóri IFE sagði að stjórnar-
menn teldu félagið h«ppilegasta vett-
vanginn til að vinna að frekari athug-
un á hugsanlegum orkufrekum iðn-
aði á svæðinu, þar sem að félaginu
stæðu öll sveitarfélög á svæðinu, svo
og félög launþega og atvinnurek-
enda.
Hann sagði að sporna yrði við
þeirri þróun sem orðið hefði síðustu
ár vegna fólksflutninga frá svæðinu.
Kvennalistinn:
Varað við
stóriðju-
draumum
Kvennalistinn varar við
draumum um stóriðju við
Eyjafjörð, sem drepi í dróma
aðrar hugmyndir um ný störf.
Þetta kemur fram í ályktun frá
fundi Kvennalistans.
„Konur hafa ekki farið var-
hluta af erfiðleikum atvinnulífs-
ins að undanfömu og búa víða
við ótrygga atvinnu. Opinberar
tölur sýna að konur hafa undan-
farna mánuði verið fleiri en karl-
ar á atvinnuleysisskrá, auk þess
sem dulið atvinnuleysi er meðal
kvenna," segir í ályktuninni.
„Við hvetjum íbúa við Eyja-
fjörð til að leita nýrra leiða sem
bjóða bæði konum og körlum
fjölbreytt og góð störf, menga
ekki umhverfið og nýta auðlindir
lands og sjávar."
Hefðbundnar atvinnugreinar, land-
búnaður, sjávarútvegur og ullar-
iðnaður muni ekki taka við viðbótar-
vinnuafli á næstu árum. „Aðstæður
eru breyttar frá því síðast var rætt
um þessi mál fyrir um fimm árum,
en þá var til að mynda meiri upp-
gangur í sjávarútvegi," sagði Sigurð-
ur.
Frá árinu 1971 og til ársins 1980
var fjölgun íbúa á Akureyri talsvert
yfir landsmeðaltali, en frá árinu 1983
talsvert undir landsmeðaltalinu. Sig-
urður sagði að menn horfðu ti! þess-
ara talna nú þegar umræður um
orkufrekan iðnað kæmu aftur upp,
en Eyj afj arðarsvæðið hefði tapað
fólki síðustu sex árin. Nú ætti gamla
módelið ekki lengur við, þegar það
fólk sem flutti burtu frá sveitum og
minni bæjum í nágrenninu flytti fyrst
til Akureyrar og kannski síðar til
höfuðborgarsvæðisins. Nú færi fólkið
beint suður. „Við þessari þróun erum
við að reyna að spoma.“
Morgunblaðið/KGA
Mikið skáld, Matthías
Fjölmargir leggja leið sína í Lystigarðinn á Akureyri yfir sum-
armánuðina, skoða flóru Islands og rölta um garðinn i róleg-
heitum. Á ferð ljósmyndara Morgunblaðsins um garðinn
góða veðrinu í gær bar fyrir augu unga menn að velta fyrir
sér skáldskap Matthíasar Jochumssonar og aðrir enn yngri
efindu til keppni sem fólgin var í því að halda hendi sinni sem
lengst ofair í ísköldum gosbrunni.
Milljónatjón vegiia bruna
við sútunarverksmiðjuna
Baldvin ráðinn
skólastjóri GA:
Kominn
aftur heim
MILLJÓNATJÓN varð er eldur kom upp í hreinsunarbúnaði sem
var í húsi austan við þurrvinnslusal sútunarverksmiðju Iðnaðar-
deildar Sambandsins um klukkan 6 í gærmorgun. Hreinsibúnaður-
inn er ónýtur og er talið að tjónið nemi á bilinu Qórar til fimm
milljónir króna. Mikið af skinnum á ýmsum vinnslustigum var í
salnum, en seinnipart dags í gær var ekki ljóst hversu mikið tjón
hefur orðið vegna skemmda á skinnum. Varalið slökkviliðsins var
kallað út vegna brunans og voru um tuttugu og fimm slökkviliðs-
menn á vettvangi. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins.
Tómas Búi Böðvarsson slökkvi-
liðsstjóri sagði að eldurinn hefði
verið auðveldur viðfangs, en hurð
hefði skollið nærri hælum. Hreinsi-
búnaðurinn var í húsi áföstu sútun-
arverksmiðjunni, en þar er um að
ræða um 2.000 fermetra hús. Tóm-
as sagði að er slökkviliðsmenn
komu á vettvang hafi eldurinn í
húsinu náð að teygja sig í þak
sútunarverksmiðjunnar, en tekist
hafi að veija húsið. Rúður brotn-
uðu í húsinu, en eldurinn náði ekki
fótfestu, að sögn Tómasar.
Viðvörunarkerfi fór í gang laust
fyrir klukkan 6 og einnig hringdu
starfsmenn sem verið höfðu á
næturvakt í slökkvilið. Um tuttugu
manns voru í húsinu þegar eldurinn
kom upp, en þeir náðu allir að
komast klakklaust út. Tómas sagði
að vegna aðstæðna hefði varaliðið
verið kallað út, en í því eru um tíu
manns, þannig að um tuttugu og
fimm slökkviliðsmenn voru á vett-
vangi. Um hálftíma tók að ráða
niðurlögum eldsins.
Bjarni Jónasson forstöðumaður
skinnaiðnaðar Sambandsins sagði
að mikill reykur hefði verið um
allan þurrvinnslusalinn, en þar inni
voru um 30.000 skinn á ýmsum
vinnslustigum. Ekki er ljóst hversu
miklar skemmdir hafa orðið á
skinnunum, en það verður athugað
næstu daga. Hreinsunarbúnaður-
inn er hins vegar ónýtur og sagði
Bjarni að áætlað tjón vegna þess
væri á bilinu ijórar til fimm milljón-
ir króna. Hann sagði að snarræði
slökkviliðs hefði komið í veg fyrir
stórtjón.
BALDVIN Bjarnason hefur verið
ráðinn skólastjóri Gagnfræðaskól-
ans á Akureyri. Skólanefnd mælti
einróma með því á fundi sínum í
síðustu viku að Baldvin yrði ráð-
inn til starfans og menntamálaráð-
herra hefur nú skipað hann í stöð-
una.
Baldvin Bjarnason kenndi um fjög-
urra ára skeið við Barnaskólann á
Akureyri, en hóf störf við Gagn-
fræðaskólann haustið 1966 þar sem
hann starfaði næstu átján árin. Hann
var um tíma umsjónarmaður fram-
haldsdeilda skólans. Árið 1984 réðst
hann að Verkmenntaskólanum á
Akureyri og var kennslustjóri á við-
skiptasviði og síðustu fjögur árin
einnig aðstoðarskólameistari. Hann
hefur gegnt stöðu skólameistara
síðasta ár í fjarveru Bernharðs Har-
aldssonar.
„Eg lít hálfpartinn á þetta þannig
að ég sé aftur kominn heim, en Gagn-
fræðaskólinn er sá staður þar sem
ég Iengst hef starfað á. Það má því
segja að ég hafa skroppið upp á
Eyralandsholtið um tíma en sé nú
að hrökkva aftur til baka,“ sagði
Baldvin Bjarnason.
Plasteinangrun hf.
íær greiðslustöðvun
Skipt hefiir verið um framkvæmdastj óra hjá fyrirtækinu
PLASTEINANGRUN hf. hefur fengið greiðslustöðvun til þriggja
mánaða frá og með 10. þessa mánaðar. Mannabreytingar hafa orðið
hjá fyrirtækinu og hefúr Sigríður Jónsdóttir, fyrrverandi skrifstofú-
s^óri, verið ráðin framkvæmdastjóri, en Sigurður Jóhannsson, sem
verið hefúr framkvæmdastjóri fyrirtækisins, hefúr snúið sér alfarið
að sölu- og markaðsmálum. Viðræður hafa verið teknar upp við inn-
lenda og erlenda aðila um aukna samvinnu og hugsanlega eignarað-
ild þeirra að fyrirtækinu.
I fréttatilkynningu frá fyrirtæk-
inu segir að seinni hluta síðastliðins
árs og fyrri hluta þessa árs hafí
verulegur samdráttur orðið í sölu
Plasteinangrunar vegna versnandi
afkomu sjávarútvegs og fiskvinnslu.
Jafnframt hafí fyrirtækið staðið í
talsverðum fjárfestingum við þróun
nýrrar framleiðsluvöru og þetta hafi
Ieitt til taprekstrar og greiðsluerfið-
leika. Óhjákvæmilegt hafi þvi verið
að fara fram á greiðslustöðvun svo
ráðrúm gæfíst til endurskipulagn-
ingar fyrirtækisins,
Á meðan á greiðslustöðvunar-
tímanum stendur hafa þeir Þor-
steinn Kjartansson, löggiltur endur-
skoðandi, og Benedikt Olafsson lög-
maður verið ráðnir aðstoðarmenn
Plasteinangrunar. Fyrirtækið mun
áfram þjóna viðskipavinum sínum
og lögð er áhersla á aukna mark-
aðsstarfsemi, segir í fréttatilkynn-
ingunni. Jafnframt verður leitað
leiða til að endurskipuleggja rekstur
og fjárhag fyrirtækisins þannig að
tryggja megi sem best framtíð þess
svo og hagsmuni starfsfólks og lán-
ardrottna.
Nýr, glæsilegur
sumarmatseðill.
★
Dansleikur
á laugardagskvöld.
★
Kftwbwg
Heimilislegur matseðill.
HótelKEA.