Morgunblaðið - 14.07.1989, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGÚR 14. JÚLÍ 1989
Minning:
Gísli Kristjánsson
fv. útgerðarmaður
Fæddur 12. desemberl893
Dáinn 6. júlí 1989
Það var táp og fjör á Austur-
landi við síðustu aldamót. Þótt ekki
væri almennt auður í búi þá var
gróska í atvinnulífí, það ríkti bjart-
sýni og menn voru atorkusamir að
nýta gæði lands og sjávar. Nýjung-
ar í atvinnurekstri ruddu sér til
rúms, við sjóinn til dæmis frosthús-
in og vélknúnar fleytur og stærri
en áður höfðu tíðkast. Samhliða var
brotið upp á nýjungum og samhjálp
í félagslífí, menntamálum og heil-
brigðismálum og raunar á miklu
fleiri sviðum. Með öðrum orðum,
byrjað var að leggja grunninn að
velferðarþjóðfélaginu sem íslend-
ingar hafa verið að byggja upp
síðan, eru stoltir af og vilja ekki
með nokkru móti sjá á bak, þegar
allt kemur til alls.
Upp af þessum jarðvegi óx alda-
mótakynslóðin svokallaða, sem eins
og þar stendur „þorði allt nema
þrek og manndáð svíkja“. Og í þeim
hópi var Gísli Kristjánsson útgerð-
armaður, síðast búsettur í Hafnar-
firði. Hann hefur nú kvatt þennan
heim og þá sem hann átti samleið
með eftir 95 ára vegferð og vel það.
Gísli var borinn og bamfæddur
í Mjóafirði og átti þar ætíð sterkar
rætur þótt hann færi að heiman
ungur maður og ætti þá framundan
annasama ævi. Hygg ég að tengsl
hans við foreldra og aðra nána
ættmenn hafí verið einstaklega
traust og heil. Og aðrir sveitungar
voru honum ekki óviðkomandi og
áttu þar hauk í horni sem hann
var, gæti hann á einhvern hátt
greitt götu þeirra. Veitti ég þessu
athygli unglingur, svo augljóst var
það.
Gísli fæddist í Sandhúsi, gras-
býli í Brekkuþorpi 12. desember
1893, hinn þriðji í röð sex systkina.
Foreldrar hans vom María hús-
freyja Hjálmarsdóttir frá Brekku
og Lars Kristján Jónsson, ættaður
úr Fljótsdal. Hann hafði numið
verslunarfræði í Noregi og vann um
árábil við verslun mágs síns, Kon:
ráðs Hjálmarssonar á Mjóafírði. í
Sandhúsi græddi hann upp tún við
hin erfíðustu skilyrði, ræktaði
garðávexti og gerði út á fískveiðar.
Ekki vom efni mikil í Sandhúsi en
María var mikil myndarkona eins
og heimili þeirra Kristjáns bar vott
um og kemur þá meðal annars í
hugann skrúðgarðurinn hennar Iitli
og blómahaf í stofu.
Sandhús var byggt nærri fiæðar-
máli og öll aðstaða við sjó næsta
hæg. Þangað hneigðist hugur Gísla
þegar í bemsku og hefur hann sjálf-
ur lýst því af hlýrri nærfærni þegar
hann byijaði sjómennskuna barn
að aldri á skektu með eldri bróður
sínum, Hjálmari, árið sem Hjálmar
fermdist — og rem í íjörðinn. Eftir
því Gísla óx fiskur um hrygg færð-
ist hann meira í fang við sjósókn-
ina, reri á dýpri mið, sótti sjó á
vetrarvertíð, gerðist formaður og
hóf útgerð á eigin vegum.
Á síðustu áratugum 19. aldar
fjölgaði fólki í Mjóafírði og komst
íbúatalan yfir fjögur hundmð 1902,
auk nokkur hundruð starfsmanna
á tveimur hvalveiðistöðvum. En
brátt tók að falla út. Margir fluttu
yfír til Norðfjarðar. Gísli Kristjáns-
son mun hafa farið alfarinn úr
Mjóafírði 1921. Á Norðfírði gerðist
hann brátt mikilvirkur útgerðar-
maður. Þar óx útgerð hröðum
skrefum þau misseri og margir
sóttu fast sjóinn eins og löngum
áður og síðan.
Hermann Vilhjálmsson á Brekku
segir um sjósókn nágrannanna á
þessum ámm í óbirtum minninga-
brotum:
„Á Norðfírði vom allir á sjó og
fískuðu alltaf." — Að minni hyggju
mátti þetta til sanns vegar færa.
í fyrstu var Gísli formaður á
báti sínum Gauta, sem fullur nafni
hét Hrólfur Gautreksson. Var sá
bátur happafleyta og er nú merkur
safngripur í Neskaupstað. Síðan
tóku aðrir við formennsku en Gísli
var í landi og stýrði útgerðinni og
þar með verkun aflans að þeirrar
tíðar hætti.
Bátamir stækkuðu, Björninn var
smíðaður og síðan kom Sæfinnur,
sem var haffært skip og var meðal
annars gerður út á síldveiðar og
hafður til flutninga á ísvörðum físki
til Bretlands á stríðsámnum og
síðar.
Á Norðfírði starfaði Gísli að fé-
Jagsmálum sjómanna og útgerðar-
manna og hann átti sæti í fyrstu
bæjarstjóm Neskaupstaðar. En
hans merka athafnasaga verður
ekki rakin í stuttri minningargrein.
Þar kom að hann færði sig um set
til Akureyrar og gerði Sæfinn þar
út um hríð. Og að síðustu Iá leiðin
til Hafnarfjarðar.
Gísli Kristjánsson eignaðist mik-
ilhæfa konu, Fannýju Ingvarsdóttur
Pálmasonar alþingismanns og
Margrétar Finnsdóttur konu hans.
Þau gengu í hjónaband 28. maí
1923 og settu bú saman á Norð-
fírði. Gísli reisti fjölskyldu sinni hús
innarlega í kaupstaðnum og nefndi
Bjarg. Þar stóð myndarlegt heimili
þeirra Fannýjar á meðan þau
bjuggu í Neskaupstað og þar fædd-
ust þeim sex mannvænleg böm sem
nú skulu nafngreind: Margrét hús-
freyja á Akureyri, Ingvar ritstjóri
í Reykjavík, fýrmm alþingismaður
og ráðherra, María húsfreyja, nú í
Reykjavík, Kristján skipstjóri lengi,
nú búsettur í Reykjavík, Ásdís hús-
freyja og fóstra í Kópavogi, Tryggvi
skólameistari á Akureyri en um sinn
skrifstofusljóri hjá Norðurlandaráði
í Kaupmannahöfn. Öll hafa þau
systkinin gifst og eignast böm og
em afkomendur Fannýjar og Gísla
orðnir margir.
Gísli Kristjánsson var glæsi-
menni og ferskur blær fylgdi honum
hvar sem hann fór. Hann var og
traustur maður og ábyggilegur í
hvívetna. Eitt sinn á fyrstu útgerð-
arárunum komst hann í vemlegar
skuldir og var nokkuð uggandi um
sinn hag, en þetta var um áramót.
Hann tjáir frænda sínum, Konráði
Hjálmarssyni, hvernig komið er,
hvað nú sé til ráða. En kaupmaður
svaraði snöggt: „Fara á Homa-
Qörð.“ (Vetrarvertíð.)
Gísli sagði þessa sögu sem dæmi
um skjótar ákvarðanir Konráðs. En
hún sýnir jafnframt líkt og í hnot-
skum þá tiltrú sem hann naut sjálf-
ur frá ungum aldri. — Það fýlgdi
sögunni að Konráð veitti þá fyrir-
greiðslu sem nægði til úthaldsins.
En þegar því lauk hafði skuldin,
sem ægði unga manninum við ára-
mót, bókstaflega snúist í andhverfu
sína. En það ætia ég að útgerð
Gísla hafí löngum verið fremur hag-
stæð og útkoman oftar en hitt réttu
megin við strikið.
Svo hagaði til að Gísli frændi
minn Kristjánsson hóf vegferð sína
í þessum heimi röskum tuttugu
ámm á undan mér. Báðir lögðum
við upp frá Mjóafirði. En þegar ég
var vaxinn úr grasi var hann fyrir
nokkm fluttur til Norðfjarðar og
störf okkar lágu ekki þannjg sam-
síða að veruleg persónuleg kynni
tækjust, enda þótt við vissum vel
hvor af öðmm. í huga mínum mót-
aðist þó snemma mynd af gjörvu-
legum atorkumanni og miklum
heimilisföður. Sú mynd hefur ekk-
ert breyst síðan nema fjölgað í
henni dráttunum. Mér varð til dæm-
is seinna ljóst að Gísli var einn
þeirra góðu manna sem finna til í
stormum sinnar tíðar. Um það vitna
meðal annars nokkrar blaðagreinar
sem hann skrifaði um einstök dag-
skrármál líðandi stunda, um sam-
tíðarmenn sína og um löngu liðna
atburði. í þeim var heitur undirtónn
sem lýsti höfundinum.
Á allra síðustu árum tókust með
okkur frændum örlítið nánari kynni
en áður. Þá var Gísli sestur í helg-
an stein eins og sagt er og ég hafði
líka hægt nokkuð á mér og var
tekinn til við ný verkefni. Við Gísli
ræddum þá margt um gamla daga
heima í sveitinni okkar, en saga
hennar var báðum ofarlega í huga.
Á þessum misserum eignaðist ég
nokkrar samverustundir með þeim
hjónum, Gísla og Fannýju, sem mér
þykir vænt um. Þær staðfestu það
er ég hafði áður skynjað um mann-
kosti þeirra og hlýtt hjartalag og
um órofa tryggð Gísla við uppruna
sinn og átthaga.
Ég get ekki stillt mig um að
geta þess, að öldungurinn Gísli var
meðal hinna fyrstu sem urðu við
tilmælum sóknarnefndarMjóafjarð-
ar um stuðning við endurbætur á
Mjóafjarðarkirkju, sem senn er orð-
in eitt hundrað ára gömul.
Við fráfall Gísla Kristjánssonar
frá Mjóafírði er á margt að minn-
ast en ég læt staðar numið. Ég
þakka fyrir minn part eins og ég
heyrði gömlu formennina á Mjóa-
fírði segja þegar ég var bam og
fleytum þeirra hafði verið ráðið til
hlunns að hausti. Og það gerum
við áreiðanlega öll, gömlu sveit-
ungamir, sem enn stöndum hérna
megin markanna. Og við, gömlu
hjónin á Brekku, sendum Fannýju,
niðjum þeirra Gísla og öðmm ást-
vinum hans hlýjar kveðjur og biðj-
um þeim góðs.
Vilhjálmur Hjálmarsson
á Brekku
Innfæddum Norðfirðingi, sem
fæddur er 1919, uppalinn í kaup-
staðnum á Nesi og dvaldi þar til
fullorðinsára, em minnisstæðir at-
hafnamennimir í bænum á sviði
útgerðar og sjómennsku á því tíma-
bili í sögu kaupstaðarins, þegar
hver útgerðarmaður átti sína eigin
bryggju og útgerðaraðstöðu og full-
verkaði til útflutnings þann fískafla
sem bátur hans eða bátar bám að
landi. Yfir 40 bryggjur í bænum
þegar flestar vom staðfesta þessa
sögu.
Þessu útgerðartímabili lauk í
byijun síðari heimsstyrjaldar, þegar
allur fiskur sem aflaðist var ekki
lengur lagður á land, heldur settur
um borð í stærri báta og skip sem
fluttu hann á markaði í Bretlandi
á meðan styijöldin geisaði. Að styij-
öldinni lokinni hófst svo næsti þátt-
ur útgerðar og fiskvinnslu í bænum,
sem ekki verða gerð skil hér.
Einna minnisstæðastur fyrr-
greindra athafnamanna verður
undirrituðum Gísli Kristjánsson út-
gerðarmaður, sem lést hinn 6. júlí
sl. að Hrafnistu í Hafnarfirði, 95
ára að aldri. Hann stundaði sjó-
mennsku og síðan útgerð á Norð-
firði átímabilinu 1922 er hann flutt-
ist frá Mjóafírði og þar til hann
fluttist til Akureyrar með fjölskyldu
sinni árið 1945. Á Akureyri starf-
rækti hann útgerð til ársins 1955
er hann flutti búferlum til Hafnar-
ijarðar og hóf þá önnur störf, eins
og síðar verður frá greint.
Gísli er fæddur í Sandhúsi í Mjóa-
firði 12. desember 1893. Foreldrar
hans vom Lars Kristján Jónsson
verslunarmaður og kona hans,
María Hjálmarsdóttir frá Brekku.
Hann ólst upp hjá foreldmm sínum,
byijaði sjómennsku á árabát á sum-
arveiðum aðeins 10 ára, síðan á
vélbátum heima í Mjóafírði og á
vetrarvertíðum í Vestmannaeyjum.
Árið 1922 fluttist Gísli til Norð-
ijarðar og tók við formennsku á
11 smálesta vélbát, taldist það stór
bátur á þeim tíma. En hugur hans
stóð til eigin útgerðar og þegar á
næsta ári, 1923, eignaðist hann
sinn fyrsta bát, 6 smálestir, af svip-
aðri stærð og flestir vélbátar á
Norðfirði vom á þeim ámm. Hann
var sjálfur formaður á bátnum
fyrstu árin. Jafnframt hófst hann
handa um byggingu íbúðarhúss inn
undir ijarðarbotni. Nefndi hann
húsið Bjarg. Fiskverkunarhús og
bryggju byggði hann einnig á þessu
ári. Þá kvæntist hann Fanný Ing-
varsdóttur alþingismanns á Ekm
og konu hans, Margrétar Finns-
dóttur. Fanný var þá aðeins 19 ára
gömul.
Þegar á það er litið, að sjómenn-
imir og fiskverkunarfólkið bjó á
heimili útgerðarmannsins eins og
tíðkaðist á þessum ámm og hafði
þar jafnframt fæði og þjónustu,
má ljóst vera að hinnar ungu eigin-
konu biðu allumfangsmikil störf,
sem hún frá upphafi rækti af þeim
dugnaði og einstökum myndarskap
að athygli vakti. Þess má einnig
geta að Gísli hafði alla tíð nokkum
landbúskap, sem fullnægði þörf
hins stóra heimilis með mjólk og
aðrar búsafurðir.
Það var snemma áhugamál Gísla
að eignast stærri bát og sá draum-
ur var orðinn að veraleika 1929 en
þá hafði hann látið byggja 17 tonna
bát á Fáskrúðsfírði, vel búinn og
vandaðan, og hófst nú sjósókn af
nýjum krafti, vetrarróðrar stundað-
ir að heiman og sótt suður í Lóns-
bugt, sem ekki hafði tíðkast áður.
Afli var oft ótrúlega mikill í þessum
vetrarróðmm. Aukinn afli kallaði á
bætta aðstöðu til fiskmóttöku og
fískverkunar, og enn var byggt og
bætt við útgerðaraðstöðuna á
Bjargi, þar var alltaf verið að
byggja, ekki aðeins útgerðarað-
stöðu heldur var einnig í smíðum
nýtt íbúðarhús, stórhýsi á þeim
tíma. Þijú elstu börnin vom fædd
þegar flutt var í nýja húsið árið
1930 og Ijórða bamið fæddist á
nýja Bjargi í nóvember.
Nú hófst áratugur heimskrepp-
unnar. Áhrif hennar fyrir byggðar-
lagið þekkja aðeins þeir, sem nú
em aldnir að ámm. Gísli horfði til
síldveiðanna, sem þóttu um þessar
mundir álitlegri útvegur en þorsk-
veiðarnar. Með ótrúlegum kjarki og
dugnaði tókst honum að festa kaup
á 100 tonna skipi í Englandi. Hann
fór þangað sjálfur, skoðaði mörg
skip og keypti að lokum gamalt
skip, sem hann taldi best henta, lét
breyta því eftir eigin óskum, m.a.
setja í það nýja aflvél og til Norð-
fjarðar var Gísli kominn með „Sæ-
finn“ nægilega snemma til að koma
skipinu á síldveiðar sumarið 1938.
Sæfínnur vakti hvarvetna athygli
t
Móðir okkar,
STEINUNN GRÓA SIGURÐARDÓTTIR,
frá Seyðisfirði,
lést hinn 6. þessa mánaöar. Útför fer fram í dag, þann 14. júli,
kl. 13.30 frá Fossvogskirkju.
Sigurður Dagnýsson,
Ólafia Dagnýsdóttir,
Guðrún Lilja Dagnýsdóttir,
Björk Dagnýsdóttir,
Hlynur Dagnýsson,
Vigfús Dagnýsson.
Ástkær eiginkona min, móðir okkar, systir, og dóttir,
ÞÓRDÍS HALLGRÍMSDÓTTIR,
Brautarási 15, Reykjavik,
andaðist í Borgarspítalanum 12. júli.
Páll Ammendrup,
Sigrún Ammendrup,
Fríða Ammendrup,
Dagur Ammendup,
Stefán Hallgrfmsson,
Lilja Hallgrímsdóttir,
Guðmundur Hallgrímsson,
Hafliði Hallgrímsson,
Fríða Sæmundsdóttir.
t
Ástkær dóttir, eiginkona mín, móðir og amma,
GUÐNÝ HELGA PÉTURSDÓTTIR,
Engihjalla 11,
Kópavogi,
lést 3. júlí í Landspítalanum. Jaröarförin hefur farið fram.
Guðrún Helgadóttir,
Gunnar Pétursson,
Guðrún Hrefna Gunnarsdóttir,
og barnabörn.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, son, tengda-
föður og afa,
MAGNÚS ÞÓRARIN GUÐMUNDSSON
skipstjóra,
Brautarholti 19,
Ólafsvik,
er fórst með mb. Sæborgu SH 377 7. mars sl., fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 15. júlí kl. 14.00. Þeim sem vildu
minnast hans er vinsamlega bent á Björgunarsveit Slysavarnafé-
lagsins í Ólafsvík.
Elisabet Mortensen,
Guðmundur Jóhann Magnússon,
Magðalena Magnúsdóttir,
Maríanna B. Arnarsdóttir, Sigurður Hafsteinsson,
Magðalena Kristjánsdóttir,
Guðmundur Þórarinsson,
systkini og barnabarn.