Morgunblaðið - 14.07.1989, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
' t\ €
35
Morgunblaðið/Sverrir
Á miðri mynd situr aldursforseti innfteddra Reykvíkinga ö*ú Þorbjörg Grímsdóttir. Með henni eru
börn hennar Stefán, Guðrún og Aðalbjörn lengst til hægri. Einnig Aðalbjörn Kjartansson, dótturson-
ur afmælisbarnsins, sem heldur á yngsta langalangaömmubaminu, Kristrúnu Önnu Óskarsdóttur.
Á myndinni em einnig langömmubörnin Elísabet Rut Sigmarsdóttir og bræðurnir Helgi og Þor-
gils Bjami Einarssynir.
ALDARAFMÆLI
Elst innfæddra Reykvíkinga
Frú Þorbjörg Grímsdóttir hélt
hundraðasta afmælisdag sinn
hátíðlega síðastliðinn laugardag.
Þorbjörg er elst innfæddra Reyk-
víkinga, fæddí Litla-Seli á Vestur-
götunni þann 8. júlí 1889. Vegleg
afmælisveisla var haldin henni til
heiðurs á Hótel Sögu og barst
henni margar kveðjur, m.a. frá
Vigdísi Finnbogadóttur forseta
ísiands.
Þorbjörg Grímsdóttir og Aðal-
björn Stefánsson, eiginmaður
hennar, voru í Alþýðuflokknum
og færði Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokksins,
Þorbjörgu þakkir flokksins í veisl-
unni. Stórstúka íslands og Barna-
blaðið Æskan sendu henni einnig
kveðjur en Þorbjörg er heiðurs-
félagi í Stúkunni Verðandi. Þorg-
björg er til heimilis að Skólavörð-
ustíg 24 A en þar hefur hún búið
í 75 ár.
... á við bestu galdraþulu!
Ef þér finnst eitthvað vanta upp á bragðið af
súpunni, pottréttinum, heitu sósunni, salatsósunni
eða ídýfunni skaltu einfaldlega bæta við
MS sýrðum rjóma, 18%. Það er allur galdurinn.
Hitaeiningar MS sýrður rjómi Majónsósa
18% (Mayonnaise)
1 tsk (5 g) 9.7 37
1 msk (15 g) 29 112
100 g 193 753
AUK hf k3d-76-728
1
F
i
VEÐREIÐAR
Haldið í
gamlar hefðir
Sumt breytist aldrei. Þar á meðal eru Ascot-veðreið-
arnar sem haldnar eru síðast í júní ár hvert. Veðreið-
arnar eru frægar fyrir að þar skiptir keppnin ekki öllu
máli. Prúðbúnir áhorfendur skipa mikilvægan sess. Kon-
urnar bera mikilfenglega hatta og karlmennirnir draga
upp ljós sumarföt.
Meðal fastra gesta á veðreiðunum er breska konungs-
fjölskyldan. Hún lét sig ekki vanta í ár fremur en endra-
nær. Þar á meðal voru Díana prinsessa og svilkona henn-
ar, Sara. Díana þótti, að venju, taka sig vel út en gagn-
rýnendur voru ekki jafn ánægðir með klæðaburð Söru.
Hún þykir sérvitur í fatavali og lætur sig litlu skipta þó
að fötin fari fyrir bijóstið á mörgum.
VEISLA
í jeppa á fjaWi
eða í sumarhúsinu.
Ekkert mál ef þú hefur
G-þeytirjómann meðferðis.
Skál og gaffall duga til að þeyt'ann.
Hvort þú snarar svo fram heilli
rjómatertu eða írsku kaífí
fer eítir tilefninu.
v, - ,Jgeymsluþoliiin
beytirjomi
«VUly
G.
Karl og Diana gatu
aðeins verið við-
stödd fyrsta dag
veðreiðanna. Þau
höfðu í ýmsu að
snúast, Karl að
leika póló og
Díana að taka þátt
í sjö ára afmæli
eldri sonar þeirra.
?ftl
Á Ascot-veðreiðunum er mikið
um frumlega hatta.
Sara var í svartri og gulri dragt sem vakti hneykslun margra.