Morgunblaðið - 14.07.1989, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1989
43
faám
, FOLK
■ HALLDÓR Halldórsson,
. varnarmaður úr KA, handarbrotn-
aði í leik liðsins gegn Fram á dög-
unum. Halldór verður í gifsi í tvær
vikur og óvíst er hvenær hann verð-
ur tilbúinn í slaginn á ný.
■ GRÆNLENSKUR hand-
knattleikmaður er væntanlegur til
Akureyrar til þess að skoða að-
stæður hjá KA. Anas Helman er
hávaxin vinstrihandarskytta,
einmitt það sem vantar í herbúð-
ir KA-manna.
■ BRASILÍUMENN sigruðu
Argentínumenn 2:0 í leik þjóðanna
í úrslitakeppni S-Ameríkubikars-
ins í knattspyrnu. Babeto og Rom-
ario gerðu mörkin í seinni hálfleik.
Diego Maradona náði sér ekki á
strik í leiknum. Fjórar þjóðir leika
í úrslitakeppninni. í leik hinna þjóð-
anna tveggja sigraði Úrúguay lið
Paraguaj 3:0.
B ÞRIR Austur-Þjóðverjar,
sem leika áttu með liði sínu Wistm-
ut Aue í Svíþjóð í vikunni, eru
horfnir sporlaust, og eru allar líkur
á að þeir hafi gefist upp á vistinni
í föðurlandi sínu. Liðið hafði verið
við æfingar í Gautaborg að und-
anförnu.
ÚRSLIT
Skotfélagið—Stokkseyri.........2:1
Skúli Helgason, Snorri Már Skúlason —
Svavar Geirfinnsson.
Baldur—Víkingur O..............3:3
Kristján Halldórsson, Helgi Jónsson, Engil-
bert Olgeirsson — Hjörtur Ragnarsson 2,
Hermann Hermannsson.
KNATTSPYRNA
Atli til Tyrklands?
Tyrkneska félagið Genglerbirligi Ankara vill fá landsliðsfyrirliðann
TYRKNE6KA félagið Gengler-
birligi Ankara, sem leikur í 1.
deild í Tyrklandi, hefur mikinn
áhuga á að fá Valsmanninn
og landsliðsfyrirliðann Atla
Eðvaldsson til liðs við sig.
Þetta kemur fram í síðasta
tölublaði v-þýska blaðsins
Kicker. Þar kemur einnig fram
að tyrkneska liðið hafi komist
að samkomulagi við Bayer
Uerdingen sem á söluréttinn.
Það er hinsvegar undir Atla
komið hvort hann leikur í
Tyrklandi næsta vetur.
BJ g hef heyrt af þessu en ég
B kemst ekki fyrr en allt er
búið hér á íslandi, í bytjun októb-
er. Ég veit ekki hvað af þessu
verður, enda hef ég lítið heyrt frá
félaginu sjálfu,“ sagði Atli í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
í frétt Kicker segir að Gengler-
birligi hafi þegar samið við Bayer
Uerdingen og ef Atli fari þurfí
liðið aðeins að borga 40.000 mörk
(um 1,2 milljónir ísl. kr.).
„Þegar ég hef samið við erlend
lið hef ég venjulega gengið þann-
ig frá málunum að semja um
ákveðna hámarksupphæð sem lið-
ið getur fengið fyrir mig. í þessu
tilfelli voru það 40.000 mörk. Það
hefur kannski vakið áhuga Tyrkj-
anna. Hinsvegar getur Uerdingen
ekki skikkað mig til að fara til
Tyrklands og ég ræð því alveg
sjáifur hvort ég fer,“ sagði Atii.
Það skal tekið fram að í lögum
KSÍ segir að leikmenn megi ekki
semja við erlend lið á meðan á
keppnitímabili stendur, frá 1. apríl
til 1. október.
■ Genglerbirligi Ankara kom upp
úr. 2. deiid í vor og hefur leitað
að nýjum leikmönnum í Evrópu.
Útlendingum hefur íjölgað mjög
í tyrknesku deildinni og nægir þar
að nefna markverðina Tony
Schumacher og Jean-Marie Pfaff.
Tyrkenska deildin er einnig mjög
eftirsótt þar sem iaun eru mun
hærri en í flestum löndum.
Siegfried Held, þjálfari íslenska
landsliðsins, hefur gert samning
við Galatasaray Istanbúl og mun
þjálfa liðið næsta vetur. I frétt
Kicker segir að Heid fái um 24
milljónir króna í árslaun en sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðs-
ins mun hann „aðeins" fá um 10
•milijónir króna, auk ýmis konar
fríðinda..
„Ég hef ágætar minningar frá
Tyrklandi," sagði Atli. „Eg hef
farið þangað þrisvar og ekki enn
tapað, en ég veit þó ekki hvernig
væri að spiia þar. Tyrkland er
voðalega langt í burtu en það
væri gaman að læra málið."
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
I
I
í
í
I
i
Morgunblaðið/Júlfus
Amundi Ámundason og Kristinn R. Jónsson kljást hér um boltann í leik Fram og Víkings í gær. Kristinn hafði betur
að þessu sinni eins og í leiknum sjálfum.
Meistararnir á skrið
FRAM ARAR virðast vera
komnir á skrið eftir frekar
dapra byrjun í íslandsmótinu.
Þeir unnu stórsigur á Skaga-
mönnum á mánudaginn og
fylgdu honum eftir með sigri á
Víkingum í gærkvöldi, 2:0. Stig-
in þrjú eru þau fyrstu sem
Framarar ná á útivelli í sumar.
Framarar gerðu útum leikinn á
fyrsta korterinu. Pétur Ormslev
gerði fyrra markið á 10. mínútu
með góðu skoti, en skömmu áður
hafði Ómar Torfa-
LogiB. son átt þrumuskot í
Eiðsson þverslá. Annað
skrifor markið kom svo sjö
mínútum síðar er
Guðmundur Steinsson skoraði fal-
legt mark eftir góða sendingu frá
Pétri Ormslev.
Víkingum óx ásmegin er líða tók
á leikinn og fengu nokkur mjög góð
færi. Pétur Ormslev bjargaði á línu
frá Andra Marteinssyni og Birkir
Kristinsson mátti hafa sig allan við
til að veija gott skot Trausta Óm-
arssonar.
Fyrri hálfleikurinn var líflegur
og bæði lið fengu mjög góð færi.
Síðari hálfleikurinn var hinsvegar
með daufasta móti. Framarar voru
lengst af með boltann og tóku lífínu
með ró. Víkingar höfðu engin tök
á miðjunni og áttu því erfitt með
að byggja upp sóknir. Þeir fengu
þó tvö góð færi; Atli Einarsson
skaut framhjá af stuttu færi og
Birkir varði vel frá Goran Micic.
Framarar áttu síðasta færi leiksins
er aftasti maður liðsins, Jón Sveins-
son, geistist fram í sókn en var of
seinn að athafna sig í vítateig
Víkinga.
Framarar léku vel og yfirvegað.
Vörn þeirra var sterk en á köflum
hættulega flöt og þannig fengu
Víkingar bestu færi sín. Jón Sveins-
son og Pétur Arnþórssn áttu góðan
leik en besti maður Iiðsins var Birk-
ir Kristinsson í markinu.
Víkingar eiga nokkra góða ein-
staklinga og framheijadúett þeirra
er, Atli Einarsson og Goran Micic,
er skemmtilegur. En veiku hlekk-
imir í liðinu em of margir. Andri
Marteinsson átti þó góðan leik og
Aðalsteinn Aðalsteinsson einnig,
einkum í síðari hálfleik. .
Óvæntur sig-
ur Þórsara
ÞÓRSARAR unnu óvæntan sig-
ur á Skagamönnum á Akranesi
í gærkvöldi. Leikurinn endaði
1:2 fyrir Þórsurum sem mættu
til leiks fullir baráttu, börðust
eins og Ijón og uppskáru eftir
því.
Þórsarar fengu óskabytjun er
þeir skoraðu fyrra mark sitt
strax á 6. mínútu. Það var Júgóslav-
inn Bojan Tanevski sem skoraði
markið með lúmsku
bogaskoti utan víta-
teigs. Kristján
Kristjánsson bætti
öðra marki við á 25.
mínútu. Hann fékk sendingu fram
hægri kantinn og virtist vera rang-
stæður án þess að dómari og línu-
vörður gerðu nokkra athugasemd.
Kristján var þar með kominn á
auðann sjó og þegar inn í vítateig
Akurnesinga var komið renndi hann
knettinum til Hlyns Birgissonar
Frá Sigþóri
Eirikssyni
áAkranesi
Víkingur—Fram
0:2
Víkingsvöllur, íslandsmótið í knatt-
spymu, 1. deild, fímmtudaginn 13. júlí
1989.
Mörk Fram: Pétur Ormslev (10.),
Guðmundur Steinsson (17.)
Gult spjald: Þorsteinn Þorsteinsson,
Fram (24.), Trausti Ómarsson, Víkingi
(50.).
Dómari: Sæmundur Vígiundsson átti
slæman dag og leyfði leikmönnum að
hagnast á brotum.
Lið Vikings: tíuðmundur Hreiðarsson,
Hallsteinn Amarson (Unnsteinn Kára-
son 25.), Ámundi Sigmundsson, Gunn-
ar Gylfason, Öm Torfason (Bjöm
Bjartmarz 60.), Atli Helgason, Aðal-
steinn Aðalsteinsson, Andri Marteins-
son, Trausti Ómarsson, Atli Einarsson
og Goran Micic.
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Jón
Sveinsson, Þorsteinn Þorstcinsson
(Helgi Björgvinsson 45.), Kristján
Jónsson, Viðar Þorkelsson, Kristinn
R. Jónsson, Ómar Torfason, Pétur Am-
þóreson, Pétur Ormslev, Guðmundur
Stcinsson (Steinn Guðjónsson 80.) og
Ragnar Margeirsson.
sem skoraði auðveldlega einn og
óvaldaður.
Á 39. mínútu náðu Skagamenn
síðan að minnka muninn úr nánast
sínu eina marktækifæri í fyrri hálf-
leik. Var vel að því marki staðið.
Amar Gunnlaugsson lék þá laglega
á tvo vamarmenn Þórs og renndi
knettinum til Alexanders Högna-
sonar sem skoraði með föstu skoti
í bláhomið niðri.
Eftir markið vöknuðu Skaga-
menn loks til lífsins og sóttu nær
látlaust að marki Þórsara það sem
eftir lifði leiks. Á 74 mín. varði
Baldvin hreint ótrúlega þramuskot
frá Aðalsteini Víglundssyni
Tveimur mínútum fyrir leikslok
vora Skagamenn mjög óheppnir að
jafna ekki leikinn. Þá þramaði Har-
aldur Ingólfsson knettinum í innan-
verða markstöngina, þaðan þeyttist
hann fyrir markið án þess að leik-
mönnum ÍA tækist að pota honum
inn.
IA—Þór
1 : 2
íslandsmótið í knattspymu, 1. deild,
AkranesvöIIur, fímmtudaginn 13. júlí
1989.
Mark ÍA: Alexander Högnason á 39.
mín.
Mörk Þórs: Bojan Tanevski á 6. mín.
og Hlynur Birgisson á 25. mín.
Gul spjöld: Birgir Karlsson og Bojan
Taneski Þór
Dómari: Sveinn Sveinsson
Lið ÍA: Sveinbjöm Allansson, Öm
Gunnarsson, Heimir Guðmundsson,
Guðbjöm Tryggvason, Sigurður B.
Jónsson, Alexander Högnason, Aðal-
steinn Víglundsson, Karl Þórðarson,
Haraldur Ingólfsson, Amar Gunn-
laugsson ( Haraldur Hinriksson vm. á
73. mín.), Bjarki Gunnlaugsson (Júlíus
P. lngólfeson vm. á 69. mín.)
Lið Þórs: Baldvin Guðmundsson, Luca
Kostic, Birgir Karisson, Sveinn Páls-
son, Þörsteinn Jónsson, Nói Bjömsson,
Júlíus Tryggvason.Kristján Kristjáns-
son, Ólafur Þorbergsson, Hlynur Birg-
isson, Bojan Tanevski.