Morgunblaðið - 01.09.1989, Page 38

Morgunblaðið - 01.09.1989, Page 38
3S MÓktaJNBLAÐIÍ) IÞRÓTTIRyÖWwA&UR 1' Vf.I'TKMBKR H)ftí) KNATTSPYRNA / DOMARAR Guðmundur og Eyjólfur dæma í Evrópukeppninni Guðmundur_ Haraldsson og Eyjólfur Ólafsson, knatt- spyrnudómarar, dæma í 1. um- ferð Evrópukeppninnar. Guð- mundur dæmir fyrri leik Lil- leström frá Noregi og Werder Bremen frá Vestur-Þýskalandi 13. september. Eyjólfur fær síðari leik Ballymena frá Norð- ur-írlandi og Anderlecht frá Belgíu 27. september. Línuverðir með Guðmundi í Noregi verða Sveinn Sveinsson og Bragi Bergmann. En þetta sama tríó dæmdi einmitt leik Skota og Kýpur í undankeppni HM í Glasgow í vor. Með Ey- jólfi verða Öli P. Olsen og Guð- mundur Stefán Maríasson, en þetta er fyrsta verkefni Guð- mundar á erlendri grundu. Eyjólfur Guðmundur KNATTSPYRNA / ITALIA Maradona ekki enn kominn til INIapólí skrifar frá Italíu Diego Armando Maradona sem þénar um 250.000 krónur íslen- skar á dag fór í sumarfrí til Arg- entínu, heimalands síns, í vor og hef- ur enn ekki látið sjá Brynja sig á Ítalíu. Napólí lék Tómer fyrsta leikinn á tíma- bilinu án hans og mega menn sætta sig við óskýrar yfirlýsingar kappans í gegnum fjölmiðla. Maradona neitaði lengi vel að snúa aftur til Napólí á tilsettum tíma eftir sumarleyfi og lét ekki vita hvar hann var. Fréttahaukar voru sendir til Argentínu til að reyna að hafa uppá honum, og viti menn: hann fannst uppi í fjöllum þar sem hann var í veiðiferð ásamt fjölskyldu sinni. Hann reiddist við fréttamennina sem hon- um þóttu of ágengir og hyggst nú höfða mál á hendur þeim sem hafa „reynt að svipta mig ærunni“ eins Diego Maradona. og hann komst sjálfur að orði í sjón- varpsviðtali. Sagt að mafían hafi haft í hótunum við Maradona og að hann tengdist umfangsmiklu kókaínmáli. Um þess- ar mundir standa yfir réttarhöld sem Maradona tengist, því stúlka nokkur segir að sonur hennar sé einnig son- ur knattspyrnukappans. ítalskir knattspyrnuáhugamenn hafa fengið sig fullsadda af kjána- skapnum og þeir eru fáir sem taka málstað Maradona. Sala á ársmiðum á leiki Nápólí hefur gengið illa í ár og er það bein afleiðing hinnar undar- legu hegðunar fyrirliðans. Maradona er vanur að fara á heilsuhæli í megr- un og æfingar fyrir hvert keppn- istímabil ög hann segist núna vera fimm kílóum of þungur. Yfirmenn Napólí hafa ekki .viljað tjá sig um málið við fjölmiðla, en raddir eru uppi um það að félagið vilji höfða mál á hendur honum fyrir vanvirð- ingu á samningi, og einnig hefur heyrst að ítalska knattspyrnusam- bandið muni taka hann rækilega í gegn, sagt hefur verið að hann fái jafnvel ekki að leika á HM á næsta ári. Golfklúbburinn Keilir og Evrópuferðir kynna: Laugardaginn 2. Sunnudaginn 10. Sunnudaginn 17. Laugardaginn 23. Laugardaginn 31. september september september september september Keppnisfyrirkomulag: Höggleikur, meö og án forgjafar. Fyrir hvern keppnisdag verda veitt glæsileg verdlaun; fyrir besta skor án forgjafar og þrenn verdlaun meö forgjöf. Aöalverölaun eru ferðir fyrir tvo til Portúgal ásamt þátttöku í opnu golfmóti áhugamanna. Feröir, gisting og keppnisgjald er innifaliö. XIITAP AIR ^ Iqolfmja tfurtournament ALGARVE89 25 Nov — Dez/Dec XII opna gólfmót Tap Air Portugal fyrir áhugamenn haldið í Algarve 25. nóv.-2. des. Þessi verölaun veröa veitt þeim tveim kylfingum sem ná bestum samanlögöum árangri með og án forgjafar fyrir 3 bestu hringi af 5. Mótið fer fram á golfvellinum á Hvaleyrarholti í Hafnarfiröi. Þátttökugjald er kr. 1.000,- fyrir hvern keppnisdag. Skráning í síma 53360. Öllum ágóöa af þessum mótum veröur variö til styrktar sveit golfklúbbsins Keilis sem taka mun þátt í Evrópukeppni meistaraliöa á Spáni næstkomandi nóvember. AIR PORTUGAL evrópuferðir eurotour<- GUWEIA FRJALSIÞROTTIR Ásakanir um lyfja- misferli alrangar Stjórn FRÍ telur ásakanir Flaraldar Magnússonar hafa valdið frjálsíþrótta- hreyfingunni álitshnekki Stjóm Frjálsíjjróttasambands ís- lands (FRÍ) fjallaði um ásakanir Haraldar Magnússonar, formanns frjálsíþróttadeildar Fimleikafélags n Hafnarfjarðar (FH), vegna meintrar lyfjamisnotkunar Kristjáns Skúla Asgeirssonar, hlaupara úr íþróttafé- lagi Reykjavíkur (ÍR) og aðildar Birg- is Guðjónssonar varaformanns FRÍ þar að, dagsettar 16. og 17. ágúst, á fundum sínum 22. og 29. ágúst. Ásakanir þessar birtust einnig sem frétt í DY 18. ágúst og í grein i aama blaði 21. ágúst. Hið rétta er að við rannsókn í júlí/ágúst 1988 greindist heymæði og áreynsluasmi hjá Kristjáni Skúla, samkvæmt læknisgögnum, sem FRÍ hefur undir höndum. Meðferð við þeim sjúkdómi fólst í því að hann var settur á Ventoline-úða og Beeotide- úða. Þessi lyf eru ekki á bannlista Alþjóðafijálsíþróttasambandsins en þess er sérstaklega getið í skrá AI- þjóðaólympíunefndarinnar að þau séu lcyfð. Lyfjaeftirlitanefnd ÍSI hefur staðfest með bréfi til FRÍ að ofan- skráð lyf séu lögleg. Einu afskipti Birgis af Kristjáni Skúla fram til 18. ágúst var að staðfesta í símtali að notkun ofangreindra iyfja væri leyfi- leg. Haraldur skrifar síðan aftur bréf dagsett 23. ágúst sem birtist í DV 28. ágúst. Þar komu fram viðbótará- sakanir í garð Kristjáns Skúla og staðhæft að fararstjórar og þjálfarar hafa fengið leyfi fyrir hann að taka asmalyf í töfluformi í Evrópubikar- keppninni i Dublin 5.-6. ágúst sl. Hvorutveggja er alrangt. Hann hefur aldrei verið á asmatöflum. Kjartan Guðjónsson aðalfararstjóri sem og aðrir fararstjórar, svo og Guðmundur Karlsson landsþjálfari og Gunnar P. Jóakimsson, þjálfari Kristjáns Skúla, sem einnig var með í for til Dublin, staðfesta að ekkert samkomulag hafi verið gert við einn eða neinn um lyfja- notkun hans. Þessi hluti ásakananna sýnir van- þekkingu Haraldar á lyfjamálum og alþjóðakeppnisreglum. Keppendum með asma er hvenær sem er helmilt að taka margskonar lyf bæði sem úða og í töfluformi. Þau lyf sem læknanefndir alþjóðasérsambanda og Alþjóðaólympíunefndarinnar leyfa, hafa aðeins þau áhrif að bæta sjúk- legt ástand þannig að það nálgist það að verða eðlilegt. Þau lyf sem þannig eru „lögleg“ eru aldei örvandi á neinn hátt né hafa þau nokkur hagstæð áhrif. Ekki erþörf að gera samkomu- lag um leyfileg lyf og enginn tæki þátt í „8amkomulagi“ um ólögleg lyf. Eins og fram hefur komið i fréttum falla Rússar út úr heimsbikarkeppn- inni þar eð kúluvarpari þeirra féll á lyfjaprófí í Evrópubikarkeppninni. Reyndist hann hafa tekið hormóna- lyfið testóslerón. Ef Rússar sleppa ekki er varla við því að búast að Is- lendingum takist að semja um töku ólöglegra lyfja. Haraldur hefur nú alls bendlað um 8 manns við þetta „lyfjamisferli“. Stjórn FRÍ hefur því vísað þessu máli til framkvæmdastjórnar ÍSl og óskað eftir því að rannsókn verði gerð vegna ásakana hans og með hvaða hætti þær eru fram komnar. Hefur stjórn FRl jafnframt áskilið sér rétt til að leita til opinberra aðila ef ÍSl verður ekki við þessari ósk. Stjórn FRÍ vill fyrir alla muni að fijálsíþróttahreyfingin verði hreinsuð af öllum ásökunum um lyfjamisferli. Stjórn FRÍ samþykkti að þar til annað yrði ákveðið myndi hún engin samskipti eiga við Harald Magnússon meðan hann gegndi stöðu formanns frjálsiþróttadeildar FH en þess í stað snúa sér beint til aðalstjórnar FH og stjórnar íþróttabandalags Hafnar- fjarðar (ÍBH) með málefni sem varða fijálsíþróttastarfið í Hafnarfirði. Hef- ur formönnum FH og ÍBH verið til- kynnt þessi afstaða og var þeim gerð grein fyrir henni á fundi 23. ágúst. Það skal tekið fram, að það var for- manni FH og ÍBH tilkynnt, að stjórn FRÍ vill eiga góða samvinnu við hafnfirsk íþróttasamtök og hafn- firska íþróttamenn og má minna á í því sambandi að stjórnin hefur ákveð- ið að þiggja boð IBH um að frjálsí- þróttaþing 1989 verði haldið í nóv- emberlok í Hafnarfirði. Stjórn FRÍ teiur ásakanir llaraldar Magnússonar varða við annan og fjórða lið 2. greinar dóms- og refsiá- kvæða íþróttasambands íslands (ÍSÍ) og áskilur sér rétt til þess að fá það staðfest með dómi. Með ásökunum sínum hefur Haraldur borið íþrótta- manninn, Kristján Skúla Ásgeirsson, og Birgi Guðjónsson, varaformann FRÍ, fararstjóra og þjálfara röngum sökum og kært þá að ásiæðulausu. Með því hafi hann komið ósæmilega fram gegn yfirvaldi íljróttahreyfmg- arinnar, valdið Kristjáni Skúla og öðrum einstaklingum miklum óþæg- indum og fijálsíþróttahreyfingunni allri álitshnekki. Reykjavík 29. ágúst, F.h. stjórnar FRÍ, Ágúst Ásgeirsson forniaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.