Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 13
MORGtJNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2^. .SKPTEMBElj, 1989
13
Nanna
Biichert
_____Myndlist_______
Bragi Ásgeirsson
I anddyri Norræna hússins eru
til sýnis nokkrar ljósmyndaraðir
eftir Nönnu Biichert og stendur
sýningin til 24. september.
Nanna hefur komið við sögu
hér áður og t.d. hélt hún einkasýn-
ingu í Klausturhólum fyrir nokkr-
um árum og hefur átt myndir á
samsýningum í Nýlistasafninu.
Hún mun hálfíslenzk, fædd í
Kaupmannahöfn, en varð stúdent
við MR árið 1967, nam fornleifa-
fræði við háskólann í Kaup-
mannahöfn og hefur síðan alla tíð
verið búsett þar.
Fyrir Nönnu er ljósmyndunin
fyrst og síðast listgrein, hún tekur
á ferðalögum sínum samskonar
myndir og allur fjöldinn, svo og
fréttamyndir, en svo eina og eina
myndaröð fyrir sjálfa sig af ein-
hveiju sem henni fínnst einkenn-
andi við staðinn og leitar á sköp-
unarþörf hennar.
Og Nanna hefur víða farið og
tekið myndir, en þó þarf hún ekki
langt að fara, því að myndefnin
eru allt um kring og kirkjugarðar
eru meðal þess myndefnis, sem
heillar hana, hvar sem hún kemur.
Allir ljósmyndarar af sömu gerð
og Nanna eiga sér einkennandi
viðfangsefni og þannig má segja,
að það séu hin skörpu skil ljóss
og skugga, sem Nönnu eru hug-
leikin og þá einkum í kringum
einfaldleikann. Hún kemur auga
á það, sem fer framhjá flestum í
umhverfí þeirra, og ein myndaröð,
sem er hvað mest einkennandi
fyrir þau vinnubrögð, er Esso Blu-
es, en þar hefur hún valið einföld,
óvænt og fágæt sjónarhorn við
olíutankana í Hafnarfirði. Hið af-
markaða myndefni, einfalt, hreint
og klárt kemst vel til skila og
skoðandinn skynjar hina mynd-
rænu fegurð á augabragði.
Það er þannig ekki hið mikil-
fenglega, stórbrotna sjónarspil í
umhverfinu né sjónbaugur fjar-
lægðarinnar, sem endilega höfðar
til Nönnu, heldur mikiifengleikinn
við hið smáa og afmarkaða, sem
á vegi hennar verður, — brotabrot
hlutveruleikans mætti nefna það.
Þetta kemur t.d. vel fram í
myndaröðunum „För“ og „Spor í
sandi“, þar sem hárfín blæbrigðin
ná að magna upp óræðar sögur
og jafnframt kemur hér fram viss
áferð og hreyfing, og eru þeir því
í skemmtilegri andstæðu við kyrr-
stöðuna í fyrstnefndu myndaröð-
inni. Þá er hin sérstæða sjálfs-
mynd hennar tvímælalaust með
hinu athyglisverðasta á sýning-
unni.
Þetta er í heiid vönduð sýning
og vel að kynningunni staðið og
jafnframt ótvírætt áhrifaríkasta
framlag Nönnu Buchert til þessa
hér í borg.
Ragnars
saga og Gunn-
laðar saga
DR. RORY W. McTurk, lektor í
íslenskum fræðum við The Uni-
vérsity of Leeds, flytur fyrirlest-
ur í boði félagsvísindadeildar
fimmtudaginn 21. september nk.
kl. 17.00 í stofu 101 í Odda. Fyrir-
lesturinn heitir Ragnars saga og
Gunnlaðar saga og verður fluttur
á íslensku.
Dr. Rory W. McTurk er mörgum
Islendingum að góðu kunnur. Hann
dvaldist hér á landi á árum áður
við nám og rannsóknir og lauk prófi
frá Háskóla íslands árið 1965.
Meginverk hans á vettvangi norr-
ænna fræða er yfirgripsmikil rann-
sókn á Ragnars sögu loðbrókar.
Varði hann doktorsritgerð um það
efni, sem kemur út á prenti innan
skamms.
í fyrirlestri sínum mun dr. Rory
W. McTurk ræða utn rannsóknir
sínar á Ragnars sögu loðbrókar og
sérstaklega um nafnið loðbrók og
hugsanleg tengsl þess við forna
fijósemistrú á Norðurlöndum. Einn-
ig mun hann víkja að fleiri goðsög-
um sem snerta þetta efni.
(Fréttatilkynning)
N
HITASTILLT
MORATERM blöndunar-
tæki með sjálfvirkri hita-
stillingu og öryggis-
hnapp, sem takmarkar
hitastig við 38 C.
Mora sænsk gæðavara
fyrir íslenskar aðstæður.
Fást í byggingavöruverslunum.
(§g)
^ meiri ánægja^
Öllum þeim, sem á einn eöa annan hátt geröu
mér daginn 16. september dásamlegan meö
gjöfum, skeytum og heimsóknum, þakka ég
hjartanlega. Sérstaklega þakka ég börnum
mínum, tengdabörnum, barnabörnum og jjöl-
skyldum þeirra, allt þaÖ sem þau gerÖu fyrir
mig. ÞaÖ er sagt aö Guö borgi fyrir hrafninn,
ég vona að hann geri það fyrir mig.
Guörún Magnúsdóttir,
Skúlagötu 76.
HALLBfORN I HAGKAUP
í dag, fimmtudag, mætir Hallbjðrn Hjartarson í Hagkaup
Kringlunni og áritar og kynnir nyju plötuna Kántrý 5.
Allir velkomnir.
KANTRY 5
Tvímælalaust
langbesta pfata
Hallbjarnar lil bessa.
10 ný lög hvert ööru skemmtilegra
Plata sem allir islendingar veröa aö eignast
AEROSMITH - PIIMP VMSIR — LAMBADA HLICE COOPER - TRASH
Stórkostleg splunkuný plata-
frá meisturum rokksins
AEROSMITH. Ein alkraft
mesta og besta rokkplata
sem komið hefur út.
Þetta er platan sem fer
sigurför um allan heim og
inniheldur m.a. lagið vinsæla
Lambada. Þú kaupir þessa
fyrr eða síðar.
Ný, mögnuð plata frá
Alice Cooper. Það besta
sem hann hefurgert
í mörg ár. Inniheldur
m.a. topplagið Poison.
9.
10.
11.
12.
13.
14.
15.
16.
17.
18.
□ 19.
o 20.
LP/KASS.
HALLBJÖRN HJARTARSON - KÁNTRÝ 5 1.099
R0LLING STONES - STEEL WHEELS 899
ALICE C00PER - TRASH 899
PRINCE - BATMAN 899 .
BANDALÖG - ÝMSIR 1.099
GtiNS 'N' R0SES - LIES 899
N0W 15 - ÝMSIR 1.399
GUNS 'N' R0SES - APPETITE F0R DESTRUCTI0N 899
CULT - S0NIC TEMPLE 899
DISNEYLAND AFTER DARK - N0 FUEL LEFT... 899
STUÐMENN - LISTIN AÐ LIFA 1.149
LIVING C0L0UR - VIVID 899
JETHR0 TULL - R0CK ISLAND 899
MÖTLEY CRUE - DR. FEELG00D 899
CURE - DISINTEGRATION 899
MIKE 0LDFIELD - EARTH M0VING 899
STEVE RAY VAUGHAN - IN STEP 899
STEVE STEVENS - AT0MIC PLAYB0Y 899
B52'S - C0SMIC THING 899
BJARTAR N/tTUR - ÝMSIR 1.149
CD
1.499
1.499
1.599
1.599
1.599
2.699
1.599
1.599
1.599
1.649
1.499
1.599
1.599
1.599
1.499
1.499
1.599
1.599
1.649
MUNIÐ lægra verÖ í
HAGKAUP