Morgunblaðið - 21.09.1989, Síða 20
20
MORGUNBLAÐlÐ FIMMTL'DAGl'R 21.
1^89
Kínverska
lýðræðis-
fylking'in
stofnuð
París. Reuter.
150 KÍNVERSKIR andófs-
menn ætla að koma saman í
París á morgun til að taka
þátt í stofnfundi Kínversku
lýðræðisfylkingarinnar, FDC.
Samtökin eru stofnuð til höf-
uðs kommúnistastjórninni í
Kína sem beitti hervaldi til að
bæla niður mótmæli kínver-
skra lýðræðissinna á Torgi
hins himneska friðar 3.-4. júní
sl. Þátttakendur á stofnfund-
inum ætla að ræða eftir hvaða
leiðum ijölflokkalýðræði,
mannréttindum og fijálsu hag-
kerfi verið komið á í Kína.
Setningarávarp flytur Wu-
erkaixi, 21 árs leiðtogi mót-
mælanna á friðartorginu.
Norður-írland:
Upplýsingum
lekið til mót-
mælenda
Belfasl. Reuter.
GRUNUR leikur á að norður-
írskir lögreglumenn hafi lekið
upplýsingum um a.m.k. 60
menn, sem taldir eru tilheyra
írska lýðveldishernum, IRA,
til morðsveita mótmælenda í
Dublin. Norður-írsk lögreglu-
yfirvöld sögðu að tveimur
umslögum með upplýsingum
um meinta IRA-skæruliða
hefði verið stolið af lögreglu-
stöð í Belfast, Nokkru áður
hafði þingmaður SDLP, hóf-
samra þjóðemissinna, skýrt
frá því að lögreglumaður hefði
afhent honum skjöl með nöfn-
um og heimilisföngum 18
IRA-manna.
Bandaríkin:
Lík Hoffa und-
ir íþróttaleik-
vangi
Chicago. Reuter.
BANDARÍSKI verkalýðsfor-
inginn Jimmy Hoffa, sem
hvarf sporlaust árið 1975, var
myrtur, lík hans hlutað í sund-
ur og grafið undir íþróttaleik-
vangi í New Jersey. Tímaritið
Playboy hefur þetta eftir
dæmdum leigumorðingja.
Tímaritið skýrði frá því í nóv-
ember sl. að glæpasamtök
hefðu látið myrða Hoffa nærri
Detroit-borg fyrir 14 árum.
Hoffa var rutt úr vegi vegna
þess að hann hafði hótað að
skýra frá ítökum glæpasam-
taka í stærsta verkalýðsfélagi
í Bandaríkjunum, IBT, það er
samtökum flutningaverka-
manna.
ísrael:
Fyrrum nasisti
á mála hjá
Mossad
Jerúsalem. Reuter.
OTTO Skorzeny, fyrrum höf-
uðsmaður í stormsveitum nas-
ista, starfaði fyrir ísraelsku
leyniþjónustuna Mossad á sjö-
unda áratugnum, að því er
ísraelski sagnfræðingurinn
Amnon Kava segir. Kava segir
að Mossad hafí ráðið Skorzeny
til að njósna um þýska vísinda-
menn sem unnu að leynilegum
verkefnum í Egyptalandi.
Hann sagði að hinn þýski milli-
liður Skorzenys hefði verið
undirmaður hans í stormsveit-
unum í síðari heimsstyijöld-
inni. Kava greindi frá þessu í
ísraelska útvarpinu sl. þriðju-
dag.
Þota ferst í Sahara með 171 innanborðs:
Talið að þotan hafí
spmngið í loft upp
Yfirlýsingar öfgasamtaka ekki teknar alvarlega
París. London. Router.
VERIÐ getur að frönsk farþega-
þota sem fórst í Sahara-eyðimörk-
inni í fyrradag hafi verið sprengd
í loft upp, að því er talsmenn
franska flugfélagsins Union des
Transports Aeriens (UTA) sögðu
í gær. Tveir ókunnir menn lýstu
ábyrgð á verknaðinum á hendur
öfgasamtakanna Heilags stríðs í
Líbanon en trúverðugleiki þeirra
er mjög dreginn í efa. 171 maður
var um borð og segja flugmálayfir-
völd ólíklegt að nokkur hafi lifað
af.
Farþegaþotan sem er af gerðinni
DC-10 var á leiðinni frá N’Djamena,
höfuðborg Tsjad, til Parísar. Tuttugu
mínútum eftir flugtak sagðist flug-
maðurinn ætla að láta í sér heyra
eftir aðrar tuttugu mínútur. Það voru
síðustu ijarskiptin milli flugvélarinn-
ar og flugturnsins í N’Djamena. Eft-
ir 18 tíma leit fannst brakið 650 km
norðvestur af N’Djamena á einum
afskekktasta stað jarðar. Hlutar úr
þotunni voru dreifðir yfir 40 ferkíló-
Pólska ríkisstjórnin vill
aðstoð við einkavæðingu
Varsjá, London, Washington. Reuter.
PÓLLAND og Evrópubandalagið
(EB) undirrituðu á þriðjudag
fyrsta viðskiptasamning þessara
aðila og er þar kveðið á um að
pólskum vörum verði veittur
greiðari aðgangur að mörkuðum
EB. Einnig er gert ráð fyrir stór-
aukinni samvinnu á ýmsum svið-
um, m.a. í landbúnaði og Ijarskipt-
um. Pólskir ráðamenn segjast ekki
búast við að samningurinn hafi
víðtæk áhrif á viðskiptin við EB
þegar í stað en hann sýni bættan
hug EB-þjóða í garð Pólverja.
Francois Mitterrand Frakklands-
forseti telur brýnasta vanda Pól-
verja nú vera gjaldeyrissskort en
auk þess þurfi þeir að fá tæknilega
aðstoð og hvetur hann til sameig-
inlegs átaks vestrænna ríkja í
þessu skyni.
Framkvæmdastjórn EB annast
samræmingu á stuðningsaðgerðum
24 vestrænna ríkja til handa Pólveij-
um og Ungveijum. EB er byijað að
senda nautakjöt til Pólverja og á
næstunni fá þeir hveiti, fóðurvörur,
ólífuolíu og ávexti. Bandalagið hefur
heitið Póllandi neyðaraðstoð að and-
virði 120 milljóna Bandaríkjadollara
(7.200 milljóna ísl.kr.).
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, varaði við því á
blaðamannafundi á þriðjudag- að
Vesturveldin veittu íjárhagsaðstoð
án skilyrða. „Við viljum ekki endur-
taka mistqkin sem vestræn iðnríki
gerðu á áttunda áratugnum þegar
við dældum fé í pólskt efnahagslíf
án þess að krefjast raunhæfra að-
gerða í efnahagsmálum," sagði Ba-
ker. Hann bætti við að leggja yrði
Reuter
Tadeusz Mazowiecki, forsætis-
ráðherra Póllands, ásamt Roland
Dumas, utanríkisráðherra
Frakklands, eftir að fyrsti við-
skiptasamningur Pólverja við
Evrópubandalagið hafði verið
undirritaður.
áherslu á áætlanir sem gerðar hefðu
verið um stuðning við uppbyggingu
einkafyrirtækja í Póllandi.
Hubert Janizsewski, sem er að-
stoðarforstöðumaður þeirra stofnun-
ar í Póllandi er annast umsjón með
erlendum fjárfestingum í landinu, er
nú staddur í Bretlandi. Hann sagði
ríkistjórn Tadeusz Mazowieckis ætla
að fá erlenda aðila til að aðstoða við
að einkavæða mikilvæg fyrirtæki í
landinu. „Ljóst er að skipasmíða-
stöðvar eru þar efst á blaði," sagði
Janizsewski. „En einnig kemur til
greina að einkavæða fyrirtæki í létta-
iðnaði :. . ríkisstjórnin hefur ekki
enn metið stöðuna í öllum fram-
leiðslugreinum." Hann sagði að and-
staða væri útbreidd meðal verka-
manna við þessar hugmyndir og
stjórnin yrði að fara gætilega; það
tæki mörg ár að vinna bug á kredd-
um um bandaríska kapítalista sem
kreistu blóðið úr verkalýðnum. Reka
yrði áróður fyrir einkavæðingunni
og útskýra hvað hún merkti í reynd.
Hann sagði ennfremur að ekki
væru allir sammála um ágæti er-
lendra Ijárfestinga. Verkamenn hjá
keramik-verksmiðju hefðu í at-
kvæðagreiðslu fellt tillögu um sam-
vinnu við ítalskt fyrirtæki. Ástæðan
var sú að þeir sem hefðu fengið störf
hjá fyrirhugaðri, nýrri verksmiðju
hefðu fengið hærri laun. „Verka-
mennirnir eru vanir samfélagi jafn-
aðar þar sem allir fá sömu laun, án
tillits til framlags," sagði Janizsew-
ski.
metra svæði í Nígeríuhluta Sahara-
eyðimerkurinnar. „Brakið er dreift
um það stórt svæði að allt bendir til
að sprenging hafi orðið í mikilli hæð,“
sagði Michel Friess, talsmaður flug-
félagsins UTA, í gær.
Næstu byggðu ból eru í hundruð
kílómetra ijarlægð frá slysstað og
því stóðu franskar björgunarsveitir
frá Tsjad og hersveitir frá Nígeríu
andspænis erfiðu björgunarverkefni
í gær. Talsmenn hersins sögðust ótt-
ast að enginn hefði lifað slysið af.
Fréttir af fjölda farþega voru mjög
óljósar í fyrstu og enn hefur ekki
fengist staðfestir hvpijir voru um
borð. Vitað er að flestir farþeganna
voru Afríkumenn en auk þeirra var
31 Frakki, nokkrir bandarískir
starfsmenn Exxon olíufélagsins og
Italir og Svisslendingar meðal far-
þega. Talið er að skipulagsmálaráð-
herra Tsjad og eiginkona bandaríska
sendiherrans í Tsjad hafi einnig ver-
ið um borð.
Ókunnur maður hringdi í UTA í
gær og segist talsmaður flugfélags-
ins ekki taka þá hringinu alvarlega.
Annar ókunnur maður hringdi í al-
þjóðlega fréttastofu í London í gær
og tilkynnti að öfgasamtökin Heilagt
stríð hefðu sprengt þotuna í loft
upp. Hann talaði ensku með erlend-
um hreim og sagði að þetta ætti að
kenna Frökkum að hætta að skiptast
á upplýsingum við ísraela um _Hiz-
bollah-leiðtogann Sheik Obeid. ísra-
elár hafa Obeid nú í haldi eftir að
hafa rænt honum í Suður-Líbanon.
Franskif embættismenn segjast
draga trúverðugleika þessarar
simhringingar í efa því venjulega
gefi Heiiagt stríð út yfirlýsingar á
arabísku í Beirút.
Fréttaflutningur
Prövdu s’affnrýndur
Moskvu. Reuter.
VITALY Tretjakov, aðstoðarritstjóri vikublaðsins Moskvufrétta, segir
í leiðara í blaði sínu í gær að þýðing flokksmálgagnsins Prövdu á
níðgrein um fulltrúaþingmanninn Boris Jeltsín hafi brotið gegn reglum
um sanngjarnan fréttaflutning.
„Ritstjórar Prövdu lýstu því reyndar
yfir að greinin úr La Repubblica
hefði verið birt óstytt en þeir sáu
ekki ástæðu til að efast um að höf-
undur greinarinnar hefði farið með
rétt mál,“ sagði Tretjakov.
Grein ítalska blaðsins var birt í
Prövdu á mánudag og var Jeltsín þar
lýst sem drykkjuhrút og eyðslukló
sem hefði drukkið út gífurlegar fjár-
hæðir sem hann hafði fengið fyrir
fyrirlestrahald í Bandaríkjunum.
„Það er synd að sovéskir frétta-
menn skyldu ekki eiga hlut að máli
i þessum tímamótaatburði í anda
glasnost heldur þurft á aðstoð ítal-
skra dagblaða að halda,“ sagði í leið-
ara Moskvufrétta. „Svo viðist sem
sovéskir blaðamenn í Bandaríkjunum
hafi allir með tölu verið í fríi.“
START-viðræður risaveldanna:
Tilslakanir af hálfii Bandaríki amanna
Ylln .. I. I« n .. II m.l. ... . ' I' l» < . Iln il.i a.l. II111.4 i.».
Washington, Moskvu. The Daily Telegraph, Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum kveðast reiðubúin til að slaka á
kröfúm sínum í viðræðum við Sovétstjórnina um fækkun lang-
drægra kjaraorkuvopna, sem jafiian eru nefndar START-viðræð-
urnar. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, skýrði frá
þessu á þriðjudag en á morgun, fiistudag, hefst i Wyoming í Banda-
ríkjunum fúndur þeirra Bakers og Edúards Shevardnadze, ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna
Baker sagði á fundi með blaða-
mönnum í Washington að Banda-
ríkjamenn væru tilbúnir til að falla
frá þeirri kröfu sinni að hreyfan-
legar landeldflaugar yrðu bannað-
ar með öllu. Lét hann í Ijós þá
von að þetta gæti orðið til þess
að viðræðurnar kæmust á skrið
en bætti við að hann teldi enn
mikið verk óunnið áður en sarnn-
ingur um fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna yrði tilbúinn til
undirritunar. Talsmaður sovéska
utanríkisráðuneytisins, Gennadíj
Gerasímov, sagði á blaðamanna-
fundi í Moskvu í gær að Sovét-
stjómin fagnaði breyttri afstöðu
Bandaríkjamanna. Hann bætti við
að mikilvægt væri að útkljá önnur
deilumál-í viðræðum þessum. Tilt-
ók talsmaðurinn ágreining um
eftirlit með stýriflaugum í skipum
og kafbátum.
Bandarískir embættismenn
hafa fram til þessa talið að sátt-
máli um fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna þurfi að kveða á
um algjört bann við framleiðslu
og uppsetningu hreyfanlegra
landeldflauga. Tæpast sé unnt að
skilgreina fullnægjandi eftirlitsá-
kvæði verði einungis samið um
niðurskurð á þessu sviði kjarn-
orkuheraflans.
Sovétmenn eru öldungis
andvígir því að hreyfanlegar
kjarnorkueldflaugar verði bann-
aðar með öllu. Þeir ráða nú yfir
tveimur gerðum hreyfanlegra
landeldflauga; SS-24 og SS-25.
Bandaríkjamenn eiga á hinn bóg-
inn engar slíkar eldflaugar enda
tók Baker utanríkisráðherra fram
að þetta tilboð Bandaríkjamanna
væri háð því skilyrði að banda-
rískir þingmenn samþykktu að
smíðaðar yrðu hreyfanlegar land-
eldflaugar. Ákaft hefur verið deilt
um þetta á Bandaríkjaþingi en
stjórn Bush Bandaríkjaforseta vill
að smíðaðar verði hreyfanlegar
eldflaugar af gerðinni Midget-
man, sem borið geta einn kjarna-
odd og að eldflaugum af gerðinni
MX verði komið fyrir á hreyfan-
legum skotpöllum.
Ákveðið hafði verið að ný lota
viðræðna um fækkun langdrægra
kjarnorkuvopna hæfist á ný í
Genf á mánudag í næstu viku en
viðræðunum hefur verið frestað
um nokkra daga vegna fundar
utanríkisráðherra risaveldanna í
Bandaríkjunum. Fastlega er búist
við því að afvopnunarmál verði
efst á baugi og sagði James Ba-
ker að hann vænti þess að árang-
ur næðist í viðræðum um bann
við frámleiðslu efnavopna, tak-
markanir kjarnorkutilrauna og
fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna. Ráðherrarnir munu einnig
eiga óformlegar viðræður um
umbótastefnu stjórnvalda í Sov-
étríkjunum, hreyfingar þjóðernis-
sinna í Eystrasaltsríkjunum og
breytingar þær sem átt hafa sér
stað í Póllandi og Ungveijalandi.