Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 21
21
MQRGljNBlAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2.1, SEPTEMBER 1989
Flugslysið við Jótlandsstrendur:
Engar upplýsing-
ar á flugritunum
ENGAR upplýsingar er að finna
á flug- og hljóðritum skrúfuþotu
norska flugfélagsins Partnair
sem gefið geta vísbendingar um
hvað olli því að flugvélin hrapaði
í Norðursjó 8. september sl. A
hljóðritanum, sem tekur upp
samtöl flugmanna, heyrðist ekk-
ert eftir gangsetningu flugvélar-
innar og flugritinn stöðvaðist
skönimu fyrir óháppið. Ekki er
vitað hvers vegna.
Jíljóð- og flugritar norsku flug-
vélarinnar voru sendir til rannsókna
í London eftir að þeir náðust af
hafsbotni í síðustu viku. Viðstaddir
voru starfsmaður norska loftferða-
eftirlitsins og flugstjóri frá Partn-
air-flugfélaginu. Norska blaðið Aft-
enposten hafði eftir þeim að það
síðasta sem hefði heyrst á hljóðrit-
anum væri þegar flugmennirnir
hefðu gangsett hreyfla flugvélar-
innar. Síðan væri eins og segul-
bandið hefði stöðvast rétt fyrir flug-
tak. Útilokað væri að segja hvers
vegna. Væri það liður í skylduverk-
um áhafnar fyrir flug að gangsetja
hljóðritann og ganga úr skugga um
að hann starfaði eðlilega.
Rannsókn á flugritanum leiddi í
ljós að flugvélin var í réttri hæð,
22.000 fetum, og hafði verið 34
mínútur og 55 sekúndur á lofti
þegar hún hrapaði skyndilega niður
í Tannisbugtina norður af Hirtshals
í Danmörku. Hætti flugritinn að
nema upplýsingar um starfsemi
hreyfla og stjórnkerfa rétt áður en
hún hrapaði. Allt hefði verið með
eðlilegum hætti þangað til en þó
hefði hraði flugvélarinnar aukist á
síðustu stundu um 16 hnúta, eða
26 km/klst.
Með því að rannsaka upptökur
ratsjárstöðvar í Danmörku og upp-
tökur AWACS-eftirlitsflugvélar
Atlantshafsbandalagsins, sem var á
flugi í nágrenni slysstaðarins, hefur
tekist að reikna út feril flugvélar-
innar síðustu mínútur fyrir brot-
lendingu. Þar kemur fram að hún
breytti nokkrum sinnum um stefnu
síðustu þijár mínúturnar áður en
hún hvarf af ratsjám. Nam stefnu-
breytingin á tímabili allt að 180
gráðum. Ennfremur var reiknað út
að flugvélin hefði á einni mínútu
steypst úr 22 þúsund fetum í 11
þúsund fet. Eftir það koni hún ekki
fram í ratsjám.
Fulltrúai' norska loftferðaeftir-
litsins sögðú að svarið við þv; hvers
vegna flugvélin fórst væri líklega
að finna í braki hennar, sem nú er
unnið að því að ná upp af hafsbotni.
Kína:
Vitað um af-
tökur 242
manna í Kína
London. Reuter.
AMNESTY International, hin
alþjóðlegu mannréttindasam-
tök, sögðu í gær að vitað
væri um 242 menn sem teknir
hefðu verið af lífi fyrir meinta
glæpi í Kína það sem af væri
ári.
Amnesty sagði að talan væri
eflaust enn hærri. Líklegt væri
að margir hinna fjögur þúsunda
manna, sem teknir hefðu verið
fastir eftir aðför alþýðuhersins
gegn umbótasinnum í bytjun
júní, hefðu verið teknir af lífi.
Vitað væri um a.m.k. 137 sem
látnir hefðu verið gjalda þátt-
töku í í aðgerðum umbótasinna
með lífi sínu.
Sjúklingar í Fær-
eyjum óskilvísir
__ Þórshöfn. Frá Snorra Halldórssyni, fréttaritara Morgunblaósins.
ÁRLEGA hverfur af Landssjúkrahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum fatn-
aður, sem metinn er á hálfa milljón ísl. kr. Á spjöldum, sem sjúkra-
hússtjórnin hefur sett upp, segir, að í fyrra hafi þessi rýrnun verið
fólgin í 1.200 buxum, 400 nærskyrtum, 300 brjóstahöldum og 200
handklæðum.
Forstöðukona þvottahússins seg-
ir, að leitt sé til þess að vita, að
fólk skuli ekki bera meiri virðingu
fyrir opinberum eigum en tekur
fram, að stundum sé um athugunar-
leysi að ræða. Þegar sjúklingar eru
útskrifaðir fara sumir heim í nær-
fatnaði af sjúkrahúsinu og margir
senda hann síðan aftur. Þeir eru
samt til, sem hafa reynt að fela
upprunann með því að lita fatnað-
inn. Segist hún stundum hitta fólk
á förnum vegi, sem finnist sjálfsagt
að ganga í fötum rækilega merktum
Landssjúkrahúsinu. Hefur nú vet'ið
ákveðið að fylgjast betur með þessu
en hingað til.
GARÐASTÁL
Á þök og veggi
= HÉÐINN =
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ SÍMI 520Ö0
með Silvia's mother, Cover of the Rolling Stones, Only Sixteen og
öll hin góðu lögin á Hótel íslondi í kvöld og laugardagskvöld.
Dr. Hook er ein allra, allra skemmtilegasta hljómsveit sem hingað
hefur komið, enda eru lögin stórkostleg, félagarnir hressir og fram-
koman einstaklega lífleg.
Missið nú ekki af hrikalega góðu stuði með 0 ;HOOK
Akureyringar!
Munið Dr. Hook föstudagskvöld íSjallanum.
Miðasala og borðapantanir daglega í Hótel íslandi og í Sjallanum.
SiM**
* 96-22970
HÖTEL fjUAND
687111
Hvort sem þú ert byrjandi eða
keppnismaður í íþróttinni þá bjóðum
við uppá 5 glæsilega Squash-velli og
einn Racketball-völl sem gefa bestu
völlum Evrópu ekkert eftir.
Pantaðu tíma núna fyrir veturinn
í Squash eða Racketball hjá
Squash-Klúbbnum Stórhöfða 17
(við Gullinbrú).
Pantanir teknar
í síma 67 43 33
--u
KLUBBURINN
Stórhöfði 17
LEIKTU S0UASH
A FRÁBÆRUM VÖLLUM