Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 30

Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 30
'30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. SEPTEMBER 1989 VilborgO. Bjömsdóttir frá Laufási - Minning Fædd 2 7. nó Vember 1901 Dáin 12. september 1989 Bogga frænka, eins og fjölskylda hennar kallaði hana, fæddist í Lauf- ási við Eyjafjörð, dóttir prestshjón- anna þar, séra Björns Björnssonar og Ingibjargar Magnúsdóttur. Vilborg ólst upp í Laufási, að undanskyldum námsárum sínum við Kvennaskólann í Reykjavík, til 23ja ára aldurs, að hún flutti ásamt móður sinni til Reykjavíkur, eftir andlát föður síns. Ingibjörg lét reisa stórt íbúðar- ~*'hús við Sólvallagötu 17, sem hýst hefur stóran hluta fjölskyldunnar gegnum árin allt til dagsins í dag. Þar bjó hún ásamt Vilborgu, sem alla tíð var hennar hjálparhella, þar til hún lést. Ingibjörg hélt saman hinni stóru fjölskyldu, með sinni mildu hendi, og eftir andlát hennar tók Vilborg við því hlutverki, og eru margar ljúfar endurminning^r frá sam- verustundum fjölskyldunnar á Sól- vallagötunni. Fljótlega eftir flutninginn til Reykjavíkur hóf Vilborg störf hjá Landsíma íslands, á langlínudeild, og starfaði þar í 47 ár, lengi sem varðstjóri. I þá tíð, þegar öll samtöl til og frá landsbyggðinni voru hand- virk, stárfaði mikill fjöldi kvenna á langlínudeildinni, og hafa margar þeirra sem störfuðu undir stjórn Vilborgar sagt mér að annan eins Skrifstofutækninám Betra verð - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66 FATAS KÁPAR á frábœru verði rataskáparnir frá okkur vekja athygli fyrir góöa hönnun, fjölbreytt útlit og ekki frábært verö. Það er spennandi að heimsækja okkur. Sjáumst! Funahöfða 19, sími 685680 yfirmann hafi þær ekki haft, hún hafi borið umhyggju fyrir þeim sem með henni stöi’fuðu, og tekið þátt í meðlæti þeirra sem mótlæti eins og besta móðir, eins og ein af þess- um talsímakonum tjáði mér. Fyrir utan fjölskyldu sína og störf hennar á Landsímanum voru útivist og ferðalög helstu áhugamál henn- ar. Hún ferðaðist mikið erlendis en þó enn meir um landið sitt og sér- staklega þótti henni ánægjulegt að ferðast um óbyggðir landsins, og þær voru ófáar gönguferðirnar um nágrenni Reykjavíkur. Boggu þótti mjög vænt um Lauf- ás og sagði okkur bræðrabörnum sínum margar sögur frá æskuárum sínum í Laufási og hafði hún óskað þess að jarðneskar leifar sínar fengju að hvíla þar. Blessuð sé minning þessarar elskulegu frænku minnar. Björn Björnsson Föðursystir mín Vilborg Oddný Björnsdóttir var eina dóttir 6 barna Ingibjargar Magnúsdóttur og séra Björns Björnssonar prests í Laufási við Eyjafjörð. Bræður hennar voru: Magnús Björnsson stýrimaður, Björn Björnsson bankafulltrúi, Jón S. Björnsson bankafulltrúi, Stefán Björnsson tollvörður og dr. med. Jóhannes Björnsson læknir, sem allir eru látnir. Með þeim eru gengn- ir fulltrúar þeirrar kynsjóðar, sem stóðu traustum fótum á íslandi fyr- ir og eftir lýðveldistökuna og þeirr- ar menningar sem þá var. Vilborg, Bogga frænka, var lengst af varðstjóri hjá Landsíma íslands og átti heimili með móður sinni á Sólvallagötu 17, sefn Ingi- björg reisti ásamt börnum sínum, eftir hún varð ekkja og flutti til Reykjavíkur 1924. Vilborg var mikill unnandi íslenskrar náttúru og undi sér best í skauti hennar, en hún tregaði það mest seinustu ár ævinnar, er heils- unni hnignaði, að geta ekki notið náttúrunnar sem fyrrum. Vilborg var í miklu uppáhaldi hjá bræðrum sínum og frændsystkinum og var mikið um gestakomur á heimili hennar, sem var innréttað af mikilli smekkvísi, og sömuleiðis var hún tíður og ljúfur gestur hjá vinum og vandamönnum. Hún varð miðpunktur ættarinnar við' fráfall móður sinnar 1962 og var ætíð tekið á móti mér af mik- illi élsku og fyrr en varði var Vil- borg búin að leiða mig fram og aftur í tímann, oft aftur í aldir, í frásagnarhæfni sinni um menn og málefni innan og utan ættarinnar og ekki síst í minningunum frá æskuheimilinu, Laufási við Eyja- fjörð, sem hún kenndi sig ávallt við. Björn H. Jóhannesson Vilborg Oddný Björnsdóttir frá Laufási er látin. Bogga frænka er dáin, síðust systkinanna frá Laufási við Eyja- fjörð. Þar verður hún jarðsett, enda finnst mér að hún hafi tæpast farið þaðan; þar dvaldi hugur hennar löngum. Er afi dó fluttist ijölskyldan til Reykjavíkur og Ingibjörg amma reisti fjölskylduhús á Sólvallagötu 17. Það hús var oft fullt af fólki, um jól, á afmælum eða á öðrum tyllidögum, frá kjallara og upp í ris. En þar bjó amma og stjórnaði öllu með myndarlegri festu. ■ En hjá henni var Bogga og sá um flest. Öll fengum við barnabörn- in jóla- og afmælisgjafir. Þær keypti hún Bogga frænka og gekk frá. Hún sá um bakkelsi og hlað- borð þegar veislur voru og hún sá um ömmu þegar undan hallaði hjá henni. Þegar amma féll frá tók Bogga frænka við hennar hlutverki. Hún fylgdist með barnabörnunum og barnabarnabörnunum og lét sig miklu skipta hvernig hveijum og einum vegnaði. Hún var góð kona og vildi öllum vel. Hún er horfin; enn ein þeirra, sem hverfa af þeirri kynslóð er ólst upp á þeim tíma er var nær miðöldum en nútímanum. Hún lifði fyrir aðra og ég er einn af þeim og fyrir það er ég þakklátur. Haddi Minning: Steinar Karlsson bifreiðasljóri Með örfáum orðum langar mig til að minnast góðs vinar, sem ég kynntist er ég hóf æfingaakstur hjá Strætisvögnum Reykjavíkur í maí- mánuði síðastliðnum fyrir sumaraf- leysingarnar. Það var þá sem ég var sendur upp í vagninn sem Steinar keyrði. Var þetta með mínum fyrstu æf- ingatímum, svo ég fann fyrir kvíða, en hann hvarf þó fljótt þegar ég var sestur undir stýri í vagninum hans Steinars. Hann var einn af mörgum vagnstjórum sem höfðu einkar gott lag á því að þjálfa ný- liða. Steinar hafði síðastliðinn vetur keyrt vagninn sem ég og konan mín þurftum svo oft að nota. Ófærð- in var mikil og erfitt var að bíða með tvö börn úti í kuldanum eftir strætó. Við vorum oft á ferðinni og ósjaldan þótti okkur miður að teíja strætó með því að koma barna- vagninum inn að aftan. Síðan var það í einum æfinga- tímanum, að Steinar segir við mig í mikilli einlægni: „Ég dáðist að ykkur, þér og konunni þinni í vet- ur, þegar þið voruð að ferðast með börnin ykkar í strætó; dáðist að ykkur.“ Eg man hversu vænt mér þótti um að heyra slík orð frá vagn- stjóra, eftir að hafa haft hálfgert samviskubit af ferðum mínum með strætó, með barn í vagni og annað í burðarpoka, því sjálfur veit ég að mörgum vagnstjóranum er illa við barnavagna og farangur sem far- þegar hafa með sér. En það setti Steinar ekki fyrir sig, heldpr dáðist að fólki sem notaði þjónustu vagn- anna og sýndi með því það andlit Strætisvagna Reykjavíkur, sem yfirmenn og eftirlitsmenn SVR mega vera stoltir af. Eftir æfingaaksturinn leit ég í kringum mig eftir Steinari, en af einhveijum ástæðum sem ég ekki vissi hveijar voru kom ég ekki auga á þennan góða dreng við akstur strætisvagnanna. Saknaði ég hans sem eins af lærifeðrum mínum hjá SVR, og kveð hann hér með um leið og ég óska honum Guðs bless- unar, og aðstandendum styrk í sorg þeirra. Einar Ingvi Magnússon

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.