Morgunblaðið - 21.09.1989, Side 37
MORGÍJNBLÍADID' BIMMTUDAGl'R 21. SEPTEMbí!r 198>)
3?
Hljómsveitin Antik. F. v. Haukur Garðarsson gítarleikari, Ásgrímur
Angantýsson hljómborðsleikari og Bjarni Ómar Haraldsson sem syng-
ur og spilar á gítar. Efri röð f.v. Einar E. Sigurðsson trommuleikari
og Halldór Þórólfsson bassaleikari.
Einar
spilar
á trommur
og „raddar“
V-þýsk jakkaföt
Gæóavara - Gott veró
Stakir jakkar og buxur
Leóurjakkar
Mikió úrval af peysum
Frakkar - Bindi - o.m.fl.
Verið velkomnir
RAUFARHOFN
Halda uppi Qöri á
N or ðausturlandinu
ARaufarhöfn eru fimm ungir
menn með hljómsveit sem
gengur undir nafninu Antik. Einn
hljómsveitarfélaganna Einar E.
Sigurðsson segir að til standi að
skipta um nafn á hljómsveitinni
fljótlega. „Nafnið er villandi," sagði
hann. „Fólk gæti haldið að við
værum einhverjir gamlir karlar sem
spiluðu bara gamla tónlist. En við
erum kornungir menn sem spilum
nútímalega tónlist, en auðvitað eru
gömul lög innan um, t.d. rokk og
þess háttar.“ Hljómsveitin var
stofnuð um síðustu áramót en félag-
ar í henni hafa verið við hljóð-
færaleik síðastliðin fimm ár. Hljóm-
sveitin hefur spilað fyrir dansi víða
á norð-austurlandi. Hljóðfærin eru
hljómborð, tveir gítararar, bassi og
trommur. Einar spilar á trommur
og „raddar“.
„Eg byijaði að spila á trommur
þegar ég var fimmtán ára, en ég
er tuttugu og_ tveggja ára núna,“
segir Einar. „Ég er fæddur á Rauf-
arhöfn og uppalinn hér, sem og
aðrir í hljómsveitinni Antik. Við
æfum þrisvar í viku. Við spilum
helst hefðbundna dansmúsik og svo
rokk, þó ekki þungarokk. Við spil-
um það hins vegar fyrir okkur sjálfa
á æfingum. Við semjum einnig lög
og það stendur til að hljóðrita í
stúdíói eitthvað af lögunum okkar
á næstunni. Jónas Friðrik ætlar að
semja fyrir okkur texta við tvö lög.
Hann hefur m.a. samið hefur texta
fyrir Rió tríóið.
Við spilum fyrir dansi á ýmsum
stöðum hér í kring. Sú tónlist sem
okkur virðist höfða mest til fólks
núna er svokallað diskórokk. Við
höfum lagt mikla peninga í tækja-
kaup og eigum góð hljóðfæri. Við
vorum hins vegar í mestu vandræð-
um með að fá bíl til að flytja okkur
á milli. En nú höfum við fengið
rútu. Hún bilaði nú reyndar í tveim-
ur fyrstu ferðunum svo að við urð-
um alltof seinir á dansstað. Við
urðum því að stilla upp hljóðfærun-
um í miklum flýti og byija svo að
spila lafmóðir. En svona er þetta,
það gengur á ýmsu í spilamennsk-
unni. Við höldum stundum böll
sjálfir en það er mikið happdrætti.
Við þurfum núna að borga fyrir
alla löggæslu og það eru aldrei
færri en þrír löggæslumenn á
hveiju balli. Þetta var ekki svona
áður, þetta eru einhver ný lög.
Annars eru böllin hér yfirleitt mjög
róleg. Á veturna er ekki mikið um
að vera í skemmtanalífinu. Það má
segja að þetta jafnist út, fólk
skemmtir sér talsvert á sumrin en
lítið á veturna. Það er mikið af
unglingum hér á sumrin, koma
margir hingað til að vinna í frysti-
húsinu. En á veturna fer flest allt
ungt fólk í skóla og mikið af því
fólki kemur ekki hingað aftur. Það
sest að fyrir sunnan."
Auk hljómsveitarstarfsins hefur
Einar staðið fyrir hótejrekstri á
Raufarhöfn á sumrin. Á veturna
hefur hann verið j Hótel og veitinga-
skóla íslands. „Ég valdi þetta nám
m.a. vegna þess hve dýrt það er
að halda sér uppi fyrir sunnan þeg-
ar maður á ekki heimili þar. Ég var
í Iðnskólanum hálfan vetur en
ákvað svo að fara í nám þar sem
ég kæmist á samning. Þá gæti ég
lært og fengið einhvert kaup. Ég
er alveg sæmilega sáttur við þetta
nám en ég held þó að ég komi ekki
til með að vinna við þetta alla mína
æfi. Maður finnur líka vel fyrir sam-
drættinum í þjóðfélaginu í þessari
vinnu. Ég hef verið kokkur á sjó
og gæti hugsað mér að vera það
um tíma, en ekki til langframa."
gsg
Sk>ATOM
MATGERÐ KEJSARANS
FINA I KINA
MATSEÐILL
Fiskisúpa Keisarans í Kína
Humar fyrir hermanninn að austan
Kjúklingur Swaton steiktur við múrinn.
Hörpudiskur pönnusteiktur m/lauk
Lambakjöt í súrsætri sósu Shanghai
Krabbakjöt með sveppum og Swatonsoði
Cha Chi Kai: kjúklingur létt steiktur
Nautakjöt: woksteikt í mildu kryddi
TILBOÐ FYRIR TVO
Fiskisúpa • Humar • S watonkj úklingur
Krabbi með sveppum*Nautakjöt*Kaffi
________________1190 kr. pr.mann_________________
Swaton er blómlegt hérað við borgina Shanghai í Kína. Þar er kínversk
matargerðarlistbyggðágamalliheiðmeðmildum kryddtegundum og ein-
faldri samsetningu réttana. Swaton héraðið er þekkt fyrxr góða matgerð
og matreiðslumeistarar Kínversku keisaranna voru ævmlega frá Swaton
en þar er heimspekingurinn Konfúsíus fæddur.
Næstu vikur verður Swaton matur á matseðilinum á veitinga
húsinu Shanghai og ljóst og dökkt Tsing tao öl frá Kína .
Kínverska veitingahúsið, Laugavegi 28b, sími: 16513.