Morgunblaðið - 22.09.1989, Side 5

Morgunblaðið - 22.09.1989, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1989 5 Bryndís, önnur dætra Jóns Stefánssonar, og Bera Nordal, forstöðu- maður Listasafns íslands, virða fyrir sér „Hesta á fjalli" sem Jón málaði kringum 1926. Yfirlitssýning á verk- um Jóns Stefánsson- ar í Listasafhi Islands YFIRLITSSÝNING á verkum listmálarans Jóns Stefánssonar verð- ur opnuð í Listasafni íslands á morgun, laugardag. Þetta er fyrsta sýningin sem spannar allan feril listamannsins og er elsta myndin talin vera frá um 1910 þegar hann var við nám í París og þær yngstu málaði Jón kringum 1960 en hann lést árið 1962. Myndir Jóns prýða alla sali safnsins, sýningin er sú stærsta í Listasafninu til þessa og á sér áð sögn forstöðumannsins, Beru Nordal, margra ára aðdraganda. Hrafnhildur Schram listfræðingur segir að sýning- in muni veita óvenju sterka og heildstæða mynd af listferli þessa málara, sem verið lia.fi einn áhrifamesti frumkvöðull íslenskrar nút- ímalistar. Blaðamaður átti þess kost að ganga um saii Listasafnsins í vik- unni í fylgd Beru Nordal, forstöðu- manns, Bryndísar Jónsdóttur, sem er önnur dæta málarans, Hrafn- hildar Schram og Ólafs Kvaran, forstöðumanni Listasafns Einars Jónssonar, sem rýnt hefur í feril listamannsins og valið myndir á sýninguna. Landslagsmyndir Jóns eru mörg- um íslendingum að góðu kunnar og skipa að sjálfsögðu veglegan sess á sýningunni. Þær hóf Jón þó ekki að mála fyrr en á þriðja ára- tug aldarinnar, en áður hafði hann einbeitt sér að mannamyndum, módelstúdíum og uppstillingum. Þessir efnisflokkar eiga allir full- trúa meðal þeirra 118 mynda sem á sýningunni eru. Bera Nordal segir að sýningin eigi sér langan aðdraganda. Ákveð- ið hafi verið þegar safnið flutti í nýtt húsnæði að fyrsta stóra sýn- ingin yrði á verkum Jóns og áhersla þannig lögð á áhrif hans í mótun íslenskrar myndlistar. Listasafnið eignaðist stóran hluta dánarbús ekkju málarans snemma á síðasta áratug og á það sinn þátt í því að sýningin varð að veruleika. Rúmur fjórðungur verka á sýningunni er þó fenginn að láni úr stofnunum, fyrirtækjum og frá einkaaðilum. Talsvert af myndum kom frá Dan- mörku þar sem Jón bjó um árabil, þar á meðal lánar Ingiríður drottn- ingarmóðir eitt verk. Þetta er fyrsta yfirlitssýning á verkum listamannsins frá því að hann lést fyrir 27 árum en önnur slík sýning var í Listasafninu árið 1952. Jón hélt raunar fáar sérsýn- ingar um ævina og þóttu þær jafn- an mikill listviðburður. Jón Stefánsson fæddist á Sauð- árkróki árið 1881. Hann lauk stúd- entsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavik aldamótaárið og hóf myndlistamám í Kaupmannahöfn 1903 eftir nokkur ár við verk- fræðinám þar í borg. Árið 1908 hélt Jón til Parísar þar sem hann sat í skóla Henri Matisse um þriggja ára skeið og kynntist hinni pólskættuðu Elsie er varð fyrri kona hans. Frá 1913 og öll stríðsár- in bjó listamaðurinn í Kaupmanna- höfn. Þar var hann til að byija með óánægður með verk sín og eyðilagði þau jafnóðum, svo að fátt eitt hefur varðveist frá því fyrir 1917. Jón var búsettur á íslandi frá 1924 til 1937. Hann reisti sér íbúð- arhús með vinnustofu við Berg- staðastræti í félagi við Ásgrím Jónsson listmálara. Þar bjó Jón eftir að hann sneri heim frá níu ára Danmerkurdvöl og allt til dauðadags árið 1962. Þegar Jón dvaldi í Danmörku kom hann oft til íslands á sumrin til að mála. Margar mynda hans bera vitni um að landið hafi átt í honum sterk ítök og oft er ijallið tákn þess, að sögn Beru Nordal. Allnokkrar sjávarmyndir eru sýningunni í Listasafninu og kveðst dóttir Jóns, Bryndís, halda einna mest upp á þær. Hún segir að það hafi komið sér á óvart að mikið af myndunum á sýningu Lista- safnsins hafi hún aldrei séð fyrr, henni verði æ betur ljóst hve af- kastamikill málari faðir hennar hafi verið. Reylyavíkurborg lánaði „Hraunteig við Heklu“ á yfirlitssýninguna í Listasafni íslands. Myndin er frá 1930. Svavar Egilsson kaupir hlut í Ferðamiðstöðinni Veröid: Stærstu hluthafar seldu sitt SVARAR Egilsson kaupsýslu- inaður hefur keypt eignarhluta Sigurðar Garðarssonar og Sig- urðar Arnar Sigurðssonar í Ferðamiðstöðinni Veröld. Svavar verður stjórnarformaður fyrir- tækisins. Andri Már Ingólfsson verður áfram framkvæmdastjóri Ferða- miðstöðvarinnar Veraldar. Andri Már vildi ekki upplýsa hve stór hundraðshluti hlutafjár fyrirtækis- ins hefði skipt um hendur í þessum viðskiptum. Hann vildi ekki upplýsa hvert kaupverðið hefði verið. Andri Már staðfesti að undarfar- ið hefði aðstandendur Veraldar, ferðasKrifstofanna Sögu, Polaris og Samvinuferða Landsýnar varpað fram og rætt sín á milli hugmyndir um sameiningu fyrirtækjanna. Þær viðræður hefðu þó aldrei komist á neitt formlegt stig. Hann vildi ekki fullyrða að slíkar viðræður yrðu úr sögunni með inngöngu Svavars Egillssonar í Veröld en sagði telja að forséndur hefðu breyst við það, enda hefði Svavar komið til liðs við Veröld í þeim tilgangi að skjóta enn sterkari stoðum undir reksturinn. AIIKLIG4RDUR MARKAÐUR VIÐ SUND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.