Morgunblaðið - 22.09.1989, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 22.09.1989, Qupperneq 17
MQRGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 22,- SEPTEMBEfi 1989 47 Skákþing unglinga haldið um helgina KEPPNI Skákþings íslands 1989 í drengja- og telpnaflokki, fædd 1974 eða síðar, verður dagana 22.-24. september nk. Tefldar verða 9 umferðir eftir Monrad- keríí og er umhugsunartími 40 mín. á skák fyrir keppanda. Ef næg þátttaka fæst, verður sérstakur telpnaflokkur, annars verður hafður sami háttur og und- anfarin ár. Umferðataflan er þannig: Föstu- dagur 22. sept. kl. 19-23 1., 2. og 3. umferð. Laugardagur 23. sept. ki. 13-18 4., 5. og 6. umferð. Sunnudagur 24. sept. kl. 13-18 7., 8. og 9. umferð. Teflt verður í félagsheimili TR á Grensásvegi 46, Reykjavík. Þátt- tökugjald er kr. 600. — Innritun fer fram á skákstað föstudaginn 22. september kl. 18.30-18.55. Skákstjóri verður Ólafur H. Ól- afsson. MORSE CONTROL Stjórntæki fyrir vélar og gíra, spil o.fl. Stýrisvélar og stýri. Mikið úrval fyrirliggjandi. Flestar lengdir og sverleikar af börkum. Fyrir allar vélategundir og bátagerðir. Hagstætt verð - leitið upplýsinga. VÉLASALAN H.P. ÁNANAUST 1, REYKJAVIK. SÍMI 91-26122 Haustferð Sjálfstæðis- manna í Nes- og Melahverfi FÉLAG Sjálfstæðismanna í Nes- og Melahverfi eftiir til hinnar árlegu haustferðar sunnudaginn 24. september. Að þessu sinni verður farið í skoðunarferð um Reykjavík undir leiðsögn Davíðs Oddssonar, borgarstjóra. í ferðinni verður meðal annars komið í Borgarleikhú- sið, Höfða og Vatnsveituna. Þá verður við- dvöl á Kjarv- alsstöðum og veitingar þegn- ar þar í boði félagsins. Öll- um eldri borgurum hverfisins er að venju boðið í haustferðina. Lagt verður af stað frá Nes- kirkju klukkan 13.30 á sunnudag- inn. Skráning þátttakenda er á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins að Háaleitisbraut 1, til klukkan 17 á föstudag. Bent Larsen tef lir á helg- arskákmóti á Egilsstöðum DANSKI stórmeistarinn Bent Larsen mun taka þátt í helgar- skíikmóti tímaritsins Skákar, sem fram fer á Egilsstöðum helg- ina 22. til 24. septeinber. Hér er um að ræða 38. helgar- skákmótið, sem tímaritið Skák efn- ir til og er það nú í fyrsta sinn haldið á Egilsstöðum. Fyrirkomulag mótsins verður með þeim hætti, að fyrst eru tefld- ar tvær stuttar skákir og þá taka við fimm umferðir, þar sem hver keppandi hefur eina og hálfa klukkustund til að leika fyrstu 30 leikina, en síðan hálfa klukkustund til að ljúka skákinni. Fyrsta umferðin á helgarskák- mótinu verður tefld klukkan 18 föstudaginn 22. september, en því mun ljúka að kvöldi sunnudagsins 24. september. Fyrstu verðlaun eru 50.000 krónur, önnur verðlaun 25.000 krónur, þriðju verðlaun 15.000 krónur og fjórðu verðlaun 10.000 krónur. Sumir eru einfaldlega betri en aðrir í Vestur-Þýskalandi hefur verið leitt í Ijós, að Mitsubishi Colt/Lancer hafa meira rekstraröryggi en aðrir bílar í sama stærðarflokki. í könnun, sem hinn virti félagsskapur ADAC (Félag bifreiöaeigenda í V-Þýskalandi) lét gera árin 1986-1988 á 10.000 bifreiðum af öllum tegundum og geröum, kom fram að í flokki smærri fólksbíla reyndust Mitsubishi Colt/Lancer hafa lægsta bilanatíðni. Athuganir náöu yfir fyrstu þrjú ár þeirra bifreiða, sem valdar voru í könnunina, og dómsorð hinna þekktu neytendasamtaka að henni lokinni voru : „Engar bilanir, sem orö er á gerandi." Talsverður munur reyndist vera á Mitsubishi Colt/Lancer og þeirri bifreiðategund, sem næst var aö bilanatíðni og var sá munur svipaöur fyrir öll þrjú árin, sem könnunin tók til. Þetta er í sjötta sinn, sem áðurnefnd samtök setja Mitsubishi bifreiðir í efsta sæti á lista sinn yfir rekstraröryggi bifreiða. Sumir eru einfaldlega MITSUBISHI COLT/LHNCER

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.