Morgunblaðið - 20.10.1989, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. OKTÓBER 1989
Búnaðarbankinn:
Stefán Hilmarsson
lætur af störfum
Stefán Hilmarsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, hefur sagt
starfi sínu lausu, samkvæmt
upplýsingum, sem Morgnnblað-
ið hefiir aflað sér.
Hefur verið boðaður fundur í
bankaráði Búnaðarbankans í dag
kl. 11, þar sem fjallað verður um
ráðningu eftirmanns Stefáns.
Bankastjórar Búnaðarbankans
auk Stefáns eru Jón Adolf Guð-
jónsson og Stefán Pálsson. Að-
stoðarbankastjórar eru tveir, Sól-
on Sigurðsson og Sveinn Jónsson.
Launamálaráð BHMR:
Skerðingu lífeyris-
jframlags mótmælt
LAUNAMALARAÐ Bandalags
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna mótmælir harðlega tillög-
um í frumvarpi til fjárlaga, um
500 milljóna króna skerðingu á
Iögbundnu framlagi ríkissjóðs til
Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins.
í ályktun sem launamálaráð
BHMR hefur samþykkt segir, að
skerðingin á framlagi ríkisins til LSR
sé kynnt sem frestun á lögbundnu
framlagi ríkisins til lífeyrissjóðsins,
og takmarkið virðist vera að skapa
sjónhverfmgar um greiðslustöðu
ríkissjóðs með því að ganga í lífeyris-
sjóð starfsmanna. Launamálaráð
BHMR hvetur Alþingi til að fara
ekki inn á þá braut að falsa greiðslu-
stöðu ríkisins með því að beita laga-
setningarvaldi til að færa fé úr sjóð-
um starfsmanna í því skyni að lag-
færa tímabundið greiðslustöðu ríkis-
ins. Varar launamálaráðið stjórnvöld
við að freista þess að stefna lífeyris-
sjóði starfsmanna í greiðsluþrot, til
að knýja síðar fram stórkostlega.
rýrnun á loforðum um lífeyrisréttindi
tii handa starfsmönnum, en félags-
menn BIIMR muni svara slíkri árás
af fullum þunga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Magnús Sædal Svavarsson byggingarstjóri lýsir tæknibúnaði og kostum stóra sviðsins fyrir fréttamönn-
um. Á innfelldu myndinni eru menn að leggja síðustu hönd á sælgætissöluna í andyrinu.
Borgarleikhúsið vígt í kvöld:
Byggingarkostnaður er
orðinn um 1,5 milliarður
Styrkur Reykjavíkurborgar til Leikfélagsins hækkar
Tveir bílar
ultu í hálku
TVEIR bílar ultu á Reykjanes-
braut í gærmorgun en þá var
talsverð hálka á brautinni
vegna ísingar. Um klukkan
Qögur valt fólksbíl á suðurleið.
Okumaður var einn í bílnum.
Hann meiddist lítilsháttar, að
talið var, og fór til læknisskoð-
unar. Bíllinn er tnikið skemmd-
Um klukkan átta um morgun-
inn valt leigubíll við Vogastapa.
Auk ökumanns voru þrír farþegar
í bílnum. Þeir sluppu ómeiddir
en ökumaðurinn kvartaði undir
eymslum. Bíll hans er mikið
skemmdur.
FORMLEG vígsluathöfn Borgarleikhússins verður í kvöld en fjórf-
án ár eru liðin síðan byggingarframkvæmdir hófust. Heildarkostn-
aður er rúmlega 1,5 milljarðar króna en eftir er að vinna verk er
svarar til um 6% af kostnaði. Húsið rúmar 840 manns í sæti í sölun-
um tveimur en í Iðnó voru sæti fyrir 220 til 240 manns. Davíð
Oddsson borgarstjóri og formaður byggingarnefhdar segir, að
búast megi við að framlag Reykjavíkurborgar' til Leikfélagsins
hækkaði úr 40 milljónum á ári í 80 milljónir með auknum umsvif-
um félagsins. Styrkur rikisins hefiir verið 10 milljónir á ári.
„Það er vel að þessari byggingu
staðið og ekkert til sparað þó ekki
hafi verið bruðlað,“ sagði Davíð
þegar fjölmiðlum var boðið að
skoða húsið. Sagði hann að bygg-
ing hússins hefði verið mikið átak
rétt eins og þegar iðnaðarmenn
reistu Iðnó um aldamótin en í þessu
húsi sem er um 11 þúsund fermetr-
ar mætti víða koma gamla Iðnó
fyrir. Nefndi hann sem dæmi að
æfingarsalur á fjórðu hæð vær
jafn stór salnum í Iðnó. Sagði hann
að mikil ánægja væri með húsið,
það hefði reynst vel og minntist
þess að sænski leikstjórinn Ingmar
Bergmann hefði hrifist af nálægð
áhorfenda við sviðið er hann skoð-
aði húsið og sagt að engu væri
líkarar en að listafólk hefði ráðið
meiru um hönnunina en stjórn-
málamenn. „Og það er rétt,“ sagði
Davíð.
Tómas Zoéga framkvæmda-
stjóri Leikfélagsins sagði að um
110 til 130 manns ynnu að meðal-
' tali hjá félaginu. Fastráðnir starfs-
menn eru um 40, þar af um 20
leikarar. Enn hefur ekki verið
bætt við starfsmönnum i nýja hús-
inu en stefnan er að halda sem
flestum lausráðnum. „Þetta er
miskunnarlaust en Leikfélag
Reykjavíkur er sjálfseignarstofnun
og menn í ábyrgðum með allar fjá-
skuldbindingar," sagði Tómas.
Þegar byggingarnefnd hefur lokið
störfum verða afskipti borgarinnar
af leikhúsinu lítil sem engin. Árleg-
ur rekstrarkostnaður Leikfélagsins
er um 100 til 110 milljónir á ári.
Byggingamefnd húsins skipa nú
Davíð Odsson formaður, Steinþór
Sigurðsson leikmyndateiknari,
Þórður Þ. Þorbjarnarson borgar-
verkfræðingur og til vara Katrín
Fjeldsted borgarfulltrúi, Sigurður
Karlsson leikari og Tómas Zoéga.
Arkitektar hússins em þeir Guð-
mundur Kr. Guðmundsson, Ólafur
Sigurðsson og Þorsteinn Gunnars-
son.
Reykjavíkurborg hefur látið
gera kynningarbækling um Borg-
arleikhúsið sem dreift verður til
borgarbúa og munu leikarar Leik-
félags Reykjavíkur sjá uni dreif-
inguna.
Aflaverðmæti og fískkaup eftir verstöðvum 1988:
Reykjavíkurflotmn skilaði
mestum aflaverðmætum
Akureyringar verja mestu fé af öllum verstöðvum til fiskkaupa
AFLAVERÐMÆTI reykvískra fiskiskipa er töluvert meira en afla-
verðmæti skipa frá öðrum verstöðvum. Þessi skip öfluðu fyrir 3,3
milljarða á síðasta ári, en Vestmannaeyjaflotinn var næstur í röð-
inni með 2,8 milljarða. Reykjavík er hins vegar aðeins í þriðja sæti
yfir verðmæti keypts afla til vinnslu. Fyrirtæki í borginni keyptu
físk fyrir 1,5 milljarða á síðasta ári. Mestu fé til fiskkaupa var varið
á Akureyri, 1,8 milljörðum, og næstmestu í Hafnarfirði, 1,6 millj-
örðum króna. Hlutur Reykvíkinga af heildaraflaverðmæti á síðasta
ári er 10,8% en hlutur borgarinnar í fiskkaupum aðeins 6,3%.
Reykjavíkurflotinn hefur því í verulegum mæli farið annað en til
heimahafnar með afla sinn.
Fiskifélag Islands hefur unnið
úr gögnum sínum lista yfir þær
verstöðvar, sem yfir mestu afla-
verðmæti ráða, og þær, sem mestu
verja til fiskkaupa. Við samanburð
af þessu tagi verður að taka margt
inn í dæmið. Inni í aflaverðmæti
skipanna á hverjum stað fyrir sig
reiknast allur afli þeirra á því verði,
sem hann er seldur. Þannig hefur
það áhrif á verðið hve mikið af afl-
anum er selt utan og hve stór hlut-
ur frystitogara er á hveijum stað.
Afiaverðmæti þeirra er reiknað á
afurðaverði, en jafnframt eru þeir
inni í tölunni um fiskkaup viðkom-
andi staða. Þá þarf einnig að hafa
í huga, að á sumum stöðum er
keyptur afli mun meiri en afli
heimaskipa. Þar má til dæmis nefna
þá staði, sem mest bræða af loðnu.
Seyðfirðingar eiga ekkert nótaskip,
en taka á móti miklu af loðnu á
hverri vertíð svo dæmi sé nefnt.
Sem dæmi um hið gagnstæða má
nefna að tvö skip, sem skráð eru á
Fáskrúðsfirði, Hilmir SU og Hilmir
II SU, landa aldrei þar. Því verður
aflaverðmæti Fáskrúðsfjarðarskipa
mun meira en fiskkaup á staðnum.
Reykjavíkurskipin voru á síðasta
ári með um 10,8% heildaraflaverð-
mætis íslenzka fiskiskipaflotans,
sem alls nam 30,2 milljörðum
króna. Vestmannaeyjar voru með
9%, Ilafnarfjörður 5,9%, Akureyri
5,7% og Grindavík 4,6%. Akur-
eyringar keyptu hins vegar mestan
afla til vinnslu. Alls var varið 24,1
milljarði króna til fiskkaupa. Af því
voru Akureyringar með 7,3%, Hafn-
firðingar 6,6, Reykjavík 6,3, Vest-
mannaeyjar 5,8 og Grindavík 4,1%.
Þetta eru einu staðirnar, sem
keyptu fisk til vinnslu fyrir meira
en einn milljarð króna.
í Reykjavík, Vestmannaeyjum og
Keflavík er um helmingi minna fé
varið til fiskkaupa, en aflaverðmæti
skipanna er. Það þýðir í raun að
verulegur hluti alls afla á þessum
stöðum er seldur óunninn utan eða
til annarra verstöðva. Hátt hlutfall
af afla skipa frá Þorlákshöfn og
Akranesi fer einnig annað til
vinnslu. Athyglivert er að ísfirðing-
ar, Siglfirðingar, Eskfirðingar og
Norðfirðingar kaupa meiri afla til
vinnslu, en floti þeirra aflar. Hvað
varðar þijá síðasttöldu staðina
munar þar mest um loðnukaup, en
á ísafirði liggur munurinn mest í
rækju. Annars staðar er tiltöiulegt
jafnvægi milli aflaverðmætis skip-
anna og kaupverðs fisks tii vinnslu.
Átta landa keppnin:
Tap gegn
Dönum
DANIR unnu Islendinga með
4 vinningum gegn 2 í 5.
umferð átta landa keppninn-
ar í skák í gær. Önnur úrslit
urðu þau að Pólverjar sigr-
uðu Svía með 4,5 vinningum
gegn 1,5, Vestur-Þjóðveijar
sigruðu Færeyinga með 4,5
vinningum gegn 1,5 og Norð-
menn sigruðu Finna með 4
vinningum gegn 2. íslending-
ar mæta Svíum í dag í næsts-
íðustu umferð keppninnar.
Jóhann Hjartarson tapaði
fyrir Erling Mortensen á 1.
borði. Á öðru borði varð jafn-
tefli hjá Margeiri Péturssyni
og Jens Ove Fries Nielsen, á
þriðja borði varð jafntefli hjá
Helga Ólafssyni og Jakob 0st
Hansen, og á þriðja borði varð
jafntefli hjá Jóni L. Árnasyni
og Klaus Berg. Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir tapaði fyrir Ninu
Hojberg á 5. borði, og á 6.
borði varð jafntefli hjá Hannesi
Hlífari Stefánssyni og Jan Sor-
ensen.
Vestur-Þjóðveijar eru efstir
í keppninni með 21,5 vinninga,
Danir eru í öðru sæti með 18,5
vinninga, Pólveijar eru í þriðja
sæti með 18 vinninga, Svíar
eru í fjórða sæti með 14,5 vinn-
inga, íslendingar eru í fímmta
sæti með 13,5 vinninga og bið-
skák, Finnar eru í sjötta sæti
með 13 vinninga, Norðmenn
eru í sjöunda sæti með 12,5
vinninga og biðskák og Færey-
ingar reka lestina með 7,5
vinninga.