Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 37
M0RGUÍ)I9LfVÐW)F0Sí'VDAQHR ,1.7rs^0\(EMBIííl ,198?, , Rósinkransa Jónsdóttir Magnús V. Guðbrands- son - Hjónaminning Minning: Þórhildur Margrét Þórðardóttir Rósinkransa: Fædd 9. niaí 1907 Dáin 6. október 1987 Magnús: Fæddur 5. júní 1901 Dáinn 9. nóvember 1989 Okkur langar í örfáum orðum að minnast þeirra elskulegu hjóna, Rósinkrönsu Jónsdóttur og Magn- úsar Guðbrandssonar. Rósg og Maggi, eins og þau voru kölluð í daglegu tali, voru einstaklega hjartahlý og trygg. Ég kynntist þeim ekkert fyrr en ég var orðin fullorðin ogkom til þeirra á heimili þeirra inní Árhvammi, en þar bjuggu þau lengst af eftir að þau fluttu til Reykjavíkur. Þó hlý- legt og fallegt væri í Árhvammi þá er mér minnisstæðast viðmótið og elskulegheitin er mættu manni, og sýndi best hvern mann þau höfðu að geyma. Óhætt er að segja að þar sannaðist hið fornkveðna, að þar sem nóg er hjartarúm er ætíð húsrými, því alltaf voru allir velkomnir að dvelja á þeirra heim- ili. Þau hjón, Rósa og Maggi, voru talsvert ólík að lunderni, hann glettinn og gamansamur en hún alvörugefnari en hafði þó gaman af að vera með. Hún söng m.a. í kirkjukór Bolungarvíkur á fyrri árum. Rósa var mjög trúuð kona og rækti sína trú í kyrrþey. Hún var ákaflega merkileg hannyrða- kona og eru ófáar myndir og ann- ar fallegur útsaumur til eftir hana. Einnig pijónaði hún og saumaði mikið. Eftir að þau fluttust til Reykja- víkur vann Maggi lengst af í Raf- stöðinni við Elliðaár. Einnig rak hann hænsnabú. Þeim Rósu og Magga varð þriggja barna auðið. Þau eru Hörð- ur, verslunarmaður á Selfossi, kvæntur Hjördísi Elinorsdóttur, Oddný, húsmóðir í Texas, gift Vin- cent Cercano, og Grétar, trésmíða- meistari á Ólafsfirði, kvæntur Grétu Ágústsdóttur. Barnabörnin eru 9 og barnabarnábörnin 5. Við og fjölskyldur okkar sendum ástvinum öllum innilegustu samúð- arkveðjur og biðjum góðan guð að blessa minningu þeirra. Fari þau í friði, friður guðs þau blessi, hafi þau þökk fyrir allt og allt. Marta, Karvel og börn. Mig langar að minnast í örfáum orðum þessara heiðurshjóna, sem ég mat mikils, og má segja að við systkinin höfum litið á sem afa og ömmu. Er mér þá efst í huga fyrsta ferð okkar til Reykjavíkur með foreldrum okkar. Dvöldumst við þá hjá þeim inni í Árhvammi. Fannst mér eins og það væri nú ekki Reykjavík, því þetta var eins og í sveit. Gaman var að leika sér þar og láta Magga fara með okkur út í hænsnahús og fara með honum að sækja sag fyrir hænurnar. Hann raðaði vel í poka og setti í Fólks- vagninn sinn, svo rétt sást út um gluggana. Hann hafði gaman af að segja frá þessu, enda gaman- samur mjög alveg fram á síðasta ár. Þegar við heimsóttum hann á Hrafnistu reyndi hann alltaf svolí- tið að sprella svo við gætum hleg- ið. Meðan hann dundaði við hæn- urnar sínar, og einnig við smíðar í skúrnum sínum, sat Rósa ávallt með handavinnuna sína, jafnt út- saum sem pijóna. Hún pijónaði svo lopapeysur og seldi. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið og lifa þau öll foreldra sína. Þau eru: Hörður, Oddný og Grét- ar. Barnabörnin eru 9 og langömmu- og langafabörnin orðin 5. Óll voru þau mjög kær foreldrum sínum og afa og ömmu og komu þau utan úr heimi í heimsókn af og til, þar sem einkadóttirin er búsett erlendis. Ég bið góðan guð að blessa minningu elsku Magga og Rósu og sendi börnum þeirra og allri fjölskyldu samúðarkveðjur. Einnig Döggu frænku, sem var þeim sér- lega góð. Nú legg ég augun aftur, ó Guð, þinn náðarkraftur min veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. Stína Karvelsdóttir Fædd 6. maí 1899 Dáin 11. nóvember 1989 Margrét Þórðardóttir var ein- stök sæmdarkona. Það er við hæfi að hún skuli til moldar borin í Víkurkirkjugarði. í Vík lifði hún sitt hamingjusamasta skeið með manni sínum Guðna Hjörleifssyni lækni, elskuð af öllum þar eystra. En einnig þar mátti hún lifa þá dýpstu sorg að missa mann sinn og standa ein uppi með stóran barnaskara. En það lýsir best mannkostum og æðruleysi Margr- étar, að hún kom öllum barnahópn- um til mennta. Það var mér og börnum okkar Daníels mikil hamingja að eiga að þessa góðu og hlýju konu. Alltaf var hún boðin og búin að leggja okkur lið. Tengdamóðir mín, Mar- grét, er lýsandi dæmi um mann- eskju sem hefst af sjálfri sér, lítur á það sem hlutskipti sitt að þjóna og hlú að þeim sem henni eru næstir. Við Daníel og börnin fylgjum nú þessari elskulegu konu síðustu sporin er hún verður lögð við hlið sínum heittelskaða manni, Guðna lækni. Það var mikið á eina konu lagt, en hún bar sinn kross með sæmd og fullri reisn. Síðustu árin átti hún við mikla vanheilsu að stríða og er því efalaust hvíldinni fegin. En mynd hennar mun ávallt lifa með okkur öllum og þá ekki síst hinum yngstu afkomendum. Megi hún hvíla í friði. Gerður Birna Guðmundsdóttir Lokið er löngu og árangursríku ævistarfi. Hvíldar var þörf eftir annasaman dag. Margrét var gift Guðna Hjör- leifssyni síðast héraðslækni í Vík í Mýrdal, en hann féll frá á besta aldri. Eftir lát hans flutti Margrét til Reykjavíkur og var búsett þar til enda. Þau hjón áttu 6 börn, það yngsta skírt við kistu föðurins. Þau eru Sigurbjörg skrifstofustjóri bú- sett í Bandaríkjunum, Hjörleifur verslunarmaður í Reykjavík, Þórir læknir í Stuttgart í Þýskalandi, Daníel læknir í Reykjavík, Sigurð- ur bókbindari í Reykjavík og Guðni menntaskólakennari í Reykjavík. Það hvíldi því ekki lítið á herðum þessarar ungu konu að koma ölium. þessum stóra barnahóp til nokkurs þroska, en það gerði hún svo af bar ein og óstudd. Á þeim árum var eigi slík samhjálp sem nú er. Það segir sig sjálft að oft hefir Margrét haft iangan vinnudag inn- an heimilis og utan, en hún hafði bæði þrek og viljastyrk til að axla þá byrði. Það má segja að ég hafi þekkt Þórhildi Margréti frá barn- æsku, þótt náin kynni yrðu ekki fyrr en leið á ævina. Hún bar nafn ömmu minnar Þórhildar og ég heyrði oft á það minnst. Svo bar til að tengdaforeldrar afa míns, séra Guttorms Vigfús- sonar, séra Jón Austmann og kona hans, Helga Jónsdóttir, fluttust að Stöð í Stöðvarfirði árið 1882, þar sem séra Jón tók við prestskap. Með þeim fluttust þijú systkini norðan úr Eyjafirði, Sigurbjörg, Daníel og Johannes Sigurðarbörn. En Sigurbjörgi var móðir Margrét- ar sem hér er kvödd. Þessi systk- ini fóru ekki aftur norður og þegar afi minn, séra Guttormur, gerðist prestur að Stöð að tengdaföður sínum látnum voru þau þar til heimilis að nokkru þar til þau festu ráð sitt. SigurbjÖrg giftist Þórði Árnasyni, hinum mætasta manni, afi minn.vígði þau í hjónaband og orti til þeirra brúðkaupsljóð sem þá var mikill siður að syngja í brúð- kaupsveislum. Svo létu þau hjón fyrsta barn sitt heita í höfuðið á ömmu, Þórhildi að fyrra nafni og Margréti í höfuðið á Margréti vin- konu ömmu, húsfreyju að Löndum í Stöðvarfirði. Síðar féll fyrra nafn- ið að mestu leyti niður sem oft vill verða, en nú ber sonardóttir Þ. Margrétar og dótturdóttir mín nafn formóður sinnar og er kölluð Þórhildur. Ein fyrsta bernskuminning mín er í sambandi við Margréti, þá er hún kom að Stöð að heimsækja nöfnu sína, þá 15-16, ára ásamt frænku sinni, Sigrúnu Daníels- 37 , dóttur. Ég hefi verið 6—7 ára þá. Afi minn ætlaði að láta mig lesa upphátt fyrir þær, líklega til að láta þær heyra árangur kennslu sinnar, en ég var víst feimin við þessar ungu og fallegu stúlkur og fór að gráta, því.minnist ég þessa. Lítið hefur þá orðið úr lestri. Svo liðu árin. Á fermingaraldri var ég á Hallormsstað hjá móður- systur minni, Sigríði Guttorms- dóttur, og manni hennar, Guttormi Pálssyni skógarverði. Þá komu þar ung og glæsileg hjón nýgift, Guðni og Margrét, til að njóta hveiti- brauðsdaganna í fögru umhverfi. Brúðurin átti vinum að fagna þar sem þau Hallormsstaðahjón voru, því að hún hafði dvalið þar áður um nokkurn tíma og virst öllum vel. Ég man enn hvað mér fannst þessi ungá kona falleg og glæsileg og það entist henni ævilangt. Svo liðu tímar. Við Margrét hitt- umst aldrei, en ég vissi alltaf af nöfnu hennar ömmu minnar. Einn góðan veðurdag giftu þau sig son- ur þeirra hjóna, Daníel, og dóttir mín, Gerður Birna. Þá varð eins og við Margrét hefðum ailtaf þekkst. Hjá henni var ætíð opið hús þegar við hjón eða einhver úr fjölskyldu okkar átti leið til Reykjavíkur. Hjá Margréti var allt- af sama hlýjan og alúðlega viðmó- tið, fyrir það og ógleymanleg kynni sendum við hjónin nú að leiðarlok- um kæra þökk og kveðjur yfir móðuna miklu. Aðstandendum sendum við innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu Þórhildar Margrétar. Pálína Þorsteinsdóttir t Hjartkær eiginkona min, móðir og stjúpmóðir, GUÐRÚIM BJARNADÓTTIR, Granaskjóli 15, andaðist 15. nóvember 1989. Sigurður Ingvarsson, börn, bárnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, SÚSÖNNU PÁLSDÓTTUR, Hverfisgötu 73. Lárus Guðgeirsson, Aðalbjörg Hólmgeirsdóttir, Unnur Björk Lárusdóttir, íris Ósk Lárusdóttir. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÚSTAF A. VALDIMARSSON, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 17. nóvember kl. 13.30. Sigurbjört Gústafsdóttir, Emil Guðmundsson, Reynir S. Gústafsson, Elísabet Árnadóttir, Svala Gústafsdóttir, Jan Erik Lensvik, Helga Gústafsdóttir, Gunnar Örn Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum af alhug auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BJÖRNS GUÐMUNDSSONAR fyrrv. framkvæmdastjóra, Stórholti 29, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Hallgrímsdóttir. t Faðir okkar, ÓSKARPÉTURSSON (Garðar Óskar Pétursson) járniðnaðarmaður, Langholtsvegi 54, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Sverrir Garðarsson, Pétur Garðarsson. t Þökkum af alhug öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa ög langafa, KRISTJÁNS ÚLFARSSONAR, Bjarnhólastfg 24, Kópavogi. Margrét Sigurðardóttir, Kristrún Kristjánsdóttir, Viggó Magnússon, Sigurður Kristjánsson, Áslaug Sverrisdóttir, Svanhvít Kristjánsdóttir, Guttormur Rafnkelsson, Leifur Kristjánsson, Aðalheiður Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.