Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÍÐIÐ FÖSUUÐAGUR :1>! NÓVEMBERt 19R9 n 25 ;smanna: réttinda lykil- fækka skipum Ný fiskveiðistefna Á vegum sjávarútvegsráðuneytis- ins hefur verið unnið að undirbún- ■ ingi lagasetningar um stjórnun fisk- veiða, er taki við af þeim lögum, sem falla úr gildi í árslok 1990. Mikil- vægt er, að ný löggjöf verði sam- þykkt áður en Alþingi verður slitið næsta vor, svo nauðsynlegur fyrir- vari fáist, áður en ný lög taka gildi. Þau frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir og við þurfum að taka afstöðu til á þessum fundi, fela í sér eftirfar- andi meginatriði: 1. Lögin verði ótímabundin. Kristján Ragnarsson 2. Veiðunum verði stjórnað með aflamarki á hvert skip og sóknar- mark fellt niður. 3. Framsal veiðiréttinda verði fijálst bæði innan árs og varanlega. 4. Hvert skip fái eitt veiðileyfi, er innihaldi hlutfallsleg veiðiréttindi af hverri fisktegund, sem skipinu leyfist að veiða. 5. Sambærileg ákvæði verði sett fyrir báta undir 10 rúml. og gilda fyrir stærri báta. 6. Undanþága um línuveiðar verði felld niður. Allt eru þetta ákvæði, sem horfa til bóta frá núverandi lögum um stjórnun fiskveiða. Munu þau auð- Velda mönnum að ná því markmiði að gera veiðarnar arðbærari. Megin- atriði í því efni, er að veiðistjórnunin geri það mögulegt, að ákvörðun um heildarafla raskist ekki og hún stuðli að því, að veiðiheimildir verði færðar saman á færri skip. Núgildandi ákvæði um sóknarmark hafa aldrei stuðlað að þessu og er því lagt til að sóknarmarkið verði fellt niður. Jafnhliða er lagt til, að þau skip, sem hafa lægra aflamark, en meðaltal innan núgildandi sóknarmarks- flokka, fái bætur, er nemi ákveðnum hundraðshluta af þeim mismun, sem er á milli aflamarks skipsins og meðaltalsafla viðkomandi útgerða- flokks. Þetta er unnt að gera, án þess að skerða aflamörk þeirra, sem eru yfir meðaltali, vegna þess afla sem sóknarmarksskip hafa veitt umfram eigin aflamörk. Hver þessi hundraðshluti verður, ræðst af því hvaða vilji er fyrir hendi til þess að jafna aflamörkin hjá þeim, sem minnst hafa. Ftjálst framsal veiðiréttinda er lykilatriði til þess að hægt sé að fækka skipum. Það mun stuðla að betri nýtingu fjármagns í útgerð og fækka þeim dögum, sem skip eru bundin aðgerðarlaus í höfn. Engin önnur leið getur stuðlað að þessu markmiði. Með ftjálsum samningum milli manna, þar sem engum þving- unum er beitt, er unnt að ná umtals- verðum árangri. Eftir að tiltrú manna jókst á áframhald fiskveiðistjórnunar með aflamarki, hafa umtalsverð aflarétt- indi verið færð saman, og nær 40 skipum hefur þegar verið eytt. Það hefur ekki farið fram hjá okkur sú umræða manna, sem aðal- lega tengjast Háskólanum og Seðla- bankanum hvernig eigi að stjórna fiskveiðunum. Hafa þeir haft það ráð helst að íþyngja veiðunum með sérs- takri skattlagningu á veiðileyfi eða með uppboði á þeim. Þessir aðilar láta sig engu varða slæma afkomu veiðanna eða þau áhrif sem slík gjaldtaka hefði á landsbyggðina. Þó sumir eigi auðvelt með að slá lyki í augu fólks, eins og í þessu máli, þar sem einni atvinnugrein er ætlað að létta skattbyrði annarrar, hefur það ekki hrifið. Enginn stjórn- málaflokkur hefur tekið undir þessar hugmyndir og því ber að fagna. Hugmyndir um að binda aflaheim- ildir við byggðalög, hafa komið fram, en þær myndu virka sem hindrun á eðlilega þróun atvinnulífsins. Útilok- að er að ákveða nú, að útgerð skuli í náinni framtíð stunduð með sama hætti og í dag og skip megi ekki flytja milli byggðarlaga. Erfitt er að átta sig á því, hvað geti valdið þeirri afstöðu samtaka yfirmanna á fiskiskipaflotanum, sem fram kom á nýafstöðnu þingi þeirra, að vera andvígir sameiningu veiði- heimilda eða skiptum á veiðiheimild- um. Þær verður þó að telja mikil- vægasta kostinn við stjórnunarleið með aflamarki. Ekki verður lengur dregið að 'samræma veiðiheimildir báta undir 10 rúmlestum veiðiheim- ildum stærri báta. Ekkert eitt atriði hefur gengið svo augljóslega gegn tilgangi þeirrar veiðistjórnunar, sem við höfum búið við undanfarin ár, og ákvæðin um smábátana. Yfirlýst- ur tilgangur með veiðistjórnun er, auk verndunar fiskistofna, að fækka skipum og auka virkni þeirra, sem eftir verða. Á sama tíma fjölgar smábátum um mörg hundruð, og afli þeirra eykst stöðugt á kostnað hinna stærri báta eða úr 12.000 lest- um'í upphafi kvótakerfís í 42.000 lestir á síðasta ári. Á sama tíma og Fiskveiðasjóður íslands neitar að lána til smíði báta undir 10 rúml. beitir ríkisstjórnin sér fyrir 250 milljón króna lánveitingum til þeirra, sem keypt hafa ný. skip undir 10 rúm. á sl. tveimur árum. Það verður að telja lítið samræmi milli yfirlýstrar stefnu stjórnvalda og athöfnum þeirra, þegar að málum er staðið með þessum hætti. Gert er ráð fyrir að fella niður undanþágu um að hálfur afli veiddur á línu í nóvember, desember, janúar og febrúar verði utan kvóta. Fullar bætur reiknist þeim sem þessar veið- ar hafa stundað undanfarin 3 ár. Allar undanþágur þarf að fella niður ef unnt á að vera að gefa hverju skipi hlutfallstölu af heildarafla hverrar fisktegundar. Oll umræða um fiskveiðistjórnun hefur tekið mið af því, hvað unnt sé að gera til að auka arðsemi fisk- veiðanna. Ekki væri úr vegi að velta fyrir sér, hvort æskilegt sé að fækka fiskvinnslustöðvum og auka með því arðsemi vinnslunnar. Eitthvað ætti að vera unnt að gera til að bæta rekstur 16 frystihúsa, sem skila engu upp í fjármagnskostnað þegar 13 frystihús hafa milli 10—20% verga hlutdeild upp í fjármagns- kostnað. Með sama hætti má nefna, að 19 fyrirtæki í saltfiskframleiðslu skila engri hlutdeild upp í fjármagns- kostnað, þegar 12 fyrirtæki skila yfir 20% á árinu 1988. Eðlilegt er ennfremur að velta fyrir sér, til hvers sé barist til hagræðingar og sparnað- ar, þegar rikisvaldið hrifsar til sín allan ávinning í atvinnulífinu og af hinu vinnandi fólki með hækkuðum sköttum ár frá ári til þess að standa undir kostnaði við fjölgun ríkis- starfsmanna um mörg hundruð á hveiju ári. Tillögur um hámarksafla Nú liggja fyrir tillögur fiskifræð- inga um æskilega sókn í fiskistofn- ana á næsta ári. Kveður þar mest að hugmyndum um verulega minnk- un þorsk- og grálúðúafla. Þrátt fyr- ir að nær útilokað sé af fjárhagsá- stæðum að fallast á þessar tillögur, er nauðsynlegt, að taka tillit til þeirra, þegar litið er til framtíðar. Talið er að þorskárgangar frá árun- um 1983 og 1984 séu vel yfir meðal- stærð, árgangurinn frá 1985 sé rétt undir meðalstærð, en árgangarnir frá 1986, 1987 og 1988 og jafnvel 1989 séu ekki nema helmingur af meðalstærð. Reynist þetta rétt, þeg- ar árgangarnir kóma inn í veiðina 4ra ára gamlir, er vá fyrir dyrum. Við verðum því að jafna þá lægð, sem myndast með þessum slöku ár- göngum, með því að dreifa veiðinni úr hagstæðu árgöngunum yfir lengri tíma. Þetta gerum við ekki nema með því að draga úr sókn og minnka veiðina. Jafnframt vinnst það, að dregið er úr veiði smáfisks, og fisk- urinn fær tækifæri til þess að vaxa og gefa af sér meiri verðmæti. Við skulum vera minnug þess, hvað hef- ur gerst beggja megin við okkur hér á Norður-Atlantshafi, og láta þau víti verða okkur til varnaðar. Verður að telja, að sjávarútvegsráðherra hafi tekið skynsamlega afstöðu, þeg- ar hann ákvað, hvað leyft verði að veiða á næsta ári. Loðnuveiðar Loðnuveiðar hafa gengið illa það sem af er þessari vertíð, en vonandi rætist úr fljótlega, því hagsmunir þeirra, sem hafa nær engin önnur veiðiréttindi eru miklir, og þjóð- hagslegur skaði verður mikill, ef þessar veiðar bregðast nú. Sala á saltsíld Sala á saltsíld til Sovétríkjanna hefur dregist meira en nokkru sinni fyrr og er óvissa um þessi viðskipti óþolandi. Verði ekki af þessum við- skiptum nú hljótum við að endur- meta viðskipti okkar við Sovétmenn að öðru leyti, og þá sérstaklega varð- andi olíukaup. Þrátt fyrir að við- skiptajöfnuður sé þeim mjög í hag, og í rammasamningi milli þjóðanna sé gert ráð fyrir þessum viðskiptum og fyrir liggi verðsamanburður við saltsíld til Svíþjóðar og Finnlands, kemur allt fyrir ekki. Það vekur furðu og hneykslun okkar, að viðskiptaráðherra skuli hafa undirritað samninga sl. þriðju- dag um kaup á olíuvörum frá Sov- étríkjunum, án þess að tengja þau kaup við síldarsölu. Beðið er eftir staðfestingu á samningi, sem gerður var 4. nóvem- ber sl. um sölu á 150.000 tunnum af saltsíld fyrir sama verð og á sl. ári. Samningur þessi er að verð- mæti um 16 milljónir dollara og er mikilvægasti þáttur útflutnings okk- ar til Sovétríkjanna. Á sama tíma er samið um olíukaup á næsta ári fyrir 57 milljónir dollara, sem út- gerðin greiðir að stærstum hluta. Það er leitt til þess að vita, að ráherrann skuli ekki átta sig á, að síldarsöltunin er burðarás í tekjuöfl- un bátaflotans, bátasjómanna og fólksins í byggðarlögunum þar sem síldin er söltuð. Viðskiptaráðherra, sem taldi að olíukaupin tryggðu að síldarsamn- ingurinn yrði samþykktur, ætti að drífa sig strax í dag til Moskvu, því engan tíma má missa, og sækja svar- ið við síldarsamningnum. Evrópubandalagið Málefni Evrópubandalagsins hafa verið mikið til umræðu að undanf- örnu vegna breytinga, sem fyrir- hugaðar eru, þegar innri markaði bandalagsins verður komið á fót á árinu 1992. Viðskipti okkar við bandalagsríkin hafa farið vaxandi á undanförnum árum. Fer nú 63% af vöruútflutningi til þeirra og allt að 90% af sumum flokkum sjávarafurða. Miklu máli skiptir, að við getum náð viðunandi samningum við bandalagið um mál- efni okkar. Með samningum, sem gerðir voru 1972, var samið um fríverslun með iðnaðarvörur. Jafn- hliða þeim samningum var samið um tollaívilnanir á sjávarvörum, serh tóku gildi 1976, þegar sættir tókust um útfærslu landhelginnar. Þessi samningur hefur skipt okk- ur miklu máli, og var okkur hag- stæður, þegar hann var gerður fyrir 17 árum. Suður-Evrópuríkin Spánn, Portúgal og Grikkland, sem kaupa mest af okkar saltfiski, gengu í bandalagið, eftir að þessi samningur var gerður. Mikilvægt er að ná við- bótarsamningi, þar sem tekið er til- lit til þeirra breytinga, sem orðið hafa hin síðari ár. Á síðasta ári munum við hafa greitt um 1.1 millj- arð króna í tolla til bandalagsríkj- anna. Ef bókun 6 væri ekki til stað- ar, hefðu tollagreiðslumar numið um 4 milljörðum króna. Þau viðhorf hafa komið fram, að við eigum að óska eftir inngöngu í bandalagið, eða tengjast því föstum böndum. Ekkert bendir til þess að bandalagið samþykki inngöngu þjóða, nema þær undirgangist þær skuldbindingar, er felast í grundvall- arsáttmála bandalagsins,- Smáþjóð eins og við getur aldrei fallist á þær skuldbindingar. Því eigum við að nýta velvilja leiðtoga stærstu banda- lagsþjóðanna til þess að fá ftjálsan aðgang með sjávarvörur að hinum nýja sameinaða markaði. Það hlýtur að gerast í tvíhliða viðræðum, en ekki í samfloti með EFTA-ríkjum. Verðmyndun á olíu Ég hef oft gert það að umtals- efni,.að æskilegt sé að afnema af- skipti Verðlagsstofnunar af olíuverði og hafa olíuverð fijálst, enda þótt stór hluti olíunnar sé keyptur frá Sovétríkjunum. í raun virkar ákvörð- un Verðlagsstofnunar sem lág- marksverð, þótt því sé ætlað að vera hámarksverð. Ekki hefur verið hægt að fá olíu á iægra verði, þegar um stór viðskipti er að ræða og ekki gegn staðgreiðslu. Nú bregður svo við, þegar græn- lensk skip koma til landsins og um- skipa hér afla, þá stendur þeim til boða verulegur afsláttur frá því verði, sem Verðlagsstofnun hefur talið olíufélögin þurfa að fá. Þá er til staðar samkeppni og olía er seld til þeirra á mun lægra verði en til okkar. Þetta er gert, þrátt fyrir að olía sé verðjöfnuð í landinu og einn- ig er jöfnunarsjóður milli einstakra farma. Miðað við fyrri ákvarðanir Verðlagsstofnunar mun olíuverð til okkar hækka vegna afsláttar, serii olíufélögin veita Grænlendingum. Samtals munu grænlensk skip hafa keypt hér á landi 16 milljónir lítra á sl. ári. Virðist nú kominn tími til, að verðlagsmál á olíu verði tekin til endurskoðunar hið fyrsta. Kj arasamningar Undanfarin þijú ár hefur ríkt gott samstarf milli samtaka okkar og samtaka sjómanna um kjaramál. Það vekur því nokkra furðu, þegar forystumaður yfirmanna á fiskiskip- um lýsir því í fjölmiðlum, að helst þurfi að ákveða nú, hvenær til verk- falls skuli koma á næsta ári, og hvenær sé hægt að valda sem mest- um skaða með verkfalli. Viðhorf af þessu tagi hafa sem betur fer ekki ráðið samskiptum sjómanna og út- vegsmanna hin síðari ár. Þessir aðil- ar eiga það sameiginlegt að verða að búa við það, sem sjórinn gefur. Það bætir ekki stöðu útgerðarinnar til að gera betur við sjómenn, þegar aflaheimildir minnka. Við skulum því sameiginlega leitast við að gera okkur meira verðmæti úr þeim afla, sem á land berst. Það eru þau einu verðmæti, sem geta komið í stað skertra veiðiheimilda. Ýmislegt bendir til þess að framboð af fiski fari minnkandi af norðurslóðum vegna ofveiði nágrannaþjóðanna. Við ættum að geta bætt okkur afla- missinn að einhveiju leyti með hækkandi fiskverði. Vandi skipasmíðastöðva Mikii og vaxandi umræða hefur átt sér stað að undanförnu um vanda innlendra skipasmíðastöðva. Engin eftirspurn er nú eftir nýsmíði skipa og þörf fyrir meiriháttar endurbætur ræðst af afkomu útgerðar. Alltaf verður til staðar þörf fyrir viðgerðir á fiskiskipaflotanum, sem að mestu verða framkvæmdar innanlands. Að þessum aðstæðum verður skip- asmíðaiðnaðurinn að laga sig og freista þess að vera samkeppnisfær við erlenda aðila. Hugmyndir ráðherra Hagstofunn- ar um að banna eigi útvegsmönnum að láta gera við skip eða smíða skip erlendis eru svo hvatvísleg og ósann- gjörn, að furðu vekur. Að hans mati á að útiloka samkeppni um þennan stóra þátt í rekstri útgerðar. Þessar hugmyndir eru afturhvarf til skömmtunar og einangrunar, sem gengur þvert á ríkjandi viðhorf tii aukins fijálsræðisí viðskiptum. Það virðist, sem betur fer, ekki ástæða til að óttast þessi viðhorf, því þau takmarkast við hann einan. Nýr einkabanki Við höfum oft gagnrýnt, hve bankakerfið er dýrt og samkeppni takmörkuð. Nú hyllir undir veruleg- ar breytingar með sameiningu banka, sem á að valda verulegum sparnaði og aukinni samkeppni, þar sem nýr sterkur einkabanki verður jafnoki ríkisbanka. Ég kemst þó ekki hjá að lýsa vonbrigðum með að sjávarútvegur- inn skuli ekki hafa sýnt meiri reism en raun ber vitni í þessari æskilegu þróun. Harma ber að hann skuli ekki hafa verið þátttakandi með öðrum atvinnuvegum í þessu starfi, sem vafalaust skýrist af bágum Ijár- hag. Erfiðleikar landsbyggðarinnar Fari menn um landið og kynni sér atvinnulífið í hinum ýmsu sjávar- þorpum, hljóta þeir að sjá, að byggð- in á í vök að veijast. Þrátt fyrini öflugt en einhæft atvinnulíf fækkar fólkinu, og það flytur til Stór- Reykjavíkursvæðisins. Atvinnulíf margra þessara byggðarlaga er bo- rið uppi af erlendum starfskröftum á sama tíma og talað er um vaxandi atvinnuleysi á Suðvesturlandi. Lífshættir okkar virðast komnir all langt frá því atvinnulífi, sem við byggjum tilveru okkar á. Hyrfi sá erlendi starfskraftur af landi brott, sem nú er uppistaðan i fjölmörgum frystihúsum úti um land, myndi at- vinnulífið stöðvast, og þeir, sem-eft- ir eru, hrökklast á brott. Ekki verður undan því vikist að taka afstöðu til þessara mála. Hvernig getum við tryggt fókinu landsbyggðinni betri aðstöðu, svo’ það sætti sig við búsetu þar? Eitt brýnasta verkefnið er bættar sam- göngur, þar sem einangrun langra vetrarmánaða er rofin. Þá gefst einnig tækifæri til aflamiðlunar milli byggðarlaga. LÍÚ 50 ára Á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun LIÚ Á þeim árum, sem liðin eru frá upphafi síðari heimsstyijald- ar hafa miklar breytingar átt sér stað í þjóðfélaginu. Mestar hafa framfarirnar tengst sjávarútvegin- um, enda hefur hann verið burðarás- inn í þeirri velferð, sem við íslending- ar höfum búið við undanfarna ára- tugi. Hér verður ekki lagður dómur á það, hvaða þátt samtök útvegs- manna hafa átt í þessari þróun. Það er þó von okkar, að starf samtak- anna verði ekki metið þannig, að þau séu þröng sérhagsmunasamtök með stundarhagsmuni, heldur ábyrg samtök, sem hafa látið þjóðarhags- muni sitja í fyrirrúmi. Stjórn LÍÚ ákvað að minnast þessara tímamóta með því að tengja saman fortíð og nútíð með gerð heimildarkvikmyndar um þróun sjávarútvegs frá upphafi til okkar daga. Ennfremur með fjárstyrkjum til safna er halda til haga gömlum sjóminjum. Ég færi samstarfsmönnum mínum í stjórn LÍÚ þakkir fyrir ánægjulegt samstarf, starfsliði sam- takanna færi ég þakkir fyrir vel unnin störf og segi þennan 50. aðal fund LIÚ settan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.