Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLÁÐIÐ FÖSTUDAtiUK 17. NÓVEMBER 1989 ‘ . M REYKVIKINGAR! Ásgeir Hannes Eiriksson, þingmaður Borgaraflokksins og fulltrúi Reykvíkinga í fjárveitinganefnd Alþingis, verður á Café Hressó í Aust- urstræti í dag, föstudaginn 17. nóvember, kl. 1 2.00- 14.00. Dánarvottorð: Réttleysi fólks gagnvart krufiiingu Til Velvakanda. Á nýloknu kirkjuþingi flutti sr. Þorbergur Kristjánsson frumvarp um breytingu á lögum um dánarvott- orð. Það er ekki í fyrsta skipti sem hann hefur hreyft þessu máli, en það hefur orðið eitt af þeim sem stran- dað hafa í kerfinu og ekki náðst á flot þrátt fyrir tilraunir. í Morgunblaðið frá 31. október sl. er sagt frá þessu frumvarpi á • • Oll Lionsdagatöl eru merkt. Þeim fylgir jólasveinslímmiði og tannkremstúpa. Allur hagnaður rennur óskiptur til líknarmála. þann hátt, að rætt hafi verið um rétt einstaklinga til að hafna krufn- ingu. Eftir mína reynslu myndi ég heldur orða það þannig, að rætt hafi verið um réttleysi fólks gagn- vart krufningu, en það virðist vera algjört. I þessari frásögn Morgun- blaðsins, sem er hvorki fyrirferðar- mikil né áberandi, er haft eftir land- lækni, „að það væri venjan, að krufning væri ekki framkvæmd, ef hinn látni hefði verið því mótfallinn og ef venslamenn samþykktu ekki krufningu". Ennfremur et' haft eftir honum: „En undantekningarlaust er leitað samþykkis venslamanna." Það getur verið að reglan sé sú, að rætt sé ,við aðstandendur, en þá trúlega þannig, að þeim sé tjáð að krufning þurfi að fara fram og gagna þá andmæli lítið — fólki er einfaldlega sagt, að án krufningar fái það ekki dánarvottorð og án þess mega prestar ekki jarðsetja. Þetta er mín reynsla í öðru af tveim tilvik- um, þegar mínir nánustu hafa verið krufnir gegn vilja mínum og fleiri venslamanna. í hitt skiptið dugði ekki minna en að senda mann frá fógeta heim til mín til að lesa yfir mér dómsúrskurð um að krufning skyldi framkvæmd. í Morgunblaðinu frá 17. maí 1986 sagði maðut' nokkur frá krufningu sem gerð var og líffærasýni tekin og geymd án þess að talað væri við nánustu aðstandendur. Þetta bréf birtist undir fyrirsögninni; „Hver ákveður krufningu?" Svar landlækn- is birtist 27. maí og var það svohljóð- andi: „Vegna bréfs í dálki yðar um „Hver ákveður krufningu?" skal eft- irfarandi tekið fram: Krufningar eru gerðar af tvennskonar ástæðum. 1. Ef óvíst er um orsök dauða eða ef grunur er um voveiflegt andlát. Samkvæmt lögum má læknir ekki gefa út dánaivottorð ef dánarorsök er óviss. Án dánarvottorðs verður hinn látni ekki jarðsunginn. í því tilfelli getur aðstandandi hins látna ekki neitað krufningu. Þetta er ákvörðun Alþingis og verður ekki breytt nema lögum verði breytt. 2. í vísindaskyni. Hér ber að leita álits nánasta aðstandanda. Ef að- standandi synjar um leyfi ber lækni að virða þá ákvörðun." Svo mörg voru þau orð. Ég hef leitað í lögum að heimildum til krufn- ingar, en ekki fundið annað en það sem hér birtist, þ.e. þá kafla laga um dánarvottorð, mannskaðaskýrsl- ur og rannsókn á fundnum líkum, sem snerta þetta umræðuefni mitt. Óneitanlega er fróðlegt að bera þá saman við svar landlæknis og fróð- legt er líka að sjá hvernig lögin skil- greina voveiflegan, dauðdaga. Augljóst virðist vera, að full þörf sé á skýrum lagaákvæðum varðandi þetta og væri óskandi að einhveijir alþingismenn vildi huga að þessu — þetta er tilfinningamál fyrir fleiri en mig. J. Lög um dánarvottorð 1. gr. Dánarvotiorð samkvæmt ákvæðum laga þessara skal rita fyr- ir hvern mann, er deyr hér á landi, sbr. þó ákvæði 10. gr. Landlæknir semur leiðbeiningar um ritun dánarvottorða, er ráðherra staðfestir. Dánai-vottorð ritar iöggiltur lækn- ir á eyðublað, er landlæknir gerir úr garði og lætur í té. 2. gr. Þá er maður deyr í kaup- stað eða kauptúni, þar sem læknir situr, eða í næsta nágrenni læknis, þó að utan kaupstaðar sé eða kaup- túns, og læknir hefur stundað hinn látna í banalegunni, skoðar sá hinn sami læknir líkið og ritar að því búnu dánarvottorð. Nú er ekki auðið að ná til læknis þess, er stundaði hinn látna, eða hafi enginn læknir séð hann í bana- legunni, og skal þá innan sóiarhrings sækja lækni til að skoða líkið og rita dánarvottorð. 3. gr. Þá er maður deyr utan kaupstaðar eða kauptúns, þar sem læknir situr, eða utan næsta ná- grennis læknis (sbr. 2. gr.), og lækn- ir hefur stundað hinn látna í bana- legunni, ritar sá hinn sami læknir dánai'vottorð. Nú er ekki auðið að ná til læknis þess, ér stundaði hinn látna, eða hafi enginn læknir séð hann í bana- legunni, og skal þá, svo fljótt sem við verður komið, tilkynna hlutaðeig- andi héraðslækni mannslátið og skýra honum nákvæmlega frá til- drögum þess. Ritar héraðslæknir síðan dánarvottorð samkvæmt þeim upplýsingum. 106. gr. [Líkskoðun skal fram fara, ef lögreglustjóri (rannsóknar- lögreglustjóri ríkisins), dómari eða ríkissaksóknari telur nauðsynlegt.] Krufning líka má einungis fram- kvæma samkvæmt úrskurði dómara, nema nánasti venslamaður eða nán- ustu venslamenn leyfi, þegar ástæða þykir til vegna öflunar sakargagna. 1913 nr. 42,10. nóv. Lög um mannskaðaskýrslur og rannsókn á fundnum líkum 1. gr. Í þessum lögum hafa þau orð, sem hér fara á eftir, þá merk- ingu, sem tilfærð er við hvert þeirra. „Mannskaði" er það, ef maður deyr voveiflega. „Voveiflegur dauðdagi“ er bráður bani, er hlýzt af einhverri annarri orsök en undanförnum sjúkdómi, hvort heldur um slys er að ræða, eða sjálfsmorð, eða manndráp. Jólaskraut Gjafavörur Búsáhöld Leikföng Peysur RYMINGARSALAN LAUGAVEGI91, í KJALLARA OG Á 2. HÆÐ SÚ BESTA í BÆNUM • STÓRKOSTLEGT ÚRVAL HLÆGILEGT VERÐ Skyrtur Dragtir Sængurverasett Ferðatöskur Svartar gallabuxur kr. 1.390 Herraúlpur kr. 2.900 Gallapokapils kr. 990 Krumpugallar í „neon“litum kr. 2.900 HHHHH VISA HHHi OPIÐ 13-18 VIRKA DAGA 10-16 LAUGARDAGA SIMI 1 32 85

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.