Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ BÖSTUDAG.UR 17., N.ÓVBM3JER 1989 . • • Okumaður tali við lögreg’lu Slysarannsóknadeild lögregl- unnar í Reykjavik óskar eftir að ná tali af ökumanni lítils rauðs fólksbíls sme ók á sex ára stúlku á mótum Fjallkonuvegar og Hverafoldar á miðvikudag. Ökumaðui'inn, karlmaður, nam staðar og ræddi við barnið. Komið er í ljós að meiðsli þess eru meiri en talið var í fyrstu. Lögreglan bið- gr ökumann þennan að hafa við sig samband. Ekið á barn FJÖGURRA ára stúlka varð fyrir bíl á Skólavörðustíg laust fyrir hádegi í gær. Hún skarst nokkuð og meiddist en ekki alvarlega, að talið var. Stúlkan var á leið vestur yfir götuna skammt frá mótum Skóla- vörðustígs og Baldursgötu. Hún gekk út á götuna milli tveggja kyrr- stæðra bíla og í veg fyrir fólksbíl á leið niður Skólavörðustíg. Samvinnufyrirtæki um hefð- bundinn útflutning ástæðulaus - segir Carol Xueref, starfsmaður Alþjóða verslunarráðsins „ÉG sé ekki nauðsyn þess fyrir íslendinga að fara mikið út í sam- vinnufyrirtæki (joint ventures) með Sovétmönnum nema ætlunin sé að gera útflutning þangað fjölbreyttari og víðfeðmari en nú er,“ segir, Carol Xueref, starfsmaður Alþjóða verslunarráðsins sem flutti erindi á morgunverðarfúndi Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins á Hótel Sögu í gær. Hún sagðist halda að það kæmi sér ágætlega fyrir Islendinga að viðskiptin væru á þvi formi sem nú er, að sov- éska sjávarútvegsráðuneytið sæi um fiskkaup, meðan útflutningur okkar væri fábreyttur. Þá ætti að vera auðvelt að nýta þau sambönd sem skapast hefðu. Xueref sagði þó að til lengri tíma litið hlyti að vera æskilegt fyrir íslendinga að reyna fyrir sér á fleiri sviðum og gat hún viðleitni Japana til að mynda samvinnufyrirtæki með Sovétmönnum í fiskvinnslu. Samvinna af slíku tagi væri ákjós- anleg að því leyti að framlag er- Morgunblaðið/Árni Sæberg Carol Xueref í ræðustóli á fúndi Landsnefndar Alþjóða verslunarráðs- ins í gær. með henni á myndinni er Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags Islands, sem stýrði fúndinum. Fiskverð á uppboðsmörkuðum 16. nóvember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 77,00 62,00 70,97 7,877 559.074 Þorskur(óst) 74,00 44,00 64,86 2,326 150.854 Ýsa 100,00 40,00 88,75 3,222 285.938 Ýsa(ósl.) 104,00 56,00 83,85 4,762 399.302 Steinbítur 47,00 46,00 46,92 0,494 23.176 Karfi 25,00 25,00 25,00 0,058 1.450 Ufsi 15,00 15,00 15,00 0,108 1.613 Langa 41,00 41,00 41,00 0,166 6.805 Lúða 300,00 100,00 171,90 0,490 84.230 Keila 19,00 19,00 19,00 0,562 10.678 Keila(ósL) 19,00 19,00 19,00 0,213 4.047 Samtals 74,43 20,738 1.543.487 í dag verða meðal annars seld um 50 tonn úr bátum, aðallega af þorski og ýsu, en einnig steinbít og fleiri tegundum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 93,00 47,00 75,42 8,926 673.208 Ýsa 111,00 75,00 94,76 3,280 310.829 Ýsa(ósl.) 85,00 70,00 78,75 6,285 494.975 Steinbítur 53,00 50,00 50,50 0,191 9.646 Karfi 35,00 35,00 35,00 0,644 22.540 Langa 15,00 15,00 15,00 0,022 330 Lúða 465,00 150,00 218,33 0,255 55.675 Keila 12,00 12,00 12,00 0,178 2.'136 Lýsa 15,00 15,00 15,00 0,204 3.060 Samtals 75,70 21,257 1.609.050 I dag verður selt úr línu- og netabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 92,00 30,00 75,31 17,159 1.292.307 Ýsa 90,00 65,00 80,18 16,090 1.290.016 Karfi 35,00 23,00 34,91 8,169 285.194 Ufsi 30,00 20,00 26,72 1,785 47.679 Steinbítur 50,00 48,00 48,47 0,203 9.840 Hlýri 52,00 52,00 52,00 0,043 2.236 Langa 46,00 15,00 43,78 1,118 48.945 Blálanga 37,00 37,00 37,00 0,560 20.720 Lúða 400,00 200,00 283,01 0,188 53.205 Sólkoli 58,00 58,00 58,00 0,081 4.698 Keila 18,50 10,00 17,73 2,200 39.000 Skötuselur 110,00 110,00 110,00 0,145 15.949 Lax 200,00 200,00 200,00 0,057 11.400 Samtals 64,85 48,228 3.127.639 Selt var meða annars úr Ólafi GK, Happasæli KE, Auði RE og Eyararröst HF I dag verða meðal annars seld 30 tonn af linu- og netaþorski og 25 tonn af línuýsu. lenda aðilans fælist í þekkingu en ekki fjármagni og áhættan því ekki mikil. Xueref sagði að þótt Sovétmenn hefðu fyrir tveimur árum látið í veðri vaka að stefnt yrði að frjálsum utanríkisviðskiptum hefði mikil- vægi mótkaupa eða vöruskipta ekki dvínað. Hún sagðist ekki sjá að þetta myndi breytast um sinn. Fyrirlestur Xueref á morgun- verðarfundi Landsnefndar Alþjóða verslunarráðsins nefndist Opnast viðskiptin við Sovétríkin? Hún rakti erfiðleika sem eru á framkvæmd perestrojkunnar. Mikilvægustu skrefin sem stíga þyrfti væru að gera rúbluna gjaldgenga í alþjóða- viðskiptum, fella um leið gengi hennar tífalt a.m.k, og umbylta verðmyndunarkerfinu. Xueref sagði að upp á síðkastið væru Sovétmenn farnir að tala um að ekki yrði unnt að grípa til þessara aðgerða fyrir en um næstu aldamót vegna þess hve róttækar þær eru. Xueref er sérfræðingur í stofnun samvinnufyrirtækja sovéskra og erlendra aðila en þau eru helsta leið erlendra fyrirtækja til fjárfest- inga í Sovétríkjunum. Hún sagði að nú hefðu verið stofnuð 1000 slík, einkum með aðild Finna og Vestur- Þjóðveija, en einungis 40 eða 50 störfuðu að gagni. Vandamálið væri að korna hagnaðinum úr landi á meðan rúblan er ekki gjaldgeng. Suðurland: Ráðstefna um almenn- irigsíþróttir á Hótel Örk Selfossi. BETRI heilsa, betra líf, er yfirskrift ráðstefnu Héraðssambandsins Skarphéðins sem fram fer á HÓtel Örk laugardaginn 18. nóvember og hefst klukkan 14.00. A ráðstefnunni verða flutt sex erindi. Eru íþróttir heilbrigðismál nefnist erindi Þráins Hafsteinssonar framkvæmdastjóra íþróttámiðstöðv- ar íslands. Jóhann Heiðar Jóhanns- son læknir flytur erindi er nefnist Almenningsíþróttir frá sjónarhóli leikmanns og læknis. Almenningsi- þróttir með augum fatlaðra nefnist erindi Eddu Bergmann. Hjörtur Þór- arinsson framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga flytur er- indi um hlut sveitarfélaganna í al- menningsíþróttum. Sigurður Þor- steinsson frajnkvæmdastjóri Ung- mennafélags íslands ræðir hlut fé- laganna í almenningsíþróttum og formaður trimmnefndar íþróttasam- bands íslands, Ástbjörg Gunnars- dóttir, flytur ávarp. Að loknum framsöguerindum verða þessi málefni rædd í umræðu- hópum og ráðstefnunni lýkur klukk- 27 . ■ TENTETT FÍH heldur hljóm- leika í Heita pottinum í Duus- húsi, sunnudaginn 19. nóvember kl. 21.30. Tentettin skipa: Sigurð- ur Flosason og Stefán Stefánsson á saxófónA Sæbjörn Jónsson, á trompet, Össur Geirsson, á bá- . súnu, Björn Thoroddsen, á gítar, * Bjarni Sveinbjörnsson, á bassa, Kjartan Valdimarsson, á hjjóm- borð og þeir Gunnlaugur Briem, Martin van der Valk og Reynir Sigurðsson á slagverk. Séra Sigurður Ægisson ■ BOLUNGARVIK- Fundur kjörmanna sóknarnefhd- ar Hólssóknar samþykkti einróma á fundi sínum, 6. nóvember síðastliðinn, að veita séra Sig- urði Ægissyni embætti sóknar- prests í Bolung- arvík. Séra Jón Ragnarsson, sem þjónað hefur Bolungarvíkur- prestakalli um sex ára skeið, lét af því embætti fyrir stuttu þar sem hann tók við nýju starfi á biskups- stofu. Sigurður, sem var eini um- sækjandinn um embættið, fæddist 21. september 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1978 og guðfræðiprófi frá Háskóla íslands 1985. Hann var vígður til prests það sama ár og hefur frá þeim tíma þjónað Djúpavogsprestakalli í Aust- i fjarðaprófastsdæmi. Foreldrar Sig- urðar eru þau Kristján Ægir Jóns- son og Þóra Frímannsdóttir. Hann er kvæntur Sigurbjörgu Ingvadóttur og eiga þau 3 börn. - Gunnar. ■ INGUNN Eydal opnar á morg- un sýningu á grafíkverkum í vinnu- stofu sinni Vogaseli 9. Ingunn hef- ur haldið fjórar einkasýningar og tekið þátt í um 90 samsýningum víða um heim. Sýningin er opin * daglega frá kl. 16-20. Henni lýkur 3. desember. Eitt af verkum Ingunnar. ■ MENNTAMÁLAJtÁÐHERRA hefur ákveðið að skipa nefnd um barnamenningu í því skyni að efla þátt lista og menningarstarfsemi í lífi yngstu kynslóðarinnar. Hlutverk nefndarinnar eru að gera tillögur um hvernig megi auka tengsl barna við menningarstofnanir og kanna hvaða leiðir séu færar til að nota listina í auknum mæli í almennri kennslu og gera tillögur um aukna kennslu í listgreinum miðað við lengdan skóladag. Óskað hefur ver- ið eftir tilnefningum frá Kennara? háskóla íslands, Bandalagi íslenskra listamanna, Fóstru- félaginu, Kennarasambandi Is- lands og Ríkisútvarpinu. Mennta- málaráðherra skipar formann nefndarinnar. ■ SOVÉSK bókasýning verður opnuð í húsakynnum MIR, Vatnsstíg 10, í dag kl. 18. Á sýning- unni eru um 500 bækur sem sovésk bókaforlög hafa gefið út undanfarin misseri. Einnig verða á sýningunni nokkrar eftirprentanir rússneskra helgimynda og hljómplötur. Þá eru einnig bækur íslenskra höfunda sem gefnar hafa verið út á ýmsum tungumálum í Sovétríkjunum. Með- al viðstaddra verða þrír sovéskir kvikmyndagerðarmenn sem hingað eru komnir í tilefni kvikmyndaviku í Regnboganum. Þeir eru Eldar Rjazanov, leikstjóri, Leoníd Fil- atov, leikari og Konovalov, fulltrúi Sovexportfilm.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.