Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 36
36 MORGUrtBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1989 Minning: EinarB. Bessason Fæddur 15. nóvember 1922 Dáinn 11. nóvember 1989 Einn fegursti dagur frá því ein- hverntíma snemma í vor er að kveldi kominn. Síminn hringir, mér er sagt að Einsi frændi sé dáinn. Litla stund reikar hugurinn til baka til þess tíma þegar allt lék í lyndi. Einar Baldvin fæddist á Akur- eyri lS. nóvember 1922, sonurhjón- anna Ástríðar Þórðardóttur frá Traðarkoti í Flóa og Bessa Einars- sonar frá Hraunum í Fljótum. Alla sína tíð barðist Einsi við erfiðan sjúkdóm og reyndist Landspítalinn honum sem annað heimili og hjúkr- unarfólkið honum sem fjölskylda nú seinni ár. Eg mun alltaf minnast hans best í „Teigó“, en þar dvaldist hann mörgum stundum, og ekki eru fáar ferðimar eða útilegumar sem voru famar, eiginlega einungis með ákefðina og góða skapið í fartesk- inu, alltaf stefnt beint norður þar sem æskustöðvar þeirra bræðra em. Það var eins og þeir væru að koma heim þegar Akureyri nálgað- ist. Byijað var að vitja kirkjugarðs Akureyrar, þar sem pabbi þeirra hvílir, horft yfir pollinn og dregið djúpt að sér norðlenska loftið, síðan haldið á tjaldstæðið og þar var rak- in saga systkinanna á norðlenskum slóðum. Okkur voru sagðar sögur um hús og menn á staðnum, sem mér, sem fluttist mörgum ámm seinna norður til Akureyrar, fannst sem einhveijar rætur lægju til. Einsi átti draum nú seinni ár, að komast norður til æskustöðv- anna, sem því miður var ekki fram- kvæmanlegt sökum vanheilsu en margar þolraunir gekk hann í gegn- um til að geta tekið þátt í lífínu, og mörg kraftaverkin hafa verið unnin af læknum hans til að létta honum þennan erfiða sjúkdóm sem sigraði hann að lokum. Aldrei heyrðist hann kvarta, heldur leit á björtu hliðamar með óbilandi trú og von um betri heilsu. Ég kveð Einsa Bessa föðurbróður minn í hinsta sinn, en mun alla tíð minnast hans sem hetju, sem aldrei lét bugast fyrr en ekki var lengur stætt. Megi Guðs blessun vaka yfír hon- um um alla eilífð. Ástríður Sigvaldadóttir Elskulegur föðurbróðir minn er látinn. Dauðinn er ætíð áfall, hann kemur alltaf skyndilega þó hann hafí lengi vofað yfír. Einar var son- ur hjónanna Ástríðar Þórðardóttur frá Traðarholti í Ámessýslu og Bessa Einarssonar frá Hraunum í Fljótum. Ástríður var seinni kona hans. Þau eignuðust sjö böm. Sig- valdi Búi f. á Akureyri 1915, d. 1921, Ólafía Ingibjörg, f. á Akur- eyri 1919, Sigvaldi Búi f. á Akur- eyri 1921, Jóhann f. á Akureyri 1922, d. 1925, Einar Baldvin var tvíburabróðir hans, Þórður f. á Akureyri 1924, d. 1926, og Jóhann Þór f. á Kolviðarhóli 1926. Einar var einstakur maður. Létt- ur í lund, með fallegt og gáskafullt bros. Einar var sjúklingur alla ævi. Hann var blæðari og því ákaflega viðkvæmur fyrir öllum áföllum. Eg er viss um að ef hann hefði ekki búið yfír einstöku skaplyndi og trú á lífið þá væri hann löngu farinn frá okkur. Við hittumst ekki mikið föðurfólkið mitt síðustu árin, því em minningarnar um Einar fyrst og fremst tengdar æskuámm mínum. Þegar við komum til ömmu Ástríðar, sem var glæsileg og-stolt kona, sem hafði fengið að reyna margt í lífínu. Hún hafði misst þijá drengi úr sama sjúkdóm og Einar lifði við. Hjá heúni var Einar, sem var henni einkar kær. Hann missti mikið þegar hún lést. Við komum oft til Ólafs og Dísu á Laufásveg- inn, en Einar leigði lengi hjá þeim. Einar starfaði um langt árabil hjá Flugfélagi íslands og var ákaflega tryggur sínu félagi. Hann naut þess að vera með öðmm og var þá jafn- an hrókur alls fagnaðar. Einar naut jafnan mikillar umhyggju Ólafíu systur sinnar og Aage mágs síns. Minnisstæðar era stundir af Lauf- ásveginum og úr Garðastræti í fal- legum blómastofum þar sem tónlist og líflegar samræður glöddu alla. Bræðurnir þrír, Einar, Sigvaldi Búi og faðir minn, Jóhann Þór, hafa allir verið sjúklingar í nokkur ár. Milli þeirra skapaðist viss sam- kennd sem hefur án efa verið þeim öllum mikils virði. Bræður sakna góðs drengs. Við kveðjum Einar með söknuði og þökkum honum samfylgdina. Sérstaka þökk eiga læknar og hjúkmnarfólk sem hefur annast hann og margir eignast hann að vini á liðnum árum. Blessuð 'Sé minning hans. B.J. Föðurbróðir minn, Einar Baldvin Bessason, lést að kvöldi 11. nóvem- ber á 67. aldursári. Einar fæddist á Akureyri 15. nóvember 1922 sonur hjónanna Bessa Einarssonar frá Hraunum í Minningar- og afinælisgreinar Af sömu ástæðum eru það eindregin tilmæli ritstjóra Morg- unblaðsins til þeirra, sem rita minningar- og afmælisgreinar í blaðið, að reynt verði að forðast endurtekningar eins og kostur er, þegar tvær eða fleiri greinar em skrifaðar um sama einstakl- ing. Þá verða aðeins leyfðar stuttar tilvitnanir í áður birt ljóð inni í textanum. Aimennt verður ekki birtur lengri texti en sem Fljótum og Ástríðar Þórðardóttur frá Traðarholti í Flóa. Bessi og Ástríður eignuðust 7 börn. Þrír syn- ir þeirra létust á barnsaldri úr blæð- ingarveiki, einn þeirra var tvíbura- bróðir Einars sem lést aðeins þriggja ára. Einar glímdi við þessa sömu veiki alla ævi og vom hinar mörgu sjúkrahúslegur hans bæði langar og erfíðar. Oft var tvísýnt um líf hans en alltaf reis hann upp eins og fuglinn Fönix, tilbúinn að takast á við lífið á ný utan sjúkrahúsveggj- anna, glaður og fullur bjartsýni. Þrátt fyrir að þjáningar hans væra oft miklar lét hann þær ekki hafa áhrif á skapferli sitt. Ljúf lund og létt yfirbragð var hans aðalsmerki. Alltaf var stutt í stríðni og stráka- pör þegar Einar var annars vegar og alltaf var hann tilbúinn til að slá á létta strengi og gera lítið úr hlutunum þegar eitthvað bjátaði á. Einar var heimagangur á heimili foreldra minna eftir að hann flutti til Reykjavíkur 1948 og litum við á hann sem einn úr fjölskyldunni. Við þekktum ekki annað en að Ein- ar væri með við minnsta tækifæri. Hann leit oft inn eftir vinnu, skrapp með okkur í bíó eða dundaði sér með okkur um helgar. Einar fór með okkur í flest ferðalög um landið sem við stunduðum um áratuga skeið. Var oft farið á misjafnlega skrautlegum farartækjum og ástand bílanna ekki alltaf eins og best væri á kosið. Það kom þá fyr- ir að ferðalögin urðu heldur enda- slepp, mátti þakka fyrir ef bílamir dugðu uppí Kjós. En þá var bara tjaldað og Einar skaust í bæinn eftir varahlutum, því hann keyrði um á Skoda sport með blæju, sem var stórkostlegt farartæki í augum okkar systkinanna sjö enda var oft slegist um að fá að sitja í hjá Ein- ari. Oft var fjörið mikið í bílnum hjá honum og ófáir voru þeir hvutt- arnir sem hlupu geltandi að okkur þegar við þeystum hjá á blæjulaus- um bílnum og urðu skelfingu lostn- ir þegar margraddað mjálm eða gelt hljómaði frá þessu fjórhjóla ferlíki. Það er komið að kveðjustund. Það er mér ljúft og skylt að þakka fyrir viðkynningu í fjóra áratugi þar sem ekki hefur fallið á skuggi. Það era góðar minningar sem ég á um Einar föðurbróður minn og fyrir það skal þakkað hér. Olafía og Aage, ykkar er missir- inn mikill, en minningin um góðan dreng lifír. Gunnar Sigvaldason Lát frænda míns og vinar Einars Bessasonar kom ekki á óvart þeim, sem til þekktu. Hann hafði gengið undir erfiða skurðaðgerð, sem var nauðsynleg en jafnframt lífshættu- leg fyrir hann. Þar með lauk langri og strangri lífsgöngu eftir stöðuga baráttu við manninn með ljáinn, þar sem úrslit vom oftast óráðin og tvísýn, en jafnan með sigri unz yfir lauk, er dauðinn hafði betur að lok- um. Fáir hefðu trúað því að honum svarar einni blaðsíðu eða fimm dálkum í blaðinu ásamt mynd um hvern einstakling. Ef meira mál berst verður það látið bíða næsta eða næstu daga. Ræður Töluvert er um það, að Morg- unblaðið sé beðið um að birta ræður, sem haldnar em á fund- um, ráðstefnum eða öðmm mannamótum. Morgunblaðið mun ekki geta orðið við slíkum óskum nema í undantekningart- ilvikum. Ritstj. mundi endast svo langt líf eftir að hafa verið við dauðans dyr ótal sinn- um frá bamæsku. Einar fæddist og ólst upp á Akur- eyri, sonur hjónanna Bessa Einars- sonar frá Hraunum í Fljótum í Skagafirði og konu hans, Ástríðar Þórðardóttur frá Stokkseyri. Þegar Einar var 7 ára að aldri kom í ljós að hann var haldinn dreyrasýki, þar sem blóðið vantar storknunarefni, hann var m.ö.o. blæðari. Þessi sjúk- dómur varð Einari örlagavaldur og fjötur um fót alla ævi. Tíðar sjúkra- húslegur með óhjákvæmilegum blóðgjöfum urðu hans hlutskipti um dagana, og fyrir nokkmm ámm reyndist nauðsynlegt að taka af honum annan fótinn vegna dreps, sem komið var í hann. Nú mætti ætla að maður sem gengið hafði í gegnum slíkar raun- ir hefði yfir litlu að gleðjast og hreinlega lagt árar í bát. En það var nú eitthvað annað með Einar Bessason, hann var ekki á því að gefast upp, hvemig sem á móti blés. Enginn var léttari í lund og glað- værari en hann. Ávallt sló hann á létta strengi og var jafnan hrókur alls fagnaðar með húmorinn í fyrir- rúmi. Einar starfaði í fyölda mörg ár hjá Flugfélagi íslands, byijaði sem sendill á Akureyri á stríðsámn- um, síðan vann hann í hlaðdeild félagsins á Reykjavíkurflugvelli og var að lokum skrifstofumaður í tækni-innkaupadeildinni. Hann reyndist hinn nýtasti starfsmaður, traustur og samviskusamur, og eignaðist marga vini og kunningja meðal starfsfólksins. Þeir hugsa á þessari stundu með hlýju og sökn- uði til hins látna vinar. Göfug tónlist var helsta áhuga- mál Einars og var hann vel heima í þeim efnum og hafði góðan og fágaðan smekk. Hann átti mikið og gott hljómplötusafn og vönduð hljómflutningstæki. Sat hann löng- um og hlýddi á verk gömlu meistar- anna og naut þeirra stunda í ríkum mæli. Einar kvæntist ekki og átti ekki börn. Hann bjó lengst af með móður sinni, en eftir lát hennar átti hann heimili sitt í Hátúni 10A í húsi Öryrkjabandalagsins og undi hag sínum vel við gott atlæti. En mestrar umhyggju og hlýju varð hann aðnjótandi hjá systur sinni Ólafíu og eiginmanni hennar Aage Foged, sem sýndu honum einstakt ástríki og vom honum sem bestu foreldrar alla tíð. Hjá þeim átti hann ávallt víst skjól og þau vom vörn hans og kjölfesta í erfiðleikum lífsins, sem sjúkdómurinn lagði hon- um á herðar. í öllum veikindum Einars sýndu þau Ólafía og Aage einstaka fórnfýsi og manngæsku svo aðdáunarvert var og voru sam- hent um að létta honum lífið eins og þau megnuðu. Hjá þeim er sökn- uðurinn mestur og stórt skarð sem eftir stendur. Með Einari Bessasyni er genginn góður og göfugur maður, sem ekki mátti vamrn sitt vita. Hann barðist hetjulegri baráttu alla ævi við skæð- an sjúkdóm æðmlaus og hugrakkur og kvartaði aldrei. Þeir sem áttu því láni að fagna að kynnast honum munu minnast hans með virðingu og hlýju og þakklátum huga. Ólafíu og Aage og öðmm ástvinum Einars sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Einars Bessasonar. Jón Norðmann Pálsson ♦ ♦ -------- ■ AL-ANON heldur 17 ára afmælis- og kynningarfund á morg- un, iaugardag, kl. 20.30 í Lág- holtskirkju. ■ RÖSKVA, samtök _ félags- hyggjufólks í Háskóla íslands, heldur ráðstefnu í stofu 101 í Odda, á morgun, kl. 10. Ráðstefnan ber yfirskriftina Fraukur í fræðistörf- um og fjallar um málefni háskóla- kvenna. Frummælendur verða: Auður Styrkársdóttir, þjóðfélags- fræðingur, Guðný Guðbjörnsdótt- ir, dósent í uppeldisfræði, Bryndís Brandsdóttir, jarðeðlisfræðingur, Guðrún Ólafsdóttir, dósent í landafræði og Þórir Kr. Þórðar- son, prófessor í guðfræði. Ráðstefn- an er öllum opin og verður barna- gæsla á staðnum. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR EIÐSSON, Suðurgötu 39, Hafnarfirði, lést 1 5. nóvember á St. Jósefsspítala, Hafnarfirði. Fjóla Pálsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, EMMY HANSSON, Hjallavegi 48, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju laugardaginn 18. nóvember kl. 10.30. Óli Valur Hansson, Ómar Björn, Rolf Erik, Herdís Sveinsdóttir, Óttar og Nfna Margrét. + Ástkær eiginkona mín, móðir og amma, BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR, Ytra-Hóli, Austur-Húnavatnssýslu, verður jarðsungin frá Höskuldsstaðakirkju laugardaginn 18. nóv- ember kl. 14.00. Björn Jónsson, Sigríður Björnsdóttir, Sigrún Björnsdóttir, Björg Sigríður Björnsdóttir, Björn Þormóður Björnsson og barnabörn. + Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VILMUNDUR STEFÁNSSON, fyrrverandi bifreiðastjóri frá Akri, Grindavík, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju laugardaginn 18. nóv- ember kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á björgunarsveitina Þorbjörn, Grindavík. Guðrfður Vilmundsdóttir, Jón Þórðarson, Sæbjörg Vilmundsdóttir, Svavar Svavarsson, Sigurður Vilmundsson, Salbjörg Jónsdóttir, Björgvin Vilmundsson, Sigrfður Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Til greinahöfunda Aldrei hefiir meira aðsent efhi borizt Morgunblaðinu en nú og því eru það eindregin tilmæli ritstjóra blaðsins til þeirra, sem óska birtingar á greinum, að þeir stytti mál sitt mjög. Æskilegt er, að greinar verði að jafnaði ekki lengri en 2-3 blöð að stærð A4 í aðra hverja línu. Þeir, sem óska birtingar á lengri greinum, verða beðnir um að stytta þær. Ef greinahöfundar telja það ekki hægt, geta þeir búizt við verulegum töfum á birtingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.