Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 1989 r ENDURREISN ÞJOÐLEIKHUSSINS BYGGINGARNEFND Þjóðleikhússins ákvað samhljóða á fundi sínum í gær hvaða breytingar verða gerðar á aðalsal Þjóðleikhússins í þeirri endurreisn húss- ins sem stendur fyrir dyrum, en fi-am- kvæmdir heljast í febrúarlok næstkom- andi og verður aðalsviði leikhússins lok- að fram í desember á næsta ári. Fyrsta sýning eftir endurbætur á sal og lagfær- ingar verður jólin 1990. I fyrsta áfanga endurreisnar Þjóðleikliússins er gert ráð fyrir að ljúka endurbótum og breytingum á öllu suðurhúsinu, þ.e. áhorfendasal, göngum, anddyri og Þjóðleikhúskjallara, en á lokunartíma aðalsviðs verður lokið við salinn og 2. og 3. hæð. Alls er áætlað að kostnaður við 1. áfanga verði liðlega 500 millj. kr. á verðlagi í sept. sl., en áætlað er að sá hluti sem verður unninn á næsta ári kosti um 350 millj. kr. á verðlagi næsta árs. Aðalbreytingin er hækkun á gólfi í aðalsal, en eM og neðri svalir verða sameinaðar í einar svalir, sem verða á milli efri og neðri svala eins og þær eru nú. Viðbótarkostnaður vegna breytinga á gólfi og svölum er innan við 15 miHjónir kr. Aðalkostnaðurinn er vegna óhjákvæmilegra breytinga og við- halds hússins. A kynningarfimdum með starfsfólki leikhússins og Þjóðleikhúsráði hefiir tillögum byggingamefiidar verið tekið mjög vel að sögn Skúla Guðmunds- sonar formanns byggingarnefiidar. Teikningin sem Byggingamefiid Þjóðleikhússins hefúr ákveðið að vinna eftir frá embætti húsameistara ríkisins. Gengið verður inn í aðalsal fremst niðri og úr Kristalssal uppi, en inn á svalir verður gengið frá Kristalssalarhæð og fremst inn á svalimar eins og sjá má á teikningu. „Betra leikhús - á grunni verndunarsj ónarmiða“ „Við höfum skoðað marga kosti til þess að bæta áhorfendasvæði og aðstöðu fyrir gesti leikhúss- ins,“ sagði Skúli Guðmundsson, „en vegna verndunarsjónarmiða völdum við þó ekki þá tillögu sem leikhúsráðgjafi byggingamefnd- arinnar taldi leiða til mestra end- urbóta á salnum. Við reynum að breyta útliti hússins að utan sem innan sem allra minnst og munum færa sumt í upprunalegt horf. Þær breytingar sem hefur verið ákveðið að gera byggjast allar á því að gera húsið að betra leik- húsi, bæði fyrir gesti og leikara. Niðurstaðan er sú að aðalgólfið í salnum verður hækkað" upp, mest að aftan, þannig að gengið verður inn í aðalsalinn bæði á fyrstu hæð og einnig úr Kristalssal þar sem - segir Skúli Guðmundsson formaður bygg- ingarneftidar hingað til hefur verið gengið inn á neðri svalir. Neðri svalir verða því fjarlægðar og efri svalir einn- ig, en þessar svalir verða samein- aðar í einar svalir yfir aðalgólfi og verða staðsettar á svæðinu á milli núverandi svala. Þessar breytingar er m.a. nauðsynlegt að gera vegna breytinga á leik- sviði, hljómsveitargryfju og fleiri atriða, en sjónlínur leikhúsgesta Þjóðleikhúsið eins og það er í núverandi mynd með litlum halla á aðalgólfi í sal og efri og neðri svölum. á leiksvið munu gjörbreytast til hins betra við þessar lagfæringar og nálægð milli áhorfenda og leik- ara verður mun meiri en nú er og gefur möguleika á fjölbreyttari sviðssetningum. Nýting á efri svölum hefur verið mjög lítil og þótt sætum fækki um liðlega 100 í salnum við breytingarnar þá er ljóst að öll sætin verða mjög fram- bærileg. Á efri svölum voru um 150 sæti. Gengið verður. inn á svalirnar frá Kristalssalarhæð. Loft í sal, veggir, stólar og stúkur verða í hefðbundnum stíl en sumt það sem hefur verið breytt í tímans rás verður fært í upprunalegt horf og annað lagfært til hagræð- is. Gangar á fyrstu hæð verða færðir í upprunalegt horf að hluta og mun það bæta aðstöðu fyrir leikhúsgesti, m.a. vegna þess að fatahengi verða fiutt. Alls er kostnaður nú við 1. áfanga áætlaður liðlega 500 millj. kr., en það sem áætlað er að vinna á þessu ári og því næsta mun kosta um 350 millj. kr. á verðlagi þess árs. Auk þess að Ijúka við aðalsalinn á næsta ári og Kristals- salarhæð og 3. hæðina verður hafist handa við að byggja tækja- klefa austan við húsið, neðanjarð- ar. Lyfta fyrir leikhúsgesti verður byggð í næstu lotu. Á lánsfjárlög- um þessa árs eru 75 milljónir króna og í fjárlagafrumvarpi næsta árs eru 125 millj. kr., en stjórnvöld hafa gefið fyrirheit um viðbótarflármagn til endurreisnar Þjóðleikhússins á næsta ári.“ Skúli sagði í samtali við Morg- unblaðið að mikil vinna hefði ver- ið lögð í þennan þátt endurreisnar Þjóðleikhússins og gott samráð hefði verið haft við fulltrúa leik- ara og starfsfólks hússins og Þjóð- leikhúsráð, enda hefði mikill stuðningur komið fram við áform byggingamefndar þegar niður- stöður lágu fyrir. Grunnmynd af aðalsal Þjóðleikhússins eins og hann verður eftir endurreisnina á næsta ári, en fremst verður möguleiki á að stækka leiksviðið við ákveðnar sviðssetningar og með tilkomu nýrr- ar hljómsveitargryfju. Gengið er til sæta um stiga meðfram veggjum fremst og aftast í salnum. Lyfta verður byggð á stigagangi austan megin í húsinu, snyrtingum breytt og Kristalssalur lagfærð- ur. Gengið verður inn á svalir um stiga í hliðargangi Kristalssalar. Gengið verður inn á hinar nýju svalir t sal Þjóðleikhússins eins og myndin sýnir, frá báðum hliðum, en rými fyrir aftan núver- andi efri svalir verður lokað af og gert að samlestrarsal eða litlu leiksviði eftir ástæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.