Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 17.11.1989, Blaðsíða 3
3 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTLlDftffUR 17. NÓVEMBER 1989 ------------FLUGLEIDIR —,------- OFAR OG OFAR NÝJUSTU FRÉTTIR FYRIR VIÐSKIPTAVINI • NÓVEMBER 1989 Glitmerki fyrir litlu farþegana Flugfreyjur í innanlandsflugi Flugleiða eru þessa dagana að útdeila um 3000 glitmerkjum til yngstu farþeganna sem hafa tekið merkjunum feginshendi. Þau á að festa í föt með nælu. Merkið sjálft hangir síðan í bandi úr nælunni sem handhægast er að festa innan í vasa á yfirhöfn. Síðan má láta merkið hanga úr vasanum þegar skyggir en stinga því á sig þess á milli. Það húmar fyrr með hverjum degi sem líður og því er mikilvægt að huga vel að smáfólkinu í umferðinni. Vinsældir Flugleiðaglitmerkjanna benda til þess að smáfólkið viti líka vel sjálft hvernig best er að vekja á sér athygli í SONY VERÐLAUN TIL FLUGLEIÐA FYRIR Fyrir nokkrum dögum veitti Sony rafeindafyrirtækið Flugleiðum „Sony viður- kenninguna 1989 fyrir þjónustu í flugi“ vegna velheppnaðrar myndbandaþjónustu um borð í Flugleiðavélum á Norður Atlantshafsleiðum. Frá því í haust hefur Saga Class farþegum á þessum Ieiðum verið boðið að horfa á kvikmyndir að eigin vali í Sony GV 8 myndbandstækjum. Þessi nýja þjónusta hefur mælst mjög vel fyrir. Farþegar geta valið úr kvikmynda- titlum auk fræðsluefnis og íþrótta- þátta og hver Saga Class farþegi fær eitt tæki til afnota á leiðinni. Nú er framundan endurnýjun ails myndefnis um borð. Ef þú hefur misst af góðri bíó er allt eins víst að hún um borð næst þegar þú vestur um haf. Mogginn í rúmíð á Esju - alveg eins og heima Sunnudagar eru bara ekki sunnudagar heima hjá mér nema maður fái Moggann í rúmið“, sagði gesturinn á 312 á Hótel Esju á dögunum. Daginn eftir, á sunnudagsmorgni, var rjálað létt við hurðarhúninn á 312. Þegar gesturinn leit fram var Mogginn þar kominn og reyndar á alla hurðarhúna á ganginum. Starfsfólkið á Hótel Esju vill nefnilega að gestunum líði jafn vel og heima. Ef sunnudagur er ekki svipur hjá sjón nema þú fáir Moggann í rúmið er þér alveg óhætt á Esju. kemur. Flug og bfll fyrir fólk í dagsferð Þeir sem ætla sér að gera stuttan stans í höfuðborginni en þurfa mörgu að sinna vilja gjarnan hafa bíl til umráða. Innanlandsfarþegar, sem fara til Reykjavíkur og kaupa „Viðskipta- pakka" Flugleiða, eiga kost á bílaleigubíl fyrir 3000.- krónur á dag. Þar er allt innifalið, söluskattur, kaskótrygging og allt að 100 km akstur. Aðeins er við það miðað að bílnum sé skilað sama dag og greitt fyrir notað bensín. Þetta getur jafngilt allt að 40% afslætti. Ef dagurinn dugar ekki og þörf er fyrir bílinn í sólarhring kaupa menn vitaskuld „Sparipakka" og þá bætast aðeins 200,- krónur við daggjaldið. Bílaleigan eykur nú stöðugt þjónustu sína og hefur alltaf lágmarksbílaflota við afgreiðslu innanlands- , flugs Flugleiða á Reykjavíkur-/ flugvelli. Nýja uppskeranum borð! Um miðjan nóvember á hverju hausti bíða vínáhugamenn um allan heim spenntir eftir fyrstu flöskunum af Beaujolais Nouveau, nýja árganginum af Beoujolais vínum. Strax og víngerðinni lýkur í nóvember er Beaujolais fyrirtaksvín og flutt á markaði víðsvegar um heim með hraði og miklu pompi og prakt. Sumstaðar er keppt um að koma fyrstu flöskunni inn fyrir landsteinana. Flugieiðafarþegar verða meðal hinna fyrstu í ár til að njóta þessara rómuðu veiga og þess sérstaka andrúmslofts sem fylgir fyrstu flöskunum af B. Nouveau sem verða í Flugleiða- vélunum frá og með deginum í dag. Sérfræðingar segja að vín- viðurinn vaxi í sandbornum og leirkenndum jarðvegi sem hvíli á granítklöpp. Hann gefi af sér ferskt, líflegt, létt ávaxtakennt og nokkuð sterkt en umfram allt ljúffengt vín. Árgangurinn i ár mun lofa óvenjugóðu. Krónurnar endast betur í jólainnkaupum á 850 km hraða! Jólagjafainnkaupin geta orðið þreytandi þegar fólk hendist á fullri ferð á milli búðanna á síðustu stundu. En þú getur haft annan hátt á. í 30 þúsund feta hæð á 850 km hraða um borð í Flugleiðaþotu er gjafavöru- verslun sem á ekki sinn líka. Nýi vetrarvörulistinn í Saga Boutique Flugleiða er sannkallaður . jólagjafalisti. Meðal þess sem þar er á boðstólnum eru slæður og bindi frá Channel, sjálfblekungur frá Mont Blanc, svissnesk og japönsk gæðaúr fyrir börn og fullorðna, ilmvötn írá Dior, Channel, Cartier, Boucheron og Gucci svo fátt eitt sé nefnt og karlmannasnyrtivörur frá Gucci, Dior, Cartier og Boss og auðvitc miklu fleira. Þú slærð fjórar flugur í einu höggi, kemst leiðar þinnar hratt og fyrirhafnarlaust, verslar og nýtur um leið þæginda og þjónustu og kaupir einungis úrvals vörumerki frá heimsþekktum framleiðendum. Síðast en ekki síst eru jólavörurnar í Saga Boutique vitaskuld tollfrjálsar og þannig tekst þér líka að láta krónurnar endast t^Jur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.