Morgunblaðið - 26.11.1989, Page 27

Morgunblaðið - 26.11.1989, Page 27
‘ MORGUNBLAÐiÐ MINNINGAR njlCM Ulií I T? liUli h m SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 1989 Guðjón Jósefs- son - Minning' Enn einn heiðursmaður úr íslenskri bændastétt e'r horfinn sjónum okkar, kominn á efri ár, farinn að heilsu og kröftum hefur hann eflaust verið hvíldinni feginn. Eftir stöndum við sem vorum svo lánsöm að eignast vináttu hans og þökkum liðna tíma. Þeir ena áreiðanlega margir sem minnast liðinna ánægjustunda við spjall yfir kaffibolla í stofunni eða eldhúsinu á Ásbjarnarstöðum. Það er með ólíkindum hvað það gátu stundum rúmast margir á þeim bæ, þó ekki sé hann stór, en þar er allt- af pláss fyrir gesti, vegna þess að þar er hjartarúm. Áreiðanlega sakna barnabörnin þess nú sárt að nú er hlýja höndin hans afa ekki lengur til að leiða þau. Þessi örfáu orð eiga að vera tii þess að færa þakkir okkar hjóna til Guðjóns nú að leiðarlokum, þakk- ir fyrir hlýhug og vináttu á liðnum árum. Innilegar samúðarkveðjur til þín, Rúna mín, barna ykkar tengda- bama og barnabarna. Guð geymi ykkur öll. G.B. Síðasta dag í sumri lést á Hvamm- stanga eftir nokkra sjúkdómslegu Guðjón D. Jósefsson bóndi á As- bjamarstöðum, f.v. hreppstjóri og sýslunefndarmaður. Þar sem nánir samstarfsmenn hans og sýslungar hafa skrifað um hann, ætt hans og afkomendur, ásamt margþættu ævistarfi, endur- tek ég slíkt ekki að öðra leyti en því, að móðurætt hans var úr Strandasýslu og Dölum. Því miður Iágu leiðir okkar Guð- jóns lítið saman. Báðir inn til íjalla sín hvoru megin við Húnaflóa. Hins- vegar hittumst við nokkram sinnum, og á þeim stundum fann ég glöggt hversu mikilli manngöfgi hann var gæddur. Þegar Steinunn dóttir þeirra Ás- bjarnarstaðahjóna og Svanur sonur okkar Ingu ákváðu að ganga hönd í hönd á lífsveginum hófust kynni okkar við Guðjón, sem aldrei bar svo skugga á. Hann kom mér fyrir sjón- ir sem ljúflegt prúðmenni. Hafi hann ekki verið sérstakt góðmenni, skil ég ekki húgtakið. Yfirlætislaus íhug- un á lausn vandamála er að jafnaði farsælli en hávært glamur og sýndar- mennska. Ég hygg, að Guðjón hafi, sökum prúðmennsku sinnar, ógjarnan aflað sér óvildarmanna þótt hann væri fastur á skoðunum þegar um rétt- læti var að tefla. Á honum sannað- ist, að uppdalafólk getur gjaman kennt umheiminum sanna lífsspeki og skapað öðram mannlega fyrir- mynd, sem stenst alla „isma“, tískur og trúðskap. Útfarardagurinn, 28. október, sl. var sólríkur og kyrr framanaf. Rétt eins og sá er stjórnar veðri og vind- um hafi viljað með því hvetja sem flesta að fylgja héraðshöfðingja Vatnsnesinga síðasta spölinn. Síðdegis strauk haustsvalinn um bliknandi jarðargróður og ýfði nokk- uð klæðnað og höfuðhár ungra sem aldinna í kirkjugarðinum á Tjörn. Við hjónin vorum ákveðin að vera við útför þessa vinsæla kunningja okkar hinumegin Flóans, ef kostur væri á. Ágætur frændi minn og ná- búi ók okkur á færleik sínum. Við höfðum ekki áður farið að Tjamar- kirkju og komum þangað dijúgum tíma fyrir auglýsta jarðarför. Héld- um því áfram út Vatnsnes og inn hinumegin móts við Hvítserk, án þess þó að gefa okkur tíma til að ganga til sjávar. Á eftir kom upp í hugann sú ein- kennilega tilviljun, að einmitt á þess- um slóðum leit Guðjón á Ásbjarnar- stöðum fyrst dagsins ljós. Ef til vill hafa óvænt kveðjuboð borist með okkur af bemskustöðvun- um til hinstu hvílunnar, þar sem móðir jörð umlauk verndarfaðmi um trúverðugan son sinn. Hin reisulega Tjarnarkirkja var þéttskipuð í sætum og stæðum út að dyram. Einnig margt manna inn í prestsseturshúsi, en hátalarakerfi komið þar fyrir. Kirkjukórinn á Hvammstanga sá um góðan söng, og ekki spillti Garð- ar Cortes fyrir með dásamiegum ein- söng sínum. Þótt prestseturshúsið á Tjörn sé stórt hefði það mátt auka rýmd sína mörgum sinnum við erfidrykkjuna þar. Þar sást best hve mannfjöldinn var mikill. En allt gekk þetta vel og allir fengu nægju sína af góðmetinu. Öllum aðstandendum þessa prúð- mennis vottum við hjónin innilega samúð okkar og minnumst um leið, að sannur drengur hefur gengið sín lokaspor. En harðsporana er lengi hægt að greina. Ingimundur á Hóli Guðjón á Ásbjarnarstöðum er all- ur. Það er í sjálfu sér ekki harma- fregn, þótt áttræður maður safnist til feðra sinna. Það er saga lífsins. Og oft er maður þakklátur fyrir að fólk fær að fara meðan það er ernt og andlega heilbrigt, svo aðstandend- ur þurfi ekki að horfa upp á það verða að börnum á nýjan leik. En þegar leiðir skiljast riflast upp minn- ingar margra ára samstarfs. Guðjón var skipaður hreppstjóri í Kirkjuhvammshreppi 1961 ogkosinn sýslunefndarmaður 1962. Ég fer ekkert frekar út í að ræða störf hans hér eða ætt. Þeim sem hafa áhuga á því, bendi ég á rit Torfa Jónsson- ar, Æviskrár samtíðarmanna. Við áttum því langt og gott samstarf. Ilann vann öll sín verk vel og allar hans skrár og skýrslur vel unnar. Starf hreppstjóra hefir dregist saman undanfarin ár, en er hann tók við var það töluvert. T.d. hvíldi inn- heimta þinggjalda á hreppstjórum, þótt það sé nú að mestu liðin tíð. Samstarf okkar var fyrst og fremst í sýslunefnd Vestur-Húna- vatnssýslu. Ef til vill er það eins og að nefna snöra í hengds manns húsi að minnast á sýslunefnd, eftir allar þær neikvæðu umræður, sem um þær urðu, er misvitrir menn lögðu þær niður, þótt svo heimamenn hafi snú- ið á þá og endurvakið sýslunefndirn- ar undir öðru nafni. í Vestur-Húna- vatnssýslu er aðeins eitt kauptún, Hvammstangi. Fram yfir 1970 bjuggu þar liðlega 300 manns eða um fimmtungur sýslubúa. Það gat því ekki veitt héraðinu þá forystu, sem þurfti. Það kom því í hlut sam- eiginlegrar nefndar allra hreppanna, sýslunefndarinnar, að vera leiðandi afl í uppbyggingu héraðsins. Þar naut Guðjón sín mjög vel. Það leið ekki sá sýslufundur, að hann kæmi 27 ekki með tiilögur um eitthvað það málefni sem til framfara mátti telja svo sem til varðveislu menningar- verðmæta. Má þar til nefna upp- byggingu byggðasafns, stofnun hér- aðsskjalasafns og söfnun skjala: Ennfremur umræður um varðveislu minja, bæði náttúraminja og minja gerðar af mannahöndum. Þá var Guðjón tryggur talsmaður góðrar heilbrigðisþjónustu og uppbyggingar aðstöðu fyrir gamalt fólk, en þessi mál voru að mestu í höndum sýslu- nefndar. Góður maður er genginn, maður sem ávallt lagði gott til málanna og horfði fram á veginn, maður, sem vildi beita kröftum sínum til þess að byggja upp landi og lýð til gagns. Ég sakna góðs vinar og manns, sem maður leit upp til og bar virðingu fvrir. Ég og kona mín sendum konu hans og börnum svo og öðram að- standendum samúðarkveðjur. Jón Isberg MOTUN ATVINNUSTEFNU Grímur Þ. Valdimarsson Logi Kristjánsson Sigurður T. Sigurðsson Jón Þórðarson Kristján Guðmundsson REYKJANESKJORDÆMI IMOROAN STRAUMS ■ Ríkisstjórnin hefur ákvedið að beita sér fyrir mótun atvinnustefnu og hef* ur Júlíusi Sóines, ráðherra verið falin framkvæmd þess verks. í vetur verða haldnir fundir í ölium kjördæmum þar sem þessi mál verða reifuð og leitað eftir skoðunum og hugmyndum heimamanna. Bs Fyrsti fundurinn verður fyrir Reykja- neskjördæmi norðan Straums mið- vikudaginn 29. nóvember klukkan 20:30 í FÉLAGSHEIMILI KÓPAVOGS, FANNBORG 2, í Kópavogi. H Stuttar ræður flytja: Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, Júlíus Sólnes, ráðherra Hagstofu, Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofn- unar og Óskar Maríusson, fram- kvæmdastjóri Málningar hf. fS Að loknum ræðum verða pall- borðsumræður. Þátttakendur auk frummælenda verða: Grímur Þ. Valdi- marsson, forstjóri Rannsóknastofnun- ar fiskiðnaðarins, Logi Kristjánsson, formaður atvinnumálanefndar Kópa- vogs, Sigurður T. Sigurðsson, for- maður Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirðí og Jón Þórðarson, verk- smiðjustjóri, Reykjalundi. H -Fundarstjóri verður Kristján Guð- mundsson, bæjarstjóri í Kópavogi. ffi Reyknesingar: Fjölmennið á fundinn og takið þátt í mótun atvinnustefnu framtíðarinnar! ■ Ef þið eigið góða hugmynd, þá látið hana koma fram á fundinum! SAMEINAÐA/SÍA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.