Morgunblaðið - 26.11.1989, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FOLK fl FRETTUM suNNúDXfaóti^’ NÓVEMfiERvJ989
TONLIST
Öperudagai
í Varna
í VARNA í Búlgaríu er glæsilegt Óperuhús,
byggt í upphafí þessarar aldar í byggingarstíl
austuríska keisaradæmisins. Nýlega hafa farið
fram gagngerar breytingar á þessu gamla óperu-
húsi, svo að það þjóni öllum nútimakröfum til
óperuflutnings. Var það opnað eftir endurbæ-
turnar með sýningu á Töfraflautunni eftir Moz-
art, og var Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur, óperu-
söngkonu, boðið til þessarar frumsýningar sem
fúlltrúa Islensku óperunnar og til þess að kynn-
ast óperuflutningi í Varna. Gestgjafínn var
Kamburov forstjóri Varnaóperunnar og deildar-
stjóri óperu- og listadeildar Menntamálaráðu-
neytisins, svo og Damyanov, sem annast þar
tengsli við vináttufélög.
Dvaldi Ólöf Kolbrún þar ásamt Margréti Sigþós-
dóttur, formanni Búlgaríufélagsins á íslandi,
vikuna 6.-13. nóvember sl. Segir Olöf Kolbrún að
óperuhúsið þjóni öilum nútímkröfum til óperufluttn-
ings og heillaðist af leik og söng búlgörsku lista-
mannanna og lofaði búninga og leikmynd. Einnig
var þeim Ólöfu Kolbrúnu og Margréti boðið að sjá
Vald örlaganna eftir Verdi í hinu glæsiiega óperu-
húsi í Sofía. Kvaðst Ólöf Kolbrún sjaldan hafa heyrt
eins góðar raddir í Óperu og nefnir sérstaklega
Stefku Evstatievu, sem fór með hlutverk Leonoru.
I heimsókninni var rætt við stjórnendur menning-
armála um menningarmál og menningartengsl Búlg-
aríu og Islands, m.a. möguleikar á að Varna óperan
gæti e.t.v. heimsótt ísland í næstu framtíð. í Varna
er m.a. haldin listahátíð á hveiju sumri, kölluð
„Varna-sumar“, og var fyrst haldin 1926. Þar fer
fram flutningur á óperum, ballettum og tónleikum,
að ógleymdri alþjóðlegri ballettkeppni ungs fólks
og er hún sú elsta í heimi. Fer þetta fram í óperu-
húsinu, útileikhúsinu í listigarðunum, menningar-
höllinni, sýninga- og íþróttahöllinni og víðar. Auk
þess fer fram alþjóðleg kvikmyndahátíð, sýning á
grafík- og ljósmyndum, leikbrúðusýning, kórakeppni
o.fl. Ennfremur er þar starfræktur á hveiju sumri
þjóðlista (folklore)-skóli í þorpi nálægt Varna.
Margrét og Ólöf Kolbrún með Kamburov, for-
stjóra Varna-óperunnar.Á innfeldu myndinni er
gamla óperuhúsið í Varna. Myndin tekin í sum-
ar, eftir að búið var að gera það upp.
Myndin sem fyrir valinu vard. Rétt er að taka fram að hún er upprunalega slide-mynd í lit og eigi víst
að gæði hennar skili sér með öllu í svai-t/hvítu þar eð myndin er afar dökk í eðli sínu. Stúikan á myndinni er
Silja, dóttir Ijósmyndarans.
að var svolttið skemmtilegt
með þessa mynd, skilafrestur
á myndunum var dagurinn eftir að
hún var tekin. Ég fékk bílinn lánað-
an og ætlaði í sunnudagsbíltúr út
á Reykjanes. Dagurinn rann upp
með grenjandi slagveðri, en engu
að síður var lagt í hann og ég skaut
eitthvað uin fimm filmum á bílinn,
hugsaði næstum meira um að
blotna sjálfur sem minnst. Það er
reyndar regla sem ég vinn m.a.
eftir, að biða aldrei eftir góðu veðri.
Á íslandi er slíkt trygging fyrir því
að ekkert verði gert. Aftur á móti
sækist ég ekki eftir slagveðri og
það er erfítt að mynda í slíku veðri,“
segir Magnús.
Magnús Hjörleifsson starfar sem
sjálfstæður verktaki, en mest af
hans tíma fer í að vinna fyrir aug-
lýsingastofur og tímarit. En hann
hefur einnig komið nærri bílaljós-
myndun, hefur t.d. séð um alla ljós-
myndun fyrir Heklu sem flytur inn
og selur ýmsar kunnar bílategund-
ir. Að sigra í samkeppni af þessu
tagi er mikill hvalreki fyrir ljós-
myndara, ekki eingöngu fjárhags-
lega, en verðlaunin nema nærri
200.000 krónum, heldur einnig fag-
lega, þannig hefur Mazda tekið
auglýsingasíður í vikuritinu virta
Newsweek sem út kemur 27. þessa
mánaðar og í desemberhefti Nation-
al Geographic, og munu sigurmynd-
irnar 15 verða birtar, auk þess sem
1990-almanak Mazda er rétt óút-
komið og verður dreift um heim
allan.
31
SINGER
SAUMAVÉLAR
SPARA ÞÉR SPORIN
SAMBA EXCLUSIVE
Saumavél með 11 mismunandi
nytja-, skraut- og teygjusaumum.
☆ Beinn saumur
☆ Zig-zag
☆ Styrktur zig-zag
☆ Blindfalds saumur
☆ Opinn loksaumur
☆ Þriggjaspora
zig-zag
-A" Tíglasaumur
-fr M-saumur
Loksaumur
Einnig hefur vélin sjálfvirkan
hnappagatasaum, frjálsan arm
og þægilega yfirbreiðslu.
Vélin er með frjálsum armi og
sjálfvirkum hnappagatasaum.
Það er auðvelt að þræða hana og
létt að spóla.
kr. 19.277 stgr.
Við kaup á einni af neðangreindum saumavélum fylgir Magic
Taylor tölufestingavél eða viðgerðavél í bónus.
SINGER tölvuvél mód. 6268 kr. 56.555 stgr.
SINGER Serenade 30 mód. 6235 kr. 46.164 stgr.
SINGER Serenade 10 mód. 6233 kr. 34.100 stgr.
SAf3§3
0 SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VIÐ MIKLAGARÐ
OG KAUPFÉLÖGIN
GREIÐSLUKORT
OG GÓÐIR
GREIÐSLU-
SKILMÁLAR.