Morgunblaðið - 31.12.1989, Side 22
22
MORGUNBLÁÐIÐ SUNNUDAGUR 3Í. DESEMBER 1989
[AVEBÐi
Sanitas
Sanilas /4 7/
'WKKIST KAI.fi
Verslunar-
pláss í
fjórar aldir
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Ingimar Sveinsson: Djúpivogur.
400 ár við Voginn. Útgefandi:
Búlandshreppur. Egilsstöðum
1989. 207 bls.
Á síðustu árum hefur sá siður
færst í vöxt að minnast merkisaf-
mæla kauptúna, kaupstaða og
byggðarlaga með því að rita og
gefa út sögu viðkomandi staða.
Stundum hafa úr orðið hin glæsileg-
ustu rit, oft í mörgum bindum.
Sagnfræðingar eða aðrir fróðleiks-
menn hafa verið ráðnir til heimilda-
söfnunar og ritunar. Einatt hafa
þeir dregið á land miklar heimildir,
ritaðar og munnlegar Sem ekki hafa
ætíð legið á lausu. Sannarlega hef-
ur hér skapast góð og virðingarverð
hefð. Auk þess sem hún lýsir rækt-
arsemi við átthaga og viðurkenn-
Íngu á því að skílningur á nútlð er
að hluta til a.m.k. fólginn I þekk-
ingu á fortíð, má líta á þessa við-
leitni sem einskonar „safn tii sögu
íslands“. Vegna þessara skrifa verð-
ur ritun íslandssögu síðustu tvær
aldirnar mun auðveldari en ella
hefði orðið.
Djúpivogur hélt hátíðlegt 400 ára
afmæli sitt sem verslunarstaður á
síðastliðnu sumri. Árið 1689 komu
þangað þýskir kaupahéðnar með
konungsbréf í vasa og hófu við-
skipti við landsmenn. Þetta er því
löng búsetusagá sem líklega hefði
orðið yfirlætismeira sveitarfélagi
tilefni til mikilla skrifa. Þeir Djúpa-
vogsmenn eru hins vegar næsta
hógværir og hafa látið sér nægja
að rita á litla bók nokkra þætti úr
sögu sveitarfélagsins.
Fyrst er gefið stutt yfirlit um
landslag og staðhætti. Þvf næst eru
„raktar slóðir fyrstu manna í ná-
grenni Djúpavogs". Þar er seilst
býsna iangt aftur, því að hugsan-
legt er að Rómverjar hafi komið
þar löngu fyrir landnámstíð. Er
stuðst við merka fornleifafundi í
þeim ágiskunum. Þá kemur nokk-
urt ágrip af elstu verslunarsögu og
stuttlega er greint frá Tyrkjaráni
þar eystra.
í fjórða kafla eru birt gömul
manntöl og úrdrættir úr þeim. Kaf 1-
ar eru birtir ú ferðasögum útlend-
inga fyrr á tíð. Síðan víkur sögunni
til 19. og 20. aldar. í 8. og 9. kafla
greinir frá útgerð og er þar m.a.
tal 44 skipa og saga hvers þeirra
sögð í stuttu máli. Þá er þáttur um
sjóhrakninga. Nokkur skemmtileg
bréf til Gísla Þorvarðarsonar í Pap-
ey eru hér birt. Smáþættir eru um
athafnamenn staðarins, aðdrag-
Bat7
Ki
o
o
\bréfabindi- tölvubindi
\ SKIPTIBLÖÐ - STAFRÓF
| -DISKLINGABOX
-PLASTMÖPPUR
-GATAPOKAR
OG MARGT
)
FLEIRA