Morgunblaðið - 31.12.1989, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31. DESEMBER 1989
41
Michael Dudikoff í Dauða-
fljótinu; hroðvirknisleg B-
mynd.
Kindarlegt
Dauðafljót
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Dauðafljótið („River of De-
ath“). Sýnd í Háskólabíói.
Leikstjóri: Steve Carver.
Aðalhlutverk: Michael Dudi-
koff, Robert Vaughn, Don-
ald Pleasence og Herbert
Lom.
Lakasta jólamyndin í ár er
mynd Háskólabíós, Dauða-
fljótið, eftir reyfara metsölu-
höfundarins á Islandi, Alistair
MacLean. Dauðafljótið er
dæmigerð B-framleiðsla frá
Cannon, illa leikin, skrifuð og
leikstýrt.
Michael Dudikoff leikur
leiðsögumann í frumskógum
Amazon sem tekur með sér
fámennan en mislitan hóp inní
skóginn til að koma höndum
yfir gamian nasista, sem gerir
hræðilegar tilraunib-^á inn-
fæddum. Dudikoff er líka
sögumaður myndarinnar og
kemur sem slíkur inní á furðu-
legustu tímum með undarlega
speki. Það og annað eins og
bátsferðin upp ána og tak-
markið í lokin, getur raunar
vel verið iéleg stæling á
„Apocalypse Now“.
Hér er samankomin öll
gamalkunna hroðvirknin sem
prýða má eina B-mynd. Per-
sónusköpun er alls engin, allir
skiptast í annað hvort vonda
eða góða og það ségt utan á
þeim, þrír leiðangursmenn
týnast hreinlega hjá mannæt-
um, í stuttri forsögu sem ger-
ist 20 árum áður virðast þeir
Robert V aughn og Donald Ple-
asence miklu eldri en þeir eru
í samtímanum, þegar upp
kemst um njósnara meðal leið-
angursmanna gleymist að
filma viðbrögðin við því,
Vaughn er gamli nasistinn
Maiteuffet en reynir ekki við
þýskan hreim, hvað þá annað,
heldur talar eins og kalí-
fornískur fasteignasali.
Myndir eins og Dauðafljótið
reyna oft að auglýsa sig upp
með stjörnuliði en Vaughn,
Pleasence og Herbert Lom líta
liálf kindarlega út í þessari
framieiðslu. Jafnvel hasar-
atriðin, sem oft bjarga því litla
sem hægt er að bjarga, eru
illa uppsett og byggjast mest
á ringulreið og ótrúlega mikl-
um sprengingum með reglu-
legu millibili. Hér áður var
hægt að gera frambærilegustu
spennumyndir úr MacLean-
bókunum (Byssurnar frá Nav-
arone) en það gildir ekki leng-
ur.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
ÞUGETUR
EIGNAST AUÐLIND
IHAPPDRÆTTI
HÁSKÓLANS!
Hvergi í heiminum er jafnhátt vinningshlutfall og hjá Happdrætti Háskólans,
því 70% af veltunni renna beint til vinningshafa! Þar með er vinningsvonin hvergi jafnmikil
og hjá Happdrættinu. í ár eru yfir 2000 milljónir króna í pottinum. í raun gæti annar hver íslendingur
hlotið vinning því að vinningarnir eru 135.000 talsins. Mest getur þú unnið 45 milljónir á eitt
númer - allt skattfrjálst. Með trompmiða er hægt að vinna 10 milljónir króna í hverjum
mánuði og 25 milljónir í desember.
Tryggðu þér happamiða strax - þú mátt bara til!
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
ARGUS/S(A