Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ DAGBOK SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990
j ipersunnudagur4.febrúar,semer5.sd.eftir
1 JJA-VJ'þrettánda. 35. dagurársins 1990. Árdegisflóð
í Reykjavík kl. 0.42 og síðdegisflóð í Rvík kl. 13.17. Sólar-
upprás í Rvík kl. 9.59 og sólarlag kl. 17.25. Myrkur kl.
18.23. Sólin er í hádegisstað í Rvík kl. 13.42 ogtungliðer
í suðri kl. 21.15. (Almanak Háskóla íslands.)
Látið orð Krists búa ríkulega hjá yður með allri speki.
Fræðið 6g áminnið hver annan með sálmum, lofsöngvum
og andlegum ljóðum og syngið Guði sætlega lof í lyört-
um yðar. (Kól. 3,16.)
ára afinæli. Á morgun,
mánudag 5. febrúar,
er sextug frú Steinunn Guð-
brandsdóttir, Borgarbraut
1, Hólmavík. Eiginmaður
hennar er Hans Magnússon,
sýslufulltrúi. Steinunn verður
að heiman á afmælisdaginn.
FRÉTTIR
ára afinæli. Næstkom-
andi þriðjudag, 6. febr-
úar, er fimmtugur Valur
Páll Þórðarson, Víkur-
bakka 6, hér í Rvík. Kona
hans er frú Erla Þórðardóttir.
Þau taka á móti gestum í
Oddfellow-húsinu, Vonar-
strætismegin, á afmælisdag-
ínn kl. 17-19.
í DAG er bænadagur að
vetri. í Stjömufræði/Rím-
fræði segir að eftir siðaskiptin
„voru yfirleitt fyrirskipaðir
3—4 bænadagar á ári, sbr.
kóngsbænadag. Þessi siður
var endurvakinn að nokkru
leyti 1952 með hinum al-
menna bænadegi þjóðkirkj-
unnar, sem haldinn er 5.
sunnudag eftir páska ár
hvert“. Þennan dag árið 1942
var haldinn fyrsti ríkisráðs-
fundurinn á Bessastöðum.
Dagurinn í dag er einnig
stofndagur Verslunarbanka
íslands.
FÉL. eldri borgara hefur
opið hús í dag, sunnudag, í
Goðheimum við Sigtún kl. 14.
Fijálst spil og o.fl. og kl. 20
dansað. „Snúður og
snælda“-leiklistarhópur fé-
lagsins gengst fyrir leiklist-
amámskeiði 5. þ.m. Þorrablót
félagsins verður 9. og 23.
þ.m. Skrifstofan veitir nánari
uppl. Á þriðjudaginn, 6. þ.m.,
verður bókmenntakynning á
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18
kl. 15—17. Rætt verður um
Unni Benediktsdóttur
Bjarklind og lesið úr verkum
hennar.
FÉL. svæðameðferð hefur
opið hús nk. þriðjudagskvöld
kl. 20 í Síðumúla 7, í hús-
næði Svæðameðferðarskóla
Islands. Axel Magnússon
mun kynna námskeiðin:
„Grönn allt lífið“ og samtökin
„Ónefnd átvögl". Opna húsið
er öllum opið.
JC-Nes heldur félagsfund
mánudagskvöld kl. 20.30 að
Laugavegi 178. Fundurinn er
öllum opinn. M.a. fer fram
landsþingskynning.
KVENFÉL. Háteigssóknar
heldur aðalfund nk. þriðju-
dagskvöld í Sjómannaskólan-
um kl. 20.30. Að fundarstörf-
um loknum verður upplestur
og kaffiveitingar.
KVENFÉL. Grensássóknar
heldur aðalfund í safnaðar-
heimili kirkjunnar 12. þ.m.
kl. 19.30 og hefst fundurinn
með borðhaldi.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 skyldmenn-
in, 5 reipi, 8 ættamafn, 9
versi, 11 skorturinn, 14 tíni,
15 vera til ama, 16 afkomend-
um, 17 sefa, 19 ró, 21 fyrir
stuttu, 22 starfinu, 25 horað-
ur, 26 tunna, 27 rödd.
LÓÐRÉTT: - 2 mýrarflói,
3 tók, 4 hlutaðeigendur, 5
klína, 6 ílát, 7 keyra, 9 stans-
ar, 10 gerðir við, 12 leyfðir
afnot, 13 auðlindunum, 18
beltum, 20 greinir, 21 vantar,
23 samþykki. 24 frumefni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 uggur, 5 kálar, 8 nýrun, 9 sægur, 11
tinna, 14 aka, 15 angar, 16 nefnt, 17 ara, 19 drap, 21 haka,
22 sáldrar, 25 net, 26 ódó, 27 iði.
LÓÐRÉTT: — 2 glæ, 3 Unu, 4 rýrar, 5 kutana, 6 áni, 7
agn, 9 sjaldan, 10 gagnast, 12 nefnari, 13 aftraði, 18 rödd,
20 Pá, 21 ha, 23 ló, 24 ró.
wSmmm1
Ég heiti Ólafur Ragnar Grímsson. Ég er ekki Ceausescu
FÉL. viðskipta- og hag-
fræðinga heldur fund á Hótel
Sögu á þriðjudagsmorgun kl.
8. Jóhannes Nordal banka-
stjóri flytur þar erindi um
hlutverk seðlabanka.
KVENFÉL. Garðabæjar
heldur aðalfundinn nk. þriðju-
dagskvöld kl. 20.30 á Garða-
holti.
ITC-deildin íris heldur fund
annað kvöld kl. 20.15 í Slysa-
varnahúsinu Hjallahrauni 9,
Hafnarfirði. Mælskulist og
ræðukeppni. Nánari uppl.
veita Hulda í s. 51622 eða
Halla s. 52531.
ÍÞRÓTTIR aldraðra. Fél.
áhugafólks um íþróttir aldr-
aðra heldur fund í þjónustu-
miðstöðinni Vesturgötu 7 fyr-
ir félagsmenn og gesti þeirra
í dag, sunnudag, kl. 15, með
skemmtiatriðum og dansi.
ÁRBÆJARKIRKJA. í kvöld
kl. 20 er æskulýðsfundur.
HJALLAPRESTAKALL.
Samvemstund verður í kvöld
kl. 20 fyrir fermingarböm í
Hjallaskóla, að Lyngheiði 21.
LAUGARNESKIRKJA.
Kvenfél. sóknarinnar heldur
fund annað kvöld kl. 20.
NESKIRKJA. Á morgun
verður bamastarf 12 ára
bama kl. 17.30 og 13 ára
bama og eldri kl. 19.30.
SELJAKIRKJA. Barna- og
æskulýðsstarf á morgun.
Fundur yngri KFUK-stúIkna
kl. 17.30 og eldri stúlkna kl.
18.30. Æskulýðsfélagsfund-
ur kl. 20.
SÉLTJARNARNES-
KIRKJA. Æskulýðsfundur
annað kvöld kl. 20.
KVENFÉL. Langholtssókn-
ar heldur aðalfund nk. þriðju-
dagskvöld kl. 20.30 í safnað-
arheimilinu. Félagsmönnum
og gestum þeirra boðið upp á
síldarrétti og spilað bingó að
fundarstörfum loknum.
KVENFÉL. Fjallkonurnar
Breiðholti III heldur fund
þriðjudagskvöld kl. 20.30 í
safnaðarheimili Fella- og
Hólakirkju. Fyrirlestur fluttur
um litaval á fatnaði kvenna
og förðun. Veitingar verða
bomar fram.
KVENFÉL. Seljasókiiar
heldur aðalfundinn í kirkju-
miðstöðinni nk. þriðjudags-
kvöld kl. 20.30. Að fundar-
störfum loknum verður bingó-
spil og kaffíveitingar.
KVENFÉL. Kópavogs ætlar
að spila félagsvist á þriðju-
dagskvöld í félagsheimili bæj-
arins kl. 20.30. Það er öllum
opið. Kaffíveitingar.
ÁSKIRKJA. í dag, sunnu-
dag, er kaffisöludagur í safn-
aðarheimili kirkjunnar á veg-
um safnaðarfélagsins að lok-
inni guðsþjónustu.
KVENFÉL. Keflavíkur
heldur fund annað kvöld ki.
20.30 í Kirkjulundi.
NORÐFIRÐINGAFÉL.
heldur sólarkaffi í dag,
sunnudag, í safnaðarheimili
Bústaðakirkju kl. 15.30.
BARÐSTRENDINGAFÉL.
efnir til félagsvistar í dag í
Skipholti 70 kl. 14. Kaffiveit-
ingar.
SAMTÖK um sorg og sorg-
arviðbrögð halda fræðslu-
fund nk. þriðjudagskvöld kl.
20.30 í safnaðarheimili Laug-
ameskirkju. Sr. Sigflnnur
Þorleifsson ræðir um sorg
og trú.
SYSTRAFÉL. Víðistaða-
sóknar heldur aðalfund ann-
að kvöld kl. 19.30 í safnaðar-
heimili kirkjunnar og hefst
hann með þorramat.
JC-Reykjavík heldur fund kl.
20 á Laugavegi 178. Gestur
fundarins verður Guðni
Ágústsson alþm. sem fjallar
um málefni lífeyrissjóða.
FRIÐARÖMMUR halda
fund á Hótel Sögu annað
kvöld kl. 20.30. Fjallað verður
um forvarnastarf gegn of-
beldi. Fundurinn er öllum op-
inn.
LJÓSMYNDARAFÉL. Hug-
mynd ’81 heldur aðalfund
sinn nk. fímmtudag á Klapp-
arstíg 26 kl. 20.30.
FÉL. harmonikkuaðdáenda
heldur skemmtifund í dag í
Templarahöllinni kl. 15.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN:
í fyrrakvöld kom togarinn
Engey úr söluferð. Þá kom
Esja úr strandferð. í dag fer
togarinn Snorri Sturluson
til veiða og á morgun er tog-
arinn Jón Baldvinsson vænt-
anlegur inn til löndunar.
ÞETTA GERÐIST
4. febrúar
ERLENDIS:
1783: Ófriði Bandaríkja-
manna og Breta lýkur.
1874: Ashanti-ófriðnum í
Ghana lýkur með sigri Wolse-
ley hershöfðingja í orrustunni
við Kumasi.
1899: Filippseyingar gera
uppreisn gegn Bandaríkja-
mönnum og krefjast sjálf-
stæðis.
1915: Þjóðverjar hefja kaf-
bátahernað.
1923: Ráðstefnan í Lausanne
fer út um þúfur vegna afstöðu
Tyrkja.
1938: Adolf Hitler tekur við
yfirstjórn þýzka hersins.
1918: Ceylon fær sjálfstæði.
1952: Fyrsti fundur afvopn-
unarnefndar SÞ.
1968: 133 farast með jap-
anskri farþegaflugvél í
Tókýóflóa.
1972: Bretar og níu aðrar
þjóðir viðurkenna sjálfstæði
Austur-Pakistans.
1976: Rúmlega 23.000 taldir
af í jarðskjálfta í Guatemala.
HÉRLENDIS:
1222: Grímseyjarför. Víg
Tuma Sighvatssonar.
1942: Ráðuneyti Stefáns Jóh.
Stefánssonar skipað.
1968: Annað „Halaveður“.
ORÐABOKIN
Eftir augnablik
Síðast var rætt nokkuð um
no. augnablik og andartak.
Elzta dæmi no. augnablik í
OH er frá um 1600. Er það
úr guðsorðariti, prentuðu á
Hólum: „er þad ecke nema
so sem eitt Augnablik ad
reikna", eins og þar stendur
stafrétt. Það er Guðbrandur
biskup, sem þýðir svo. Þá
kemst sr. Hallgrímur þann-
ig að orði í Passíusálmum
sínum: „fæst sízt með fögru
gjaldi/ frestur um augna-
blik“. Mörg önnur dæmi er
unnt að tilgreina allt fram
á okkar dag og oftast um
stutt tímamark. Elzta dæmi
um andartak í OH er frá
1682 og þá um andardrátt.
„allt til mijns sijdasta And-
artaks. Og hver kannast
ekki við þessar ljóðlínur Jón-
asar úr Ferðalokum: „and-
artak sérhvert,/ sem ann
þér guð,/ finn eg í heitu
hjarta.“? Þessi merking
virðist hafa verið nær einráð
fram á þessa öld, en smám
saman er farið að nota and-
artak sem tímamark, um
mjög stuttan tíma, og þá
fara augnablik og andartak
að merkja hið sama. Halldór
Laxness segir t.d. á einum
stað: „Ljósker brytans lýsti
andartak á þessa mynd.“
Þá hljóta flestir að finna
verulegan mun á því, hvort
sagt er: „ég kem eftir
augnablik“ eða „ég kem
eftir andartak eða að vörmu
spori. JAJ