Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 44
MOIiGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, POSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Innlendir fiskmarkaðir: Meðalverð á ýsu hækkar Á INNLENDU fiskmörkuðunum þremur var meðalverð á þorski um 10% hærra í janúar en desem- ber síðastliðnum, ýsu 20% hærra, karfa 34% hærra og ufsa 10% hærra. Þar var selt um 27% meira magn af þorski í janúar en desember síðastliðnum en 43% minna af ýsu, 51% minna af karfa og 6% minna af ufsa. Á mörkuðunum voru seld samtals 1.708 tonn af þorski í jan- úar fyrir 73,46 króna meðalverð, 419 tonn af ýsu fyrir 102,03 króna meðalverð, 382 tonn af karfa fyrir 47,52 króna meðalverð og 474 tonn raf ufsa fyrir 47,08 króna meðalverð. Mikið um þjófiiaði á opinberum stöðum Undanfarna daga hafa fjöl- margir þjófnaðir verið framdir á opinberum stöðum í Reykjavik, svo og úr bilum. Níu manns sem sneru sér til lögreglu á fimmtu- dag og föstudag höfðu tapað eig- um sínum með þessum hætti. Kraftblökkin græjuð Morgunblaðið/Arm Sæberg Þrír þjófnað- anna urðu við sundstaði borgar- innar. í Laugardal var veski með um 70 þúsund krónum í reiðufé stolið úr læstum skáp sundlaugargests. í Sundhöllinni var veski með um 2000 krónum stolið úr klefa. Við sundlaugina í Breið- holti var farið inn í bíl og stolið úr honum Pioneer útvarpstæki. Á skíðasvæðinu í Bláíjöllum var stolið seðlaveski með 3-4000 krón- um, greiðslukorti, ávísanahefti og skilríkjum úr bíl, sem eigandinn taldi sig hafa skilið við læstan á bifreiðastæði. Samskonar þjófnaður var framinn úr bíl við Seljaveg. Skammt frá, við Ánanaust var brot- ist inn í annan bíl. í Borgarbókasafninu við Þing- holtsstræti var stolið veski úr jakka í fataskáp. Veski var stolið í húsi SÍS við Kirkjusand frá starfsmanni sem skilið hafði jakka sinn eftir á ’ stól. Að sögn lögreglu hefur einnig borið á því undanfarið að stolið sé úr yfirhöfnum á opinberum stöðum svo sem á rakarastofum og sjúkra- húsum. Verði dregið úr hækkun á gjaldskrá opinberra iyrirtækja: Framlag Pósts og- síma til ríkissjóðs myndi lækka -segir póst- og símamálasljóri Póst- og símamálastjóri segir að verði gjaldskrá Pósts og síma ekki hækkuð eins og áætlað er, muni það koma niður á þeirri upp- hæð sem fyrirtækinu er ætlað að greiða í ríkissjóð á árinu. Útvarps- stjóri segir þegar gert ráð fyrir 200 milljón króna halla á Ríkisút- varpinu og verði gjaldskráin ekki hækkuð á árinu, eins og áætlað er, sé verið að auka þann halla. Báðir segja þeir erfitt að koma við frekari niðurskurði í rekstri stofnananna án þess að það bitni á þjón- ustu. gjaldskrárhækkunum opinberra fyrirtækja. Póstur og sími á, sam- kvæmt forsendum ijárlaga, að fá þrisvar sinnum 3% gjaldskrár- hækkun á þessu ári, og telur fjár- málaráðuneytið að áætlað tekjutap, ef ekki verður af þessum hækkun- um, nemi 340 milljónum króna. Ríkisstjómin hefur heitið því, í tengslum við kjarasamningana, að lækka fram- færsluvísitölu um 0,3% með því að draga úr gjöldum og sköttum eða fyrirhuguðum Verkalýðsfélag Blönduóss: Samningarnir samþykktir Verkalýðsfélag Blönduóss hefur samþykkt nýgerða kjarasamninga Alþýðusambands íslands með 30 atkvæðum gegn 2, en það er fyrst félaga til að afgreiða samningana. Ekki er vitað um aðrar atkvæða- greiðslur um samningana um helgina, en gert er ráð fyrir að nokk- ur félög taki þá til afgreiðslu á mánudag. Osamið er við ýmis félög, sem annaðhvort hafa beina aðild eða standa utan við Alþýðusamband íslands, enda eru mörg þeirra með kjarasamninga gildandi til mánaða- móta febrúar/mars eða mars/aprfl. Þar á meðal eru flugmenn, flug- virkjar, flugfreyjur, farmenn, blaða- menn, prentarar, starfsmenn ÍSAL, Járnblendiverksmiðjunnar, Sem- entsverksmiðjunnar og Kísilgúr- verksmiðjunnar. Þá er einnig ósamið við Samband íslenskra bankamanna, en viðræður standa yfir. Bandalag háskóla- menntaðra ríkisstarfsmanna er með gildandi rammasamninga til 1993, en í honum eru endurskoðunar- ákvæði vegna launabreytinga ann- arra umfram ákvæði um tvisvar 1,5% launahækkun á þessu ári. Ólafur Tómasson póst- og síma- málastjóri, sagði við Morgunblaðið, að fyrirtækinu væri ætlaði í fjárlög- um að skila 500 milljónum króna í ríkissjóð á þessu ári. Verði ekki úr gjaldskrárhækkunum muni þessi upphæð lækka því ekki fari stofn- unin að taka lán til að borga í ríkis- sjóð. Þegar hann var spurður hvort ekki væri hægt að skera niður í rekstri stofnunarinnar á móti, sagði hann að auðvitað væri hægt að skera niður þjónustu og fjárfest- ingu. En tekjur og afkoma stofnun- arinnar byggðist á fjárfestingum undanfarinna ára, sem hefðu skilað arði. Ef ekki væri fjárfest sam- kvæmt áætlunum í ár, myndi það ekki skila arði á komandi árum. Þá hefði rekstarkostnaður náðst verulega niður á undanförnum árum, sem mætti marka af því að frá 1984 hefðu símagjöldin hækkað um 7 5% meðan framfærsluvísitalan hefði hækkað um 200% Ríkisútvarpið á, samkvæmt fjár- lögum, að fá tvær 3% hækkanir á gjaldskrá á árinu. Verði ekki af þeim telur ijármálaráðuneytið að tekjutap Ríkisúrvarpsins verði 100 milljónir króna. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri sagði að samkvæmt fjárlögum væri Ríkisútvarpinu þegar gert að reka sína starfsemi með 200 millj- óna króna hall, miðað við núverandi dagskrárlengd og .samsetningu. Ekkert yrði eftir til endurnýjunar á tækjum, því allt afskriftafé stofnun- arinnar færi til að mæta þessum halla. Ef enn ætti að bæta á hann ykist sá vandi, nema farið yrði að ganga á dagskrána. Nýtt Suzuki bílaumboð NÝIR aðilar munu á næstunni taka við umboði og sölu Suzuki bíla af Sveini Egilssyni hf. N: yja umboðið verður rekið undir nafninu Suzuki bílar hf. og mun taka við um- boði og sölu Suzuki bíla og varahluta í þá. Meðal að- standenda fyrirtækisins eru nokkrir starfsmenn Sveins Egilssonar hf. Ætlunin er að hefja kynningu fyrirtækisins og bílanna í næstu viku. Viðgerða og varahlutaþjón- usta verður endurskipulögð í sam- ráði við framleiðendur bílanna. Suzuki er þekkt fyrir framleiðslu smábílanna Swift og smájeppanna Fox og Vitara. Nú um helgina er sýndur nýr bíll af gerðinni Swift hjá Suzuki í Framtíð við Faxafen í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.