Morgunblaðið - 04.02.1990, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ATVINNA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1990
ATVIN N UA UGL YSINGAR
RIKISSPITALAR
Sérfræðingur
Lausar eru tvær og hálf afleysingastaða sér-
fræðinga við kvennadeild Landspítalans.
Stöðurnar eru veittar frá 1. mars nk.
Til greina kemur að ráða í allar stöðurnar
að hluta.
Nánari uppiýsingar veita Jón Þ. Hallgrímsson,
yfirlæknir og Gunnlaugur Snædal, prófessor.
Umsóknir sendist stjórnarnefnd Ríkisspítala,
Rauðarárstíg 31, 105 Reykjavík.
Aðstoðarlæknir
Aðstoðarlæknir óskast á Rannsóknarstofu
Háskólans f meinafræði. Æskileg starfs-
reynsla við líffærameinafræðideild. Ráðning
er eitt ár frá 1. mars nk.
Upplýsingar gefur Jónas Hallgrímsson, yfir-
læknir, sími 601900.
Umsóknir sendist yfirlækni.
Reykjavík, 3. febrúar 1990.
Svæðisstjóm málefna fatlaðra
Reykjanessvæði
Oskar eftir fólki
til starfa við atvinnuleit fatlaðra.
Um er að ræða eftirfarandi störf:
1. 50% staða atvinnuleitarfulltrúa á Suður-
nesjum.
2. 50% staða atvinnuleitarfulltrúa í Hafn-
arfirði.
3. 50% staða atvinnuleitarfulltrúa í Kópa-
vogi.
Viðeigandi menntun og starfsreynsla mikil-
væg. Atvinnuleit fatlaðra annast ma. eftirfar-
andi verkefni:
Leit að hentugum atvinnutilboðum fyrir fatl-
aða í framhaldi af heildstæðu mati eða starfs-
prófun, eftirfylgd á vinnustöðum með stuðn-
ingi og ráðgjöf og skráningu á upplýsingum
um atvinnumál með tilliti til fatlaðra.
Umsóknarfrestur er til 22. febrúar.
Nánari upplýsingar eru gefnar á skrifstofu
Svæðisstjórnar, Digranesvegi 5, Kópavogi
bar sem umsóknareyðublöð liggja frammi.
ÐAGV18T BAHIVA
Forstaða leikskóla
Dagvist barna auglýsir lausar stöður for-
stöðumanna við tvo nýja leikskóla, Kletta-
borg við Dyrhamra og Heiðarborg við Sel-
ásbraut sem áætlað er að taki til starfa í
apríl næstkomandi. Um er að ræða leikskóla
þar sem byggt verður á nýbreytni í ieikskóla-
starfi bæði hvað vprðar innra starf og hús-
næði. Fóstrumenntun áskilin.
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og
deildarstjóri Dagvistar barna í síma 27277.
Sérhæfður
markaðs- og sölu-
maður
Fyrirtækið: Traust og öflugt framleiðslu- og
innflutningsfyrirtæki í Reykjavík með sterka
markaðsstöðu.
Starfið: Sala og layotráðgjöf á lager,- búðar-
og skrifstofuinnréttingum, framleiddum í eig-
in verksmiðju sem og innfluttum. Áætlanna-
og samningsgerð, auglýsinga- og þjónustu-
sjórnun, markaðsathuganir o.fl.
Sölumaðurinn: Skilyrði, rekstrar- eða tækni-
menntun með góða reynslu úr hönnunar-,
þjónustu- eða sölustörfum.
Geta til að starfa sjálfstætt og skila árangri,
tungumála- og tölvukunnátta nauðsynleg.
Reynsla úr framleiðsluiðnaði og þekking á
almennri hönnunarvinnu æskileg.
í boði er: krefjandi og fjölbreytt framtíðar-
starf í hópi góðra sölumanna hjá framsæknu
fyrirtæki.
Góð vinnuaðstaða. Laun samkomulagsatriði.
Starfið er laust strax, eða eftir nánara sam-
komulagi.
Skriflegum umsóknum skal skilað inn á aug-
lýsingadeild Mbl. merktar: „H - 120“ fyrir
9. febrúar.
DAGV18T BAKIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar eða annað
uppeldismenntað
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfs-
fólki í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi.
Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtalinna
dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277:
VESTURBÆR
Grandaborg, Boðagranda 9, s. 621855.
HEIMAR
Sunnuborg, Sólheimum19, s. 36385.
BREIÐHOLT
Hálsaborg, Hálsaseli27, s. 78360.
Leikskólar
Kópavogsbæjar
Leikskólinn Efstihjalli
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast til starfa. Um er að ræða
hlutastarf. Einnig vantar starfsfólk til afleys-
inga.
Hafið samband við forstöðumann í síma
46150 og kynnið ykkur starfsemina.
Leikskólinn Fagrabrekka
Fóstra eða starfsmaður með aðra uppeldis-
menntun óskast til starfa. Um er að ræða
hlutastarf. Einnig vantar starfsfólk til afleys-
ingastarfa.
Hafið samband við forstöðumann í síma
42560 og kynnið ykkur starfsemina.
Leikskólinn Furugrund
Þroskaþjálfi eða fóstra óskast til að sjá um
þjálfun fatlaðs barns.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
í síma 41124.
Auk þess veitir dagvistarfulltrúi upplýsingar
um störfin í síma 45700. Umsóknum skal
skilað á þar til gerðum eyðublöðum sem
liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópa-
vogs, Digranesvegi 12.
Félagsmálastofnun Kópavogs.
Skrifstofustarf
Meðalstórt fyrirtæki, sem er staðsett í Hafn-
arfirði, óskar að ráða starfskraft á skrifstofu.
Starfið felur í sér að sjá um allt skrifstofu-
hald, t.d. sölubókhald, launabókhald, við-
skiptamannabókhald, innheimtu, símavörslu
svo eitthvað sé nefnt. Einhver reynsla í með-
ferð tölva er æskileg.
Skriflegum umsóknum skal skila á auglýs-
ingadeild Mbl. merktar: „N - 8910“ í síðasta
lagi þann 12.2 1990. Með allar umsóknir
verður farið sem trúnaðarmál og öllum um-
sóknum verður svarað.
RIKISSPITALAR
Aðstoðarmaður
Aðstoðarmaður sjúkraþjálfara óskast til
starfa á endurhæfingardeild Kópavogs-
hælis. Um hlutastarf er að ræða.
Upplýsingar gefur yfirsjúkraþjálfari í síma
602725 eða 602703 frá kl. 10-15 virka daga.
Starfsmaður
Starfsmaður óskast til starfa við ræstinga-
deild geðdeildar Landspítalans á Kleppi.
Um hálft starf er að ræða.
Upplýsingar gefur Stefanía Önundardóttir,
ræstingastjóri, í síma 601535.
Reykjavík, 3. febrúar 1990.
Faglegur
Forstöðumaður
Foreldrafélagið Gríma leitar að fóstru til að
veita forstöðu dagheimilinu á Hjónagörðum.
Kröfur:
★ Hafa yfirgripsmikla þekkingu á faglegri
vinnu með börn.
★ Þekkja þarfir ungbarna.
★ Hafa stjórnunarhæfileika.
★ Hafa brennandi áhuga á framsæknu dag-
vistarstarfi.
★ Vera barngóð og hress.
í boði er:
★ Gefandi starf með börnum 6 mán.-2ja
ára og 5-9 ára á tveimur deildum.
★ Áhugasamir foreldrar og gott starfsfólk.
★ Góð laun.
★ Skemmtilegt umhverfi og yndisleg börn.
Áhugasamar fóstrur sendi umsóknir ásamt
meðmælum til foreldrafélagsins Grímu, Suð-
urgötu 75 fyrir 10. febrúar nk.
Sölu-
og markaðsstjóri
Fyrirtækið er meðal eldri og virtari bókaút-
gáfa landsins.
Starfið felst í umsjón með sölu- og markaðs-
málum, enduskipulagningu og uppbyggingu
sölustarfsemi, skipulagningu markaðsátaks,
þátttöku í auglýsingamálum auk stjórnunar
og eftirlits með sölumönnum.
Leitað er að hugmyndaríkum og drífandi
markaðsmanni, gæddum skipulags- og
stjórnunarhæfileikum. Skilyrði er reynsla af
sambærilegu.
Umsóknarfrestur er til og með 9. febrúar
nk. Ráðning verður sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðný
Harðardóttir. Umsóknareyðublöð liggja
frammi á skrifstofunni, sem opin er frá kl.
9.00-15.00
Skóla^ordustig 1a - 101 fíeykiavik - Simi 621355