Morgunblaðið - 04.02.1990, Síða 39
-k&em fólk
ÍÍOW
3é"h
Charles og Sue Cobb.
3)Það er nóg pláss, ísland sé afar
stijálbýlt miðað við umtalsverða
stærð. Sem dæmi er þess getið að
stærsta íslenska hótelið býður að-
eins upp á 162 herbergi, en til sam-
anburðar séu 1206 herbergi á
Pontaine-bleau Hilton hótelinu í
Miami. 4)ísland sé framsækið og
víða í forystuhlutverki. Er í því sam-
bandi getið gamals lýðræðis og al-
þingis, einnig kvenréttinda með
sérstakri skírskotun til Vigdísar
forseta. 5)ísland sé dæmalaus
bókaþjóð og hvergi komi fleiri bæk-
ur út miðað við höfðatölu. Fyrir
vikið séu ísiendingar geysilega vei
upplýstir og allir læsir á sama tíma
og þriðjungur Bandaríkjamanna sé
ó- eða illa læs. 6)Gott er að gera
sig skiljanlegan, þökk sé íslensku
menntakerfi og landlægri víðsýni
sem trýggi að flestir Islendingar
tali að minnsta kosti tvö tungumál
reiprennandi. 7) Gott er að muna
nöfn, því íslendingar sé aðeins
skýrðir einu nafni, í hæsti lagi
tveimur og föður- og ættarnöfnin
séu nærri aldrei notuð hversdags-
lega.
Svo mörg voru þau orð, en í grein-
inni er auk þessa alls getið að Char-
les sé að reyna að læra íslensku,
en það „sé strembið“. Eitt íslenskt
orðatiltæki sé þó komið á hreint,
einkum vegna þess að það er {anda
Charles. Það er: „Ekkert mál!“
POLITIK
Táknrænt látbragð?
Mynd þessi er alveg ný af nálinni og stellingar þær
sem Árni Sæberg ljósmyndari hefur fryst með
tækjum sínum geta vel verið táknrænar fyrir kappanna
þijá í kjölfar skoðanakannanna sem gerðar hafa verið
að undanfömu um fylgi flokkana. Lengst til vinstri er
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra og formaður
Framsóknarflokksins. Hann er teinréttur og bæði sposk-
ur og ánægður á svip, enda hefur flokkur hans tapað
litlu sem engu fylgi þrátt fyrir óvinsældir stjórnarinnar.
I miðjunni er Júlíus Sólnes Hagstofuráðherra og formað-
ur Borgaraflokksins. Hann er þungt hugsi og afskiptin,
enda verður flokkur hans án fylgis ef kannanirnar ganga
eftir. Lengst t.h. er svo Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins. Þar blasir
fylgishrun við samkvæmt könnunum og ekki að undra
þótt karl klóri sér í hausinn yfir ósköpunum.
Sýning í dag kl. 13-17
HONDA Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, S-689900
Honda Accord 1990
er verðlaunabíll sem hlaut hina
eftirsóttu viðurkenningu Gullna stýrið
í Vestur-Þýskalandi í ár.
Greiðsluskilmálar við ailra hæfi,
t.d. 25% útborgun og mismunurinn
lánaður í allt að 30 mánuði
á bankakjörum. Við tökum góða
notaða bíla upp í nýja
og lánum jafnvel mismuninn.
Verða frá aðeins kr. 1.290.000,- stgr.