Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990
11
FedEx biður um frek-
ari þjónustu Flugleiða
- og hefiir aldrei kvartað yfir gjöldum á Islandi
eftir Einar
Sigurðsson
Vegna málflutnings forráða-
manna fyrirtækisins Flugfax í fjöl-
miðlum undanfarna daga um flutn-
inga með bandaríska fraktflugfé-
laginu Federal Express milli Evrópu
pg Japans með millilendingum á
íslandi vilja Flugleiðir koma eftir-
farandi upplýsingum á framfæri.
Það er fráleitt að halda því fram
að millilendingu véla Federal Ex-
press, sem áður voru vélar Flying
Tigers, hafi fækkað hér á landi
vegna gjalda. Flugfélágið byijaði
að millilenda hér þegár hleðsla vél-
anna á leið frá meginlandi Evrópu
til Japans knúði þær til þess. Ef
hleðslan er mikil geta þær ekki
farið í loftið á meginlandinu með
nógu mikið eldsneyti til að ná Anch-
orage í Alaska. Þá lenda þær - í
Keflavík. Ef hleðsla á vélunum frá
Evrópu er lítil bera þær meira elds-
neyti og geta flogið alla leið.
Þegar flug Flying Tigers hófst
gerði flugfélagið samning við Flug-
leiðir í Keflavík um tæknilega þjón-
ustu við flugvélarnar. Sá samningur
stendur enn og eftir honum er far-
ið. Flying Tigers/Federal Express,
sem gerði samninginn hefur aldrei
kvartað við Flugleiðir undan þeim
gjöldum sem þar eru ákveðin. Fyrir
þessa tækniþjónustu taka Flugleiðir
900 dollara. Samkvæmt upplýsing-
um sem FedEx gaf Flugleiðum
greiðir félagið 1.480 dollara fyrir
sambærilega þjónustu í Shannon á
Irlandi. Það er því varla von að
félagið kvarti yfir gjöldunum hér
heima. Samkvæmt upplýsingum
FedEx era lendingargjöld í Shannon
einnig hærri en hér á landi. Stað-
hæfingar um að lendingum hér
fækki vegna hárra gjalda eru því
þvættingur og einungis settar fram
til að draga athygli frá raunveru-
legri ástæðu.
Þegar sá möguleiki opnaðist að
■ SKEMMTIKVÖLD verður að
kvöldi konudagsins, sunnudaginn
18. febrúar kl. 19.30 á vegum
Fríkirkjusafnaðarins í Reykjavík
í Templarahöllinni við Eiríks-
götu. Skemmtikvöld á vegum safn-
aðarins eiga sér vissa hefð í starf-
semi hans. Þótt þau hafi fallið nið-
ur nú í nokkur ár þykir fólki full
ástæða til að hefjast handa að nýju.
A skemmtikvöldinu þetta árið verð-
ur víða leitað fanga. Byijað verður
með sameiginlegu borðhaldi og fjöl-
breyttum skemmtiatriðum, söng og
danssýningu. Að lokum verður
dansað. Það er kvenfélag safnaðar-
ins, sem ber hitann og þungann af
þessum þætti starfsins eins og áður
var. Aðgangur er heimill öllum
meðan húsrúm leyfir og er fríkirkju-
fólk hvatt til að fjölmenna og taka
með sér gesti.
■ DR. GUNNLAUGUR A. Jóns-
son, guðfræðingur, flytur erindi í
safnaðarheimili Neskirkju tvo
næstu sunnudaga, 18. og 25. febrú-
ar. Fyrra erindið fjallar um þýðingu
Haralds Níelssonar á Gamla
testamentinu um síðustu aldamót.
Síðara erindið fjallar um upphaf
sögulegra biblíurannsókna hér á
landi. Jón Helgason, síðar biskup,
var frumkvöðull þess hérlendis að
farið var að beita texta Biblíunnar
sömu rannsóknaraðferðum og önn-
ur rit. Dr. Gunnlaugur A. Jónsson
fæddist árið 1952 og lauk embætt-
isprófi í gðfræði frá HÍ árið 1978.
Um nokkurt skeið hafði hann blaða-
mennsku að aðalstarfi en fór síðan
til framhaldsnáms í gamlatesta-
mentisfræðum og lauk doktorsnámi
frá Lundarháskóla 1988. Hann er
nú meðal annars _stundakennari við
guðfræðideild HÍ. Erindin hefjast
að lokinni guðsþjónustu kl. 15.15.
Einar Sigurðsson
„Staöhæfingar um að
lendingum hér fækki
vegna hárra gjalda eru
því þvættingur og ein-
ungis settar fram til aö
draga athygli frá raun-
verulegri ástæðu.“
flugvélar Flying Tigers (FedEx)
flyttu héðan frakt til Japans gerði
flugfélagið samning við Flugleiðir
um hleðslu vélanna. Hann var að
því leyti sérstakur að Flugleiðir féll-
ust á að gera sérstakan samning
um hleðslu í lestar breiðþota vegna
þess að gert var ráð fyrir takmark-
aðri frakt. Gjaldið sem þar er kveð-
ið á um er 2.514 dollarar. í gjald-
töku er Keflavíkurflugvöllur yfir-
leitt miðaður við aðra velli þar sem
kostnaður við úthald þjónustunnar
er svipaður. Og rétt er að benda á
að nýting hennar hér er að jafnaði
miklu minni.
Á þeim flugvöllum sem gjaldtaka
í Keflavík miðast við tíðkast ekki
að gera sérstaka samninga um
hleðslu á lestum og sérstaka samn-
inga um hleðslu á aðalþilfari. Flug-
félög borga yfirleitt eitt gjald fyrir
alla vélina. Flugleiðir leituðu til
skrifstofu Flying Tigers í Lundún-
um eftir upplýsingum um hvað fé-
lagið myndi taka fyrir að afgreiða
samskonar flugvél þar. Svarið var
5.800 dollarar. í Kaupmannahöfn,
Osló og Stokkhólmi, sem Keflavík-
urflugvöllur er yfirleitt miðaður við,
er gjaldið milli 9.000 og 9.600 doll-
arar. í Helsinki er það 10.200 doll-
arar. Miðað við upplýsingar þær
sem Flugleiðir hafa fengið og miðað
við meðalnýtingu Flugfax á plássi
hjá FedEx hefðu afgreiðslugjöld á
Shannon-flugvelli sennilega orðið
hærri en við samsvarandi hleðslu í
Keflavík.
Síðastliðið sumar þyrluðu for-
ráðamenn Flugfax upp miklu mold-
viðri vegna þess að á Keflavíkur-
flugvelli var ekki til hleðslutæki til
að hlaða aðalþilfar breiðþota. Þetta
kváðu þeir koma í veg fyrir vöxt í
útflutningi til Japans og staðhæfðu
að í júlí yrði um að ræða 35 lesta
útflutning í viku. Flugleiðir hófu
þegar að leita að hentugu tæki til
hleðslu á aðalþilfari breiðþota og
keyptu það fyrir 6 milljón krónur.
Þetta tæki hefúr aldrei verið notað
við flugvélar Federal Express á leið
til Japans. Það er rétt að skömmu
fyrir áramót var þetta 6 milljóna
króna tæki notað þrisvar sinnum
við að hlaða aðrar Ieiguflugvélar.
Öfugt við staðhæfingar Flugfax sl.
sumar hefur stöðugt dregið úr út-
.jlutningi til Japans á vegum fyrir-
tækisins síðan þá.
Þegar moldviðrinu um hleðslu-
tækið var þyrlað upp í fyrrasumar
fóru Flugleiðir þess á leit að ef hlaða
ætti efra þilfar breiðþota yrði gerð-
ur um það nýr samningur. Samn-
ingur félagsins við Flying Tigers
tók einungis til lesta vélanna. Flug-
leiðir buðu í upphafi að hlaða alla
vélina fyrir 6.250 dollara. Á saman-
burðarflugvöllunum eru teknir 9-10
þúsund dollarar fyrir samsvarandi
verk og á Bretlandseyjum um 5.800
dollarar. í samningaviðræðum féll-
ust Flugleiðir á að lækka þetta gjald
í 5.400 dollara og gefa síðan sér-
stakan aukaafslátt yfir þá vetrar-
mánuði þegar minnst frakt væri til
flutninga með FedEx-vélunum. Það
var gert til að auðvelda að halda
þessari flugleið opinni. Þá er miklu
lengra gengið en veijandi er frá
viðskiptasjónarmiðum.
Þeirri spurningu hefur verið
hreyft hvort ekki væri rétt að leyfa
Flugfaxi eða FedEx að sjá sjálfum
um hleðslu vélanna. Það er í sjálfu
sér ekkert náttúrulögmál að Flug-
leiðir sjái um afgreiðslu flugvéla á
Keflavíkurflugvelli. Þetta er fyrir-
komulag sem stjórnvöld hafa kosið
að hafa á málinu. En það er ekki
um það að ræða að Flugleiðum sé
bara sisona afhentur einkaréttur til
afgreiðslunnar og nánast arðráns
eins og forráðamenn Flugfax láta
liggja að í málflutningi sínum. Allar
gjaldskrár eru háðar samþykki
stjórnvalda hér heima. Réttinum til
afgreiðslu fylgja einnig þungar
skyldur. Félaginu er gert skylt að
halda úti tækjum og mannskap til
þjónustu við öll flugfélög hvenær
sólarhringsins og hvenær ársins
sem þau kjósa að lenda flugvélum
í Keflavík. Þetta geta orðið 50-70
flugvélar á viku fyrir utan íslenska
farþegaflugið. Vegna þessarar af-
greiðsluskyldu keyptu Flugleiðir 6
milljóna króna hleðslutæki fyrir orð
Flugfaxmanna. Fyrir það hafa verið
sáralítil not.
Þetta er dýrt úthald og þótt 60
flugvélar kunni að virðast töluvert
er nýtingin í raun lítil og völlurinn
gæti annað miklu meiri umferð. Ef
hugmyndir koma upp um að einstök
flugfélög geti sjálf séð sér farborða
á vellinum hljóta Flugleiðir að verða
AFGASRULLUR
fyrir bílaverkstæði
Olíufélagið hf
681100
IíV
innréttingar,
Dugguvogi 23.
FramleiÖum
eldhúsinnréttingar,
fataskápa,
baöinnréttingar
og sólbekki.
Leitiö tílboöa.
Opið laugard frá kl. 10-18.
Opið sunnud. frá kl. 13-18.
um leið undanþegnar skyldum um
þjónustu við aðra. Þá sér hver um
sig. Það segir sig sjálft að á endan-
um yrði þetta fyrirkomulag þjóð-
hagslega mjög óhagkvæmt vegna
offjárfestingar í tækjum og mann-
skap og vegna óstöðugrar þjónustu
við flugumferð um völlinn.
Flugleiðir hafa átt ítarlegar við-
ræður við Flugfax um gjaldskrár-
mál. Tvisvar sinnum í haust lá fyr-
ir samningur félaganna tilbúinn til
undirritunar. Tvisvar sinnum hættu
Flugfaxmenn við á síðustu stundu
og lögðu fram frekari kröfur. Fram-
ganga þeirra gengur þvert á við-
skiptavenjur.
Kjarni þessa máls er auðvitað sá
að það er mikilvægt að halda opnum
flutningsleiðum til Japans. Til þess
eru margir vegir færir. Hægt er
að flytja frakt þangað um London
og New York og nýta þannig betur
flutningstæki sem þegar eru í förum
til og frá landinu. Auðvitað er svo
líka hægt að fá hingað inn til lend-
ingar risaþotur á leið austur. Flutn-
ingur Flugfax hafa dregist saman
síðustu mánuði. Það verður því á
allan máta óhagkvæmt að senda
smásendingar af þessu tagi með svo
stórum flugvélum. Það sem Flugfax
er í raun að fara fram á er að Flug-
leiðir taki á sig þann kostnað sem
skapast af því að fá þessar flugvél-
ar hingað inn til lendingar til að
hirða upp smáfarm. Og merkilegt
nokk. Flugleiðir féllust að nokkru
á þetta með stófelldri lækkun af-
greiðslugjalda. En mikið vill meira.
Ofan í kaupið kemur svo að vél-
arnar fljúga nú beint án viðkomu
í Keflavík vegna þess hve lítinn
farm þær hafa út úr Evrópu og
geta þar af leiðandi farið í loftið
með meira éldsneyti.
Að lokum. Það er ekkert sem
bendir til þess að afgreiðslu- og
lendingargjöld í Keflavík hræði
FedEx frá landinu. Félagið hefur
nýfarið þess á leit við Flugleiðir að
síðarnefnda félagið selji áhöfnum
FedEx-véla mat á leiðinni austur
þegar FedEx-vélar þurfa að lenda
hér. FedEx gerir ráð fyrir að þessar
millilendingar gætu orðið 7 í viku.
Þá miðar félagið við að lenda hér
(en ekki í Shannon eða annars stað-
ar) þegar farmur frá Mið-Evrópu
kemur í veg fyrir að vélar þess
geti farið með nægar eldsneytis-
birgðir til Alaskaflugs. Engin kvört-
un vegna lendingargjalda, engin
kvörtun vegna afgreiðslugjalda
heldur beiðni um enn frekari af-
greiðslu hér á Keflavíkurflugvelli.
Allt tal um að gjaldskrá ríkisins
fyrir lendingar á vellinum eða gjald-
skrár Flugleiða fyrir afgreiðslu
flugvéla þar hafi fælt FedEx héðan
eru því firra.
Höfundur er blaðafulltrúi
Flugleiða.
S: 685009-685988
ÁRMÚLA21
DAN V. S. WIIUM, LÖGFRÆÐINGUR,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON, SÖLUSTJÓRI.
2ja herb. íbúðir
Asgarður. Mikið endum. íb. á
jarðhæð. Sérinng. Nettó stærð 59 fm.
V. 4,8 m.
Gaukshólar. íb. ofarl. í lyftuh.
Mikið útsýni. Áhv. hátt veðdeildarián.
Austurströnd - Seltj-
nesi. Nýl., falleg íb. á 4. hæð. Park-
et á stofu og holi. Útsýni. Lyfta. Áhv.
veðd. 1,8 millj. Bílskýli. Verð 5,5 millj.
Langholtsvegur. Rúmg. kjíb.
(70 fm). Sérinng. Gott steinhús. Fal-
legur garður. Laus strax. Verð 4,5 millj.
Skógarás. 74 fm n>. á 1. hæð.
Innr. vantar. Laus. Sérinng. Útborgun
3 mlllj.
3ja herb. íbúðir
Rauðás. Vönduð íb. á 2. hæð.
Góðar innr. Tvennar svalir. Fallegt út-
sýni. Bílskúrsplata. Laus strax. Verð
6,3 millj.
Hagamelur. Glæsil. íb. á jarðh.
í nýl. húsi. Sérinng. Nýtt gler. Parket.
Laus fljótl. Verð 5,7 millj.
Asparfell. íb. á 4. hæð. Rúmg.
eldh. Ljós teppi. Þvottah. á hæðinni.
Verð 5,1 millj.
Bergstaðastræti. Mikið end-
urn. íb. á miðh. í þríbh. Sérinng. Góð
lóð. Verð 4,5 millj.
Ljósheimar. Goð íb. á 1. hæð
(jarðh.) í 6 íb. húsi. Rólegt hverfi. Suð-
ursv. Verð 6,2 millj.
4ra herb. íbúðir
Hjarðarhagi. Rúmg. og björt
endaíb. Mikið endurn. Laus fljótl. Verð
5,7 millj.
Orrahólar. íb. í góðu ástandi á
2. hæð. Stærð 101,4 fm nettó. Þvottah.
innaf eldh. V. 6,7 m.
Hólahverfi. íb. í góðu ástandi á
5. hæð. Hús í góðu ástandi. Góðar innr.
Verð 5,9 millj. Skipti mögul. á 2ja herb.
íb.
Bergþórugata. snyrtn. rb. á
1. hæð í steinh. Laus strax. Ekkert áhv.
5-6 herb. íbúðir
Hraunbær. Rúmg. 4ra-5 herb.
íb. á 2. hæð. Suðursv. Afh. í júní. Verð
6,5 millj.
Háaleitishverfi. íb. í góðu
ástandi á 3. hæð. Nýl. eldhinnr. Hús í
góðu ástandi. Ódýr rekstrarkostn.
Bflsk.
Álftamýri m/bílsk. Mikið
endurn. og falleg íb. á 1. hæð. Parket
á gólfum. Góð staðsetn. Bílsk. Hús og
sameign í mjög góðu ástandi. Verð 8,5
millj.
FlÚðaSel. Endaib. á 3. hæð 103,5
fm nettó. Fráb. útsýni. 4 svefnherb.
Verð 7,1 m.
Sérhæðir
Langholtsvegur. 7 herb. ib.
á tveimur hæðum (hæð og ris). Rúmg.
bílsk. Gott steinh. Falleg lóð. Verð 7,8
míllj.
Álmholt - Mos. Vönduð sér-
hæð ca 160 fm. Tvöf. bílsk. Fráb. stað-
setn. Eignask. hugsanleg. Verð 9,9
millj.
Hagar. Efri sérh. ásamt risi. Á
hæðinni eru stofur, eldh. og bað. í risi
eru svefnherb. og snyrting. Bílsk. Eign
í góðu ástandi. Fallegt útsýni. Verð
12,5 millj.
Raðhús
Seltjarnarnes. Stórglæsil. og
vandað endaraðh. við Selbraut. Á neðri
hæð er forstherb., stofa, borðst., ar-
inst., eldhús, þvottah., búr, vinnuherb.,
gróðurskáli og tvöf. bílsk. Á efri hæð
eru 4 svefnherb., rúmg. baöherb. og
70 fm svalir. Verðlaunagarður. Æskil.
eignask. á t.d. sérhæð á Seltjnesi.
Ártúnsholt. Fullbúið og vandað
endaraðhús við Laxakvísl. Húsið er á
tveimur hæðum með bílsk. Stærð ca
200 fm auk kj. sem er undir húsinu
ófrág. Húsið er sérstakl. vel staðsett
nálægt Árbæjarsafninu.
Garðabær. Fallegt raðh. á tveim-
ur hæðum við Brekkubyggð. Útsýni.
Bílsk. Verð 6,9 rriillj.
Tungubakki. Endaraðh. á pöll-
um. Innb. bílsk. Útsýni. Sömu eigendur
frá upphafi. Laust eftir samkomul. Verð
12,0 millj.
Einbýlishús
Þingás. Nýtt vandað einbhús á
tveimur hæðum (hæð og rishæð). Eign-
in er nánast fullgerð. Húsið stendur á
hornlóð. Rúmg. bílsk.Áhv. nýtt veð-
deildarlán. Verð 14 millj.
Garðabær. Viðlagasjhús við Ás-
búð. Stór lóð. Stækkunarmögul. Verð
10,8 millj.
Hveragerði - eigna-
skipti. Gott steinh. á einni hæð.
Bílsk. Gróðurhús. Gott fyrirkomul. Frá-
bær staðs. Eignaskipti. Brunabmat kr.
8,3 millj. Tilboð óskast.
Seljahverfi. Nýi. hús ca 300 fm.
Tvöf., innb. bílsk. Lítil íb. á jarðh.
Ymislegt
Vantar - vantar. Höfum
fjárst. kaupanda að 2ja-3ja herb. nýl.
íb. í Austurborginni. Æskil. að bílsk.
fylgi.
Vantar í Vesturbæ. Höfum
traustan kaupanda að 3ja-4ra herb. íb.
við Boðagranda. Skipti á 2ja herb. íb.
Mismunur staðgreiddur.
Verslunarhúsnæði.
Gott verslhúsn. v/Snorrabraut. Hornhús. Gott lager-
rými fylgir. Stórir útstillingargluggar. Verð 5,0 milij.