Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 16.02.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1990 39 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ íslendingar sváfii á verðinum - misstu niðurtveggja marka forskot á síðustu þremur mínútunum „STRÁKARNIR léku sem ein- staklingar en ekki sem liðs- heild. Það var ekki nægilega góð hugsun í leiknum og skotin voru Iftlð eða ekki undirbúin og það er augljóst að þreyta er í liðinu eftir fjóra erfiða leiki á fimm dögurn," sagði Bogdan Kowalczyk, lansliðsþjálfari, sem var ekki ánægður með jafntefli, 22:22, gegn sviss- neska landsliðinu í Laugardals- höll ígærkvöldi. Islenska liðið var ólíkt því sem það var í leikjunum þremur gegn Rúmenum. Leikmenn virkuðu þreyttir og kærulausir og héldu að þetta kæmi af sjálfu ValurB. sér. Það var einbeit- Jónatansson ingarleysi að missa skrífar leikinn niður í jafn- tefli eftir að hafa náð tveggja marka forskoti þegar þijár mínútur voru eftir. „Strákarn- ir okkar“, eins og við segjum gjam- an þegar vel gengur, eiga að klára svona dæmi, sem er ekki ólíkt því verkefni sem þeir eiga framundan í Tékkóslóvakíu. Svisslendingar leika mjög hægan sóknarleik, svokallaðan „göngu- handbolta" sem er ekki skemmtileg- ur á að horfa. Leikur þeirra er þó árangursríkur og hefur fært þeim marga sigra. Liðið leikur rólega og örugglega fyrir utan og bíður þess að andstæðingurinn þreytist á bið- inni og geri mistök sem þeir síðan nýta sér. Það var einmitt þessi gryfja sem íslenska liðið féll í. íslenska liðið virkaði þungt og leikmenn gerðu alltof mörg mistök maður á móti manni og sóknarleik- urinn var fálmkenndur á stundum. Hornin voru ekki nýtt og var aðeins eitt mark gert úr horni þó svo að þrívegis hafi íslendingar verið ein- B JANOS Csik, landsliðsþjálfari Ungverja, spáir því að Júgóslavía verði í fyrsta sæti C-riðils á heims- meistarakeppninni í handknattleik í Tékkóslóvakíu og „litla ísland" nái öðru sæti í riðlinum. Hann á von á að Spánn komi þar á eftir og Kúba komist því ekki áfram. Þetta kemur fram í viðtali við hann í v-þýska blaðinu Handball Magaz- in. ■ UNGVERJAR, sem urðu í 2. sæti á HM í Sviss fyrir fjórum ámm öllum á óvart, verða án stórskytt- unnar kunnu Peter Kovacs í HM- keppninni. Kovacs, sem orðinn er 35 ára og leikur í vetur með v- þýska liðinu Grosswallstadt, er hættur í landsliðinu. ■ ÖRVHENTA skyttan Janos Gyurka hefur átt við meiðsli í há- sin að stríða undanfarna mánuði, og allsendis óvíst er að hann geti spilað með ungverska liðinu í HM, en hann hefur verið einn oesti mað- ur liðsins síðustu ár. ■ FJÖGURRA landa mót í hand- knattleik fer fram í París um helg- ina, hið árlega Tournoi de París mót. Þar keppa að þessu sinni Frakkland, Svíþjóð, Pólland og Suður-Kórea, sem öll eru að und- irbúa sig fyrir HM í Tékkósló- vakíu. Handknattleikur 16-liða úrslit bikarkeppni kvenna: ÍR—Víkingur................15:33 Knattspyrna Spánn - 1. deild: Real Madrid — Barcelona......3:2 Morgunblaflið/Júlíus Alfreð Gíslason reynir hér að bijótast í gegnum vöm Svisslendinga. Til vamar em Jens Meyer (nr. 14), en hann gerði 11 mörk í leiknum og Martin Rubin. um fleiri. Guðmundur Hrafnkelsson stóð sig best. Alfreð og Sigurður Gunn- arsson áttu nokkra ágæta spretti og Þorgils Óttar og Geir sluppu vel frá sínu. Júlíus Jónason er öryggið uppmálað í vítaköstunum. Kristján Arason meiddist um miðjan fýrri hálfleik - fékk högg á lærið og gat ekki beitt sér mikið eftir það og munar um minna. Það er áhyggju- efni fyrir Bogdan ef Kristján meið- ist því það er enginn sem getur tekið stöðu hans hægra meginn nema þá Sigurður Sveinsson sem er illa fjarri góðu gamni í undirbún- ingi liðsins. „Sviss er með gott lið og það má ekki vanmeta það. Ég hefði þó viljað fá dæmda á þá töf nokkrum sinnum. Það er eins og leikmenn séu einum of ánægðir með leikina á móti Rúmenum og beiti sér ekki sem skyldi. Við verðum að sýna mun betri og agaðari leik annað kvöld [í kvöld] ef við ætlum okkur að sigra,“ sagði Bogdan. 22 : 22 Laugardalshöll, landsleikur í hand- knattleik, fimmtudaginn 15. febrúar 1990. Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 3:3, 4:4, 7:7, 9:9, 11:12, 12:14, 13:14, 16:14, 16:16, 21:19, 22:20, 22:22. ísland: Júlfus Jónasson 5/5, Alfreð Gfslason 4, Héðinn Gilsson 3, Sigurður Gunnarsson 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Jakob Siguðrsson 1, Bjarki Sigurðs- son 1, Kristján Arason 1, Geir Sveins- son 1, Guðmundur Guðmundsson, Óskar Ármannsson, Valdimar Grímsson. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 12 (þar af þtjú til mótherja), Leifur Dagfinnsson. Utan vallar: 2 mínútur. Sviss: Jens Meyer 11/5, Martin Rubin 5/1, Stefan Schárer 4, Hansruedi Schumacher 1 og Urs Eggenberger 1. Varin skot: Peter Húlimann 17 (þar af þijú til mótherja). Remo Kessler. Utan vallar: 6 mfnútur. Dómarar: Rudinsky og Mosa frá Tékkóslóvakfu. Dæmdu illa. Áhorfendur: 1.200. ísland—Sviss KÖRFUBOLTI / BIKARKEPPNI KKÍ Sannfærandi sigur IVIjardvíkinga Njarðvíkingar unnu sannfær- andi sigur á Grindvíkingum, 100:81 í bikarkeppni KKÍ í Ljóna- gryfjunni í Njarðvík í gærkvöldi. í hálfleik var staðan FráBimi 45:35 heimamönn- Blöndal um í vil. Hætt er við íKeflavík að róðurinn verði erfiður hjá Grindvík- ingum og ólíklegt verður að telja að þeim takist að vinna upp 19 stiga forskot Njarðvíkinga. Grindvíkingar áttu á brattann að sækja allt frá upphafi, þeir gerðu mun fleiri mistök bæði í vörn og sókn og slíkt dugar ekki gegn Njarðvíkurliðinu. Patrick Releford átti stórleik með liði UMFN og einnig var Teitur Örlygsson góður og skoruðu þeir 64 stig í leiknum. Hjá Grindvíking- um bar mest á Guðmundi Braga- syni eins og svo oft áður og einnig barðist Hjálmar Hallgrímsson vel. Stig UMFN:Patrick Releford 41, Teitur Örl- ygsson 23, Helgi Rafnsson 10, Friðrík Rúna- rsson 9, Friðrik Ragnarsson 9, ísak Tómasson 6, Jóhannes Kristbjðmsson 2. Stig UMFG:Guðmundur Bragason 27, Ron Davis 14, Hjálmar Hallgrjmsson 13, Steinþór Helgason 11, Rúnar Ámason 9, Marel Guð- laugsson 3, Eyjólfur Guðlaugsson 2, Ólafur Jóhannsson 2. Öruggt hjá KR , KR-ingar sigruðu ÍR-inga nokk- uð örugglega í íþróttahúsi Selja- skólans í gær, 67:90. KR-ingar byijuðu vel og gerðu tólf fyrstu stig leiksins og höfðu forystuna í leikhléi, 33:49. í síðari hálfeik jókst munurinn og KR-ingar í lokin munaði 23 stigum sem ættu að tryggja KR-ingum sæti í undan- Patrick Releford gerði 41 stig fyr- ir Njarðvíkinga í gær. úrslitum en þeir eiga heimaleikinn eftir. Páll Kolbeinsson var stigahæstur í liði KR með 21 stig, Axel Nikulás- son gerði 14 og Matthías Einarsson 13. Thomas Lee gerði 31 stig fyrir ÍR og Márus Árnason 9. Stórsigur Hauka Haukar ættu einnig að vera ör- uggir í undanúrslit eftir stórsigur á B-liði Njarðvíkinga, 64:105. í leik- hléi var aðeins fjögurra stiga mun- ur, 34:38, en í síðari hálfleik beittu Haukar pressuvörn með góðum árangri. KORFUBOLTI Njarðvíkingar vilja ekki að Kristinn dæmi leiki liðsins Við munum skrifa Körfuknattleikssambandi íslands bréf þar sem við óskum þess að Kristinn Albertsson dæmi ekki fleiri leiki hjá okkur í úrvalsdeildinni,“ sagði Gunnar Gunnarsson formaður körfu- knattleiksdeildar UMFN eftir leik Njarðvíkinga og Grindvíkinga í bikar- ■_■■■■ keppni KKl í Njarðvík í gærkvöldi. FráBimi Til harðra orðaskipta kom milli Kristins og Hilmars Blöndal Hafsteinssonar fyrrum formanns körfuknattleiksdeildar IKeflavík UMFN eftir leikinn og eftir þá orrahríð ákváðu Njarðvík- ingar að fara þess formlega á leit við KKÍ að Kristinn dæmdi ekki fleiri leiki hjá liðinu. „Kristinn hefur sýnt það margoft að hann hefur verið sjötti maður- inn í liði KR þegar hann dæmir leiki hjá liðinu. Honum tókst að koma okkur út úr úrslitakeppninni í fyrra og Keflvíkingar væru ekki íslands- meistarar í dag hefði hann fengið að dæma úrslitaleik ÍBK og KR í fyrra,“ sagði Hilmar Hafsteinsson. HANDKNATTLEIKUR „Handbolladag ar í Garðabæ“ Amorgun, föstudag hefst al- þjóðlegt handkjiattleiksmót sem hlotið hefur nafnið „Handbolta- dagar í Garðabæ". Sex lið taka þátt í mótinu; bandaríska landsliðið, íslenska landsliðið skipað leikmönn- um 21 árs og yngri og 1. deildarlið- in KR, Valur, Grótta og Stjarnan. Handknattleiksdeild Stjömunnar stendur fyrir mótinu og er tilgangur þess að skapa verkefni fyrir þá íslensku handknattleiksmenn, sem ekki taka þátt í undirbúningi lands- liðsins fyrir HM. Þá er mótið einnig liður í móttöku bandaríska lands- liðsins, sem dvelur hér í æfíngabúð- um til 22. febrúar. Liðunum er skipt í tvo riðla. í A-riðli leika U-21 árs liðið, Banda- ríkin og Stjaman. í B-riðli leika KR, Grótta og Valur. í kvöld verða fyrstu tveir leikim- ir. Bandaríkin og Stjaman leika í Laugardalshöll kl. 18.00 og KR og Valur leika á sama tíma í Garðabæ.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.